Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986
t
Faðir okkar,
GUNNAR STEINSSON
frá Fossnesi,
Gnúpverjahreppi,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 27. júní.
Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð.
Hjalti Gunnarsson,
Ingi Steinn Gunnarsson,
Helgi Már Gunnarsson,
Jens Gunnarsson.
t
Elsku dóttir okkar og móðir mín,
KRISTÍN ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Setbergi,
Kambaseli 85,
Reykjavfk,
lést af slysförum þann 4. júlí sl.
Fyrir hönd bræðra, mágkvenna, annarra ættingja og vina hinnar
látnu.
Ólafía Þorsteinsdóttir, Jón Jónsson,
Málfríður Mjöll Finnsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÚLFAR HENRIKSSON,
Brattholti 5,
Mosfellssveit,
andaðist 3. júlí.
Útförin verður gerð frá Lágafellskirkju fimmtudaginn 10. júli kl.
14.00.
Jóhanna Arthúrsdóttir,
Regína Úlfarsdóttir, Valur Steingrímsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MARTA JÓNSDÓTTIR,
Marbakkabraut 24,
Kópavogi,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 5. júlí sl. Jarðarförin fer fram
í dag, 8. júlí, í Fossvogskirkju kl. 3.00 e.h.
Lilla Stewart,
Einar Einarsson, Una Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín og systir,
KRISTJANA EINARSDÓTTIR LANGEDAL,
Þórsgötu 15, Reykjavik,
lést í gjörgæsludeild Landspítalans 5. júlí.
Bertha Langedal,
Rósa Einarsdóttir.
t
Móðir okkar,
SALÓME ÓLAFS JÖRNSDÓTTIR,
lést í Sunnuhlíð þann 4. júli.
Kristin Karlsdóttir,
Ólavía Karlsdóttir,
Kristinn Ó. Karlsson.
t
Systir okkar,
GUÐBJÖRG MARKÚSDÓTTIR,
Valstrýtu, Fljótshlíð,
andaðist laugardaginn 5. júlí.
Ingólfur Markússon,
Sigrfður Markúsdóttir.
t
Faöir minn,
GUNNLAUGUR F. SIGURÐSSON,
sem lést á Hrafnistu þann 6. þ.m. veröur jarðsunginn í Kapell-
unni, Kirkjugarði Hafnarfjarðar föstudaginn 11. þ.m. kl. 13.30.
Rafn Hafnfjörð.
Minning:
Gísli Arason
verkamaður
í dag verður kvaddur frá kirkju
Óháða safnaðarins, Gísli Arason
verkamaður, Sogavegi 132 í
Reykjavík. Naumast verður það
nefndur héraðsbrestur þótt níræður
öldungur kveðji þetta líf, þrotinn
að kröftum og saddur lífdaga. En
það er sannarlega sjónarsviptir að
mönnum eins og Gísla Arasyni.
Mönnum, sem voru utan áhugasviðs
fjölmiðlanna, en voru þó hinar raun-
verulegu máttarstoðir og burðarás-
ar þess þjóðfélags sem nú er Island
og brautryðjendur þess félagslega
réttlætis, sem allir nú eigna sér.
Gísli Arason fæddist á Ragn-
heiðarstöðum í Flóa 17. nóvember
1895. Hann hélt til Reykjavíkur
árið 1914 í atvinnuleit, eins og títt
var á þeim tíma. Það var ekki um
margt að velja fyrir unga og fá-
tæka sveitapilta á þeim árum, þó
væntanlega fleira hér á mölinni, en
kostur var á í fábreytni sveitanna.
Reykjavík varð starfsvettvangur
Gísla alla tíð síðan. Dijúgan hluta
ævi sinnar starfaði hann hjá fyrir-
tækinu Kol & Salt hf., sem var eitt
af stórfyrirtækjum bæjarins á sinni
tíð. Bílar þess fluttu kol um bæinn
fyrir tíma hitaveitu og kolakarlam-
ir, eins og þeir gjarnan voru nefndir,
báru kolapoka á bakinu og losuðu
úr þeim í kolageymslumar. Mér eru
þessir menn minnisstæðir frá unga
aldri. Fannst þeir hlytu að vera svo
ógnarlega sterkir, sem ungum
sveini þótti einkar eftirsóknarvert.
Eg kynntist Gísla Arasyni er ég
tengdist Ijölskyldu hans. Þá var
hann kominn nokkuð á efri ár, rúm-
lega hálfsjötugur, sýnist mér núna,
er ég fletti almanakinu til baka.
Hann var meðalmaður vexti, grann-
ur og kvikur í hreyfingum. Svo
keikur og teinréttur, og svo vel bar
hann sig, að ekki var nokkur leið
að gera sér í hugarlund, að hann
hefði ámm saman borið þunga kola-
poka á bakinu. Mér fannst hann
eiginlega aldrei ganga, heldur
næstum ævinlega hlaupa við fót,
og fraumundir nírætt var hann svo
sprækur í spori, að ekki var að sjá
að þar færi neinn öldungur. Hef ég
það fyrir satt, og raunar veit, að
hann var víkingur til verka og vel
munaði um handtök hans, hvar sem
hann lagði hönd að verki.
