Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 „Tónlistin er það sem gefur mér þá fyllingn sem ég sækist eftir. Stundum verður maður leiður á að æfa sig. Það koma upp og niður-tímabil. En það hvetur mann til dáða að vera í jákvæðu umhverfi, eins og hér i Amsterdam.“ Músíkin fær mann til að hugsa og finna til — Rætt við píanóleikarann Vilberg Viggósson í Amsterdam Fyrir tæpri öld skar Hollendingurinn Vincent van Gogh af sér eyrað. Málaði síðan ódauðlega mynd af sjálfum sér með höfuðið reifað. Isfirðingurinn Vilberg Viggósson yrði illa settur ef hann missti af sér eyrað því hann leggur stund á listgrein sem krefst næms eyra. Hann nemur píanó- leik í landi málarans fræga, nánar tiltekið í Sweelinck Conservatorium í Amsterdam. Amsterdam er ekki bara borg málara. Þar lifa allar list- greinar góðu lifi, enda sést strax að Amsterdam er lifandi borg, hún ólgar af iðandi mannlifi. Þar er pláss fyrir alla og slik skilyrði hafa yfirleitt laðað listafólk að. Heimildamaður Morgunblaðsins er kominn til þessarar heimsborgar þeirra erinda að taka viðtal við Vilberg Vigg- ósson, þann efnilega píanóleikara sem fékk sinn grunn hjá hinum landsfræga tónlistarfrömuði Ragnari H. Ragnar á Isafirði. Vilberg býr ásamt Heiðdísi Hansdóttur konu sinni og tveim- ur bömum í friðsælu hverfi í útjaðri borgarinnar. Áður bjuggu þau í miðbænum, en fengu nóg af harkinu og gestaganginum þar. Til Amsterdam komu þau frá annarri heimsbo/g, Köln í Þýskalandi, en urðu að hverfa þaðan vegna þess að dóttir þeirra, hún Guðrún Nanny, þoldi ekki loftmengunina þar. „Þið er- uð íslendingar, pakkið saman og farið," sagði læknirinn einfald- lega við þau. Og þrátt fyrir það að Vilberg hefði verið hjá fyrir- taks kennara, Rússa sem skildi þarfir hans mjög vel, var ekki annað að gera en að taka sig upp. Þau fóru ekki lengra en yfir í næsta land, en þar virðiast samt blása ferskari vindar, a.m.k. hef- ur Guðrún Nanný ekki kennt sér neins meins síðan þangað kom. Meíra gaman í hjöllunum Þótt Vilberg sé ekki nema rétt liðlega aldarQórðungs gamall hafa næstum 20 ára af ævi hans snúist meira og minna um tón- list. Hann var ekki nema 8 ára gutti á gúmmískóm þegar hann fór að ganga til Messíönu Mars- ellíusdóttur píanókennarar á ísafirði. Nennti ekkert að æfa sig, ussum nei, spilaði bara lögin eftir eyranu. En eitthvað hefur Ragnar H. samt séð í þessum gutta, því árið eftir tók hann Vilberg undir sinn vemdarvæng. „Síðan stóð baráttan þangað til ég var 14 ára, en þá ákvað ég að hætta. Það var aðallega sökum leti og ómennsku, hafði meiri áhuga á að leika mér í hjöll- unum og spila poppmúsík," segir hann og hlær. „En ég var svo heppinn að hlé varð á æfingum hjá hljómsveitinni sem ég var að spila með svo mér fannst ég ekk- ert hafa að gera. Ég féllst þá á að fara í viðtal til Ragnars sem taldi mig á að byija aftur. Og eftir það fór ég að æfa mig. Ragnar lét mig hafa skemmtilegt lag til að spila á nemendatónleik- um og í fyrsta skipti náði ég því að æfi mig meira en einn klukku- tíma fyrir tímana hjá honum. Því fylgdi mikil sælutilfinning. Og um leið og áhuginn kom náði ég á skömmum tíma að vinna upp það sem áður hafði tapast vegna áhugaleysis." Vilberg var síðan í læri hjá Ragnari þar til hann lauk stúd- entsprófi frá MÍ og þann tíma var aldrei vælt um að hann æfði sig ekki nóg. Undir handar- jaðri Ragnars „Ragnar var fómfús kennari. Hann gaf mér þann tíma sem ég þurfti og það kom oft fyrir að þessir 40 mínútna tíma tvisvar í viku urðu að 2 klukkutímum og rúmlega það. Aldrei var minnst á þreytu eða matartíma, kennsl- an gekk bókstaflega fyrir öllu hjá honum og það er örugglega eitt af einkennum góðra kennara. Hann lagði áherslu á að nemand- inn slægi aldrei feilnótu og það varð til þess að ég lærði verkin hægt en rétt og varð mjög örugg- ur. Það má segja að hann hafi kennt manni að æfa sig. En hann lagði Iíka mikla áherslu á að það væri andi í verkunum sem verið var að flytja. Oft var ansi mikill andi í þeim, maður hamraði eins og herforingi!" Vilberg segir að mikið hafi verið lagt upp úr því að spila fyrir aðra í skólanum hjá Ragn- ari. „Það gaf mikla reynslu í að koma fram og ómetanlega. En oft voru verkin sem ég var að spila, heilu sónötumar síðustu árin, yfir eigin getu. Þau voru ekki orðin nógu þroskuð hjá manni, voru nýlærð utan að. Annars þykir mér best að spila fyrir fólk, finna straumana frá því. Erfiðast er að æfa, þá er verið að leggja inn. Það er alltaf skemmtilegast að taka út.