Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986 H áster... . . .uppspretta alls TM Reg. U.S. Pat. Otl —all rights reserved O 1986 Los Angetes Times Syndicate Ég fer ekki ef Gréta fær ekki að koma með? Með morgnnkaffinu Þó svo kókoshnetan sé þín megin á ég að fá helminginn! HÖGNI HREKKVÍSI Bee Grees á Listahátíð Tónlistaráhugamaður skrifar: Velvakandi góður. Tilefni þessara skrifa eru popp- tónleikamir sem haldnir voru á vegum Listahátíðar nú 16. og 17. júní. Þessir tónleikar voru að mínu mati þokkalega heppnaður listvið- burður, en þó vil ég leggja til að val á hljómsveitum verði vandað betur í framtíðinni. Simply Red er auðvitað sæmileg hljómsveit og það sama má segja um Madness. En þessar hljómsveitir eru aðeins góðar til síns brúks, að flytja fólki linsoð- ið léttmeti, sem gleymist strax eftir að á það hefur verið hlýtt. Það er vart vetjandi að kalla meðlimi hljómsveitanna listamenn, því listin er langlíf, en það eru þessar hljóm- sveitir alls ekki. Ef ég hefði ráðið nokkru um val á hljómsveit hefðu The Bee Gees Templari skrifar: Heiðraði Velvakandi. „Ö1 er böl,“ sagði hún amma mín ávallt við mig þegar ég var lítill hnokki. Nú hefur hún fyrir löngu sagt skilið við þennan heim, en orða hennar minnist ég ávallt með mik- illi virðingu. Þess vegna fer það fyrir brjóstið á mér, þá sjaldan ég geri mér ferð til miðborgar Reykjavíkur, að sjá drukkna menn, slangrandi eftir götunum í afeng- isvímu, illa þefjandi og illa til fara. tvímælalaust orðið fyrir valinu. Þar kemur margt til. Bæði hafa þeir Gibb-bræður staðið lengi í eldlín- unni og jafnan staðið sig með mikilli prýði, og eins það að þeir voru og eru enn gífurlega vinsæl hljómsveit, bæði meðal barna, ungl- inga og fullorðinna. Þeir eru skapandi listamenn, sem leggja metnað sinn og sálu í verk sín, til að mynda eru textamir hreinustu perlur og ávallt má fínna í þeim mikinn boðskap. Þannig eru Gibb- bræður ekki einasta tónlistarmenn, heldur og andlegir leiðtogar Qölda hugsandi manna um heim allan. Eg vona að þeir sem næst munu sjá um þessi mál láti skallapoppara eins og Madness eiga sig, en velji þess í stað hljómsveitir eins og Bee Gees, K.C & The Sunshine Band og Sugar Hill Gang til tónleika- halds. Þær hafa aldrei verið betri Sumir abbast jafnvei upp á blásak- laust fólk í ölæði sínu, og eins hef ég orðið vitni að því er sumir þeirra reyndu að betla sér peninga. Er ekki til einhver staður þar sem svona menn eru geymdir og látnir sofa úr sér vímuna? Hvar er lögregl- an? Hvers vegna lætur hún svona hluti viðgangast? Mér fínnst þetta orðið ansi hvimleitt, að sjá þessa menn bjargarlausa innan um fjöl- mennið. Þessu fólki verður að hjálpa. eða vinsælli en einmitt nú og hafa margsannað að þar fara skapandi listamenn sem vita hvað þeir eru að gera. Fyrirspurn til SVR 6123-2230 hringdi: „Mig langar til þess að leggja eina fyrirspum fyrir forstjóra SVR. Sem kunnugt er býr margt aldraðra í og í grennd miðbæjar Reykjavík- ur, þ. á m. á Fjólugötu. Þrátt fyrir þetta eiga margir aldraðir borgarar í mestu erfíðleikum með að komast niður í miðbæ. Hvers vegna eru ekki fleiri stoppistöðvar á þessum slóðum? Mig langar til þess að gera það að tillögu