Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986 39 fylgst með baráttu hennar við erfíð- an sjúkdóm um þriggja ára skeið, en á síðustu dögum var ljóst að hveiju fór. Anna Margrét Bjömsdóttir fæd- dist í Reykjavík þann 16. aprfl 1946. Hún lauk kennaraprófi frá Kenn- araskólanum vorið 1967. Árið áður giftist hún skólabróður sínum, Omari Ingólfssyni. Þau eignuðust einn son, Jón, sem nú er 10 ára að aldri. Heimili Önnu og Ómars að Hlíðarbyggð 13 í Garðabæ ber samheldni þeirra og listrænni smekkvísi glöggt vitni. Árið 1973-1974 stundaði Anna framhaldsnám í sérkennslufræðum við Kennaraháskólann og helgaði sig þaðan í frá því verkefni. Ánna réðst kennari að Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskólans haustið 1976 og starfaði við skólann meðan kraftar leyfðu, síðast í jan- úar og febrúar á þessu ári. Anna veitti lesveri skólans for- stöðu og mótaði verulega starfs- hætti þess. Eftir að hún var ráðin sem æfingakennari við skólann kenndi hún að hluta við Kennarahá- skólann. Um eins vetrar skeið gegndi hún starfi æfingastjóra, skipulagði og stýrði æfíngakennslu kennaranema. Lífsorka og lífsgleði ólguðu í fasi Önnu Grétu. Tindrandi brún augun, full af hlýju, með örlitlum stríðnis- glampa og dillandi hlátur hrifu til samstarfs bæði böm og fullorðna. f dagsins önn birtust skýrt eðlis- kostir hennar, umhyggja og hrein- lyndi, í öðrum verkum reistum á traustri þekkingu og íhygli. Fáir kunnu henni betur að deila tíma sínum og atorku milli ijölskyldu, starfs og margvíslegra hugðarefna. Kennsla er kreQandi starf og vandasamt, þar veldur hver á held- ur. Eitt sérkenni starfsins er að kennari er tiltölulega einangraður frá öðmm fullorðnum. Umbun honum til handa og viðurkenning á því sem vei er gert kemur einkum frá nemendum. Anna Gréta lagði áherslu á það í starfi sínu að efla og auka samstarf meðal kennara og sameiginlega ábyrgð þeirra á verkum sínum. Sjálf naut hún þess að eiga nána samverkamenn og vini í lesverinu. Síðustu árin var Rannveig Jóhanns- dóttir hennar nánasti samstarfs- maður og ég veit að vinátta þeirra var Önnu ómetanlegur styrkur. Kennari fær því aldrei leynt hvem mann hann hefur að geyma, því kennsla er í því fólgin að gefa af sjálfum sér. Böm og unglingar fínna glöggt af innsæi sínu hvað þar er satt og einlægt. Eftirvænt- ingin sem lesa mátti úr augum bama á leið í lesverið til fundar við Önnu segir allt sem máli skiptir um hvers virði þeim vom samfundir við hana. í dag sitja báðar að völdum, sorgin og gleðin, og fer sorgin fyrir. Svo mun enn um stund. En við vitum, að um síðir víkur sorgin og eftir ríkir þakklát gleði yfir því að eiga hjartfólgna minningu um Önnu Grétu. Við samstarfsfólk og vinir henn- ar sendum Ómari og Nonna einlæg- ar samúðarkveðjur. Ólafur H. Jóhannsson Við fráfall elskulegrar vinkonu okkar, Önnu Margrétar Bjöms- dóttur, reikar hugurinn aftur til áranna um 1960, áranna í Haga- Hjónaminning: Guðjón Jóhannsson og Jónína Þ. Ámadóttir Guðjón Jóhannsson var fæddur 4. júní 1886 á Amarstöðum í Helga- fellssveit. Hann hefði því orðið 100 ára í dag, 4. júní, hefði hann lifað. Hann lést 