Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986 Pólsku flóttamenn- irnir komnir heilu og höldnu á áfangastað Yfirgáfu ísland á fimmtudaginn PÓLSKU sjómennirnir tveir af rannsóknarskipinu Siedlecki, sem urðu eftir í Reykjavík þegar skipið lét úr höfn síðastliðinn miðvikudag, fóru frá íslandi dag- inn eftir og eru nú komnir heilu og höldnu á fyrirhugaðan áfangastað. íslensk lögregluyfir- völd aðstoðuðu Pólveijana við að komast úr landi, eftir að sam- þykki dómsmálaráðherra lá fyrir. Þeir fóru frá Seyðisfirði með feijunni Norrænu á hádegi 3. júlí. Ekki verður látið uppi hver áfangastaðastaður mann- anna er, nema hvað annar þeirra á þar fjölskyldu, foreldra og þijá bræður. Að sögn Ama Siguijónssonar hjá útlendingaeftirlitinu var flótti Pól- veijanna vel skipulagður af þeirra hálfu. „Þeir höfðu undirbúið hann lengi og fóru með vitund og vilja íjöldskyldna sinna heima fyrir," sagði Ami, en mennimir eru báðir fjöldskyldumenn, 30 og 37 ára gamlir. „Við töldum það ekki veijandi að upplýsa um afdrif Pólveijanna fyrr en þeir væru komnir heilu og höldnu á áfangastað. Annars var sú hætta fyrir hendi að setið yrði fyrir þeim í viðkomandi landi og þeir sendir aftur til Póllands," sagði Ami, en látið var í það skína í síðustu viku að mennimir væm enn á Islandi. Jón Helgason dómsmálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði talið sjálfsagt að aðstoða mennina, þar eð ekki væri vitað til þess að þeir hefðu gerst brotlegir við lög. * Atök um forval og for- mann kunna að hrínda Alþýðubandalaginu fyrir ætternisstapa — segir Ossur Skarphéðinsson ritstjóri Þjóðviljans ÖSSUR Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóðviljans, segir i viðtali við tímaritið Heimsmynd, sem ný- komið er út, að mikil átök um forval og formann innan Al- þýðubandalagsins kunni að hrinda því fyrir ætternisstapa, eins og hann orðar það. Segir hann allt benda til að bæði Utflutningsráð Islands: Magnús Gunnarsson formaður stjórnar MATTHÍAS Bjamason, við- arsson, framkvæmdastjóri Sölu- skiptaráðherra boðaði til fyrsta sambands íslenzkra fiskframleið- fundar í bráðabirgðastjóm Út- enda, kosinn formaður stjómar. flutningsráðs íslands á mánudag. Ragnar Halldórsson, forstjóri ÍSAL, Á fundinum var Magnús Gunn- var kjörinn varaformaður. Ólafur Ragnar Grímsson og Ás- mundur Stefánsson fari fram í forvali Alþýðubandalagsins fyrir næstu þingkosningar jafnframt því sem hann segir það mál manna innan flokksins að þeir komi til með að bítast um formannsstöðu innan hans þegar Svavar Gestsson lætur af því embætti. Sjálfur kveðst hann þess fullviss að svo verði og segir styrkleika tveggja andstæðra fylk- inga koma til með að krystallast innan flokksins við næsta for- mannskjör. Þá telur Össur verða mikil átök í kringum formannsslaginn og að lokaniðurstaða þeirra verði mála- miðlun. Telur hann Ragnar Amalds þá sem líklegan arftaka Svavars, sem þó geti mögulega sóst eftir því að fá að sitja fjórða kjörtímabilið, en sú regla gildir innan Alþýðu- bandalagsins að formaður skuli einungis sitja þijú kjörtímabil. 0 ^ Asmundur Stefánsson forseti ASI: Æskilegt að hafa kosningar í haust Björn Þórhallsson varaforseti ASI tekur í sama streng FORYSTUMENN Alþýðusambands íslands eru þeirrar skoðunar að fýsilegri kostur sé að stefna að haustkosningum, en að bíða með kosningar til miðs næsta árs. Þetta kom fram í samtali blaðamanns Morgunblaðsins við þá Ásmund Stefánsson forseta ASl og Björn Þórhallsson, varaforseta ASÍ. hann teldi haustkosningar vera fysi- legan kost. Jón L. Amason, sjötti islenzki stórmeistarinn. Jón L. Árnason náði stórmeistaratitlinum í Búlgaríu: Varð einn í efsta sæti á mótinu í Plovdiv Hlaut 7,5 vinninga JÓN L. ÁRNASON skákmaður bættist í hóp stórmeistara okkar í skák i gær, þegar hann fór með sigur af hólmi á alþjóðlega skákmótinu í Plovdiv i Búlgariu. íslensku stórmeistararnir eru nú sex talsins. Jón þurfti að ná jafntefli í lokaskákinni sem var við sovéska skákmanninn Khalisman til þess að öðlast þriðja áfangann að stórmeistaratitlinum, og það gerði hann og