minni að bætt verði við stoppistöð við Sóleyjargötuna, þannig að unnt verði að fara f og úr vagninum áður en hann fer yfír á Hringbraut. Það kæmi sér áreið- anlega vel fyrir aldrað fólk í þessu hverfí". Skrifið eða hringið til Velvak- anda Velvakandi hvetur les- endur til að skrifa þættin- um um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til - eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstu- daga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Víkveiji skrifar IÞjóðviljanum núna um helgina birtist viðtal við Ásmund Reyk- dal, meindýraeyði hjá hreinsunar- deild Reykjavíkurborgar, þar sem hann ræðir m.a. um baráttuna gegn rottum og músum í höfuðborginni. Hann segir m.a. í þessu viðtali, að þessi barátta gangi vel og að kvört- unum hafi fækkað um meira en helming á einum áratug. Ásmundur segir ennfremur: „Raunar virðist rottan hafa borið skarðari hlut frá borði en músin hin síðari ár, sem verður þó að skoða í því ljósi, að sífellt byggjast ný úthverfí; þar eru mýs aðgangs- harðari en rottur, sem helzt hetja á íbúa eldri hverfa...“ Loks segir Ásmundur: „Fólk á skilyrðislaust að tilkynna okkur á hreinsunardeildinni rottur eða mýs í hýbýlum eða við þau.“ Víkvetji vill verða við þessum til- mælum ásmundar. Um kl. 8.30 sl. laugardagsmorgun, er Víkvetji var á leið til vinnu, varð hann að stöðva bifreið sína á gatnamótum Sóleyjar- götu og Skothúsvegar. Ástæðan? Jú, rotta var á gönguferð yfir göt- una frá Hljómskálanum og yfír í garðinn við hús Thors Jensen! Von- andi kemur hreinsunardeildin til skjalanna og gerir viðeigandi ráð- stafanir. Þetta er satt að segja heldur óvenjuleg sjón í höfuðborg- inni. XXX að er kannski ekki mjög geð- felld lesning að hverfa frá rottum yfír á öskuhaugana í Gufu- nesi! — en gerum það nú samt. Með því að aka út á öskuhaugana getur fólk séð Reykjavík, sundin og eyj- arnar frá skemmtilegu og óvenju- legu sjónarhomi. Þar sem öskuhaugamir standa nú á áreiðan- lega eftir að verða skemmtilegt byggingar- eða útivistarsvæði í framtíðinni, um eða eftir næstu aldamót og jafnvel fyrr. Ef ein- hvetjum þykir það ólíklegt að öskuhaugamir eigi slíka framtíð fyrir sér þarf ekki annað en benda á húsin, sem standa við Eiðs- granda. Þegar Víkvetji man fyrst eftir sér í Vesturbænum, þessum eina og sanna, vom öskuhaugar Reykjavíkur, þar sem byggðin við Eiðsgranda stendur nú með stór- kostlegu útsýni yfír Faxaflóa. Hvað skyldi annars valda því, að ösku- haugum er fundinn staður í slíku umhverfí? XXX Fyrir skömmu hafði Víkveiji nokkurra daga viðdvöl vestur í Dölum og þurfti þá stöku sinnum að hafa símasamband við Reykjavík. Athygli vakti hversu erfítt var að ná símasambandi með því að hringja beint. Það var hægt að sitja við símann upp undir klukkutíma en ómögulegt að ná sambandi. Ef þetta er sú símaþjón- usta, sem landsbyggðinni er boðið upp á, má furðu gegna, að ekki sé meira um kvartanir. En vafalaust fást góð og skjót svör frá Pósti og síma um ástæður þessa. Eftir að sú stofnun tók upp starf blaðafull- trúa stendur ekki á rökföstum og skorinorðum skýringum eins og les- endur Morgunblaðsins hafa vafa- laust tekið eftir!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.