5. október 1973. Jónína Þorbjörg Ámadóttir var fædd 23. mars 1891 að Miklaholti í Miklaholtshreppi. Móðir hennar var dótturdóttir Þorleifs heitins Þorleifssonar I Bjamarhöfn, hins dulskyggna. Jónína lést 7. júní 1980. Hún hefði því orðið 95 ára á þessu ári. Jónína og Guðjón gengu I hjóna- band 1912 og bjuggu lengst af á Hofstöðum í Helgafellssveit, einnig vom þau búsett í Stykkishólmi og síðustu árin í Reykjavík. Þau eign- uðust átta böm, af þeim komust fimm til fullorðinsára: Berta, Gunn- ar, Anna (lést 29. apríl sl.), Ámi og Kristrún svo og fósturdóttir Sól- veig Eiríksdóttir. B.G.H. T Lionsklúbbur Hafn- arfjarðar 30 ára LION SKLÚBBUR Hafnarfjarð- ar átti 30 ára afmæli 14. apríl siðastliðinn. Klúbburinn var stofnaður að tilhlutan Alberts Guðmundssonar og var Axel Kristjánsson fyrsti formaður hans. í starfi sínu hefur félagið lagt megináherslu á uppbyggingu bamaheimilis fyrir þroskahefta í Hafnarfírði. Einnig hefur félagið styrkt ýmis félög og einstaklinga í bænum, má þar nefna St. Jósefs- spítala og hjálparsveit skáta. í tilefni afmælisins hefir verið gefið út veglegt afmælisrit. skóla. Þá bundumst við fimm skóla- systur vináttuböndum sem hafa tengt okkur saman æ síðan. Þrátt fyrir tímabundinn aðskilnað vegna búsetu okkar erlendis rofnaði þó aldrei sambandið við Önnu Grétu; styrktist frekar eftir því sem árin liðu. Við minnumst margra ánægju- stunda sem við áttum með henni, bæði á unglingsárunum og síðar, eftir að við vinkonumar höfðum eignast böm og eiginmenn. Anna Gréta giftist Ómari Ing- ólfssyni, forstöðumanni Hugbúnað- arsviðs Skýrsluvéla ríkisins, og eignuðust þau eitt bam, Jón Guðna, sem nú er 10 ára. Fjölskyldur okkar komu oft saman og nutu samvistanna. Sein- ast var það í lok febrúar síðastlið- inn, að við hittumst á heimili Önnu Grétu og Ómars, þar sem hún var að vanda hress og kát og hrókur alls fagnaðar. Anna Gréta lauk námi frá Kenn- araskólanum í Reykjavík og stund- aði kennslustörf af miklum áhuga, enda voru kennslu- og uppeldismál henni afar hugleikin. Það vildi svo til, að í hópi okkar fimm skólasystr- anna úr Hagaskóla og eiginmann- anna, vom sex kennaramenntaðir, svo kennslumál vom eðlilega oft á dagskrá. Hún ræddi uppeldismálin af mikilli alvöm og víðsýni og sá alltaf fram á betri tíð. Þessi bjart- sýni, sem fylgdi óbilandi viljastyrk- ur, var það sem einkenndi hana við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Það er sorglegra en nokkur orð fá lýst að horfa á unga konu í blóma lífsins, fulla af lífsgleði og starfs- orku, láta undan afli þess sjúkdóms, sem læknavísindin hafa enn svo fá ráð við. Anna Gréta hélt reisn sinni þar til yfir lauk og var það að- dáunarvert hversu róleg og skyn- söm hún var, þrátt fyrir vitneskju um hvert stefndi. Megi góður Guð gefa þeim feðg- um, Omari og Nonna, móður henn- ar, bróður og fjölskyldum þeirra, styrk á þessari erfiðu stund. Um leið og við vottum þeim öllum okkar dýpstu samúð kveðjum við Önnu Grétu og þökkum henni samfylgd- ina. Sigrún Sveinsdóttir, Svanhildur Sigurðardóttir. Það fer fyrir mér eins og sjálfsagt mörgum öðmm, að ná illa tökum á orðum