Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986
45
\Ml?akandi
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
mumssL'~'
„Betra að vera óánægð-
ur maður en ánægt svín“
Undirrituð var að lesa 2 bindi
bókar Vilmundur Jónssonar þing-
manns og landlæknis „Með hug og
orði“. Margt er þar viturlegt og
fróðlegt að finna t.d. eftirmæli í
fyrra bindi, um konuna frá
Hvammskoti sem bjargaðist á heim-
leið frá kirkju 1874, en tvö systkin
hennar drukknuðu í læk. I öðru
bindi er m.a. fyrirlestur sem heitir
„Að kunna að drekka." bls. 59.
Talar Vilmundur um hófdrykkju
svokallaða og skýrir merkilegar
rannsóknir lækna, háskólakennara
og vísindamanna í því sambandi
bæði á dýrum og mönnum.
Of langt er að segja frá rann-
sóknum þessum og niðurstöðum
þeirra, en sjálfur segir Vilmundur
„Mér verður spum: Er hann til þessi
gullni meðalvegur í áfengisnautn,
þessi hálfdrykkja sem er aðeins til
góðs en sakar ekki?“ Ekki svarar
Vilmundur þessu sjálfur heldur
skýrir frá svari vísindamannanna.
En Vilmundur segir frá eigin
bijósti að lokum: „Eitthvert æðsta
vit, sem manninum er gefið, er að
geta dæmt sjálfan sig og meta rétt.
Það virðist svo sem áfengið leiti
einmitt uppi æðstu svið skynsem-
innar til þess að spilla þeim. Og svo
mikið er víst, að jafnvel eftir hina
minnstu skammta verða menn sér-
staklega varir við það, að dóm-
greind þeirra á sjálfum sér og
gerðum sínum bilar og lamast.
Þessi lömun lýsir sér hér um bil
ævinlega í sjálfsánægju og tilfinn-
ingu fyrir yfírburðum sínum. Og
það er þetta, sem mörgum fínnst
svo eftirsóknarvert.
Enginn vill þó sjálfráður kaupa
þessa ánægju fyrir ofdrykkju. Galla
hennar sjá allir — nema ekki ævin-
lega ofdiykkjumennimir sjálfir. En
skaðsemi hófdrykkjunnar leynist
meira fyrir mönnum og margur
góður maður heldur, að gallar
hennar séu engir. Henni fylgi
ánægjan tóm.
Ég læt það liggja milli hluta,
hvort þessi drykkjuánægja er
mönnum samboðin, eftir að þeim,
er orðið ljóst, að hún er tóm blekk-
ing og í rauninni hálf ógeðsleg
blekking. Stuart Mill hefir sagt um
þetta, að það sé betra að vera
óánægður maður en ánægt svín.
Hin skaðlegu áhrif áfengisins
bæði á líkamlegt og andlegt heil-
brigði manna, sýna við fyrstu til-
raunimar, sem ég hef lýst, þó að
lítils sé neytt af því, þá sýni þessi
skaðlegu áhrif sig — og það greini-
lega.
Niðurstaðan af þessu verður
ómótmælanlega sú, að það er gömul
bábilja og kerlingabók, að nokkur
hófdrykkja sé til, sem er skaðlaus.
Og þá fer að vera heimskulegt
skrafið um að kunna að drekka,
þ.e. að drekka, án þess að nokkuð
saki og fljótfæmislegt og fávíslegt
af þeim foreldrum, sem vilja böm-
um sfnum vel, að óska þeim til
handa, að þau læri þá list. Því sú
listerekkitil.
Ef nokkur er hér inni, sem hefír
óskað þess, ætti hann að hætta
því, en óska hins með okkur og
vinna að því með okkur, að bömin
okkar læri að drekka ekki.
í erindinu sem ég fór með áðan
talar Hannes Hafstein um smána
guðsgáfu. Engin gáfa, sem mönn-
unum er gefin, er dýrmætari og
æðri en heilbrigt vit og óbijáluð
skynsemi. Við höfum séð, að hinir
smæstu áfengisskammtar — hin
sérstaka hófdrykkja — lamar vitið
og skynsemina að miklu leyti. Það
er þessi æðsta gáfa mannsins, sem
ósæmilegt er að smána.
Heilsuverndarhjúkrunarkona
6372-3495
Þakkir
tilSÁÁ
Kristinn Jónsson skrifar:
Fyrir nokkmm árum vom sent út
tíl landsmanna happdrættismiðar
SÁÁ, sem átti að vera til byggingar
sjúkrastöðvar að Vogi, þessi hugsun
kom upp í huga minn nú fyrir
stuttu, þegar ég fór með son minn
til meðferðar á sjúkrastöð SÁÁ. Þá
kom ég þar í anddyrið og sá bygg-
inguna úr nálægð og spurði sjálfan
mig: Hvert hefði ég getað farið?
