Morgunblaðið - 12.08.1986, Síða 2
2
Fjórir
sækja um
embætti
sóknar-
prests í
Breiðholti
Umsóknarfrestur um 12
prestaköll, sem biskup íslands
auglýsti laus til umsóknar 8.
júlí sl. er runninn út.
Umsækjendur um Breiðholt í
Reykjavíkurprófastsdæmi eru: sr.
Bragi Skúlason, safnaðarprestur
í Mountain-söfnuði í N-Dakota,
sr. Gísli Jónasson, sóknarprestur
í Vík í Mýrdal, sr. Guðmundur
Karl Ágústsson, sóknarprestur í
Ólafsvík, og sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson, farprestur, Reykja-
vík.
Um Grenjaðarstað í Þingeyjar-
prófastsdæmi sækir sr. Kristján
Valur Ingólfsson, farprestur á
ísafirði. Um Húsavík í Þingeyjar-
prófastsdæmi sækir Sighvatur
Karlsson, cand. theol., Reykjavík
og um Ólafsfjörð í Eyjafjarð-
arprófastsdæmi sækir Svavar A.
Jónsson, cand. theol., Akureyri.
Tveir umsækjendur eru um Ut-
skála í Kjalamesprófastsdæmi,
þeir Hjörtur Magni Jóhannsson,
cand. theol., Reykjavík, og sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
Reykjavík.
Engar umsóknir bárust um
eftirtalin prestaköll: Bíldudal,
Barð., Bólstaðarhlíð, Hún.,
Hrísey, Eyj., Raufarhöfn, Þing.,
Sauðlauksdal, Barð., Staðarfell,
Þing., Stað í Súgandafirði, ísfj.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986
Sætúnið opnað
aftur í október
SÆTÚN hefur verið lokað fyrir umferð að undanfömu vegna
framkvæmda við holræsi, sem á að liggja út í sjó frá Laugames-
inu. I sumar verða lagðar aðfærsluæðar frá Klöpp að Laugarási.
Verktakarnir eiga að ljúka vinnu í október og verður Sætúnið
þá opnað að nýju.
Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirverkfræðings í gatna- og
holræsadeild, er kostnaður við holræsagerðina um 60 milljónir
króna í ár. Næsta sumar verða byggðar dælustöðvar við Kalkofns-
veg °g Laugames. Óvíst er hvenær holræsagerðinni lýkur
endanlega. Veltur það á fjárveitingum borgarráðs.
Tannlæknadeilan:
„Munum ekki
beygja okkur“
segir formaður tannlækna
FULLTRÚAR Tannlæknafélags
Islands gengu í gær á fund Ragn-
hildar Helgadóttur, heilbrigðis-
ráðherra, og tjáðu henni óánægju
sína með þá nýju gjaldskrá um
tannlæknisþjónustu, sem ráð-
herra gaf út síðastliðinn föstudag.
Samkvæmt nýju skránni hækka
gjaldliðir um 5,5% að meðaltali,
en í svonefndri viðmiðunargjald-
skrá, sem tannlæknar gáfu sjálfir
út fyrir nokkmm vikum, nemur
hækkunin 13% strax, ásamt við-
bótarhækkun síðar á árinu.
Heilbrigðisráðherra tjáði blaða-
manni Morgunblaðsins, að hún hefði
lagt áherslu á það á fundinum, að
gjaldskrárdeilan mætti ekki bitna á
viðskiptamönnum Sjúkrasamlags-
ins. Þess vegna hefði henni borið
skylda til að höggva á hnútinn með
bráðabirgðagjaldskrá, þegar svo var
komið, að Tryggingastofnun ríkisins
var hætt að endurgreiða tannlækna-
reikninga.
Hins vegar sagðist hún hafa hvatt
tannlækna til að setjast sem fyrst
aftur við samningaborðið. Ljóst væri
þó, að áður en samningar tækjust,
yrði að fást niðurstaða af nýhafínni
rannsókn og samanburði heilbrigðis-
ráðuneytisins á samningum tann-
lækna og ríkisvalds á hinum
Norðurlöndunum annars vegar og
íslensku samningunum hins vegar.
Þeirri rannsókn yrði vonandi hægt
að Ijúka á næstunni, enda væri góð
samvinna milli norrænna heilbrigðis-
yfírvalda.
Tannlæknar féllust á að skipa
fulltrúa í þriggja manna nefnd, sem
að tillögu ráðherra á að athuga
möguleika á niðurfellingu aðflutn-
ingsgjalda á efni og tækjabúnaði,
sem tannlæknar nota. Ráðherra
sagðist þegar hafa orðfært þessa
hugmynd við fjármálaráðherra, en
nokkurt vandaverk væri að afmarka
þessar vörur með skýrum hætti í
nýrri tollskrá.
