Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986
GRIMSBY TOWN í HEIMSÓKN í NESKAUPSTAÐ
Áhangendur Þróttar á vellinum í Neskaupstað.
Nokkrir leikmenn Grimsby Town og aðdáendur um borð ■ Óðni.
Eftirminnileg sigling með Oðni
ÞEGAR Grimsby Town kom til
Neskaupstaðar að morgni föstu-
dagins hélt liðið beint á æfingu
á malarvelli heimamanna. Eftir
hádegismat var farið í siglingu
með varðskipinu Óðni sem kom
til Neskaupstaðar gagngert til
að fara með hópinn í siglingu.
Sigling þessi tók um þijár
klukkustundir. Siglt var inn á Mjóa-
§örð og aðeins út fyrir Austurland
og fannst mönnum mikið til koma
fegurð austfirskra fjalla.
„Þetta mun að öllum líkindum
vera skemmtilegasta sigling sem
við höfum farið og við munum
minnast hennar svo lengi sem okk-
ur endist aldur til,“ sagði Michel
Brown, þingmaðurinn breski sem
var með í förinni.
Hann minntist einnig á þorsk-
astríðin og sagði að hann vissi að
þeir væru ekki fyrstu Bretamir sem
hér væru um borð, „en við erum
hér við mun skemmtilegri aðstæður
en flestir þeir sem hér hafa verið á
undan okkur“. Brown nefndi einnig
það afrek er skipverjar á Óðni
björguðu breskum sjómönnum er
bátur þeirra fórst hér við land og
notaði tækifærið og þakkaði áhöfn-
inni fyrir afrekið.
Þegar leikmenn kvöddu áhöfn
Óðins gáfu þeir henni nokkur háls-
tau með merki félagsins og héldu
síðan til kvöldverðar.
Áður en haldið var í siglinguna
æfðu leikmenn á mölinni eins og
áður segir og voru þeir lítt hrifnir
af vellinum eins og gefur að skilja
því þeir leika eingöngu á grasi og
hafa aldrei séð malarvöll. Þegar
þeir hlupu inná völlinn greip sá
fyrsti um höfuðið, gretti sig og
sagði: „Jesus Christ."
Tvær úr klappliðinu.
halda strákunum hjá okkur. En til
þess að þetta verði þá þarf reglu-
gerðarbreytingu," sagði Guðmund-
ur Bjarnason 4 formaður Þróttar í
Neskaupstað.
— segir Guðmundur Bjarnason formaður Þróttar
symuna í ár sé nema um 500-600
þúsund. Það eru að koma upp sterk-
ir yngri flokkar hjá okkur núna
eftir nokkurra ára hlé. Ég vil þakka
breyttu fyrirkomulagi á þjálfara-
málum þeirra yngstu þennan
árangur. Við höftim síðustu tvö
árin látið meistaraflokksþjálfarann
vera með 6. flokkinn í nokkurs kon-
ar knattspymuskóla og það er
greinilegt að það skilar sér.
Annars hefur gengið frekar illa
að halda í stráka þegar þeir koma
upp í eldri aldursflokka og ég hef
ákveðna skoðun á því hvernig bæta
má úr því. Ef til dæmis Þróttur og
Austri frá Eskifirði fengju að senda
sameiginleg lið í íslandsmót 2. ald-
ursflokks, þó svo strákarnir léku
með sínum félögum í meistara-
flokki, þá tækist okkur betur að
GUÐMUNDUR Bjarnason er formaður Þróttar í Neskaupstað og
hefur hann átt dijúgan þátt í því að undirbúa komu Grimsby Town
hingað til lands ásamt nafna sínum Ingvasyni sem er formaður
knattspymudeildar Þróttar. Við ræddum við Guðmund á laugardag-
inn og spurðum hann fyrst hvemig þetta æfintýri hefði byijað allt
saman.
„Þetta byijaði allt saman í vetur
þegar við höfðum samband við for-
ráðamenn Fylkis Ltd. í Grimsby og
báðum þá um að grennslast fyrir
um hvort einhveijir knattspymu-
menn þar hefðu áhuga á að koma
til Neskaupstaðar og leika knatt-
spymu í sumar með Þrótti. Pilturinn
hjá Fylki gekk svo beint til verks
að hann sneri sér til Grimsby Town
til að athuga þetta og þá kviknaði
þessi hugmynd. Við höfðum nú
ekki mikla trú á því að þetta tæk-
ist en það tókst engu að síður.
Markmið okkar er fyrst og fremst
að reyna að efla knattspyrnuáhug-
ann hér fyrir austan."
— Vom ekki margar hindranir
sem þurfti að yfirstíga áður en
þetta varð að vemleika?
„Jú, jú. Það hefur verið í mörg
hom að líta, annars er Magni Krist-
jánsson búinn að vera aðaldriffjöðr-
in í þessu og þó við höfum unnið
talsvert þá er það ekkert á við hvað
hann er búinn að gera. Það var
auðvitað ýmislegt sem við höfðum
áhyggjur af. Það var ákveðið strax
að Grimsby yrði að leika einn leik
hér fyrir austan við okkur og við
höfðum dálitlar áhyggjur af því að
þeir vildu ekki leika á malarvelli
en þeir tóku strax vel í það og það
varð aldrei neitt vandamál í sam-
bandi við völlinn. Veðráttan hefur
líka verið okkur sérlega hagstæð
því völlurinn hér fer á flot ef það
rignir mikið og undanfarna daga
hefur verið gott veður og það bjarg-
aði því áhyggjuefni."