Hefði sjúkrastöð þessi ekki verið
byggð.
Þeir menn sem þá vom f stjóm
SÁÁ, og nú eiga þakkir skilið, fyrir
mikinn dugnað .og bjartsýni. Það
veit enginn hvenær þarf að fá hjálp
fyrir nánustu ættingja, út úr þeim
ljóta heimi sem fylgir áfengi og
vímuefnum.
Hjálpin sem þá þarf að sækja
verður sótt til SÁÁ, þeirra sem
hafa verið í sukkinu og svínaríinu
og þekkja hörmungamar úr ná-
lægð.
Enn á ný hafa þau samtök sýnt
að ekki mun slakað á og stofnað
samtökin Vímulaus æska. Hörm-
ungum þeim sem verða þegar
unglingar ánetjast hassi eða öðram
vanabindandi efnum, sér ekki fyrir
endann á, og öllum foreldmm og
uppalendum ætti að vera ljóst að
ógæfan getur komið til þeirra fyrir-
varalaust.
Persónulega vil ég þakka SÁÁ
góða hjálp, og hvet fólk til að sýna
þeim samtökum velvild.
Orðsending
til Keflvíkings
Sá sem fann litjð svart seðlaveaki
fyrir utan eitt af þíóhúsúm Kefla-
víkur annan i páskupi og 'tóngdi í
mig er vinBariTlegast •beðmn " áð
hringjáaftur-ísamánúmer, 15357.
Þessir hringdu .. Rautt seðlaveski
tapaðist
Melkorka Ágústsdóttir hringdi
og sagðist hafa týnt rauðu seðla-
veski með 131 krónu í á Laugaveg-
inum sl. föstudag. Finnandi er
beðinn um að hafa samband við
hana í síma 20601 eða á Frakka-
stíg 5.
Orðsending til Davíð er ekki
kattaeigenda ómerkilegnr
Svanlaug Löve hringdi með
orðsendingu frá Kattavinafélag-
inu:
„Orðsending til kattaeigenda.
Sá tími fer nú í hönd sem ungar
fugla koma úr eggjum sínum. Það
em því vinsamleg tilmæli til katta-
eigenda að þeir haldi köttum sfn-
um sem mest inni við uns ungamir
verða fleygir. Tilmælum þessum
er beint til þeirra sem búa í þétt-
býli svo og þeirra sem búa í nám-
unda við varplönd mófugla. Þá
skal þeim kattaeigendum sem láta
ketti sína vera úti um nætur. Á
það bent að kettir em hejmilisdýr
og eiga að vera inni um nætur.“
Óánægja með
kosninga-
sjónvarpið
Kona á Tálknafirði hringdi:
„Mig langar til að koma á fram-
færi óánægju minni með kosn-
ingasjónvarpið aðfaranótt sunnu-
dags. Þar var eingöngu sagt frá
úrslitum í kaupstöðum, eins og
kosningar á smærri stöðum kæmu
málinu ekki við. Ég er mjög
óánægð með þetta. I útvarpinu
var hins vegar öllum gert jafn hátt
undir höfði og úrslit birt jafnóðum
hvaðanæva af landinu."
Armbönd í
óskilum
Guðmundur hringdi og sagð-
ist hafa ' funthð tvö, Armbönd.
Eigendur 'em beðhir að hringja í
hahn í síma25497.
1534-0223 hringdi:
„Ég var að hlusta á lestur úr
leiðumm vinstri dagblaðanna núna
rétt í þessu. Ósköp em þeir nú
aumir, þeir hafa ekkert að segja
nema svívirðingar um Davíð. Þetta
er eins og á ámm áður þegar Jónas
frá Hriflu átti að vera bijálaður,
en hann er nú álitinn af mörgum
einhver mesti stjómmálamaður
aldarinnar. Ég hef þekkt Davíð frá
því hann var bam og veit að hann
er ekki ómerkilegur, líklega fremur
full sannur fyrir marga."
Góðþjónusta hjá
nælonhúðun
4982-1905 hringdi:
„Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til fyrirtækis í Kópavogi sem
nefnist Nælonhúðun, og er að
Yesturvör 26 fyrir frábæra þjónutu.
Ég var á leið út úr bænum og þeir
smíðuðu fyrir mig gijótgrind á
mettíma, hröðuðu þessu eins og
kostur var vegna þess að ég var
að fara úr bænum, nælonhúðuðu
hana og settu undir bílinn."
