Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986
Palme-skjölin:
Innbrotið
enn óupplýst
Stokkhólmi, AP.
ENN stendur sænska lögregl-
an ráðþrota gagnvart þjófn-
aði á skjölum, sem tengjast
máli skattayfirvalda gegn
Olof Palme, forsætisráð-
herra, sem myrtur var í
febrúar. Þjófnaðurinn var
framinn fáeinum klukku-
stundum áður en ráðherrann
var myrtur á götu í Stokk-
hólmi.
Málið var á sínum tíma höfðað
vegna greiðslu, sem Palme fékk
fyrir fyrirlestur, er hann hélt við
Harvard-háskólann í Bandaríkjun-
um. Palme afsalaði sér greiðslunni,
en skattayfirvöld sögðu, að greiðsl-
unni hefði verið breytt í námsstyrk
handa Joakim, syni Palmes og
hefði því átt að skattleggjast.
Fyrst var sagt frá þjófnaðinum
í lok mars, en lögreglunni hefur
fátt tekist að upplýsa ennþá.
Talsmenn áfrýjunardómstólsins,
sem fjallar um skattamálið, segja,
að óþekktur maður hafi brotist inn
í húsakynni dómstólsins og stolið
tösku með málsskjölunum. Einnig
hafi þjófurinn þurrkað út tölvuupp-
lýsingar um málið.
Ef ekki hefðu fyrir tilviljun ver-
ið til afrit af skjölunum annars
staðar, hefðu þau öll glatast.
Aðeins tveir starfsmenn dóm-
stólsins höfðu aðgang að tölvuupp-
lýsingunum, en hvorugur þeirra
liggur undir grun, þótt margt bendi
Pólverji
kveikti
í sér
í Hamborg
Hamborgf, AP.
PÓLSKUR maður beið bana er
hann hellti yfir sig benzíni og
bar síðan eld að klæðum sínum
fyrir utan sovézku ræðismanns-
skrifstofuna í Hamborg á laugar-
dagskvöld.
Starfsmenn ræðismannsskrif-
stofunnar urðu mannsins varir og
létu slökkvilið og lögreglu vita, en
ekki tókst að bjarga honum. Hann
var 26 ára og hét Marek Kucal.
Hann fluttist frá Stéttin til Vestur-
Þýzkalands í ársbyrjun og hefur
búið síðan á hóteli.
Lögregla segist ekki vita hvort
einhver ástæða hafi verið fyrir
íkveikjunni. A líkinu fannst vega-
bréf og Kucal hélt á biblíu er hann
kveikti í sér.
til, að þjófurinn hafi þekkt vel all-
ar aðstæður.
Ástæður fyrir innbrotinu eru
ókunnar, en hætt var við máls-
höfðun gegn Palme eftir morðið.
Talsmaður sænsku lögreglunnar
fullyrti síðastliðinn laugardag, að
morðið á Palme yrði upplýst innan
tveggja mánaða.
ERLENT
Kólumbía:
Hér sést páfi koma til útimessu í Medellin i Kólumbíu, en hana söng hann á laugardag.
Páfi f ordæmir aðgerðir
sandínista gegn kirkjunni
Medeilin, Tegucigalpa og Cartagena, AP.
JÓHANNES Páll páfi II. sagði
á laugardag, að hann væri mjög
sorgmæddur vegna brottrekst-
urs Pablos Antonio Vega bisk-
ups frá Nicaragua. Vega hefur
um nokkra hríð verið einn helsti
gagnrýnandi sandínistastjórn-
arinnar í Managua. Páfi II. hélt
um helgina áfram för sinni um
Kólumbíu. Hann fór m.a. til
Hljóp umhverf-
isjörðinaá
tveimur árum
London, AP.
HENRY Weston, sem lagði upp
í hlaup sitt umhverfis jörðina
fyrir tveimur árum, lauk því á
sunnudag á Tower-brúnni i Lon-
don, en þaðan hóf hann hlaupið
á sínum tíma.
Weston lagði að baki 17.600 kíló-
metra, en hann er 24 ára gamall.
Á ferðalaginu hugðist hann safna
peningum fyrir Alþjóðlega náttúru-
vemdarsjóðinn (Worid Wildlife
Fund) og afhenti hann forsvars-
mönnum sjóðsins 1.080 sterlings-
punda ávísun er hann skokkaði yflr
marklínuna.
Upphæðin, sem Weston safnaði,
jafngildir 64.000 krónum. Hann var
tvisvar rændur aleigunni á ferða-
laginu, í Ástralíu og í New York.