þegar hugur er í uppnámi og sársauki hvflir sem bjarg hið innra. Það á þó illa við að ég láti bugast af slíku þegar ég kveð, fátæklegum orðum, mína góðu vinkonu og nán- asta vinnufélaga, Önnu Grétu. Sárt var að fylgjast með því hvemig banvænn sjúkdómur tók miskunnarlaust völdin í líkama sem var svo ungur, í hug sem var svo kjarkmikill og þroskaður. Hví þarf Anna Gréta að deyja svo ung? Hún sem var svo lífsglöð og glæsileg fyrirmynd manna. Svör em engin. Raunvemleikinn er hins vegar ískaldur. Hún er horfin aug- um okkar. Undir þann harða dóm beygir sig aum stúlka með hrópandi huga um tilgang lífs á jörð. Þegar ég byijaði kennslu við Æfínga- og tilraunaskóla Kennara- háskólans var Anna Margrét yfir- maður sérkennslu við skólann. Á hennar herðum hvfldi stjómun sér- kennslunnar og skipulag. Ég man vel hvemig hún tók á móti mér, nýjum liðsmanninum. Þá strax leyndust ekki sterk persónueinkenni hennar, hlýtt og glaðlegt viðmót, röskleg framganga, víðsýni í hugs- un og hrein og bein samskipti. „Við þurfum um margt að tala.“ Þannig man ég að Anna Gréta lauk fyrsta samtali okkar. Það reýndust orð að sönnu sem áttu vel við þau sjö ár sem við unnum saman. í krefjandi starfi er mikið lán að eiga að þann samstarfsmann sem auðvelt er að deila með áhyggjum, spumingum og gleði. Hvað það er í fari fólks sem laðar aðra að því er mismunandi eftir einstaklingum. Anna Gréta var leiðtogi, ótvírætt en yfirlætislaus. Við hin löðuðumst að henni og sóttumst eftir áliti hennar á flestum málefnum. Það var því sjálfsagt að einmitt henni voru falin fjölmörg trúnaðarstörf innan skólans. Við Anna Gréta brölluðum margt. Nú er ómetanlegt að láta hugann reika því minningámar em skýrar og sumar bráðfyndnar. Við settum okkur það markmið eitt árið að hafa það skemmtilegt. Við hlóg- um dátt að þessu og ég játa að okkur þótti markmiðið bæði eftir- sóknarvert óg býsna frumlegt. Það var mjög auðvelt fyrir mig að hafa það skemmtilegt nálægt Önnu Grétu, hvort heldur það var í kröfuhörðu starfi eða utan þess. Ríkt hugmyndaflug og fjölhæfni Önnu Grétu nutu sín vel hvort sem var með nemendum í kennslu eða í öðrum störfum. Hún var ein þeirra sem allir hlutir léku í höndunum á. Það skipti ekki máli hvort verkefnið var námsefnisgerð fyrir ólíka nem- endur með mismunandi námsþarfir, samneyti við kennara úti í skólum eða kennaranema, hönnun fatnaðar eða að sauma hústjöld. Framkoman var alúðleg. Hand- bragð hennar þannig að listhneigð, fæmi og smekkvísi nutu sín vel. Og í öllu sat vandvirknin í fyrirrúmi. Það er ótrúlegt til þess að vita að fárveik afrekaði hún að sauma mynd sem hafði að geyma hvatn- ingarorð hennar sjálfrar. Þessa mynd færði hún starfsfólkinu sem annaðist hana að gjöf. Þær eru ófáar stundimar sem ég og fjölskylda mín nutum gestrisni Önnu Grétu, Ómars og Nonna á hlýlegu og fallegu heimili þeirra. Tilefni heimsókna var margvíslegt: kræklingaleit í §öm, afbragðs kvöldverður, þar sem Ánna Gréta bar á borð forvitnilegar krásir, rabb eftir leikhúsferð eða einungis óvænt innlit til vina sem svo gott var að hitta. Það var ekki bara vegna þess að vel fór um okkur í