Ódýrara bensín
úr sjálfsölum
Bíleigandi hringdi:
„Mig langar til að koma með
fyrirspum varðandi bensínsrjálfsal-
ana. Er ekki eðlilegt að bensínlítrinn
- kosti minna úr þessum sjálfsölum
'þar sem þjónustugja.ld er venjulega
meðtalið í útreiknuðti verði ii böns-"
ínlítranum?"" * . * r *
Morgunblaðið/Ólafur
í fjósinu brann allt sem brunnið gat — en hlöðuna tókst að verja.
Egilsstaðir:
24 nautgripir brunnu inni .
á Ketilsstöðum á Völlum
Egilsstöðum.
FJOSIÐ á Ketilsstöðum á Völlum
brann tU kaldra kola á laugar-
dagsmorguninn og drápust þar
24 nautgripir, 17 mjólkurkýr og
7 kvigur.
Þegar fólkið á Hreiðarsstöðum í
Fellum, handan Lagarfljóts, hugðist
ganga til morgunverka á laugar-
dagsmorgninum varð það eldsins
vart og kom þegar boðum til
slökkviliðsstjórans á Egilsstöðum.
Hann brá skjótt við og var kominn
í Ketilsstaði laust fyrir kl. 8 — en
þá var fólk enn í fasta svefni á
Ketilsstöðum og hafði því ekki orðið
eldsins vart.
Hægur andvari var af norðaustan
svo að reyk lagði frá íbúðarhúsinu.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang var §ósið brannið og naut-
gripimir dauðir — en slökkviliðs-
menn gátu þó varið áfasta hlöðu
og bjargað 8 kálfum sem þar vom
inni auk nokkurs heyfengs — sem
enn var í hlöðunni, en ekki mátti
þó tæpara standa.
Eldsupptök em enn ókunn að
sögn stökkviliðsstjóra, Sigfúsar
Ámasonar. -Ólafur
Leiðrétting
Prentvilla varð neðst í 2. dálki
greinar Þóris H. Óskarssonar í
blaðinu f gær. Þar átti að standa:
„... og höfum við gefið verulega
eftir af starfskröfum okkar .. .“
en ekki starfskröftum eins og mis-
ritaðist. — Biðst blaðið velvirðingar
áþessu.
AUGLYSING
Hljómsveitin Bobby Rocks spilar f ÞÓRSCAFÉ i sumar.
Mikið að gerast
í Þórscafé
4.6. Frá Gunnólfi Ásbrandssyni, fnéttarit-
ara okkar f Reykjavfk.
Héðan úr höfuðborginni er
ýmislegt að frétta. Vorfagurt var
hér með eindæmum og horfa
borgarbúar björtum augum til
sumarsins, sem nú er gengið í
garð.
Margt athyglisvert gerist í
borginni í sumar á þessu 200 ára
afmæli hennar. T.d. stendur
núna yfir heilmikil listahátíð, en
þar koma fram margir heims-
frægir listamenn. Skemmtanalíf-
ið lofar einnig góðu. í því sam-
bandi er nærtækast að minna á
elsta starfandi skemmtistað í
Reykjavík, ÞÓRSCAFÉ. Hann er
40 ára um þessar mundir. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar á
þessum rótgróna skemmtistað og
er hann aliur mjög nýstárlegur.
Til að mynda hefur diskótekinu
verið gjörbreytt. Skemmtileg
hönnun, blikandi Ijós f öllum
regnbogans litum, öfiugar reyk-
vélar og stórköstlég hljómflutn-
ingstæki.valda því, aðþSðVct^pr
vintýri líkast að fá sér snúniqg
í þessu tilkomumesta diskóteki
landsins. Enn frekari umbætur á
staðnum em á döfmni.
Borgarbúar og ferðamenn
sækja nú ÞÓRSCAFÉ í síaukn-
um mæli, enda berast fregnimar
um ágæti staðarins sem eldur í
sinu um landið. 1 sumar verður
það hljómsveitin BOBBY
ROCKS sem skemmtir gestum.
BOBBY ROCKS er ný og
hressileg hljómsveit skipuð val-
inkunnum tónlistarmönnum,
þeim Birgi Hrafnssyni, Bobby
Harrison, Eddu Borg og honum
Bjama. Þau nýmæli, að bjóða
upp á vandaða ostabakka ásamt
glæsilegu úrvali af smurðu
brauði, hafa mælst vel fyrir og
verður því haldið áfram í sumar.
Fólk ætti að geta notið góðrar
kvöldstundar í ÞÓRSCAFÉ í
sumar því að það er á allra vit-
orði að þar sé góð hljónisveit,
góð þjónusta og góður staður.
ÞÓRSCAFÉ verður opic
22:00 - 03:00 um.
sumar, en á fimmtuápg
22:00-