Morgunblaðið - 02.08.1986, Side 7

Morgunblaðið - 02.08.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986 7 tímann. Nú er fiskur um alla á off tekur vel enn sem komið er. Veiðimaður kastar hér á Brotið með Laxfoss í baksýn. Norðurá verður miklu betri en í fyrra Norðurá hefur nú þegar gefíð tæpa 1400 laxa, en alllt síðasta sumar veiddust þar milli 1100 og 1200 fiskar og voru menn þó ánægðir, enda áin þá á leið upp úr öldudal. Veiðin gekk upp og niður framan af, en er laxinn fór að dreifa sér hefur brugðið til hins betra og að undanfomu hafa hollin ekki farið undir 100 laxa. Mest er þetta fallegur smálax, en vænir innan um eins og vera ber og sá stærsti er enn 20-pundari Sigmars Jónssonar úr Myrkhylsrennu . . . Mokstur í Blöndu ... Veiðimenn við Blöndu hafa varla haft undan að aföngla laxa af tækj- um sínum í sumar og margir verið furðusnöggir að taka 14-laxa kvót- ann. Er ekki ofsagt að áin sé kjaftfull af laxi og er heildarveiðin nú milli 1300 og 1400 laxar sem gæti orðið undirstaðan að metveiði ef ekki dregur úr mokstrinum. 24 punda lax er sá stærsti eins og áður hefur verið greint frá, en fáein- ir aðrir hafa vegið 20—21 pund og meðalþunginn er býsna góður þó smálax hafí blandað sér í aflann í vaxandi mæli að undanförnu. Með fréttum af Blöndu má skjóta með síðustu fregnum af hliðaránni Svartá, hún hefur gefið milli 70 og 80 laxa og hefur verið að lifna við að undanfomu, enda hennar tími að renna upp. Þær litlu í Borgarfirði Flóka hefur verið prýðilega lífleg ef á heildina er litið, þó kvarta menn undan leti laxanna í sólinni sem hefur bakað allt og alla á Suð- ur- og Vesturlandi alllengi. Á land eru komnir milli 160 og 180 laxar. Lax er að fínna í flestum hyljum sem eitthvað mega sín í langvar- andi þurrkum, þó verður að segja, að sjaldan verður Flóka mjög vatns- lítil. Gljúfurá hefur gefið um 150 laxa og em menn kátir mjög, því það er meira en áin gaf allt síðasta sumar og þó á eftir að veiða í eina 45-50 daga. Talsvert er af laxi víða um ána, en þyrfti annað hvort ferskar göngur eða mikil veðra- brigði til að rífa veiðina virkilega upp. Reykjadalsá veltir sér í doðanum eitt árið enn, þar hafa aðeins veiðst milli 20 og 30 laxar, en allt getur gerst ef það rignir eitthvað nú síðsumars, enda hafa ágúst og sept- ember löngum verið mesti upp- gripatíminn í ánni ef hægt er að nota það orð um aflasæld árinnar á seinni ámm. Laxá í Þing-. nálgast 2000 laxa ... „Við tökum líklega tvöþúsund- asta laxinn á sunnudags- eða mánudagskvöldið," sagði Orri Vig- fússon formaður Reykjavíkurdeild- ar Laxárfélagsins í samtali við Morgunblaðið í gærdagl Hann tjáði oss að 1816 laxar væm komnir á land, þar af 1446 á svæðum Laxár- félagsins, en til samanburðar sagði hann að toppsumarið 1978 hefðu 1299 fískar verið komnir á land af sömu svæðum á sama tíma. Á móti kæmi nú, að önnur svæði í ánni væm heldur lakarí nú en á sambærilegum tíma metsumarið. í Laxá hafa veiðst í sumar um 50 laxar sem vegið hafa 20-27 pund.QL Stefán Bjarna- son ráðinn sveitarsljóri Miðneshrepps STEFÁN Bjarnason hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Miðnes- hreppi. Ráðning Stefáns var samþykkt mótatkvæðalaust á fundi hreppsnefndar á fimmtu- dag með 6 atkvæðum, en fulltrúi frjálslyndra sat hjá við atkvæða- greiðsluna. Fulltrúar Alþýðuflokks og óháðra og Framsóknarflokks mynduðu meirihluta í hreppsnefnd Miðnes- hrepps að loknum kosningum í vor. í upphafí komu þeir sér ekki saman um ráðningu sveitarstjóra þar til samstaða náðist um Stefán Bjarna- son, með stuðningi fulltrúa Sjálf- stæðisflokks. Stefán Bjamason var áður bæjarstjóri á Dalvík. Tjaldstæðin eru opin á Varmalandi TJALDSTÆÐIN á Varmalandi í Borgarfirði verða opin alla versl- unarmannahelgina, en mishermt var í blaðinu í gær að þau yrðu lokuð vegna ættarmóts. Á Varmalandi er sundlaug og verslun, sem opin er alla helgina. Þar er einnig farfuglaheimili, þar sem hægt er að fá svefnpokapláss. Aðstaða öll fyrir ferðamenn þykir góð, að sögn heimamanna. Auöveld. stjömun: Öll vinnuaöstaöa og stjómbúnaður er geröur meö þœgindi og vellíöan gröíustjórcms í huga enda aírakstur ábendingó frá yíir 500 reyndum vinnuvélstjórura sem vita að slíkt hefur bein áhrif á aíköstin. Lœgri rekstrarkostnaöui: Vandað vökvaþrýstikeríi meö sjálí- virka samrœmingu milli vinnuhraða og orkunýtingar, sem leiöir til allt aö 25% minni eldsneytiskostnaðar miðað við sambœrilegar traktorsgröíur. Mikil ending og gangöryggl: Nýja traktorsgraían er sérstaklega sterkbyggð, enda eru gerðar háar gœðakröfur við framleiðslu hennar, t.d. er rafkeríið í sama gœðaílokki og í risajarðýtunni Caterpillar D ÍO. Calerpillar. Cdl og Laugavegi 170-172 Simi 695500 Höíum fyrirliggjandi loftverkfœri frá INGERSOLL-RAND í hœsta gœdatlokki Oife* Loíthamiar 18 ■ 45 kg. Spiengiholuborai 37 kg. Loítþjöppui 30 L/S(65 cím) og 60 L/S(125 cím) hIheklahf ( Laugavegi 170—172 Sími 695500 HAGSTÆTT VERÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.