Morgunblaðið - 02.08.1986, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986
15
Vigdís Hauksdóttir: Á sumrin
kaupir fólk mikið af blómum.
Líkar vel að
hafa blóm í
kringum mig
— segir Vigdís Hauks-
dóttir hjá Blómavali
VIGDÍS Hauksdóttir vinnur í
Blómavali, þar sem hún hefur
þann starfa að búa til blóma-
skreytingar, kransa og selja
afskorin blóm. Hún segist hafa
unnið þar í bráðum tvö ár og
kynni vinnunni mjög vel.
„Mér líkar vel að vinna með blóm
í kringum mig. Þau hafa jákvæð
áhrif á mann. A sumrin kaupir fólk
mikið af blómum, þá eru afskorin
blóm ódýr og svo þykir tilheyra í
svo mörgum tilfeilum að vera með
blóm. Aðalannatíminn hjá okkur er
um jólin og á vorin í kringum ferm-
ingamar og útskriftimar. Svo er
mikið keypt af blómum á konudag-
inn og bóndadaginn. Hingað kemur
mikið af fólki og oft er það sama
fólkið sem kemur aftur og aftur.
Sumum kynnist maður jafnvel."
Blómaval, eins og líklega flestar
aðrar blómaverslanir aðrar, er með
opið á frídegi verslunarmanna.
Blómaverslanir eru eins og flestum
er kunnugt opnar svo til allan árs-
ins hring og sagði Vigdís að hjá
þeim væri lokað 5 daga á ári, þá
allra helgustu. Hún sagðist halda
að flestir ef ekki allir starfsmenn-
imir væru félagar í VR en auðvitað
þyrfti fólk ekki að vinna ef það
ekki vildi það. Vigdís var eins og
aðrir viðmælendur okkar spurð
hvort hún væri ánægð með launin
sín. „Þau em góð, það er unnið hér
á vöktum og því fáum við greitt
vaktaálag en annars em launin hér
einkamál hvers og eins.“
Hér er maður ekki alltaf að vinna
við það sama og því má ef til vill
segja að hver dagur hafi sinn
sjarma. Auk þess er andinn á stof-
unni mjög góður og það er geysilega
mikilvægt atriði. Þetta er skemmti-
legasti vinnustaður sem ég hef
únnið á, það er engin spurning".
Hvernig eru launakjör texta-
gerðarmanna?
„Þau em mismunandi, bæði eftir
stofum og starfsaldri. Að öllu jöfnu
.held ég að segja megi að þau séu
'alveg sæmileg, án þess að vera
ineitt stórkostleg. Þessi vinna er til
iað mynda betur launuð en kennsla,
’sem manni með meistarapróf í
íslensku stendur til boða. Eg á ekki
von á því að starfa við þetta til
langframa en það er gaman að
prófa. — Ef til vill fer ég utan áður
en langt um líður til framhalds-
náms.“
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina?
„Ætli maður taki því ekki ró-
lega. Ég fer í sumarfrí skömmu
eftir helgina þannig að ég nýti
tímann til að slappa af og pakka
niður fyrir sumarleyfið."
CITROEN ER ALLTAF Á UNDAN SINNI SAMTÍÐ
ÁRGERÐ ER Á LEIÐINNI TIL LANDSINS
E
mmfþ
Ifþú ert að hugsa um að kaupa
nýjan bíl ættirðu hiklaust að hinkra
örlítið við, því Citroén árgerð 1987er
á leiðinni - fyrsta sendingin kemur
til iandsins í byrjun ágúst.
Við fáum allargerðirnarafCitroén
bílunum - allt frá ódýrum smábílum
uppíeðalbornar lúxuskerrur, og
verðið ersem fyrr afar hagstætt.
Einnig bjóðum við mjöggóð
greiðslukjör.
Hjá Citroén ersífellt unnið að
vöruþróun og fullkomnun einstakra
þátta, t.d. hefurmælaborðinuí’87
árgerðunum veriðbreytttil
batnaðar- en hjá Citroén eraldrei
breytt breytinganna vegna. Citroén-
lúxusinn og Citroén-gæðin eru sem
fyrrásínumstað:
Frábærhönnun, einstakir
aksturseiginleikarnir, framhjóladrifið,
vökvafjöðrunin, hæðarstillingin,
dúnmjúksætin, olnbogarýmið,
víðáttumikið farangursrýmið,
krafturinn, þrautseigjan,
tæknifullkomnunin og öll
öryggisatriðin, aðógleymdri
formfegurðinni og frönsku línunum
sem löngum hafa skipað Citroén í
sérflokk.
Líttu inn í Lágmúlann eða sláðu á
þráðinn - Citroén ’87 er einmitt rétti
bíHinnfyrirþig.
WMGIobuse
LAGMULA 5
SÍMI 681555
GOTT FÓLK / SÍA
CITROÉN