hlaut þar með 7,5 vinninga. Jón er einn í efsta sæti mótsins. Khalis- man er Evrópumeistari unglinga. Jón var að vonum kampakátur þar sem svo virtist sem Khalisman þegar blaðamaður Morgunblaðs- virtistalvegsættasigviðjafntefli. ins náði tali af honum í Plovdiv í „Þetta var fremur sterkt mót, gær: „Ég er nú eiginlega ekki eða í 10. styrkleikaflokki," sagði búinn að átta mig á þessu enn- Jón og bætti við að meðalstiga- þá,“ sagði Jón, „það er svo stutt fjöldi skákmannanna sem tefldu síðan ég náði öðrum áfanganum á mótinu hefði verið ELO 2495. í Helsinki, að ég hélt að ég fengi Jón kvaðst ekki vita hvað hann nokkra mánuði til þess að jafna yrði með í ELO stigum eftir þetta mig á honum." mót, en hann myndi hækka eitt- Jón sagði að síðasta skákin hvað, þegar nýi stigalistinn kæmi, hefði ekki verið erfíð - hún hefði en þá myndu bæði mótin í Hels- verið stutt, eða einungis 16 leikir, inki og Plovdiv bætast þar við. Stórkaupmenn funda með verðlagssljóra: »Ég er nú ekki í hópi þeirra manna sem taka ákvarðanir um kosningar," sagði Ásmundur, „þannig að ég hef ekki haft neina ástæðu til þess að hugleiða málið af miklu djúpsæi. Hitt er svo annað mál, að mér sýnist sem tvennskonar röksemdir mæli með því að það verði kosningar í haust. Önnur rök- semdin er sú að þessari ríkisstjóm er greinilega farið að líða nokkuð illa, eins og kemur fram í fjölmiðla- samskiptum þeirra forystumanna sem þar eiga hlut að máli. Hin rök- semdin er sú að ýmsir kostir geta verið því samfara að það sé vitað þegar samningar eru gerðir, hvaða ríkisstjóm verður á næsta samn- ingstímabili." Ásmundur benti á að væntanlega vildu flestir fá samningstímabil sem næði til lengri tíma en frá áramót- um til miðs næsta árs. Ásmundur sagði að það sem fyrst og fremst mælti á móti haustkosningum væri það almenna viðhorf að æskilegt væri að ríkisstjómir sætu út sín kjörtímabil. „Þau vinnubrögð að stjóm sitji út kjörtímabil eru líklegri til stöðugleika í þjóðfélaginu. Þegar ég legg þetta saman, eins og málið blasir við mér í dag, þá er mín niður- staða sú að það væri æskilegt að hafa kosningar á komandi hausti, og þá kannski nokkuð seint hausts- ins. Þannig fengi stjómin tækifæri til þess að standa við það sem hún heftir lofað varðandi kjarasamninga á árinu, en kosningar væru afstaðn- ar þegar kæmi að nýrri samnings- gerð.“ „Mér sýnist að það geti verið vit í því að kosið sé til Alþingis, án þess að kjarasamningar blandist þar inn í mjög harkalega, sem manni sýnist ætla að verða, ef ekk- ert verður gert,“ sagði Bjöm Þórhallsson varaforseti Alþýðusam- bands íslands í samtali við Morgun- blaðið er hann var spurður hvort Úttekt á markaðsstöðu innflytjenda í Bretlandi Sum dæmi verðlagsstofnunar ónothæf segja stórkaupmenn „VIÐ vinnum að því að fara í gegnum samanburð Verðlagsstofnun- ar, á verði í Glasgow og Reykjavík, lið fyrir lið og leiðrétta þær skekkjur sem þar er að finna“ sagði Árni Reynisson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. „Niðurstöður okkar benda til þess að í helmingi allra tilfclla hafi íslenskir heildsalar náð sam- bærilegu eða betra innkaupsverði en verslanir Glasgow. Þær vörur sem koma óhagstætt út eru iafnframt lítið seldar, og ekki dæmigerð- ar fyrir neysluna." Að sögn Arna kemur verðlagsstjóri á stjómarfund félagsins á morgun til að ræða fram komna gagnrýni og fram- kvæmd slikra kannana i framtíðinni. Ámi nefndi sem dæmi um fram á að verðlag hér sé allt að skekkjur í könnuninni að vöruteg- sexfalt dýrara en í Glasgow reynd- und sú sem notuð var til að sýna ist vera talsvert ódýrari. „Önnur vörumerki af þessari tegund eru all miklu ódýrari. Á íslandi eru notuð árlega um 100 tonn af bökuð- um baunum en af dýru tegundinni seldust aðeins um 200 kíló á síðasta ári. Hér er því ekki um að ræða nothæft dæmi um verðlag á ís- landi.“ Félag stórkaupmanna hefur óskað eftir því að fá öll gögn um könnunina frá verðlagsstjóra til að geta gengið endanlega úr skugga um markaðsstöðu íslenskra innflytj- enda í Bretlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.