Kiwami Dai tekur vígslu
Nýjasti biskup áströlsku biskupakirkjunnar, Kiwami Dai, tók
vígslu hinn fyrsta þessa mánaðar. Hann kom til vígsluathafnar-
innar íklæddur strápilsi og skrýddur fjöðrum af kasúa, en það
mun vera strútfylgi nðkkurt. Að sjálfsögðu var hann með bein
í nefinu. Kiwami Dai er af Sabai-ættflokknum á Fimmtudags-
eyju í Arafura-hafi.
Armero, og minntist þar fórnar-
lamba náttúruhamfaranna, sem
þar urðu í nóvember í fyrra, en
þá létust um 23.000 manns í
gífurlegri aurskriðu. Hann for-
dæmdi einnig eiturlyfjavanda-
málið harðlega.
Páfí sagði að hann væri mjög
hryggur vegna atburðanna í Nic-
aragua, en ofsóknir stjómvalda á
hendur kirkjunni færast nú í auk-
ana. Vega biskup, sem var rekinn
úr landi á föstudag, sagði við er-
lenda fréttamenn í Hondúras að
ástandið í landinu versnaði stöðugt
og að því yrði ekki breytt meðan
sandínistar nytu hemaðarstuðn-
ings Sovétríkjanna.
Miguel Obando y Bravo kardín-
áli, æðsti maður kirkjunnar í
Nicaragua, sagði að „tjáningar-
frelsi [í Nicaragua væri] ekki
lengur til“ og að brottreksturinn
væri skýlaust mannréttindabrot. Á
sama tíma sagði páfi að þessir
atburðir minntu hann á myrka
daga, sem ekki væru mjög fjarlæg-
ir í tíma, en menn hefðu vonast
til að væm allir, Talið er að páfi
hafi átt við trúarbragðaofsóknimar
i Mexíkó í upphafí aldarinnar.
Hann skoraði á stjóm sandínista
að sjá að sér, og sagðist myndi
biðja guð um að aðstoða Vega og
aðra klerka í Nicaragua.
Páfi heimsótti eftirlifendur í
Armero, og vottaði þeim samúð
sína. Hann bað fyrir sálum þeirra
sem fórast í náttúrahamföranum
hinn 13. nóvember í fyrra. Eftir
minningarathöfnina fór páfi til
Cartagena þar sem hann fordæmdi
eiturlyfjaverslun og sagði hana
nýja tegund þrælahalds. Kólumbía
er eitt helsta eiturlyfjaútflutnings-
land S-Ameríku.
Pólland:
Hyggjast sleppa
andóf smönnum
Varsjá, AP.
WOJCIECH Jaruzelski, leiðtogi pólska kommúnistaflokksins,
segir að stjórnvöld muni skoða mál þeirra andófsmanna, sem
nú sitja í fangelsi, í þeim tilgangi að athuga hvort óhætt muni
að láta þá lausa. Jaruzelski lét þessi orð falla á fréttamanna-
fundi sem boðað var til eftir að þingi pólska kommúnistaflokks-
ins Iauk. Sagði hann að hvert einstakt mál yrði skoðað
sérstaklega en neitaði að láta uppi hvort leiðtogar Samstöðu,
hinnar óleyfilegu verkalýðshreyfingar, yrðu látnir lausir.
f setningarræðu þingsins sjá ástæðu til að Pólveijar ættu
síðasta sunnudag sagði Jarazelski
að unnt væri að sleppa nokkrum
andstæðingum stjómvalda vegna
dvínandi fylgis Samstöðu. Þinginu
lauk á fimmtudag og var Jaraz-
elski endurkjörinn aðalritari
pólska kommúnistaflokksins auk
þess sem þrír hershöfðingjar vora
kjömir í stjómmálaneftidina. Á
þinginu var einnig lýst yfir að
fímm ára tímabili pólitískrar ólgu
væri lokið.
Á fréttamannafundinum sagði
Jarazelski stjómvöld vera reiðu-
búin að eiga vinsamleg samskipti
við öll ríki heims, einnig Banda-
ríkin. Hann kvaðst hins vegar ekki
beint framkvæði að bættum sam-
skiptum þeirra og Bandaríkja-
manna.
Aðspurður hvort hann hygðist
halda til Ítalíu á fund Jóhannesar
Páls páfa, kvaðst Jarazelski ekki
hafa fengið boð um það frá stjóm-
völdum á Ítalíu. Hann sagði
samband ríkisins og katólsku
kirkjunnar í Póllandi hafa farið
batnandi að undanfomu en gagn-
rýndi kirkjuna fyrir að neita að
horfast í augu við staðreyndir.
Fundurinn með fréttamönnun-
um var sá fyrsti sem stjómvöld í
Póllandi hafa boðað til í rúmt ár.