Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 52

Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 52
f Viðræður við Bandaríkjamenn: Talsvert ber í milli um hval- veiðar Washingfton, frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. TALSyERT ber í milli sjónar- miða íslendinga og Banda- ríkjamanna um það, hvernig beri að túlka samþykkt Al- þjóða hvalveiðiráðsins um nýtingu á afurðum hvala. Þetta kom fram í samtali við Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, I gærdag. Til að fyrirbyggja misskilning á samþykktum Alþjóða hvalveiði- ráðsins var ákveðið á fundinum í Malmö f síðasta mánuði að fulltrú- ar íslands og Bandaríkjanna skyldu eiga viðræður um nýtingu afurða _af hvalveiðum. Viðræðu- nefnd íslendinga, með sjávarút- vegsráðherra í forsvari, átti síðan ► í gærdag fund með bandarísku nefndinni, sem lítur stjóm Negro Ponte, utanríkisráðherra, sem einnig hefur með sjávarútvegsmál að gera, og dr. Anthony Calio, aðalfulltrúa Bandaríkjanna í Al- þjóða hvalveiðiráðinu. Viðræðum- ar í gær stóðu í 5 klukkustundir. „Við kynntum okkar sjónarmið í sambandi við rannsóknarveið- amar og Bandaríkjamenn kynntu sín. Talsvert bar í milli, en þetta vora vinsamlegar viðræður og ákveðið að halda þeim áfram á morgun," sagði Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra, í gær. ■s- Siglingaleið um Húnaflóa lokuð LANDFASTUR hafís er nú á nokkrum stöðum á Ströndum og er siglingaleið á þessum slóðum talin afar varhugaverð, að sögn Kristjáns Þ. Jónssonar, sem stjórnaði könnunarflugi Land- helgisgæslunnar úti fyrir Vest- Mallaig í Skotlandi: Islenzk-skozk fisksala stofnuð fjörðum og á Húnaflóa í gær. Norðvestur af Vestfjörðum var isröndinni fylgt eftir í ratsjá vegna þoku og var fjarlægð hennar þá um 50 sjómílur vestur af Bjargtöngum og um 20 sjómil- ur norður af Kögri. Mikil) ís er á Strandagrunni og Kolkugrunni norður af Húnaflóa. ísrönd var um 12 sjómflur norð- austur af Homi, en sveigði inn að landi þegar sunnar dró og náði landi við Drangaskörð. Is var í fjörunni sunnan við Drangaskörð, á Munað- amesi, í Norðurfírði og Trékyllisvík. Ekki sást ís á Ófeigsfirði eða Ing- ólfsfirði. Að sögn Kristjáns Þ. Jónssonar var ísinn út af Homströndum um 6/io að þéttleika og víða þéttari, en gisnaði aðeins við Amdrapsboða og Selsker. Siglingaleið á þessum slóð- um hefur nú verið lokað enda talin afar varhugaverð að dómi Krist- jáns. Vél Landhelgisgæslunnar, TF SYN, vísaði tveimur togurum, Björgúlfi EA-312 og Ólafi Bekk ÓF-2, í gegnum ísinn í gær, um 9 sjómílur Norð-norðaustur af Sel- skeri. Sjá bls. 4: Við höfum svo sem séð hann áður. Morgunblaðið/Rafn Óiafsson í hafís út af Horai þar sem sigl- ingaleið hefur verið lokað. Myndin er tekin um helgina um borð í Bjaraa Sæmundssyni. í gær leið- beindi Landhelgisgæzlan tveimur togurum í gegnum ísinn 8 sjómílur norðaustur af Selskeri. Myndin fyrir neðan sýnir Ólaf Bekk ÓF 2 fikra sig í gegnum ísinn. Morgunblaðið/Kristján Jónsson Rannsókn RLR til ríkissaksóknara: ÍSLENZKIR og skozkir aðilar hafa nú stofnað fyrirtækið Icescot í Mallaig á vesturströnd Skotlands. Hyggjast þeir flytja um 300 lestir af ferskum fiski vikulega frá ýmsum höfnum hér á landi til Mal- leig. Einn stjórnenda fyrirtækisins sagði í samtali við Morgunblaðið, að með þessu væri ætlunin að lækka flutningskostnað á ferskum ■'•Tiski