— Hvað með fjárhagshliðina, nú
hlýtur þetta að vera dyrt fyrir-
tæki sem þið ráðist út í. Hefur
lítið félag eins og Þróttur ráð á
þessu?
„Já, það er rétt að þetta kostar
peninga en Þróttur tekur enga fjár-
hagslega áhættu með þessu. Ef það
verður einhver ágóði af heimsókn-
inni þá fáum við hann en ef einhver
halli verður þá em það aðrir aðilar
sem sjá um það þannig að Þróttur
skaðast ekki hvemig sem allt fer.“
Þess má geta hér að þeir hjá
Þrótti í Neskaupstað hafa verið iðn-
ir við að fá erlend félög til sín í
gegnum árin. Föst samskipti em
við knattspymumenn í Sandavogi
og hafa verið í tvo áratugi. Félögin
heimsækja hvort annað annað hvert
ár og hafa Austfirðingar jafnan fjöl-
mennt á völlinn í Neskaupstað
þegar þessi lið eigast við, eins og
þeir reyndar gerðu þegar Grimsby
lék við Þrótt á laugardaginn. En
hvemig gengur rekstur Þróttar í
sumar og telur Guðmundur að
knattspyrnan sé á uppleið hjá þeim?
„Reksturinn gengur bærilega,
enda er þetta ódýrt sumar hjá okk-
ur. Ætli kostnaðurinn við knatt-
I
Markmiðið að reyna að rífa
knattspyrnuna aðeins upp
í-
Magni ákvað meira að segja veðr-
ið eins og góðum skipstjóra sæmir
— sag*ði Jón Olgeirsson ræðismaður í Grimsby
MAGNI Kristjánsson, skipstjóri á
Berki frá Neskaupstað, er sá
maður sem hvað mestan þátt á í
því að knattspyrnuliðið Grimsby
Town kom hingað til lands í
heimsókn. Jón Olgeirsson, ræðis-
maður íslands í Grimsby, lagði
einnig sinn hlut þar að málum
en hann á einnig fisksölufyrir-
tækið Fylki Ltd. í Grimsby og í
gegnum það fer mest allur fiskur
sem Síldarvinnslan á Neskaup-
stað selur þar í borg. Við
ræddum við þá Magna og Jón
fyrir leik Þróttar og Grimsby á
Neskaupsstað á laugardaginn og
spurðum þá fyrst hvernig stæði
á því að 2. deildar Iið í Englandi
væri komið alla leið austur á
Neskaupsstað til að leika knatt-
spyrnu við 3. deildar lið Þróttar.
„Við höfum um langt skeið átt
ánægjuleg viðskipti við sjómenn frá
Islandi og þegar forráðamenn
Þróttar báðu okkur um að grennsl-
ast fyrir um hvort ekki væru
einhvetjir sem hefðu áhuga á að
leika með Þrótti í sumar fannst
okkur tilvalið að athuga hvort
Grimsby Town væri ekki tilbúið að
koma og leika nokkra ieiki og koma
þar með á sambandi í knattspyrn-
unni líka, eins og í fískinum,“ sagði
Jón Olgeirsson.
„Mike Lyons, framkvæmdastjóri
Grimsby og leikmaður með liðinu,
átti ef til vill hugmyndina því þegar
leitað var til hans spurði hann strax
hvort ekki væri tilvalið að fara með
allt liðið og leika nokkra leiki. Þetta
væri tilvalið fyrir þá til að byggja
U[ip liðið fyrir komandi keppnistí-
mabil og ná upp góðum liðsanda.
Grimsby er ekki ríkt félag og þar
líta menn á þessa ferð sem nokkurs-
konar hlunnindi til handa leikmönn-
um. Ferðin er fyrst og fremst farin
til þess að efla liðsandann og þjappa
strákunum saman," bætti hann
síðan við.
í för með knattspyrnuliðinu eru
einnig þingmaður, blaðamaður og
menn úr stjóm félagsins en alls var
það 27 manna hópur sem kom hing-
að til lands. Eins og áður sagði
hefur Magni Kristjánsson unnið
manna mest í að gera þessa heim-
sókn að veruleika. Hvemig stóð á
því að hann hefur lagt svo mikið á
sig í sambandi við þessa heimsókn?
• „Ætli að þorskastríðið eigi ekki
mestan hlut þar að máli. Ég var
háseti í fyrsta stíðinu en skipstjóri
í tveimur næstu þannig að ég hef
tekið þátt í þeim öllum. Ég hef siglt
mikið á Grimsby í gegnum árin og
áhöfnin hjá mér og starfsfólkið hjá
Jóni eru góðir kunningjar þannig
að þegar þetta kom til tals ákvað
ég að slá til og vera með í þessu
ævintýri. Ekki alls fyrir löngu las
ég í ensku blaði grein þar sem ve-
rið var að minnast þess að tíu ár
eru nú liðin frá því síðasta þorska-
stríðinu lauk. Grein þessi var öll
hin vingjamlegasta í garð okkar
íslendinga og mun vingjarnlegri en
ég bjóst við og þessi grein ýtti einn-
ig á eftir mér að vera með í þessu.
Sem meðlimur í Þrótti fannst
mér ég verða að gera eitthvað fyrir
félagið þegar leitað var til mín um
að vera með. Ég hef líka alla tíð
haft mikinn áhuga á fótbolta. Fer
á alla leiki hér og á Eskifirði ef ég
get og hef gaman af,“ sagði Magni.
k