Gísli Arason var af þeirri kyn-
slóð, sem stundum er kennd við
aldamótin og varð vitni að stórstíg-
ari framförum og tæknibyltingum
í landi okkar og samfélagi en nokk-
ur önnur kynslóð. Sá þjóðina rétta
úr kútnum og sækja fram. Það er
þessi kynslóð umfram aðrar, sem
hefur byggt og mótað það velferð-
arþjóðfélag, sem nú er við lýði á
íslandi. Gísli Arason þekkti kreppu
og kröpp kjör. Hann þekkti atvinnu-
leysi og erfiðleika, en átti dugnað
og seiglu, - hina íslenzku þijósku.
Honum var ekki lagið að gefast
upp, heldur beijast til þrautar, -
og sigurs. Oftlega er við hittumst
barst talið eins og ósjálfrátt að þjóð-
málum, - pólitík. Þá fann ég að
Gísli Arason átti heitt skap, stolt
og ríka réttlætiskennd. Hann var
einlægur verkalýðssinni, - og alla
tíð málsvari þeirra sem minna
máttu sín gegn ofurefli auðs og
valds.
Gísli var kvæntur Magneu Magn-
úsdóttur, en hún lést 1980. Þeim
varð fimm bama auðið. Af þeim
eru §ögur á lífi, Haraldur, Guðríð-
ur, Ari og Sverrir. Erla, sem eftir
lát Magneu hélt heimili fyrir föður
sinn, lést fyrir tæpum þremu árum.
Nokkur síðustu misserin átti Gísli
við vanheilsu að stríða og dvaldist
þá á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem
hann naut góðrar umönnunar. Þar
lést hann laugardaginn 28. júní
síðastliðinn.
Lokið er langri ævi og löngu og
farsælu starfi. Guð blessi minningu
Gísla Arasonar.
Eiður Guðnason
Björn Þórólfsson
Akureyri — Minning
Fæddur 2. október 1910
Dáinn 30. júní 1986
I dag verður gerð frá Akureyrar-
kirkju útför Bjöms Þórólfssonar er
lést af slysforum þann 30. júní
síðastliðinn.
Mig langar aðeins að minnast
hans í örfáum orðum. Ég rnan eftir
Bimi frá því í bamæsku en hann
var góður ijölskylduvinur. En kynni
mín af honum vom mest síðustu
10 árin er ég og fjölskylda mín
+
Útför konunnar minnar og móöur okkar,
MÁLFRÍÐAR G. MAGNÚSDÓTTUR,
Langholtsvegi 187,
fer fram frá Fossvogskirkju 9. júlí kl. 13.30.
Svanur Jónsson,
Kristfn Marfa Nfelsdóttir,
Níels Birgir Svansson,
Ágústa Valdfs Svansdóttir,
Hulda Svansdóttir.
Þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýju vegna fráfalls
RAGNHILDAR EINARSDÓTTUR,
Helguvfk, Álftanesi.
Þóröur Jóhannesson,
Þórður Þórðarson, Hildur Guðmundsdóttir,
Einar Þórðarson, Bergljót Jóhannsdóttir,
Matthildur Þórðardóttir, Lárus Einarsson.
Jóhannes Þórðarson, Margrót Sigmarsdóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúö og vinsemd við andlát og útför
SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR,
áður Barmahlfð 25.
Sérstakar þakkir sendum við stjórnendum og starfsfólki Elliheimil-
isins Grundar.
Guörún H. Högnadóttir, Valur Magnússon,
Eyjólfur Högnason, Kristjana Heiðdal,
barnabörn og barnabarnabörn.
fómm að fara norður á sumrin til
að hitta Emil, móðurbróður minn,
en þeir héldu heimili saman ásamt
móður Bjöms, Sæbjörgu, er hafði
nánast gengið Emil í móðurstað á
hans unglingsárum en hún lést
1979 háöldmð. Eftir það fór Bjöm
að koma oftar til Reykjavíkur og
dvaldi hann þá oftast hjá foreldmm
mínum þannig að ég kynntist hon-
um betur og ekki breyttist álit mitt
á honum við það. Bjöm var
skemmtilegur og ræðinn maður,
hann þekkti landið okkar vel og
kunni frá mörgu að segja. Hann
unni líka gróðri og starfaði meðal
annars í Lystigarðinum á sínum
yngri ámm. Hann gaf okkur oft
góð ráð er við vomm að rækta
garðinn okkar.
Dauða hans bar skjótt og óvænt
að eins og stundum gerist. Mér er
efst í huga þakklæti fyrir að hafa
kynnst honum og hvað hann var
mér og mínum alltaf góður.
Ég vil fyrir mína hönd, foreldra
minna, bróður, systur og hennar
fjölskyldu þakka honum samfylgd-
ina.
Nánustu aðstandendum hans
votta ég mína innilegustu samúð.
Far þú í friði.
Friður Guðs þig blessi.
Haf þú þökk fyrir allt og allt.
Adda, Björgvin og dætur.