Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986
Til hamingju!
Það er stöðug afmælisveisla í sjón-
varpinu, SÍF nýbúið að eiga afmæli
og var þess minnst veglega með nán-
ast sjónvarpsmyndaröð er gerði
prýðilega grein fyrir starfsemi þeirra
samtaka og tel ég þá mynd eiga heima
í myndasöfnum skólanna, þar sem
grunnurinn er lagður að sölustarfí
framtíðarinnar en það er svo aftur á
móti önnur saga hvort hinn almenni
sjónvarpsáhorfandi hefur nennu til að
horfa á slíkar myndir í tíma og ótíma.
Þannig hef ég ekki hina minnstu hug-
mynd um hversu margir hafa horft á
aftnælismynd Landsbankans frá
síðastliðnum föstudegi en mig grunar
að almenningur sé hér fullsaddur af
bankarápi. Annars var myndinni lýst
svo í dagskrárkynningu: Landsbank-
inn 100 ára. íslensk heimildamynd.
Rakin er saga þessa elsta banka lands-
ins frá stofnun hans árið 1886 og sú
öra þróun sem orðið hefur í allri starf-
semi hans. Einnig er lýst hlutverki
bankans nú á dögum og þjónustu hans
við landsmenn. Framleiðandi: Saga
fílm. Texti: Ólafur Ragnarsson.
Myndin
Mér fannst þessi afmælismynd
Landsbankans bera nokkum keim af
því að að baki standa fagmenn á sviði
auglýsinga — gætti þannig nokkuð
auglýsingahjóms við upphaf myndar-
innar — en síðan var skipulega gengið
til verks og saga bankans rakin all
ítarlega. Fannst mér sá hluti myndar-
innar er vék að hinum alþjóðlegu
viðskiptum merkastur og satt að segja
hafði ég ekki hugmynd um hversu
víðtæk starfsemi Landsbankans er
fyrr en ég barði augum þessa af-
mælismynd. Það er nánast eins og
starfsmenn alþjóðadeildarinnar séu í
beinu sambandi við alla helstu fjár-
magnsmarkaði heimsbyggðarinnar,
slík eru undur tölvualdar. Ég gerði
mér grein fyrir því að það er afar
vandasamt að gera grein fyrir jafn
flókinni starfsemi og fer fram í stórum
banka á borð við Landsbanka íslands
— í stuttri heimildarmynd. Kemur þar
tvennt til: í fyrsta lagi er Lands-
bankinn hvorki meira né minna en 100
ára og hefði að mínu mati þurft að
gera sérstaka mynd er lýsti einvörð-
ungu forsögu bankans, tilurð, fyrstu
skrefum og áhrifum á þjóðlífíð. í þeirri
mynd hefði að ósekju mátt rýna per-
sónusögu þeirra manna er lögðu
grunninn að þessum mikla banka er
hefír valdið svo miklu í atvinnusögu
vorri.
f öðru lagi þá er starfsemi Lands-
bankans nú svo viðamikil, tæknivædd
og samslungin starfsemi annarra þjóð-
banka að vel hefði mátt gera sérstaka
mynd er lýsti einvörðungu nútíma-
starfsháttum stórbanka. í þeirri mynd
hefði gjaman mátt spjalla við banka-
stjórana þrjá er flestu virðast ráða í
þessum mikla banka, einnig við hina
pólitískt kjömu bankaráðsmenn, er af
myndinni að dæma virtust helst sinna
ráðgjafar- og eftirlitstörfum svo og
við hina ýmsu sérfræðinga á sviði
nútímabankaviðskipta innlenda en
ekki síður erlenda sérfræðinga pen-
ingamála.
Er ég raunar persónulega þeirrar
skoðunar að í kjölfar tölvuvæðingar
bankaviðskipta beri bönkunum að
upplýsa hinn almenna borgara betur
um hinn nýja heim sem nú hefir opn-
ast á sviði alþjóðaflármagnsviðskipta.
