Morgunblaðið - 04.06.1986, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1986
Ályktun verkamannafélagsins Hlífar:
Kjarasamningamir duga
ekki til framfærslu
þeirra lægst launuðu
AÐALFUNDUR Verkamannafé-
lagains Hlífar i Hafnarfirði
ályktaði svo á aðalfundi sínum i
siðustu viku að kjaraaamningar
verkalýðshreyfingarinnar frá
því í febrúar á þessu ári væru
hvergi nærri þvi markmiði að
hver einstakur launþegi gæti
sómasamlega fleytt sér fram af
dagvinnutebjum sínum.
I fréttatilkynningu frá félaginu
segir að þeim lægst launuðu sé
ætlað að lifað við slfk kjör að jafn-
vel laun tveggja dugi ekki til að
framfæra meðalstórri flölskyldu.
Það er því af þessum orsökum sem
verkamannafélagið Hlíf mun reyna
að fá laun félagsmanna sinna
hækkuð, og þeirra mest er lægst
hafa launin. Mun félagið ætla f
samstarfi við önnur verkalýðsfélög
f Hafnarfirði að reyna að ná samn-
ingum við Hafnarfjarðarbæ sem
yrðu svipaðir þeim sem gerðir voru
í Bolungarvík. Segir f fréttatilkjmn-
ingunni að slíkur samningur gæti
verið stórt skref í þá átt að ná
mannsæmandi launum almennnt
hjá láglaunafólki.
Verkamannafélagið Hlíf skorar
því á nýkjöma bæjarfulltrúa Hafn-
arfjarðar að láta það verða eitt sitt
fyréta verk að semja við verkalýðs-
félögin í bænum um verulegar
kjarabætur.
Húsmsæðraskólinn Laugarvatni:
Skólanefnd fordæmir
vinnubrögð ráðherra
VEGNA ákvörðunar Sverris
Hermannssonar menntamálaráð-
herra um að leggja niður hús-
mæðraskólann á Laugarvatni vill
Þórarinn Siguijónsson formaður
skólanefndar koma á framfæri
eftirfarandi leiðréttingu á um-
mælum ráðherrans.
„í Morgunblaðinu sunnudaginn
1. júní er haft eftir menntamálaráð-
herra Sverri Hermannssyni að á
liðnum vetri hafi aðeins 7 náms-
meyjar verið í skólanum að Laugar-
vatni en hið nýja og stóra húsnæði
skólans rúmi 80 nemendur. Hér er
Hests saknað
LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir
nú eftir hesti, sem saknað hefur
verið siðan í síðustu viku. Þeir,
sem kunna að hafa orðið hans
varir, eru vinsamlegast beðnir
að láta lögregluna vita af því.
Hesturinn, sem lýst er eftir, er
flögurra vetra foli, dökksteingrár,
ómarkaður, grannur og í meðallagi
stór. Hann var jámaður á báðum
vinstri fótum. Hesturinn var ásamt
sjö öðrum hrossum í hóp neðan við
Kiðafell við Vesturlandsveg og
hefiir verið saknað síðan á miðviku-
dag í síðustu viku.
ráðherrann að fara með rangar
upplýsingar sem virðast vera úr
Iausu lofti gripnar. Hið sanna er
að fyrir áramót, frá því skólinn tók
til starfa 1. október og fram að
jólum, voru 23 námsmeyjar í skól-
anum. Eftir áramótin komu 16
nemendur í skólann og af þeim luku
prófi í vor 10. Auk þess kenndu í
vetur eins og á undanfömum ámm
kennarar hússtjómarskólans nem-
endum úr öðmm skólum á Laugar-
vatni heimilisfræðsiu. Vom það í
vetur milli 50 og 60 nemendur.
Ekki er minni firra borin fram
um stærð skólans þar sem skólinn
er ætlaður fyrir 54 nemendur og
hefur aldrei verið lokið við byggingu
hans. Þá skal það einnig tekið fram
að neðri hæð heimavistarálmu skól-
ans og einnig ein kennslustofa skól-
ans hefur um árabil verið leigð
Iþróttakennaraskóla íslands á
Laugarvatni til afnota fyrir hluta
af nemendum hans.
Að lokum fordæmir skólanefnd
hússtjómarskólans og mótmælir
harðlega vinnubrögðum ráðherrans
að hann geti lagt niður skólastarf
í hússtjómarskóla Suðurlands á
Laugarvatni án samráðs við skóla-
nefnd og meðeigendur ríkisins að
skólanum og vitnar til laga um
húsmæðrafræðslu."