“ Aðspurður segir Vilberg and- rúmsloftið á ísafirði hafa verið uppbyggilegt fyrir tónlistamema. Hann hafi aldrei fundið annað en hlýja strauma frá umhverfinu. Nær kjarna lífsins Eftir stúdentspróf hleypti Vil- berg heimdraganum og settist í Tónlistarskóla Reykjavíkur. „Ég ákvað að fara í frekara nám af því ég fann að mig vant- aði í músíkina og til að víkka sjóndeildarhringinn." En af hveiju fór hann ekki í eitthvert fag sem gefur pen- inga og pottþétta virðingar- stöðu í þjóðfélaginu? „Af því að tónlistin er það sem gefur mér þá fyllingu sem ég sækist eftir." - Finnst þér músíkin færa þig nær kjama lífsins? „Já, því sem mér finnst vera kjami lífsins." - En hvað er það við þessa tóna sem er svona merkilegt? „Tónamir einir og sér em kannski ekki merkilegir, en þegar þeim er raðað saman í form, skynjar maður eitthvað. Tónlistin fær mann alltaf til að hugsa og finna til. Annars mundi fólk til dæmis ekki tárast undir tón- verki, eins og oft hefur komið fyrir. Tónlistin getur gagntekið mann. Þegar maður er í venju- legri vinnu er maður laus allra mála þegar heim er komið, en ef maður er að æfa verk til flutn- ings hvílir undirbúningurinn á manni nótt og dag. Maður hugs- ar ekki um annað." - Hvort færðu meira út úr því að spila eða hlusta á tón- list? „Það má kannski svara þess- ari spumingu þannig að ég hlusti með því hugarfari hvort ég geti spilað verkið. Konan mín kvartar undan því að ég spili með þegar ég hlusta." Þúsund túlkunarleiðir Vilberg segir að hver kennari hafí sínar ákveðnu skoðanir og að hann sem nemandi sé bundinn af þeim. Þess vegna sé mikilvægt að hafa góðan kennara, eins og hann telur sig hafa haft. í Tón- listarskóla Reykjavíkur var Vilberg undir handleiðslu Hall- dórs Haraldssonar. „Halldór er mjög víðlesinn í tónlist og lagði mikið upp úr að maður vissi að hægt væri að túlka sama verk á þúsund vegu. Maður hefur gott af að hafa það í huga.“ - En þótt þú sért að spila verk eftir annan, ertu þá saiiit að fást við listsköpun? „Já, það er svo margt sem höfimdur lætur manni eftir að túlka. Tónverk er ekki nema „hálfur maður“ ef það er ekki túikað á sannfærandi hátt, það er, að túlkandinn gefi svo mikið af sér að áheyrandinn hrífist með. Það þarf ekki að tákna að verkið sé slæmt, heldur að tón- skáldið láti flytjandanum það mikið eftir að það velti á honum hvort útkoman verður gott verk eða lélegt. Það má kannski líkja hljóðfæraleikaranum við leik- stjóra sem er að fara að setja upp leikrit, það er undir honum komið hvort andi verksins kemst til skila til áhorfandans." - Áttu þér uppáhalds tón- skáld? „Það er misjafnt frá mánuði til mánaðar hvað ég hlusta á. Til að mynda hreifst ég mikið af Mussorgsky þegar ég var 8 ára og í heilt ár hlustaði ég varla á annað en píanómúsík Debuss- ys. Chopin og Prokofiev lagði ég Iíka í einelti. Upp á síðkastið hafa Stravinsky og Béla Bartók verið á fóninum hjá mér. Ég nýt þess núna að þegar ég var ungl- ingur fóru allir mínir peningar í kaup á klassískum plötum; keypti þá mikið af alls konar plötum, en er fyrst núna að læra að meta sumar þeirra. Það þarf nefnilega að byggja upp skilning á músík, maður þarf að læra að meta hana. Mér finnst ágæt regla að þegar maður er búinn að finna áhrifin af ákveðnu tónskáldi sé kominn tími til að hlusta á eitt- hvað annað." Graf ík og klassík Vilberg var einn af stofnend- um hljómsveitarinnar Grafík og lék með á fyrstu tveimur plötum hennar, auk þess sem hann hefur komið til liðs við sveitina á hveiju sumri hingað til. Ég spyr hvemig popp og klassík fari saman. „Það fer ekki mjög vel saman, því annað tekur frá hinu og það er mjög erfitt að gera hvort tveggja vel. Vinnubrögðin eru líka mjög ólík, til dæmis tekur það um hálftíma að æfa venju- legt popplag meðan maður er marga mánuði eða ár að vinna með klassískt verk. Poppið krefst mikils tíma sem ekki kemur músík beint við, en í klassíkinni er maður allan tímann að vinna músíkina út úr verkunum. Mér fínnst alltaf gaman að spila popp og djass en lít á það sem afslöpp- un frá hinu. En það var skemmtileg reynsla að spila inn á plötumar með Grafík." - Nú sló Grafík I gegn en þú valdir að hætta sem virkur félagi og fara utan til náms, sérðu eftir framanum í popp- bransanum? Texti og myndir: Rúnar Helgi Vignisson „Nei, ég sé ekki eftir valinu. En ég tel mig samt enn part af Grafík af því að ég hef verið að spila með þessum strákum meira og minna í 10 ár og svo hef ég aldrei verið formlega rekinn! Ég hefði alveg verið til í að spila með þeim í sumar og það að mig skuli enn langa til þess segir mér að þessir strákar séu góðir." Snauður, samt ríkur „Nei, það hvarflar aldrei að mér að ég sé að eyða tíma mínum til einskis. Sú reynsla sem ég hef fengið út úr þessu námi er ómet- anleg. Það er ekki hægt að kaupa - hana fyrir peninga, þó það kosti peninga af afla hennar. Ég kem þess vegna slyppur og snauður af veraldlegum gæðum úr nám- inu, en það er ekki aðalatrðið. - Nú ert þú með fjölskyldu, hvemig gengur ykkur að lifa af námslánunum? „í Hollandi dugar lánið ekki til að framfleyta fjölskyldu. Við megum heldur ekki vinna hér, þannig að við getum ekki orðið okkur úti um aukatekjur. En við eigum góða að og það hjálpar. Hinu má samt ekki gleyma í allri umræðunni um Lánasjóðinn að án hans hefði maður aldrei getað farið út í þetta nám, þó oft hafi hann líka skapað mörg vandamál hjá okkur." - Hvemig fer fjölskyldulíf og músík saman? „Það verða vissulega árekstrar af og til, en það að eiga fjöl- skyldu hefur þroskað mig á allan hátt og kennt mér betur að meta tímann. En auðvitað er visst umstang sem fylgir þvi að vera með fjölskyldu, umstang sem maður losnaði kannski við sem einstaklingur, en þá kæmu bara einhveijar aðrar þarfir í staðinn." Metnaður gagnvart músíkinni — Að hverju stefnirðu með þessu námi sínu? „Ég stefni að því að þroska mig sem listamann til að geta verið boðlegur hvar sem er.“ - Ertu þá með einleikara- feril í huga? „Það er allt í lagi að stefna að því að verða einleikari, en það er ekki raunhæft. Hins vegar vantar alltaf píanókennara heima og ég verð eiginlega að geta hugsað mér að kenna ef ég ætla að lifa af músíkinni.“ - Ertu hræddur um að þurfa að fara að vinna í t.d. fiski þegar þú lýkur námi? „Nei, ég held að ég geti haft nóg að gera við mitt fag þegar ég kem heim. En ef mig skyldi einhvem tímann langa til að fara að vinna í fiski sé ég ekkert því til fyrirstöðu!" - Ertu metnaðargjarn? „Ekki veraldlega, heldur gagn- vart músíkinni sjálfri." Semurðu? „Ég hef alltaf verið að krukka í að semja síðan ég var 9 ára, en þá samdi ég mitt fyrsta lag, sem var auðvitað fyrir píanó. Seinna fór ég í tónsmíðatíma hjá Jónasi Tómassyni á ísafirði og síðan einn vetur hjá Þorkatli Sig- urbjömssyni fyrsta veturinn minn í Reykjavik. Eitthvað samdi ég svo á Grafíkplötuna „Sýn“. Tónsmíðar eru tímafrekar og ég hef haft mjög lítinn tíma aflögu eftir að við fluttum út, en ég býst við að semja meira í framtíð- inni, í hvaða formi sem það nú verður." Og á þessum framtfðamótum kveðjum við þennan unga músík- ant, enda maðurinn önnum kafinn við próflestur. Hann verð- ur þó kannski farinn að teyga besta loft í heimi þegar þessi grein birtist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.