Morgunblaðið - 02.08.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986
Herferð kínverskra stjórnvalda gegn
fjármálaspillingn:
Handtökum hefur
fjölgað um 236%
frá því í fyrra
Peking, AP.
KÍNVERSK stjórnvöld hafa látíð
handtaka tæplega 19 þúsund
manns og lagt hald á illa fengið
fé, sem svarar til 85 milljóna
Bandaríkjadala (um 3,6 milljarða
ísl. kr.) á fyrstu sex mánuðum
þessa árs. Er þetta liður í víðtæk-
um aðgerðum stjórnvalda til að
kveða niður fjármálaspillingu.
Flugslys í
Mexíkóborg
Mexíkóborg, AP.
LÍTIL einkaflugvél hrapaði til
jarðar og lenti á byggingu í miðri
Mexíkóborg í gær. A.m.k. 16
manns slösuðust þegar vélin
kastaðist á bygginguna og síðan
á fimm bíla á einni mestu um-
ferðargötu borgarinnar.
Að sögn lögreglunnar, beið eng-
inn bana í slysinu, en á meðal þeirra
13 vegfarenda sem slösuðust, var
eins árs gömul stúlka. Auk þeirra
slösuðust flugmaðurinn, aðstoðar-
flugmaðurinn og einn farþegi.
Flugvélin var af gerðinni Cessna
310 og var hún á leiðinni frá Pu-
erto Vallarta, þekktum ferða-
mannabæ í um 700 km fjarlægð
frá Mexíkóborg. Ekki er Ijóst hvers
vegna vélin hrapaði, en einn veg-
farendanna sagði að hreyflar
hennar hefðu ekki verið í gangi
þegar hún rakst á bygginguna og
hefði hann talið að hún væri bensín-
laus.
í dagblaðinu China Daily, sem
er í eigu hins opinbera og gefíð út
á ensku, sagði á fimmtudag, að
handtökum vegna fjármálamisferlis
hefði ijölgað um 236% frá sama
tímabili í fyrra, en fjöldi kannana
aukist um 130%.
Stjómvöld tilkynntu fyrir einu
ári, að hafin yrði herferð til að
stemma stigu við fjárdrætti, mútum
og hvers kyns annarri ijármálaspill-
ingu, sem fylgdi í kjölfar endumýj-
unar kínverska efnahagskerfisins.
I fréttinni sagði, að kannanimar
hefðu leitt í ljós 1.881 „alvarlegt"
tilfelli fjármálamisferlis, og væri
það þreföldun frá fyrra ári.
Kínverskir saksóknarar telja auðg-
unarbrot alvarlegt, ef sakarupphæð
nemur sem svarar 8.100 Banda-
ríkjadölum (ríflega 300 þús. ísl.
kr.). Sama gildir, ef mútufé nemur
sem svarar 5.400 dölum (ríflega
200 þús. ísl. kr.).
Grindhvalavaða syntiá landí Vestur-Ástralíu
Á annað hundrað grindhvalir syntu á land í Vestur-Ástralíu aðfaranótt sl. miðvikudags, og lágu
dýrin ósjálfbjarga eftir í fjöruborðinu. Björgunarliðar, sem komu á vettvang, mynduðu raðir, létu
vatnsfötur ganga á milli sín og jusu á hvalina í sífellu, svo að þeir mættu lífi halda. Á flóðinu átti svo
að gera tilraun til að draga þá til sjávar.
Sprengingin í næturklúbbnum í Berlín:
Tilræðismaðurinn
ox þjálfaður í Líbýu
Berlín, AP.
YFIRVÖLD í Vestur-Þýskalandi
skýrðu frá því á fimmtudag, að
Palestínumaðurinn, sem grunað-
ur er um að hafa staðið að
sprengingu i næturklúbbi i
Leiðtogafundur um frið-
arfrumkvæði í Mexíkó
LEIÐTOGAR sex ríkja, sem í tvö ár hafa unnið að svonefndu Friðar-
frumkvæði í afvopnunarmálum, munu funda í Mexikó dagana 6. og
7. ágúst. Að undanförnu hafa leiðtogarnir hvatt risaveldin til að
hætta tilraunum með kjarnorkuvopn og boðist tíl að sjá um eftirlit
á öllum tilraunasvæðum í Bandaríkjunum og Sovétrikjunum og
tryggja þar með, að tilraunabann verði haldið.
