Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986
29
„Ég hef veitt í Hofsá og Selá
í 30 ár og hef aðeins einu sinni
verið í líflegri veiði svona í opnun,
það voru sumrin 1977 og 1978.
Þetta gekk vægast sagt vel hjá
okkur, við opnuðum Selána 1.
júlí og veiddum 31 lax á tveimur
og hálfum degi, allt stóra og fal-
lega laxa, upp í 18 pund, en
aðeins þrír voru undir 10 pundum.
Við héldum síðan beint í Hofsá
og fengum þar 73 laxa á þremur
dögum, opnunarhópurinn hafði
tekið 89 laxa og á hádegi í gær
vissi ég að um 200 fiskar voru
komnir úr ánni, meira og minna
stórfiskur, yfir 10 punda meðal-
þungi," sagði Eiríkur Sveinsson
læknir á Akureyri í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann hef-
ur sem fyrr greinir mikla reynslu
að baki sem laxveiðimaður í
Vopnafirði. Sagði Eiríkur um 100
laxa vera komna úr Selá, en þar
er veitt á 4 stangir í bytjun.
Eiríkur veiddi sjálfur stærsta
laxinn, 22 punda hæng, á spón í
Torfuhyl á svæði 2. Sama dag
veiddi hann einnig 19 punda hæng
á spón í Tunguselshyl og missti
„hval“ í Beinagilsstreng. 19
punda laxinn var nokkuð leginn
sem mun sjaldgæft í Hofsá á þess-
um tíma sumars. Nær öll veiðin
í Hofsá hefur verið tekin á spón,
maðkur er þar bannaður og áin
hentar illa til fluguveiða sökum
vatnsmagns og skollitar. Eiríkur
vissi um einn flugulax, Pálmi
Gunnarsson söngvari hafði dregið
hann. í Selá var stærsti laxinn
18 pund. Aflakóngar í Hofsá voru
Veiði hefur gengið afar vel í Laugardalsá við Djúp að undan-
förnu, en laxinn hefur „búnkast" á neðstu svæðunum vegna
mikils vatnsmagns. Á meðfylgjandi mynd eru þeir Magnús Jónas-
son t.v. og Rögnvaldur Ólafsson, miklar veiðiklær, með fallega
eftirmiðdagsveiði úr ánni 30. júní síðastliðinn. Sex laxar, 15'/2,
14, 12, 12, 10 og 8 punda.
Það hefur verið líflegt við Norðurá að undanförnu. Hér hefur
Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri sjónvarps, gripið inn í á réttu
augnabliki og 18 punda liængur hefur tapað leiknum.
feðgarnir Vigfús Ölafsson og
Gunnar Vigfússon með 28 laxa,
en kvótinn á þremur dögum er
33 laxar, 11 stykki á dag. Það
gildir um báðar ámar, að lax er
þar um allt, jafnt á efstu veiðistöð-
um sem neðstu, en svo snemma
veiðitímans er það í hæsta máta
óvanalegt.
Hörkubyrjun í
Leirvogsá
Laxveiðin byijaði vel í Leir-
vogsá, 1. júlí síðastliðinn, lax
reyndist vera kominn upp um allt,
alla leið fram í gljúfur og var strax
góð veiði. í gærmorgun voru
komnir milli 50 og 60 laxar á
land og höfðu þeir veiðst víðs
vegar um ána, mest þó í Varma-
dalsgijótum og næsta nágrenni.
Þetta var yfirleitt feitur og patt-
aralegur smálax, 4—6 punda, en
stöku fiskar allt að 14 punda
þungir og einn- mikill dreki var í
Birgishyl, 17—20 punda fiskur,
að mati kunnugra. Náist sá fisk-
ur, yrði það vafalítið metlax í
áraraðir í Leirvogsá, sem er ein
af þessum „hreinu smálaxaám".
Allur laxinn til þessa hefur veiðst
á maðk.
Mokstur í Asunum
Á hádegi í fyrradag voru komn-
ir um 360 laxar á land úr Laxá
á Ásum og hefur óhemja af laxi
gengið í ána síðustu vikurnar.
Mesti dagsaflinn enn sem komið
er var 41 lax, þá komu á aðra
stöngina 27 laxar, en 14 á hina.
Laxinn er kominn upp um allt í
Laxá, en mest veiðist þó í Klapp-
arstreng, Dulsum og þar í kring.
Bæði stór og smár lax, stærst 18
pund, en meðalvigtin hefur lækk-
að talsvert síðustu vikurnar, enda
geysistórar smálaxagöngur á
ferðinni um þessar mundir.
Laxínn farinn að taka
í Meðalfellsvatni
„Laxinn er kominn og þeir
fyrstu veiddust fyrir um 10 dög-
um, þá veiddust tveir sama
daginn, annar 12 punda og tveim-
ur dögum seinna kom 16 punda
lax á land og var sá tekinn úr
landi. Síðan er talsvert gengið af
laxi í vatnið," sagði Gísli Ellerts-
son bóndi að Meðalfelli, aðspurður
um veiðina í Meðalfellsvatni að
undanförnu. Gísli sagði ýmsa
kunna vel á urriðann í vatninu.
en verr gengi að eiga við bleikj-
una, sem mest er af, en grisjun
hennar er fyrir nokkru hætt í
vatninu. Hægt er að fá veiðileyfi
hvenær sem er í vatninu, hálfan
eða heilan dag, og eru veiðileyfin
seld hjá Gísla á Meðalfelli og er
veiðitíminn hinn sama og í ánum,
7.00—13.00 og svo aftur frá
15.00-21.00.