Ég held til dæmis að Landsbankinn
ætti að gefa viðskiptavinum sínum —
stórum sem smáum — kost á að leita
beint eftir lánum til húsnæðiskaupa
eða atvinnurekstrar á hinum alþjóð-
lega lánamarkaði ekki síður en þeim
okurmarkaði er hér ríkir nú og sligar
margan manninn. Ég lít þannig á að
Landsbankinn í dag sé fyrst og fremst
tengiliður milli hins íslenska viðskipta-
vinar og hins alþjóðlega peningamark-
aðar, að hann eigi að leita eftir
hagkvæmu Qármagni fyrir sína við-
skiptavini, hvar sem er á jarðarkringl-
unni og þar eigi skömmtunarsjónarmið
stjómvalda hvergi að koma nærri.
Slíkur banki þarf engrar auglýsingar
við og hann er stjómmálaflokkum
gersamlega óviðkomandi.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / SJÓNVARP
„A hr ingveginum‘‘
■i í dag er á dag-
20 skrá útvarps
~“ þátturinn „A
hringveginum". Um þetta
leyti eru útvarpsmenn á
hringveginum komnir aust-
ur á land, en það er Inga
Rósa Þórðardóttir sem
mun halda um hljóðnem-
ann á austurslóðum.
Útsending þaðan hófst
mánudaginn 30. júní á
Stafafelli í Lóni, en þaðan
hélt Inga Rósa til Djúpa-
vogs á þriðjudag, síðan til
Fáskrúðsfjarðar og Eski-
fjarðar fyrstu vikuna.
Leitað verður efnis úr sögu
og umhverfi Austurlands
og ræðst það af fólki og
aðstæðum á hverjum stað.
Aðspurð kvaðst Inga Rósa
ætla að bregða sér með
hljóðnemann til Papeyjar í
dag ef veðurguðirnir
hindra ekki för hennar, en
þeir hafa verið einkar blíðir
á manninn undanfarið.
Þann 25. júlí lýkur útsend-
ingum Ingu Rósu frá
Austurlandi á Bakkafirði,
en þá tekur við fulltrúi
Norðurlands sem er Om
Ingi frá Akureyri. Aðstoð-
armaður Ingu Rósu verður
Öm Ragnarsson kennari á
Eiðum.
A framabraut
■I Bandaríski
00 framhalds-
“ myndaflokkur-
inn „A framabraut" er á
dagskrá sjónvarps kl. 19.00
í kvöld. Þar munu skiptast
á skin og skúrir, en sam-
kvæmt venju verður þó
dans, söngur og tónlist lát-
in sitja í fyrirrúmi. Þýðandi
er Kristrún Þórðardóttir.
Dularfulla
nunnan
■i í kvöld flytur
40 Ævar R. Kvar-
an frásögu er
heitir Dularfulla nunnan
miskunnsama. Þar segir
frá lítilli telpu úr fátækra-
hverfi í New York, sem
verður mjög veik og batnar
ekki, en kemst síðan fyrir
tilstilli félagsráðgjafa burt
úr mengun og örbirgð og
upp í sveit. Hún dvelst um
skeið á munaðarleysingja-
hæli sem nunnur reka og
fær þar fullan bata. Þar
er einkum ein nunna sem
oft kemur til hennar og
hjálpar henni mikið, en
telpan sér hana þó aldrei í
fylgd með hinum nunnun-
um. í ljós kemur síðan að
hér er um að ræða barn-
góða nunnu, sem kölluð var
hin miskunnsama, en hún
hafði áður dvalið á hælinu
og verið það börnum sér-
lega góð. "
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
8. júlí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Pétur Pan og Vanda"
eftir J. M. Barrie. Sigríöur
Thorlacíus þýddi. Heiödís
Noröfjörðles(10).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesiö úrforustugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir. Tónleikar.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Ég man þá tíö. Her
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum'.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn - Heilsu-
vernd. Umsjón: Jón Gunnar
Grétarsson.