Leiðtogamir, sem hittast í Mexí-
kó, eru Alfonsin, forseti Argentínu,
de la Madrid, forseti Mexíkó, Pap-
andreou, forsætisráðherra Grikk-
lands, Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, Nyerere, fyrrum forsætis-
ráðherra Tanzaníu og Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar.
Auk þeirra munu koma til fund-
arins ýmsir þekktir einstaklingar,
sem barist hafa gegn vígbúnaðar-
kapphlaupinu. Má þar nefna séra
Alan Boesak frá Suður-Afríku,
kjameðlisfræðinginn Hans Bethe
frá Bandaríkjunum og Nóbelsverð-
launahöfundinn Gabriel Garcia
Marquez frá Kólumbíu.
I fréttatilkynningu leiðtoganna
kemur fram, að það hafí m.a. verið
fyrir tilstuðlan þeirra, að Sovét-
menn ákváðu nýlega að sætta sig
við eftirlit á tilraunasvæðum risa-
veldanna.
Leiðtogahópurinn hélt sinn fyrsta
fund í Nýju-Delhí í janúar 1985. í
yfirlýsingu fundarmanna sagði
m.a.: „Hægt er að hindra kjamork-
ustríð, ef við sameinumst um
alþjóðlega kröfu um réttinn til lífs“.
45 ríki hafa lýst yfir stuðningi
við Friðarfrumkvæðið.
Frumkvæði þjóðarleiðtoganna
var upprunalega komið á laggimar
með aðstoð Þingmannasamtaka um
hnattrænt átak. Félagar í samtök-
unum eru um 600 talsins og frá
36 löndum. Forseti þeirra er Olafur
Ragnar Grímsson, sem verður við-
staddur fundinn í Mexíkó.
Berlín 5. apríl, hafi verið þjálfað-
ur i Líbýu. Tveir aðrir Palestínu-
menn, sem stóðu að baki
sprengingu í skrifstofum þýsk-
arabíska félagsins 29. mars, hafi
hins vegar fengið þjálfun sína á
Sýrlandi. Yfirvöld á Sýrlandi og
í Líbýu hafa neitað allri aðild að
sprengjutílræðunum.
Talsmaður vestur-þýska ríkis-
saksóknarans, Volker Káhne,
skýrði frá þjálfun hryðjuverka-
mannanna, um leið og formlegar
ákærur voru bomar fram á hendur
Palestínumönnunum tveimur, sem
taldir em hafa staðið að sprenging-
unni 29. mars.
Ahmed Nawaf Mansur Hasi, sem
giunaður er um sprenginguna í La
Belle næturklúbbnum 5. apríl, var
einnig ákáerður fyrir aðild að
sprengingunni í mars, þar sem níu
manns særðust.
Farouk Salameh var ákærður
fyrir morðtilraun í tengslum við
sprenginguna í mars, en ekki vom
bomar fram ákæmr á hendur þeim
þriðja, Nizar Hindawi, bróður Has-
is. Hindawi er í haldi í Lundúnum,
þar sem hann er ákærður fyrir að
reyna að koma sprengju um borð í
flugvél frá ísraelska flugfélaginu
El Al.
Ónæmistæringarveiran:
Skaðlaust afbrigði
vekur nýjar vonir
Pasadena, Washington, AP.
BANDARÍSKUM vísindamönn-
um hefur tekist að búa til
skaðlaust afbrigði alnæmisveir-
unnar og binda menn vonir við
að unnt verði að nota það tíl
bólusetningar gegn sjúkdómn-
um. Frá þessu var skýrt í
tímariti Bandarísku krabba-
meinsstofnunarinnar á föstu-
dag.zRannsóknir þessar eru á
frumstigi og vara vísindamenn-
imir við óhóflegri bjartsýni.