Hér o g þar í
Arnessýslu
Það hefur lifnað aðeins í
Stóru-Laxá, einkum á neðri svæð-
unum, líklega eru komnir um 50
laxar á land í ánni allri. Góðar
fréttir fyrir Stóru-Laxármenn eru,
að nær dagviss veiði er nú á Ið-
unni og talsvert af laxi þar á ferð
og væntanlega fer eitthvað af
honum í Stóru-Laxá. Laxá er
reyndar enn geysimikil og fremur
köld.
í fyrradag voru 70 laxar komn-
ir á land úr Hvítá fyrir landi
Langholts, sá stærsti 24 pund og
annar 22 pund. Mikið af laxinum
er 15—18 punda og þó nokkuð
af laxi á svæðinu. Á bakkanum á
móti hefur veiðin verið með besta
móti þó tölur liggi ekki fyrir. Er
átt við Snæfoksstaðaveiðina. Á
„Stólnum" á Selfossi og í Soginu
hefur og verið reitingsveiði.
100 laxa holl
í Norðurá
Tvö síðustu holl í Norðurá hafa
farið yfir 100 laxa og laxinn er
auk þess farinn að ganga fram
eftir öllu. Er hann farinn að veið-
ast frammi við Krók og svo hratt
gekk laxinn er hann rann af stað
á annað borð, að hann fór að veið-
ast við Glitstaðabrýr áður en
nokkuð kom á land milli fossa.
Smálax ber uppi aflann í Norð-
urá, en eins og frá hefur verið
greint, hafa óvenju stórir laxar
læðst með, 20 punda og tveir 18
punda þeir stærstu.
t
Ljósmyndasam-
keppni Vikunnar
VIKAN heldur ljósmyndasam-
keppni í tilefni af 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar. Eina þátt-
tökuskilyrðið er að myndefnið
sé úr eða í Reykjavík.
Myndimar geta verið svart/
hvítar, í lit eða „slides“-myndir.
Skilafrestur er til 18. júlí nk. og á
að skila myndunum til „Vikunnar",
Þverholti 11, 105 Reykjavík. Ætl-
unin er að verðlaunamyndin piýði
forsíðu sérstakrar Reykjavíkur-
Viku sem á að koma út 14. ágúst
nk. Fyrstu verðlaun eru myndavél
af gerðinni Kodak AF2, sem er
u.þ.b. 13.000 króna virði. Önnur
verðlaun eru 6.000 krónur og þriðju
verðlaun eru 4.000 krónur.
Dómnefndina skipa: Davíð Odds-
son borgarstjóri, Hildur Petersen
framkvæmdastjóri og ljósmyndar-
amir Gunnar V. Andrésson (DV),
Páll Stefánsson (Iceland Review)
og Valdís Óskarsdóttir (Vikan).
Dómnefndin i (jósmyndasamkeppninni. Frá vinstri: Páll Stefánsson,
Gunnar V. Andrésson, Davíð Oddsson, Valdís Óskarsdóttir og Hildur
Petersen.
Eyjólfur Pálsson tekur hér við skjali og heiðurspeningi úr hendi Henriks prins í danska sendiráðinu
sl. sunnudag.
Islendingur hlýtur „viður-
kenningu Henriks prins“
Veitt fyrir innflutning og kynningu á danskri framleiðslu
HENRIK prins afhenti Eyjólfi
Pálssyni, eiganda verslunarinnar
Epal, sérstaka viðurkenningu
fyrir innflutning og kynningu á
dönskum listiðnaði, þ.á m. hús-
gögnum, við móttöku í danska
sendiráðinu sl. sunnudag eftir
ferðalag hans og Danadrottning-
ar um Austfirði.
Viðurkenning þessi er kennd við
Henrik prins sjálfan og hefur hún
alls verið veitt 150 aðilum í 43 lönd-
um. Þetta er í þriðja skiptið sem
hún kemur í hlut íslendings, en
áður hefur sams konar viðurkenn-
ing verið veitt Vélsmiðjunni Héðni
fyrir kynningu á Danfoss-kerfunum
og Hilmari Fenger hjá Nathan og
Olsen fyrir að flytja inn danskan
sykur og glervömr.
Eyjólfur Pálsson er menntaður
sem húsgagnaarkitekt í Danmörku
og eru 10 ár liðin síðan hann opn-
aði verslun sína, Epal, í Reykjavík.
Viðurkenningin var fyrst veitt árið
1967 og er hún ein sú æðsta sem
veitt er í Danmörku fyrir innflutn-
>ng og kynningu á danskri fram-
leiðslu. Sextán danskir framleið-
endur komu hingað til lands til að
vera viðstaddir afhendinguna.