Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1986 fltofgtiiiHafeifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Haldið til vinstri? Astæða er til að vekja athygli á því, að Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, vill eiga hlutdeild í fýlgisaukn- ingu Alþýðuflokksins í kosning- unum á laugardaginn. Svavar túlkar úrslitin á þann veg, að í þeim felist fyrirheit um samvinnu vinstri aflanna, Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Kvenna- lista. í Morgunblaðsviðtali telur formaður Alþýðubandalagsins „eðlilegt og sjálfsagt, að í fram- haldi þessara úrslita leggi félags- hyggjuöfl í landinu, sem einkum er að fínna í Alþýðubandalaginu, Alþýðuflokknum og Kvennalist- anum, áherslu á að vinna meiri- hluta í næstu alþingiskosningum. Ég tel það ekki eins fjarlægan möguleika og áður eftir þessi kosningaúrslit að vinna slíkan meirihluta." Yfirlýsingar Svavars Gests- sonar um að sigur Alþýðuflokks- ins komi Alþýðubandalaginu að notum og sé fyrirheit um vinstri stjórn í landinu hljóta aukið vægi, þegar litið er til þess, að forvígis- menn Alþýðuflokksins til að mynda í Hafnarfírði og Kópavogi leita ekki til neins annars flokks með tilmæii um samstarf en Alþýðubandalagsins. Þá beinist athygli manna að þeirri stað- reynd, að þeir Svavar Gestsson og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, héldu sameiginlegan fund í Siglufírði 1. maí síðastliðinn. Hlýtur að eiga að líta á þá samvinnu í stórpóli- tísku ljósi; styðja orð Svavars Gestssonar nú að kosningum loknum þá skoðun. Atkvæði greidd Alþýðuflokknum eru að hans mati stuðningur við vinstri stjórn í landsmálum. Morgunblaðið dregur í efa, að þeim, sem greiddu Alþýðuflokkn- um atkvæði í sveitarstjómar- kosningunum, hafí verið það almennt ljóst, að þeir voru að votta Svavari Gestssyni og Al- þýðubandalaginu traust í lands- málum. Miklu líklegra er, að háttvirtir kjósendur hafí verið með hugann við bónorð Jóns Baldvins Hannibalssonar, for- manns Alþýðuflokksins, til sjálf- stæðismanna. Af því, sem Jón Baldvin hefur sagt, eftir að hann var kjörinn formaður Alþýðu- flokksins, sitja þau orð hans áreiðanlega helst eftir í huga almennings, að Alþýðuflokkurinn eigi að setjast með Sjálfstæðis- flokknum í ríkisstjóm. Nú eftir kosningar er komist þannig að orði í forystugrein Alþýðublaðsins: „í framhaldi af þessum kosningum þurfa verka- lýðssinnar og jafnaðarmenn inn- an Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags að auka samstarf sín á milli.“ Sú spuming vaknar, hvort Jón Baldvin Hannibalsson sé þessarar skoðunar? Sé svo, á hann að segja kjósendum AI- þýðuflokksins það umbúðalaust, að atkvæði greitt flokknum sé stuðningur við Svavar Gestsson og Alþýðubandalagið. Annað er óheiðarlegt. Sé hreyfing atkvæða í sveitar- stjómarkosningunum 1982 og nú skoðuð, kemur í ljós, að Alþýðu- flokkurinn hefur tæplega endur- heimt fylgið, sem hann missti þá. 1982 tapaði Alþýðuflokkurinn 4,9% af heildarfylgi sínu en jók það nú um 4,7%. Alþýðubanda- lagið fór á hinn bóginn þannig út úr kosningunum 1982, að það tapaði 6,8% af heildarfylgi en jók það nú um aðeins 1,8% (Kvenna- listinn tapaði 1,9% núna). Af þessum tölum er ekki unnt að draga þá ályktun, að kjósendur hafí verið að stíga afgerandi skref til vinstri á laugardaginn. Þeir hefðu þá streymt til þeirra flokka, sem þora að flagga vinstri stefnu jafnt fyrir og eftir kosn- ingar: Alþýðubandalagsins og Kvennalistans. Kjósendur Alþýðuflokksins eiga heimtingu á því, að forystu- menn flokksins taki af allan vafa um það, hvort Svavar Gestsson talar fyrir munn þeirra, hann telur það „eðlilegt og sjálfsagt", að atkvæði greidd Alþýðuflokki séu atkvæði greidd vinstri stjóm. Dræm kjörsókn Aundanfömum fímmtán ámm hafa kjósendur sýnt því síminnkandi áhuga að greiða atkvæði í sveitarstjómarkosning- um. Kjörsóknin var til að mynda 89,1% í kosningunum 1970 en 82,35% á laugardaginn. Tölur sýna að hún hefur dregist jafnt og þétt saman. An athugana er ekki unnt að fullyrða neitt um það, sem hér er að gerast. Em tengsl á milli þessara talna og hins háa hlut- falls fólks, sem tekur ekki afstöðu í skoðanakönnunum? Hafði hinn mikli fjöldi nýrra kjósenda að þessu sinni ekki áhuga