Stjúpsystur, Guðrún Alfreðsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Saga
Jónsdóttir, i gömlum búningi. Koma þær fram í þessu úrelta gervi
eða tekst þeim að snúa á forstöðukonuna Henríettu?
Klúbbur Listahátíðar:
Stjúpsystur skemmta í kvöld
HLJÓMSVEIT, skipuð Pétri Grét-
arssyni, Stefáni Stefánssyni, Tóm-
asi R. Einarssyni og Friðrik E.
Karlssyni, leikur í Klúbbi Listahá-
tíðar í kvöld. Klúbburinn er á Hótel
Borg og verður hann opnaður ld.
22.30. Klukkustund síðar koma
Stjúpsystur fram á sviðið og er
skemmtidagskrá þeirra með revíu-
sniði. Að öðm leyti segir forstöðu-
kona klúbbsins listrænan stfl Stjúp-
systra minna á Andrews-systur sem
heimsfrægar vom á sinni tíð og
hina íslenzku keppinauta þeirra,
Öskubuskur.
MorgunblaM/Sigurgeir
Hið nýja félagsheimili Skátafélagsins Faxa i V estmannaeyj um og Hjálparsveitar skáta.
Skátaheimili vígt í Eyjum
FÉLAGSHEIMILI Skátafélagsins
Faxa og Hjálparsveitar skáta í
Vestmannaeyjum verður vfgt
laugardaginn 7. júní klukkan 5.
Félagsheimilið hefur verið í bygg-
ingu á undanfömum þremur
ámm, en í þvf verða miðstöð hjálp-
arsveitarinnar og skátafélagsins,
skrifstofur og fundarherbergi. Þá
verður félagsheimilið farfiigla-
heimili á sumrin þar sem nær 100
manns geta gist. Húsið er 675
fermetrar að stærð, en samkomu-
salurinn í húsinu er 135 fermetr-
ar. Mikil sjálfboðavinna hefur
verið unnin við byggingu hússins.
Nokkrir skátanna sem voru að vinna f nýja félagsheimilinu þegar Morgunblaðsm<
lenn bar að garði.
Aðalfundur Dagsbrúnar ályktar:
Brýnt að verkalýðsflokk-
arnir gangi til samstarfs
í ÁLYKTUN sem aðalfundur verkamannafélagsins Dagsbrúnar sendi
frá sér segir að við næstu samninga verði að meta vandlega niður-
stöður kjarasamninganna og draga lærdóm af því sem miður hefur
farið. Reyna verður til þrautar þá tilraun sem hafin var með siðustu
samningum, þó með nýjum áhersluatriðum.
í ályktuninni segir að við breyt-
ingu á launakerfínu verði að búa
svo um hnútana að ínnbyrðis launa-
hlutföll breytist þannig að lægstu
laun hækki sérstaklega mikið. Gera
verður þá kröfu til atvinnurekenda
að kaupmáttur launa verði meiri á
næsta ári en á yfirstandandi ári.
Þá verður einnig að gera þá kröfu
til hins opinbera að það auki kaup-
mátt launa sérstaklega_ með eftir-
farandi aðgerðum: Útflutnings-
bótum á búvörum verði hætt og
niðurgreiðslur auknar. Lækkaðir
verði skattar og útsvar af lægri
tekjum og hæsta skattprósenta
byrji við hærri tekjur en nú. Gjöld
vegna bamagæslu, strætisvagna,
notkun rafmagns og síma verði
lækkuð og heilbrigðisþjónusta verði
aftur ókeypis. Þá verði trygginga-
kerfínu gert kleift að mæta erfíð-
leikum barnafjölskyldna með hækk-
un bóta eða sambærilegum aðgerð-
um. Á þennan hátt verður með
sameiginlegu átaki reynt að ná
nýjum áfanga í hærra kaupmáttar-
stigi án vaxandi verðbólgu og aukn-
ingar erlendrar skuldasöfnunar.
I niðurlagi ályktunarinnar segir
að verkalýðshreyfingin geri sér
grein fyrir því að það séu takmörk
fyrir því hversu Iengi sé hægt að
semja um þætti sem þessa þegar
um er að ræða ríkisstjóm sem
stefnir að þjóðfélagsgerð sem í öll-
um megin atriðum er andstæð
hefðbundnum hugsjónum verka-
lýðshreyfingarinnar. Það er því
mjög aðkallandi að verkalýðsflokk-
amir tveir gangi til samstarfs fyrir
næstu alþingiskosningar til að
styrkja málstað verkalýðshreyfing-
arinnar í þjóðmálabaráttunni. Þess
vegna skorar aðalfundur Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar á
verkalýðsflokkana að ganga þegar
í stað til viðræðna um nánara
samstarf.