Birgir Jóhannsson, formaður
Tannlæknafélagsins, sagði félags-
menn staðráðna í að nota áfram
viðmiðunargjaldskrá sína, þrátt fyrir
ákvörðun ráðherra. Þeir myndu
sömuleiðis nota áfram eigin reikn-
ingseyðublöð, en samkvæmt gjald-
skrá heilbrigðisráðherra frá því á
föstudaginn ber tannlæknum að
nota sérstök eyðublöð, sem Trygg-
ingastofnun ríkisins gefur út og eiga
þau að gera auðveldara að fylgjast
með því, hvort farið er að ákvæðum
gjaldskrár.
Að sögn Birgis munu tannlæknar
skýra frá sjónarmiðum sínum á
blaðamannafundi í dag eða á morg-
un.
Þóroddur Oddsson
Seldu rúm 10 þúsund tonn
af loðnulýsi fyrirfram
Gerir SR kleift að halda rekstri verksmiðjanna áfram
STJÓRN Síldarverksmiðja ríkis-
ins ákvað á fundi í síðustu viku
að halda rekstri verksmiðjanna
áfram þrátt fyrir dökkt útlit
vegna hins háa loðnuverðs, sem
ákveðið var í byijun vertíðar. Að
sögn Jóns Reynis Magnússonar,
forstjóra SR, var ákvörðunin tek-
in i ljósi þess, að afkoma fyrirtæk-
isins er skárri en ella, þar sem
tekist hafði að selja fyrirfram
lýsi og loðnumjöl áður en verð-
fall varð á lýsismarkaði.
„Við höfum selt rúm 10 þúsund
tonn af lýsi á verði sem er að meðal-
tali rúmir 200 dollarar á tonn. Eins
höfðum við selt fyrirfram nálægt 15
þúsund tonn af loðnumjöli," sagði
Jón Reynir. „Þó að þetta lýsisverð
sé mjög lágt í sjálfu sér er það þó
miklu skárra heldur en markaðs-
verðið í dag, en þar er talað um
verð sem er í kringum 150 dollarar.
Hins vegar er Ijóst, að þó að þessar
sölur hjálpi eitthv-að upp á er fyrir-
sjáanlegt tap á rekstrinum," sagði
Jón Reynir ennfremur.
Varðandi kostnað vegna olíu-
eyðslu verksmiðjanna sagði Jón
Reynir að eyðslan væri um 40 til
50 kíló á tonn á Raufarhöfn en um
35 kíló á tonn í verksmiðjunni á
Siglufírði. Verksmiðjan þar væri
hins vegar svo stór að það svaraði
ekki kostnaði að setja hana í gang
á meðan svo lítið framboð væri á
hráefni eins og nú væri raunin. Því
væri hagkvæmara að beina hráefn-
inu í minni verksmiðjuna á Raufar-
höfn, auk þess sem sú verskmiðja
lægi betur við miðunum. Ekki hefði
þó enn tekist að halda uppi stöðugri
vinnslu á Raufarhöfn vegna hráefn-
isskorts, en Jón Reynir taldi að það
stæði til bóta, þar sem fleiri skip
væru nú komin á loðnumiðin. Líklegt
væri að verksmiðjan á Siglufírði yrði
gangsett nú í vikunni.
Fyrir hvert svartolíutonn frá Sov-
étríkjunum greiða íslendingar 25
Jean-Pierre
Jacquillat látinn
JEAN-Pierre Jacquillat, fyrrum
aðalhljómsveitarstjórí Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, fórst í
bifreiðaslysi í Haute Loire héraði
í Frakklandi sl. sunnudag.
Jean-Pierre Jacquillat fæddist 13.
júlí árið 1935 í Versölum. Hann hóf
tónlistamám við tónlistarskólann
þar og síðar við Tónlistarháskólann
í París. Þar vann hann til fyrstu
verðlauna í hljómfræði, slagverki og
píanóleik. Fyrsta starf hans við
hljómsveitarstjóm var starf aðstoð-
arhljómsveitarstjóra við Orchestre
de Paris og fór hann margar tón-
leikaferðir sem stjómandi hennar,
meðal annars til Bandaríkjanna,
Sovétríkjanna, Kanada og Mexíkó
auk tónleikaferða um Frakkland. Þá
hljóðritaði hann með hljómsveitinni
á hljómplötur tónlist eftir frönsk
tónskáld.
Árið 1971 varð hann aðalstjóm-
andi Lyon-ópemnnar og Rohne-
Alpes-hljómsveitarinnar og sneri sér
þá að ópemstjóm. Hann stjómaði
ópemm víða um heim, meðal annars
við Metropolitan-ópemna og í New
York City-ópemnni. Seinna varð
hann aðaltónlistarráðgjafi Lamour-
eux-hljómsveitarinnar í París.
