Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986
17
Morniónamusteri í bænum Paradise.
fjármagnað rannsóknarstöð þar
sem verið er að smíða nokkurs kon-
ar „supercomputer", tölvu sem
vinnur á margföldum hraða á við
það sem í dag þekkist. Mikil körfu-
boltahöll er á háskólalóðinni, gjöf
frá herra Marryott, hótelhaldara,
en hann var mormóni og er nýlát-
inn. Þá lést einnig fyrir skömmu
leiðtogi mormónakirkjunnar um
áratuga skeið, Spencer Kimball.
Var svo heppinn að sjá honum
bregða fyrir eitt skipti á hóteli því
sem ég bjó á, Hotel Westin Utah,
miklu glæsihóteli. Þar hafði leið-
toginn íbúð til umráða, enda stutt
þaðan í Temple Square þar sem
mormónakirkjan og aðaistöðvamar
eru. Þeir eiga má segja allt fylkið,
viðskiptahallir, útvarpsstöðvar o.fl.
Fór í skoðunarferð um aðalstöðv-
amar í Temple Square og er fróð-
legt að sjá söguhús þeirra þar sem
rakin er saga mormónatrúar með
ævintýmm og erfíðleikum. Leið-
sögumaður minn var afar duglegur
og alúðlegur og útskýrði hvert at-
riði af mikilli kunnáttu. Efst í
sögusafninu er geysifalleg og há
Kristsstytta eftir hinn „danska"
listamann Thorvaldsen og heyrði
ég leiðsögumennina sí og æ halda
þessu fram. Ég hafði samband við
yfirmann sögusafnsins og útskýrði
fyrir honum fjölskylduhagi Bertels
Thorvaldsen. Ég vona að nú sé
búið að breyta öllum ferða-
mannabæklingum og leiðrétta
útskýringar leiðsögumanna safns-
ins á þann veg að minnst sé á
tengsl Thorvaldsens við ísland.
Skellti mér upp til Sundance, en
þar á Robert Redford ágætis bú-
garð og lifir eins og blómi í eggi.
Skíðasvæðin í fjöllunum í kringum
Salt Lake City em nokkuð góð á
að líta og fyrirtaks hótel og lyftur.
Þá má og taka fram við væntanlega
Utah-fara að á skíðahótelum í Alta
em framreiddar þær beztu
amerísku steikur sem til em þó víða
séu þær góðar og stórar eins og allt
í henni Ameríku. Það er margt að
sjá í Utah, miklar eyðimerkur og
líður manni vel í þessari hlýju
víðáttu. Eyddi degi í að aka í kring-
um Lake Utah fyrir sunnan Salt
Lake City og var það dýrlegt ævin-
týri, fallegir, beinir, malbikaðir
vegir í gegnum eyðimörkina og
þögnin alger. Var þá á heimleið frá
bókasafninu við háskólann í Provo.
Þar í kjallaranum er geysistórt safn
íslenzkra bóka, bóka sem innflytj-
endumir höfðu meðferðis, alþýðu-
fróðleikur, gatslitnar skmddur sem
bera vott um ást á landi, máli og
þjóð. í safninu í Provo er og mikið
ættfræðisafn, en mormónar hafa
lagt sig fram við að ljósmynda
kirkjubækur í um 40 löndum og er
þar margan fróðleik að fínna og
ávallt mikið um heimsóknir manna
sem em að leita uppmna ætta
sinna.
Margt er að sjá í Utah, það er
fallegt landslag, gott fólk og er
gott að vita af svona fögm ríki þar
sem kjami íslendinga hefur fundið
það sem mestu skiptir í lífinu, ham-
ingjuna.
Höfundur starfar sem blaðafull-
trúi bjá Menningarstofnun
Bandaríkjanna.
Stjórnunarfélag Islands
Tölvuskóli Stjórnunarfélags íslands tók til starfa haustið 1985. í upphafi var Ijóst að
áhugi fyrir aukinni menntun er tengdist tölvum og tölvuvæðingu var mikill.
Á haustmisseri 1986 tekur skólinn til starfa 1. sept. og verður kennt í 4 klst. á dag í 14
vikur (samt. 280 klst.).
□
□
□
□
□
□
□
Námsefni:
Kynning á tölvum______
Stýrikerfi og skráarkerfi
Kerfisgreining________
Kerfishönnun__________
Forritun______________
Gagnasaf nsf ræði_______
íslenski tölvumarkaðurinn.
I Til að uppfylla kröfur atvinnulífsins
Miklar kröfur eru gerðar til nemenda með prófum og heimaverkefnum. Einnig hefur
reynst nauðsynlegt að gera kröfur um lágmarksmenntun nemenda, sem nú eru stú-
dentspróf, sambærileg menntun eða starfsreynsla. Auk þess þurfa nemendur að taka
inntökupróf í skólann.
Nemendur sem útskrifast úr Tölvuskóla Stjórnunarfélagsins geta að námi loknu unnið
með tölvunar-, viðskipta- og kerfisfræðingum við hugbúnaðarframleiðslu og rekstur
tölvukerfa. Með því að gera miklar kröfur til nemenda uppfyllir Tölvuskólinn kröfur
atvinnulífsins. Tölvuskólinn hefst 1. september og stendur í 14 vikur.
Allar nánari upplýsingar í síma 62 10 66
Séð yfir Salt Lake City.
BOMANITE BOMANITE BOMANITE Á höfuðborgarsvæðlnu
AKURBYRI HAFNARFIRÐI / GARÐABÆ KEFLAVÍK / SUÐURNESJUM notum vlð elngongu steypu
Magnús Glslason Bjðm Ámason Elnar Traustason frá ÓS.
Múraramelstari Múrarameistari Múrarameistari ■KM STEVPA SEIVl STEINIST
Lerkilundi 28 Hjallabraut 13 Hafnargótu 48
S. 96-21726 S. 53468 S. 92-3708
MUNSTUR NO. 1
DdJDC
□CXD
DOCDC
CDCDCD
MUNSTUR NO. 2
MUNSTUR NO. 3
MUNSTUR NO. 4
MUNSTUR NO. 5
MUNSTUR NO. 6
MUNSTUR NO. 7
T
Á ÍSLANDI
SMIÐJUVEGI lle
S. 641740
mldos auglýslngaþjónusta, s. 685651