á að nota rétt sinn? Er minni áhugi á sveit- arstjómarmálum en landsmálum? -Höfða flokkamir ekki þannig til fólks, að það veki sama áhuga og áður á að taka afstöðu til þeirra? Þessum spumingum er ekki unnt að svara. Þeim er varpað fram til íhugunar. Könnun, sem gerð var fyrir Morgunblaðið, á afstöðu fólks til stjómmálamanna og kynnt var sl. haust, sýndi, að þeir, sem kjömir hafa verið til trúnaðarstarfa njóta minna álits en ætla mátti. Dræm kjörsókn á kannski einfaldlega rætur að rekja til þess, að menn hafa lítinn áhuga á stjómmálum eða þeim, sem við þau fást. Bandarí ski flotii stendur á tímam Deilt um gildi flugmóðurskipa á norðurslóðum Arásir flugvéla frá 6. flota Bandaríkjamanna á Libýu hafa enn á ný leitt í Ijós herfræðilegt mikilvægi þess að ráða yfir öflugum flota. Þær bera einnig vott um þá breytingu tU batnaðar sem orðið hefur á Bandaríkjaflota i stjómartíð Ronalds Reagan, forseta. Á siðasta áratug átti flotinn mjög undir högg að sækja. Tækjabúnaður var lélegur, agi lítill og fíkniefnaneysla algeng meðal sjóliða. Nú hafa sjóliðarnir fyllst stolti og baráttuanda, þar sem flotanum hefur nú aftur verið fengið ákveðið hlutverk. Þessar breytingar vom í raun óhjákvæmilegar. Óljós stefna stjórnar Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseta, í öryggismálum hafði alvarlegar afleiðingar fyrir flotann. Þá má þakka John Lehmxn, flotamálaráðherra, sem er aðeins 43 ára gamall, þann ferska anda sem nú leikur um flota Bandaríkjamanna. í Vietnamstríðinu réð bandaríski flotinn yfír rúmlega 1.000 skipum en ánð 1980 hafði þeim fækkað í 480 skip. Mörg þeirra höfðu verið byggð á árum seinni heimsstyijald- arinnar. Nauðsjmlegri endumýjun hafði verið frestað og varahluta- og skotfærabirgðir voru mjög tak- markaðar. Siðferðisþrek áhafnanna var í lágmarki. Fyrir kom, að skip gátu ekki haldið úr höfn, þegar skipun kom, ýmist vegna þess að sjóliðamir vom ekki í ástandi til þess að halda á haf út eða sökum ólgu og óánægju um borð í skipun- um. Þegar Reagan forseti tók við völdum árið 1981 og kvaðst stað- ráðinn að „gera Bandaríkin aftur öflug“ höfðu yfírmenn flotans og þó einkum John Lehman tilbúna áætlun um það hvemig svara ætti kallinu. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir, að í Bandaríkjaflota yrðu 600 skip. Þessi áætlun kom fram á réttum tíma. Bandaríkjaþing samþykkti hana hikstalaust. Auk- inn áhugi stjómvalda á flotanum varð til þess að efla baráttuþrek sjóliðanna. Lehman tók snemma að móta nýjar herfræðilegar áætlanir, þótt lögum samkvæmt sé það ekki á verksviði ráðherra. Nýjar hug- myndir um aukin umsvif flota Bandaríkjamanna á norðurslóðum, þ.e. á Noregshafí og Norður- Atlantshafí, em kenndar við Leh- man. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir, að nokkur bandarísk flugvéla- Norðursjór DANMÖRK PÓLLAND Varsjá Poznan BRETLAND Birmingham HOLLAND A-ÞYSKA- LAND London • TÉKKÓSLÓVAKlA V-ÞYSKALAND UNGVERJA LAND "AUSTURRIKI SVISS Feneyjar./ VIÐTÆK FLUGMOÐURSKIP Af þessari skýringarteikningu sést, að nútíma floti flugmóðurskipa spannar yfir gífurlega stórt svæði. Hér er tekið mið af tveimur flugmóðurskipum, sem hefur verið valinn staður í Evrópu. Kjarni flotasveitarinnar er í London: Varnar-flugvélar yrðu þá yfir Norð- ursjó og nálægt Sedan í Frakklandi, fylgdar- herskip yrðu á svæði sem næði frá Lille til Birmingham. Sóknar-flugvélar létu til sín taka í nágrenni Feneyja og Poznan í Póllandi sviþjóð SOVET RÍKIN IRLAND FLUGMÓÐURSKIP LOFTVARNARSKIP VARNAR-VÉLAR ORRUSTUVÉLAR LOFTÁRÁSIR FRAKKLAND JÚGÓSLÓVAKIA CONOMIST 500 km Heirnild: The ECONOMI 19-25/4 1986 Morgunblaðið/Helena „Ykkur vantar bílstjóra st.ákar mínir?“ kaUaði þessi húfuklæddi maður sem sést á myndinni um leið og hann stökk um borð í heldur óvenjulegt fley, sem stal senunni þegar kappróður stóð sem hæst i höfninni á Fáskrúðsfirði á sjómannadaginn. Menn vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar gömlum fólksvagni var siglt tígulega um hafnarmynnið. Tveir ungir hugvitsmenn reyndust hafa sett botn í hús bílsins og þétt svo vel að fólksvagninum má sigla hvert á land sem er. Meira um sjómannadaginn á Fáskrúðsfirði inni í biaðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.