14.00 Miödegissagan: „Katr-
ín“, saga frá Álandseyjum
eftir Sally Salminen. Jón
Helgason þýddi. Steinunn
S. Siguröardóttir les (6).
14.30 Tónlistarmaður vikunn-
ar. Pálmi Gunnarsson.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Austurland. Umsjón: Inga
Rósa Þórðardóttir, örn
Ragnarsson og Ásta R. Jó-
hannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Píanókvintett i A-dúr op. 81
eftir Antonín Dvorák. Smet-
ana-kvartettinn leikur.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristín Helgadóttir.
Aöstopðarmaöur: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
i17.45 í loftinu — Hallgrímur
Thorsteinsson og Guðlaug
María Bjarnadóttir.
Tilkynningar.
18.46 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur þátt-
inn.
19.50 Fjölmiölarabb. Ólafur Þ.
Haröarson talar.
20.00 Ekkert mál. Sigurður
Blöndal stjórnar þætti fyrir
ungt fólk. Aðstoöarmaöur:
Bryndís Jónsdóttir.
20.40 Dularfulla nunnan mis-
kunnsama. Ævar R. Kvaran
flyturerindi.
21.00 Perlur. Alfred Clausen
og Sigrún Jónsdóttir.
21.30 Útvarpssagan: „Njáls
saga". Einar Olafur Sveins-
son les (21).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
22.20 Leikrit: „Elsku María”
eftir Odd Björnsson. Leik-
stjóri: Oddur Björnsson.
Leikendur: Árni Tryggva-
son, Inga Hildur Haralds-
dóttir, Þóra Friöriksdóttir,
Kristinn Hallsson, Steindór
Hjörleifsson, Rúrik Haralds-
son og Róbert Arnfinnsson.
(Endurtekiö frá fimmtudags-
kvöldi.)
23.35 Martin Gunther Förste-
mann leikur orgelverk eftir
Johann Pachelbel, Dietrich
Buxtehude og Johann Se-
bastian Bach.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
19.00 Áframabraut.
(Fame 11-18)
Bandarískur myndaflokkur,
Þýöandi: Kristrún Þóröar-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Daginn sem veröldin
breyttist.
(The Day the Universe
Changed)
9. Bylgjuhreyfingar.
Breskur heimildamynda-
flokkur í tíu þáttum. Umsjón-
armaöur: James Burke. (
ÞRIÐJUDAGUR
8. júlí
þessum þætti er fjallað um
uppgötvanir á sviði raf-
magnsfræöi, hljóöbylgjurog
Ijósöldur. Þekkingu vísinda-
manna á veröldinni og eöli
hennar fleygir fram en um
leiö eykst óvissan. Þýöandi:
Jón O. Edwald. Þulur: Sig-
uröurJónsson.
21.25 M-hátiöin á Akureyri.
Svipmyndir frá menningar-
dögum á Akureyri 12.—16.
júní síöastliðinn ásamt viö-
tölum viö hátiöargesti. Á
málverkasýningu i Iþrótta-
skemmunni voru sýnd verk
norðlenskra myndlistar-
manna en meginviðfangs-
efni hátíöarinnar var islensk
tunga. Á dagskrá voru
ávörp, erindi, upplestur,
söngur og tónlist. Úmsjón-
armaður: Ólafur H- Torfa-
son.
22.05 Kolkrabbinn.
(La Piovra II).
Fimmti þáttur. ítalskur saka-
málamyndaflokkur i sex
þáttum. Þýöandi: Steinar V.
Árnason.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
8. júlí
9.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
son, Kristján Sigurjónsson
og Gunnlaugur Helgason.
Inn i þáttinn fléttast u.þ.b.
fimmtán mfnútna barnaefni
kl. 10.05 sem Guöriöur
Haraldsdóttir annast.
12.00 Hlé
14.00 Blöndun á staönum
Stjórnandi: Siguröur Þór
Salvarsson.
16.00 Hringiðan
Þáttur i umsjá Ólafs Más
Björnssonar.
17.00 I gegnum tíöina
Jón Ólafsson stjórnar þætti
um íslenska dægurtónlist.
18.00 Dagskrárlok
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz