Morgunblaðið - 08.07.1986, Side 7

Morgunblaðið - 08.07.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986 7 Nauðlendingin tókst jafnvel og flugtakið var klaufalegt — sagði Ingólfur Eggertsson, flug- maður sem nauðlenti á Reykjavíkur- flugvelli á laugardagskvöldið LITIL eins hreyfils flugvél af gerðinni Reims Rocket, TF-POL, nauð- lenti á Reykjavikurflugvelli á laugardagskvöldið klukkan 20.20. Fjórir menn voru i flugvélinni og sakaði þá ekki. Lendingin tókst mjög vel og urðu tiltölulega litlar skemmdir á flugvélinni, hægri stélvængur beyglaðist dálitið. Óhappið varð í raun við flugtak vélarinnar í Fljótavík á Homströnd- um. Rétt áður en flugvélin sleppti brautinni rakst hægra hjól hennar í hindrun, moldarbarð, og brotnaði hjólabúnaðurinn alveg af upp við skrokk vélarinnar. Þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins hafði á orði við flugmanninn, Ingólf Eggertsson, að lendingin á tveimur hjólum, þ.e. vinstra hjóli og nefhjóli, hafi gengið vel og farizt honum vel úr hendi, sagði hann: „Já líklegast hefúr hún verið jafngóð og flugtakið fyrir vestan var klaufalegt. Sennilegast hefur vindur dottið niður rétt áður en við komum á brautarendann í flugtaki og því sluppum við ekki við þessa hindrun. Lendingin var í sjálfu sér ekki erfið, flugvélin leit- aði aðeins til annarar hliðarinnar, en við höfðum góðan vind á móti.“ Ingólfur sagði, að hann hafí strax eftir flugtakið i Fljótavik tekið ákvörðun um að fljúga suður til Reykjavíkur, þar sem þar væru all- ar aðstæður og búnaður betri til nauðlendingar en á ísafírði, en þangað var ferðinni upphaflega heitið. Aðspurður um það hvemig honum hafí verið innanbtjóstst við lendinguna, sagði hann, að sér hafí þótt verst að skemma flugvélina. Sér hafí verið ljóst, að unnt væri Við gamla flugturninn eftir nauðlendinguna. Frá vinstri: Ingólfur Eggertsson flugmaður, Andrés Hermannsson, Hörður Ingólfsson og Egill Óskarsson. Askriftarsíminn er 83033 að lenda henni á svo litlum hraða, að honum og farþegum hans hefði ekki verið nein hætta búin. “Það var aðeins spuming um skemmdim- ar og ég vona, að þær séu ekki miklar". Gert verður við flugvélina í Reykjavík, þar sem vestra er eng- inn flugvirki. Farþegar í þessari ferð með Ing- ólfí Eggertssyni vom sonur hans, Hörður Ingólfsson, Andrés Her- mannsson og Egill Óskarsson. Morgunblaðið ræddi við Egil Óskarsson, en hann ásamt Herði hefur verið við flugnám vestur á ísafirði. Egill sat hægra megin i vélinni og sá þvi, þegar hjólabúnað- urinn rakst í barðið og brotnaði af. “Mér dauðbrá, auðvitað, “sagði Egill, “en ég býst við, að þetta sé eins konar áminning til okkar flug- nemanna um borð. Við vomm rétt að komast á loft, þegar hjólabúnað- urinn rakst í barðið og ég gæti gizkað á að það hafí ekki munað nema svona hálfum metra, að við slyppum. Þvi emm við nú óvænt komnir til Reykjavíkur og ég býst við að fljúga vestur til Isafjarðar i kvöld, ef flogið verður," sagði Egill og brosti við. Flugvélin TF-POL er eign nokk- urra einstaklinga og Pólsins hf. á Isafírði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.