Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 LBKaöa^rlan^ . ^^mthaður gtiölaíidganaW Á leiö til útlanda er gott að vita af verslun íslensks Markaöar í flug- höfninni í Keflavík. Þar er mikið vöruval, miðaö við þarfir þeirra sem eru að byrja utanlandsferðina. Allskonar minjagripir, gjafavara og efni til afþreyingar. Ullar- og keramikvörur, margskonar landkynningarbækur, blöð og tímarit. íslensk matvara vekur líka síaukna athygli. Ostar og mjólkurvörur, lax og fjölbreyttar fiskafurðir. Hangikjöt og annað lambakjöt. Frá- gangur og pökkun á matvælum er eins og best verður á kosið. Þá er íslenska sælgætið vinsælt erlendis. Þetta er þægileg þjónusta, prófaðu bara næst þegar þú átt leið úr landi. - Þú getur greitt í íslenskum krónum eða með krítarkorti. ÍSIENSKUR MARKAÐUR FLUGHQFN KEFLAVIK Sími 92-2791 Heilsu- skokk Ábyrgðar og IR 9. vika 1. dagur: - Upphitun - Skokka 200 m + ganga 100 m 2 sinnum - Skokka 300 m + ganga 200 m 2 sinnum - Skokka 100 m + hlaupa 50 m + ganga 100 m 4 sinnum - Skokka 100 m + ganga 100 m 3 sinnum - Hlaupa 50 m + ganga 50 m 3 sinnum - Teygjur 2. dagur: - Upphitun - Skokka 3.800 m með 500 m skokki og 200 m göngu á milli - Teygjur 3. dagur: - Upphitun - Skokka 300 m + ganga 200 m 2 sinnum - Skokka 200 m + ganga 100 m 3 sinnum - Hlaupa 50 m + ganga 50 m 6 sinnum - Skokka 100 m + ganga 100 m 5 sinnum - Teygjur Frá þjálfaranum Einhver hafði á orði við mig um daginn hversu þessar æfingar væru góðar, en þær verkuðu bara ekki megrandi. Hvað er hægt að gera við því? Þeir sem mig sjá vænta þess varla að ég eigi til svör við spurn- ingum um þyngdarvandamál. Við uppbyggingu heilsuskokks- ins var fyrst og fremst hugsað um að fram kæmi aukin starfsgeta hjarta og lungna og aukinn styrkur gang- og hreyfilima. Fullyrða má að sá árangur hefur nú þegar náðst hjá þeim sem duglegastir hafa verið við skokkið. Að hafa sig í það að fara að skokka reglulega eftir mismörg ár í hóglífi við litla hreyfingu, kostar talsvert átak og einbeitingu. Hvað varðar matar- venjurnar, er efalaust þörf meira átaks til að breyta þeim heldur en hreyfingarvenjunum. Ef sá sem æfir reglulega stenst það að borða ekki meira heldur en hann gerði áður en æfingar hófust og gætir þess að fæðumagn og innihald fæðu sé í samræmi við raunveru- lega þö.rf líkamans koma fram breytingar á líkamsþyngd. Fyrir það fyrsta fer líkaminn að brenna uppsafnaðri fitu um leið og vöðva- þræðir gildna. Fitan minnkar en vöðvar stækka sem leiðir til aukins líkamsþunga. Ef einhver óskar eft- ir að léttast, minnka i ummáli, er eina ráðið það að auka brennslu líkamans, hreyfa sig meira og minnka matarneysluna. Þetta er mjög erfitt sumum og líklega óger- legt einstaka fólki af ýmsum orsökum. Fyrir þetta fólk er aðeins það ráð að auka hreyfinguna, skokka til að mynda alla daga. Ég vona að ykkur takist það sem mér hefur mistekist með auðsóðum afleiðingum. Guðmundur þjálfari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.