Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 45
aða kvenfélags, sem gerðist umsvifamikill íj'áröflunaraðili hinn- ar verðatidi kirkju, sem óbyggð var og ekkert átti. Utvegun muna til sölu á bazar eða til annarra þarfa var af hendi frú Rannveigar ekki skorin við nögl frekar en neitt annað. Ekki er hægt að lýsa, hve slíkur stuðningur var ómetanlegur og ekki er hægt að greina frá í fáum orð- um, hve mikla orku og ósérplægni þessar fyrstu kvenfélagskonur lögðu á sig við engar aðstæður, til að veita hinni nýstofnuðu kirkju allt það gagn sem þær máttu. Þá vil ég af alhug þakka allt örlæti og vináttu þeirra hjóna, sem þau auðsýndu okkur hjónunum alla tíð. Oftar en einu sinni buðu þau okkur fjölskyldunni einkabíl sinn til afnota með bílstjóra daglangt á þeim tíma sem einkabílar voru yfir- leitt ekki almenningseign. Við minnumst ferða með þeim norður í land á óðalið Þingeyrar og ótal margra ánægjustunda heima og heiman, ásamt allri þeirra hjálpsemi og aðstoð fyrr og síðar. Örlæti og elskusemi þessara hjóna verður seint með orðum lýst. Sigfus Bjarnason lézt árið 1967 á bezta aldri og varð öllum vinum sínum harmdauði. Við lát hans gerðist frú Rannveig stjómarformaður stórfyr- irtækisins, sem hún gegndi til dauðadags, en hún lézt á Borg- arspítalanum. Heilsa hennar hafði yfirleitt verið góð, þar til síðasta árið, og banalega stutt. Frú Rannveigu og Sigfúsi varð 4 bama auðið, 3 sona og dóttur, sem öll lifa og starfa við Heklu hf. og bera foreldrum sínum fagurt vitni. Barnabömin em 13. Bömum hennar, tengdabömum, bamaböm- um, svo og öllum ættingjum sendi ég og fjölskylda mín innilegar sam- úðarkveðjur, um leið og við þökkum frú Rannveigu alla hennar velvild og tryggð í gegnum árin. Með henni er gengin góð og falleg og göfug kona. Guð blessi hana og varðveiti. Blessuð sé minning hennar. Ingibjörg Ólafsdóttir Thorarensen Þegar lát frú Rannveigar Ingi- mundardóttur barst okkur til eyrna setti okkur félaga hennar í félaga- samtökunum Vemd hljóða. Við vissum reyndar að hún hafði ekki gengið heil til skógar síðustu miss- erin, en að kallið kæmi svona fljótt kom okkur á óvart. „Við verðum ekki hér til eilífðar svo að það er réttast af oss að hjálpa hver öðrum meðan unnt er. Vér eigum öll samleið. Höldumst því í hendur." Samkvæmt þessari hugsun lifði Rannveig Ingimundar- dóttir. Hún var einstaklega góð manneskja, sterk, hjálpsöm, æðm- laus og hæglát. Henni var ekki gjamt að beina sjónum að sjálfri sér, heldur að fjölskyldunni sinni sem hún unni svo heitt, og þeim sem minna mega sín, þar skynjaði hún skylduna við sjálfa sig. Rannveig starfaði með félaga- samtökunum Vernd í tæpa 3 áratugi og lagði þar ómetanlegan skerf af mörkum til blessunar fyrir þá fjölmörgu sem hafa verið að feta sig inn á betri lífsbraut, og líknaði öðmm. Hún var góður og tryggur félagi sem alltaf var til taks þegar til hennar var leitað, og einn af þeim félögum sem hafa verið kjölfestan í Vemd í gegnum tíðina. Nú þegar leiðir okkar skilur er okkur þakklæti efst í huga. Við hjá félagasamtökunum Vemd söknum Rannveigar Ingi- mundardóttur sárt og sæti hennar þar verður vandfyllt, en sárastur er söknuðurinn hjá bömunum henn- ar og fjölskyldum þeirra, en sú er huggun þeim harmi gegn, að þau eiga sér minningu um góða móður og geta haldið áfram að hlú að henni í sjálfum sér, því þar mun hún áfram lifa. Ástvinum hennar vottum við hugheilar samúðarkveðjur. Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar. „Þar sem góðir menn fara eru guðs- vegir.“ Þessi orð eiga vel við þegar Rannveigar er minnst, því hún var góð og göfug kona í þessara orða MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. AGUST 1986 fyllstu merkingu. Margs er að minnast frá okkar fyrstu kynnum fyrir rúmum fimmtíu ámm, það skal ekki rakið nú nema að litlu leyti. Við giftum okkur báðar sama árið og bytjuðum búskap, hún í Reykjavík en ég á Akranesi. Eigin- maður hennar, Sigfús Bjarnason síðar stofnandi og forstjóri Heklu hf., var bróðursonur mannsins míns. Því var mikill samgangur milli heimila okkar, sérstaklega fyrstu árin, og þar var Rannveig alltaf frekar veitandinn. Eg þurfti oft að skreppa til Reykjavíkur með böm mín ung pg oftast lá leiðin á Víði- mel 66. Ofá skiptin beið Rannveig mín í bíl á bryggjunni og tók böm- in lasin eftir sjóveiki í arma sína, keyrði okkur heim á sitt fallega heimili, hlúði að og huggaði, allt andstreymið var þá gleymt. Ungur sonur minn þurfti á sjúkrahúsvist að halda í Reykjavík. Ég gat af skiljanlegum ástæðum ekki komið til hans daglega, en það gerði Rann- veig í minn stað, hughreysti og giaddi. Svona var Rannveig í öllu, mátti ekkert aumt sjá, vildi alla gleðja. Fyrir þetta og alla góða við- kynningu vil ég nú af alhug þakka er leiðir skilja. Mikill er missir fjöl- skyldu hennar, alveg sérstaklega munu þær sakna hennar dótturdæt- umar ungu, sem heimili áttu hjá ömmu ásamt móður sinni síðustu árin. Við hjónin vottum öllum að- standendum Rannveigar innilega samúð. Pálína Þorsteinsdóttir Starfsemi félagasamtakanna Verndar byggðist frá upphafi fyrst og fremst upp af fórnfýsi, og sjálf- boðavinnu, eins og flest þau samtök önnur sem höfðu mannúðarmál á stefnuskrá sinni hér á landi. Fyrstu 20 árin var oft þröngt í búi, og litlu úr að spila. Rannveig Ingimundardóttir var ein þeirra kvenna, sem gerðist snemma virkur þátttakandi, og gerði sér Ijósa grein fyrir hvar skór- inn kreppti í samfélaginu. Aðaluppistaða við stofnun sam- takanna var þátttaka kvenfélaga víðsvegar um landið. Þau sendu fulltrúa á aðalfund, heimsóttu vist- heimilið, og sendu þangað matvæli og aðrar gjafír. Á sama hátt kom það oft fyrir að Vernd hljóp undir bagga — ef slys eða bruna bar að höndum úti á landsbyggðinni, sendi gjafir og fatnað, sem að gagni mætti koma nauðstöddum, vegna þessara tengsla. Það kom oftast í hlut Rannveigar Ingimundardóttur að sjá um þennan þátt. Mér er minnisstætt hve mikla vinnu og umhyggju hún lagði í þetta starf. Hverri flík var snúið við. Allt var mælt og vegið af umhyggju og kærleika. Orð voru ekki mörg. En hjartahlýjan augljós. Það var mikil Guðs gjöf að hafa þessa rólegu góðu konu sér við hlið í þessum og svo ótal mörgum tilvikum. Störf Rannveigar í þágu bágstaddra lýstu betur en nokkur orð lífsreynslu hennar og þekkingu á kjörum ann- arra. Ég þakka Rannveigu vináttu hennar fyrr og síðar. Starf hennar fyrir lítilmagnann sem Vernd hafði afskipti af á