Nýja afbrigðið getur ekki ráðið
niðurlögum alnæmisveimnnar en
gæti aftur á móti dregið úr skað-
legum áhrifum hennar. Ef
alnæmissjúklingur fengi sprautu
með hinu skaðlausa afbrigði
myndi það sækja á fmmur ónæm-
iskerfisins á sama hátt og
alnæmisveiran gerir. Munurinn er
sá að nýja afbrigðið myndi ekki
skaða frumumar. Hins vegar tæk-
ist alnæmisveimnni ekki að valda
skaða þar sem hið skaðlausa af-
brigði hennar væri þegar til staðar
í fmmunum. Enn em þetta aðeins
vísindalegar tilgátur og engar til-
raunir em fyrirhugaðar á
mönnum í nánustu framtíð.
Vísindamennimir segjast ekki
vita hvaða hliðarverkanir meðferð
sem þessi gæti haft.
Þá hafa vísindamenn í Pasa-
dena í Kalifomíu fundið aðferð
sem gerir þeim kleift að ákvarða
nákvæmlega hvaða hluti tiltekinn-
ar veim bindur sig við fmmur og
skemmir þær. Þetta er talið auka
líkurnar á að vísindamönnum tak-
ist að búa til bóluefni gegn
ónæmistæringu. Menn binda
einnig vonir við að þessi aðferð
geti hjálpað til að framleiða ódýr-
ara og áhrifameira bóluefni gegn
lifrarbólgu af B-gerð. Um 200
milljónir manna þjást af þeim
sjúkdómi einkum í Asíu og Afríku.
Káhne sagði að rannskóknarlög-
reglan hefði komist að því að
Hindawi og Salameh hefðu verið
þjálfaðir í meðferð sprengiefna á
Sýrlandi. Að sögn Kaehne, tóku
Hindawi, Salameh og Hasi að fylgj-
ast með skrifstofum þýsk-arabíska
félagsins í byijun ársins. Þá hafi
Hindawi talið að félagið væri of
hliðhollt fsraelum og refsa bæri
svikurunum. Hasi hafi verið fyrir-
skipað að sækja tösku með sprengi-
efni í sýrlenska sendiráðið í
Austur-Berlín. Hann hafi geymt
töskuna í farangursgeymslu á lest-
arstöðinni í Austur-Berlín í viku,
en síðan sótt hana og fengið Sal-
ameh hana í hendur.
Salameh og Hasi fóru með
sprengiefnið að skrifstofum þýsk-
arabíska félagsins að kvöidi 29.
mars og sprakk sprengjan um 15
mínútum eftir að þeir yfirgáfu stað-
inn.
Káhne sagði að rannsókn á
sprengingunni í La Belle nætur-
klúbbnum yrði væntanlega lokið
síðari hluta sumars.
GENGI
GJALDMIÐLA
London.AP.
DOLLAR féll gagnvart japönsku
yeni á gjaldeyrispiörkuðum i
gærmorgun. Hefur gengi dollars
gagnvart yeni aldrei verið Iægra
frá lokum síðari heimsstyrjaldar-
innar. Ein ástæða lækkunarinnar
er talin sú að bandaríska við-
skiptaráðuneytíð frestaði um
einn dag að gefa út tölur um
efnahagslífið í Bandaríkjunum.
Dollar lækkaði einnig gagnvart
helstu gjaldmiðlum í Evrópu,
nema breska pundinu.
Gengi dollars var sem hér segir.
2,0900 vestur-þýsk mörk (2,0915),
1,6755 svissneskir frankar (1,
6785), 6,7855 franskir frankar (6,
8025), 2,3570 hollensk gyllini (2,
3600), 1.437,00 ítalskar lírur (1.
440,50), 1,38005 kanadískir dollar-
ar (1,3790).
Verð á gullúnsu í London var
360,50 dollarar, en var á miðviku-
dag 359,20.