frá íslandi, fiskseljendum þar til hagsbóta; halda sem hæstu verði með sem minnstum kostnaði. Búizt er við að flutningarair hefjist innan mánaðar. Til þessa hefúr ferskur fískur héðan nær eingöngu verið seldur í Hull og Grimsby á austurströnd Englands, en verði fískinum landað í Malleig, styttist siglingatíminn fram og til baka um þrjá sólar- hringa. Stjómendur fyrirtækisins hyggjast síðan flytja fiskinn land- leiðina til Hull og Grimsby eða annarra þeirra markaða, sem hugs- j^anlega borga betur. Síðar meir 'kemur til greina að vinna fiskinn að einhveiju leyti í Malleig. Fyrirtækið Icescot er stofnað í samvinnu við skozku byggðastofn- unina og tekur það meðal annars yfir eignir Associated Fisheries, verksmiðju og frysti- og kæli- geymslur. Talið er að fyrirtækið muni veita um 20 manns atvinnu. Fulltrúar sjómanna á staðnum telja stofnun fyrirtækisins til bóta. Það muni auka umsvif í höfninni og svo lengi, sem íslendingar fiski ekki innan lögsögu Evrópubandalagsins, hafi þeir ekkert við þetta að athuga. Vic Morrow hjá islenzka fyrir- tækinu ísberg í Hull telur að þarna sé um mistök að ræða. Hann segir allar aðstæður til fisklandana og fisksölu í Hull og Grimsby mjög góða og líklega endi þetta með því, að fiskinum verði landað þar. Nú era 6 fyrirtæki í Hull og Grimsby, flest í eigu íslendinga, sem selja íslenzkan físk þar. Varðar pening-agreiðslur, afslátt og ferðagjaldeyri Saksóknari ætlar að hraða ákvarðanatöku eftir megni RANNSÓKN Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem fram fór að beiðni Guðmundar J. Guðmundssonar á tilkomu þeirra peningagreiðslna til hans sem Albert Guðmundsson hafði milligöngu um að afhenda honum, er lokið og hafa gögn málsins verið send ríkissaksóknara til ákvörðunar, að sögn Þóris Oddssonar, setts rannsóknarlögreglu- stjóra. Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari segist að svo stöddu ekki geta sagt til um hvenær ákvörðun embættisins muni liggja fyrir, hvort rannsóknin telst fullnægjandi eða hvort krafist verður framhaldsrannsóknar, en athugun á gögnum og ákvarðanatöku verði hraðað eftir megni. „Rannsókn á öðram atriðum sem varða Albert Guðmundsson, sem tengjast afsláttargreiðslum til hans og ferðagjaldeyri, er sömuleiðis lok- ið og hafa þau gögn einnig verið send til ríkissaksóknara," sagði Þórir Oddsson í samtali við Morgun- blaðið. Þórir sagði að aðrir þættir Hafskipsmálsins sem væra til rann- sóknar hjá RLR væra margir vel á veg komnir, og rannsókn á sumum þeirra þegar lokið. Það sem eftir væri yrði þó sent til ríkissaksóknara í einu lagi. „Þessi mál eru nú rétt komin hingað til embættisins, þannig að nú mun athugun á þessum gögnum hefjast," sagði Hallvarður. Hann sagðist ekki treysta sér til þess að segja til um hvenær ákvörðun gæti legið fyrir, en reynt yrði að hraða því. Hallvarður var spurður hvort hann teldi að ákvörðun yrði tekin í þessari viku: „Ég veit það nú ekki,“ sagði Hallvarður, „því það er í mörg horn að líta hér á þessum bæ.“ Hallvarður var spurður hvort þeir Albert og Guðmundur fengju niðurstöður rannsóknar RLR frá embætti ríkissaksóknara: „Það er nú eingöngu þannig að þessi gögn eru send hingað til ákvörðunar og þau verða tekin hér til afgreiðslu. Meira er ekki um málið að segja að svo stöddu," sagði Hallvarður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.