þessum árum Guð gefi henni góða heimkomu, í heim sem hún bjó sér með lífi og starfi. Ég votta fjölskyldu og ástvinum hennar samúð mína. Þóra Einarsdóttir fyrrv. form. Verndar I dag kveðjum við elskulega mágkonu okkar, Rannveigu Ingi- mundardóttur, sem lést í Borg- arspítalanum 3. ágúst eftir stutta legu. Kynni okkar af Rannveigu hófust er Sigfús bróðir kom með hana sem unnustu sína á heimili foreldra okk- ar fyrir rúmum fimmtíu árum. Þá var hún ung, falleg og gædd sínum sérstöku persónutöfrum. Þeim eig- inleikum hélt hún þó árin færðust yfir. Rannveig og Sigfús gengu í hjónaband 27. október 1934, sam- búð þeirra einkenndist alla tíð af ást og virðingu. Saman byggðu þau upp einstaklega fallegt heimili á Víðimel 66. Þar ólu þau upp fjögur böm sín, Ingimund, Sverri, Sigfús og Margréti, sem öll bera foreldrum sínum fagurt vitni. Sigfús lést árið 1967 langt fyrir aldur fram aðeins fimmtíu og fjögurra ára. Þau hjónin stofnuðu heildverslunina Heklu árið 1934. Undir stjóm Sigfúsar óx fyr- irtækið til þess að verða eitt af best reknu og þekktustu fyrirtækj- um landsins. Eftir lát Sigfúsar tóku börn þeirra ásamt móður sinni við stjórn Heklu og er það enn rekið með sama myndarskap og áður, það segir sína sögu um samheldni fjöl- skyldunnar. Sérstaklega naut Rannveig sín vel sem húsmóðir, því hlutverki helgaði hún krafta sína og fjölmarg- ir munu þeir vera sem minnast gestrisni hennar og hjartahlýju. Ogleymanleg verða okkur fjöl- skyldu- og vinaboð þeirra hjóna á Víðimelnum. Að leiðarlokum þökkum við Rannveigu mágkonu okkar sam- fylgd og vináttu og biðjum henni Guðs blessunar á æðri vegum. Börnum hennar og Qölskyldum þeirra sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Mágkonur t Móðir okkar, GUÐBJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR, Skeiðarvogi 22, andaðist í Borgarspítalanum 8. ágúst. Börn hinnar látnu. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og sonur, ÖRN VALDIM ARSSON framkvæmdastjóri, Logalandi 25, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavík miðvikudaginn 13. ágúst kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Katrín Árnadóttir, Víbekka Arnardóttir, Viggó Jónsson, Árni Arnarson, Þóra Sveinsdóttir, Örn Arnarson, Árni Jón Eggertsson, Valdís Arnardóttir, Vibekka Jónsdóttir, Hrafnhildur Valdimarsdóttir, Jón Ó. Ragnarsson, barnabörn og systurbörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA VILHELMÍNA JÓNATANSDÓTTIR, er lést á heimili sínu Trönuhólum 16 (áður Nökkvavogi 50, Reykjavík) 30. júlí sl., verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðju- daginn 12. ágúst kl. 15.00. Hörður í. Magnússon, Erling Magnússon, Magnús Magnússon, Elísabet K. Magnúsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar og amma, KRISTJANA JÓNSDÓTTIR, Víðihvammi 14, Kópavogi, verður jarðsett frá Dómkirkjunni 13. ágúst kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Hjartavernd. Stefán Karlsson, börn og barnabörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. ff Éq vildi qjaman komast í klípu...! ff sagði harðfiskurinn... N Ý VEKÐLÆKKUN: „hún kostar ekki nema svo sem eins og tvœr krónur núna“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.