Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 3

Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986 3 Fjögur ungmenni í sjúkrahús HARÐUR árekstur varð við afleggjarann að Sumarliðabæ i Rang- árvallasýslu á sunnudag. Fernt var flutt á sjúkrahús, en meiðsli þeirra munu ekki vera alvarleg. Það var skömmu eftir hádegið fólksbifreiðinni, voru flutt á í gær að Blazer-jeppi ók afleggjar- sjúkrahús með beinbrot og mar. ann í veg fynr fólksbifreið. Báðar bifreiðamar eru taldar Kastaðist jeppinn út fyrir veg og ónýtar og leikur grunur á að öku- sakaði ökumann og farþega ekki, maður jeppans hafí verið ölvaður. en fjögur ungmenni, sem voru í Selfoss: 11 sækja um stöðu bæjarstjóra Selfossi. UMSÓKNIR um stöðu bæjar- stjóra voru lagðar fram á bæjar- ráðsfundi á fimmtudaginn. Um- sóknunum var vísað til bæjar- stjómar, sem kemur saman á næstunni. Ellefu sóttu um stöðu bæjar- stjóra. Fimm þeirra óskuðu nafn- leyndar en hinir sex eru: Guðjón Sigurðsson, skólastjóri Laugaskóla í Dalasýslu, Þorlákur Helgason, framhaldsskólakennari á Selfossi, Eriendur Daníelsson, lögregluþjónn á Selfossi, Bjöm Stefánsson, Reykjavík, Baldur Halldórsson, Kópavogi, og Eggert J. Leví, skóla- stjóri Húnavallaskóla. — Sig.Jóns. Varnarlið- ið hreinsar gamalt skot- æfingasvæði VARNARLIÐIÐ ætlar að hreinsa til á gömlu skotæfingasvæði sinu austan við Grindavíkurveg næstu vikur. Verður því nokkur umferð hermanna um svæðið. Að sögn Sverris Hauks Gunn- laugssonar, skrifstofustjóra vamar- máladeildar utanríkisráðuneytisins, þarf fólk ekki að láta sér bregða þótt hermenn sjáist á vappi. „Þetta svæði var notað á ámnum 1954— 1960 sem skotæfíngasvaaði og þama er ýmislegt jámamsl sem við viljum að sé §arlægt,“ sagði hann. „Einnig kann að vera að þama leyn- ist gömul skotfæri, sem við viljum ganga úr skugga um að séu hættu- laus. Svæðið er ansi stórt, svo það tekur nokkum tíma að hreinsa það allt.“ Hreinsun Vamarliðsins verður í samvinnu við löggæsluyfírvöld á staðnum og Landhelgisgæsluna. Skák: Úrslit á World Open BANDARÍSKA „World Open“- skákmótinu lauk í Fíladelfíu um helgina. Þrír íslendingar voru meðal þátttakenda, þeir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson. De Firmian frá Bandaríkjunum hreppti fyrstu verðlaun á mótinu, með 7,5 vinninga af 9 mögulegum. Helgi Olafsson lenti í 8.—20. sæti með 6,5 vinninga. Margeir og J6- hann vom báðir með 6 vinninga. Þess má geta að De Firmian gekk á brott með hæstu verðlaun í skákmóti vestra í vasanum. Þau námu liðlega 861.000 krónum. L íambapiparsteik að hætti húsbóndans Handa4 1 þennan rétt má nota innanlærísvöðva, lambalundir eða lambafille. 800g lambakjöt 4-5 msk matarob'a 2 msk smjör 2mskhveiti lmsksojasósa 1 msk grófmulinn, svarturpipar látsktimian 2dlrjómi 2 msk koníak eða brandy iá msk kjötkraftur Kjötið skorið í hœfilega stórar sneiðar og barið létt. Salti, piparog timian nuddað í kjötið. Olían er hituð á pönnunni. Kjötið er brúnað í V/2 mín á hvorri hlið, síðan sett til hliðar, hveitinu stráð yfir olíuna og hrœrt saman, rjómanum hellt útáog síð- an er afganginum afkryddinu og smjör- inu bœtt rólega saman við. Ef þetta þykknar um ofeða verður of sterkt má bœtavatniútí. Þegar sósan er til er kjötið sett út í sósuna á pönnunni og látið sjóða í V2 mín. I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Við búum við þau forréttindi að eiga kjöt sem er í fremstu röð á heimsmarkaði - hreint og algjörlega ómengað af hvers konar aukaefnum - kjöt af íslensku fjallalambi. Einstök gæði hráefnisins gefa okkur ótrúlega fjölbreytta möguleika á matreiðslu hvort sem við viljum á foman, hefðbundinn eða nýjan hátt. Hver aðferð lýtur eigin lögmálum sem vert er að kynna sér til að ná góðum árangri. Og verið óhrædd við að prófa nýjar aðferðir. - Kjöt af íslensku ijalialainbi svíkur aldrei. Margir telja frampartinn besta hluta lambsins. Hann er ódýrari en læri og hryggur, safaríkur og hentar vel í hvers konar pottrétti eða heilar steikur og er frábær á grillið. Skerið burtu sýnilega fitu ef þið viljið magurra kjöt. • Látið frosið kjöt þiðna í ísskáp 4-6 daga fyrir notkun og standa við stofuhita síðustu klukku- stundimar - og kjötið verður enn meyrara. • Notið ekki of sterkt krydd. Lambið lifir á safaríkum villtum jurtum - leyfið bragðinu að njóta sín. íslenska blóðbergið hæfir kjötinu mjög vel. • Prófið að steikja stórar steikur við lágan hita t.d. 140°C í ca. 45 mín pr. kíló. Brúnið síðan við hærri hita í 10 mínútur og leyfið steikinni að standa stundarkom (5-10 mínútur) áður en máltíð hefst, þá dreifist safinn um kjötið. • Saltið ekki á skoma fleti fyrr en eftir steikingu. 00 a ðmvísi lærissneiðar með skhtku og grænmeti Handa4 12 þunnar sneiðar úr lærí, skomar langs- umafheilulærí Vt tsk nýmalaður pipar 1-2 msk matarotia 12 þunnar sneiðar reykt skinka 1 meðalstórt blómkábhöfuð 150 g ferskir sveppir eða hálfdós niðursoðnir 5 ferskir tómatar eða hálfdós niðursoðnir 2 msk smjör eða smjörlúd 250g frosnar grænar baunir eða hálfdós niðursoðnar Þvoið blómkálið og skiptið í greinar. Þvoið sveppina í saltvatni og skerið í tvennt. Afliýðið tómatana með því að dýfa þeim í sjóðandi vatn. Dósatómatar eru yfirleitt afhýddir. Hitið smjör í potti, sjóðið sveppina, blómkálið og baunimar í smjörinu í nokkrar mínútur. Efþið emð með dósa- baunir, eru þœrsettar í, þegar blómkálið og sveppimir eru soðnir. Gœtið þess að þetta brenni ekki. Setjið síðan tómatana út í, lok á pottinn og sjóðið í nokkrar mínútur. Stráið pipar á kjötsneiðamar, vefjið upp skinkuna og sneiðamar utan um. Festið með tannstöngli. Hitið olíuna á pönnu þar til rýkur úr henni og steikið rúllurnar á öllum hliðum, þar til þœr em vel brúnaðar. Setjið grœnmetið á fat, raðið rúllunum ofan á. / A 'JjL' ™ ^ooa máltn MARKAÐSNEFND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.