Jean-Pierre Jacquillat var ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar íslands haustið 1980
en hafði oft komið og stjómað hljóm-
sveitinni áður. Þeirri ráðningu lauk
22. maí í vor með kveðjutónleikum
hans, sem stjómanda hljómsveitar-
innar, og var hann sæmdur ’ninni
íslensku fálkaorðu við það tækifæri,
\ \ N WM »vf
Jean-Pierre JacquiIIat
sem viðurkenningu fyrir gott og
mikið starf með hljómsveitinni.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Cecil Jaquillat fiðluleikari.
Bandaríkjadali í fast umsamið gjald
vegna þess að svartolían þaðan á
að vera þynnri en annars staðar frá.
Þetta gjald vegur æ þyngra í olíu-
verði og leggst meðal annars á þær
verksmiðjur, sem nota svartolíu. Jón
Reynir var spurður hvort verksmiðj-
umar myndu geta greitt hærra
loðnuverð, ef gjaldið væri ekki fyrir
hendi og jafnframt hvort loðnu-
bræðslur hefðu mótmælt þessu
gjaldi þar sem hin þunna svartolía
nýttist ekki í bræðslunum:
„Við höfum rætt þetta við aðila í
sjávarútvegsráðuneytinu, en í raun-
inni er þetta mál viðskiptaráðuneyt-
isins þar sem hér er um að ræða
sérstaka samninga við Sovétmenn.
En jafnvel þótt þetta gjald yrði fellt
niður breytir það engu um það verð
sem við getum greitt fyrir loðnuna,"
sagði Jón Reynir. „Það greiðir engin
verksmiðja hærra verð en þessar
1.900 krónur þrátt fyrir það. Það
er ekki hægt að miða við þetta verð
því það er hæsta verð í Evrópu. En
varðandi olíuverðið er auk þessara
25 dollara 750 króna fast verðjöfn-
unargjald þannig að í allt greiðum
við um 1.750 krónur í aukagjald á
hvert tonn, sama hvert verðið er í
Rotterdam. Það væri sjálfsagj. unnt
að fá svartolíu af sambærilegum
gæðum á heimsmarkaðsverði, en
eins og allir vita er ekkert frelsi í
þessum olíuviðskiptum hér og við
hjá SR getum sjálfsagt lítið gert til
að hafa áhrif þar á. Ef þessi gjöld
yrðu felld niður myndi það þýða um
80 krónur í loðnuverði, en verðið er
hins vegar nú mörg hundruð krónum
yfír því verði sem að það þyrfti að
vera og því myndi það engu breyta,
þótt þessi gjöld yrðu felld niður,“
sagði Jón Reynir Magnússon.
Þóroddur
Oddsson
kennari
látinn
ÞÓRODDUR Oddsson fyrrver-
andi kennari við Menntaskólann
í Reykjavík lézt í Landakotsspít-
ala sl. föstudag.
Þóroddur fæddist 31. desember
1914 í Hrísey, sonur hjónanna Odds
Sigurðssonar og Sigrúnar Jörunds-
dóttur. Hann stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri og út-
skrifaðist þaðan vorið 1937. Um
haustið hélt hann til Kaupmanna-
hafnar og las stærðfræði við
Hafnarháskóla í tvö ár. Hann réðst
þá sem stærðfræði- og efnafræði-
kennari við Menntaskólann í
Reykjavík og starfaði þar til ársins
1983, að hann lét af störfúm fyrir
aldurs sakir.
Eftirlifandi eiginkona Þórodds er
Margrét Þorgrímsdóttir og áttu þau
tvær dætur, Guðrúnu meinatækni,
sem er gift Bimi H. Jónassyni kenn-
ara og Sigrúnu hjúkrunarfræðingi
en maður hennar er Ámi Þ. Bjöms-
son læknir.
Loðnuveiðin:
Þrjú skip með
2030 tonn
ÞRJÚ loðnuskip vom á leið til lands
í gær, mánudag, af miðunum við Jan
Mayen, með samtals 2.030 tonn.
Alls em nú 12 skip komin á miðin.
Skipin sem vom á heimleið em:
Hrafn GK með 670 tonn, Svanur
RE með 710 tonn og Þórður Jónsson
EA með 650 tonn. Líklegt er að eitt
skipanna muni landa afla sínum á
Siglufirði, en ráðgert er að setja
verksmiðjuna þar í gang nú í vik-
unni. Hin skipin munu landa afla
sínum á Raufarhöfn og í verksmiðj-
una á Krossanesi.