mjúkum stól- unum, að við gerðum okkur oftast sek um að dvelja lengi og skrafa margt. Stundum er erfitt að ijúfa samverustund. Þegar litið er til baka og minn- ingar liðinna ára birtast sem leiftur í huganum, hvflir einn skuggi yfir. Það er sú minning þegar við starfs- félagar vissum að Anna Gréta þurfti óvænt að gangast undir mikinn uppskurð, rétt eftir að skóla lauk að vori. Þau þijú ár sem liðin em höfum við fylgst með duttlung- um óvægins sjúkdóms reyna á kjark mikillar konu. Sveiflur hans til vonar eða vonbrigða vora miklar og kvalafullar. Það veit sá einn sem reynir. Anna Gréta bar svo sterka trú um von til lífsins, að hún gat meira að segja deilt með sér af lífsþrótti sínum, til okkar sem hjá stóðum. Það gleymist engum okkar sem umgengumst hana þennan sárs- aukafulla tíma. Það er verðmæt gjöf að eiga þess kost að njóta samvista við manneskju sem er gædd mannkost- um í slíkum mæli eins og Anna Gréta. Að samvistimar urðu ekki lengri fengum við engu um ráðið. Ég og fjölskylda mín fæmm þér Ómar, kæri Nonni og öllum ástvin- um dýpstu samúðarkveðjur í óbæri- legri sorg. Það er þungt högg að hljóta, að fá ekki lengur að njóta sín sem blíð- asta móðir, sem hæfði Önnu Grétu svo vel. Að fá ekki lengur að taka þátt í lífi þeirra sem kærastir em. Kjarkur hennar og þol fram á síðustu stund í baráttunni við að halda lífi verða kraftur dýrmætrar minningar minnar um Önnu Grétu. Hún gaf svo mikið, hún Anna Gréta. Ég þakka henni fyrir alit. Rannveig A. Jóhannsdóttir Hinlangaþrauterliðin nú loksins hlaustu fiiðinn, ogallterorðiðrótt (Vald. Briem.) Fátt hryggir okkur mannfólkið meira en fráfall góðs vinar. Við stöndum máttvana gagnvart þeirri staðreynd að Guð einn ræður gangi lífsins. Við spyijum okkur hvers vegna hún? Hluti svarsins er trúlega sá að þeir sem guðimir elska deyja ungir. Að minnsta kosti trúum við því, félagamir í JC Görðum, sem sitjum hér saman og reynum að sætta okkur við þá staðreynd að hún Anna Gréta sé farin frá okkur í bili. Hún sem allt virtist leika í höndunum á. Allt sem hún tók sér fyrir hendur, sagði og gerði, virtist okkur fullkomið, sjaldan eða aldrei sagði hún nei, þegar verk þurfti að vinna og allt virtist svo innilega einfalt hjá henni, þó okkur hafi vaxið það í augum. Anna Margrét gerðist félagi í JC Görðum árið 1980 og var ávallt einn ötulasti og virkasti maður fé- lagsins. Framlag hennar var ætíð til fyrirmyndar. Áð leiðarlokum kveðjum við góða vinkonu og biðjum henni blessunar Guðs. Einnig þökkum við fyrir allar góðu samverastundimar. Kæm feðgar, Ómar og Jón Guðni, við vottum ykkur okkar dýpstu og innilegustu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í mikilli sorg. Blessuð sé minning hennar. Farþúífriði, friðurGuðsþigblessi, hafðu þökk fyrir allt og allt GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (Vald. Briem.) Félagar í JC Görðum Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minniagargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Megin- regla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gjldir sú regla, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.