Morgunblaðið - 12.08.1986, Síða 13

Morgunblaðið - 12.08.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 13 Reykjavík: Nærri þrír tugir öku- manna teknir við ölvunar- akstur LÖGREGLAN í Reykjavík fylgdist vel með því um helg- ina að ökumenn væru ekki undir áhrifum áfengis við akstur. Alls voru 27 ökumenn stöðvaðir frá miðnætti á föstudag og fram að mánu- dagsmorgni. Oskar Ólason yfírlögreglu- þjón sagði að lögreglan hefði hafíð eftirlitið um miðnætti á föstudag og aðfaranótt laugar- dagsins hefðu 13 ökumenn verið teknir, grunaðir um ölvun. „Við vorum með lækni á lögreglu- stöðinni og þurftum því ekki að fara með ökumenn á slysadeild Borgarspítala til að taka úr þeim blóðsýni," sagði Óskar. „Eftirliti höguðum við þannig að við stöðvuðum allar bifreiðir sem fóru um ákveðnar götur og voru sumar bifreiðir því stöðvaðar tvisvar sinnum eða oftar. Alls voru þetta á þriðja þúsund bif- reiðir og 27 ökumenn voru teknir. Það kemur síðan í Ijós hvort þeir eiga á hættu ökuleyf- issviptingu eða sektir," sagði Óskar Ólason. Lögreglan ætlar að leggja mikla áherslu á það á næstunni að fylgjast vel með ölvunar- akstri. Það er ekki eingöngu lögreglan í Reykjavík sem herð- ir eftirlitið, heldur lögregla um allt land. Hluti hins norska hóps garðyrkjumanna, sem undanfarið hafa ferðast víðs vegar um ísland. Morgunblaðið/Bjami Norskir garðyrkj umenn í heimsókn á íslandi NORSKIR garðyrkjumenn, þijátíu talsins, hafa dvalið hér á íslandi undanfarinn hálfan mánuð. Hópur þessi, félagar í „Gestrisni íslend- inga hreint frábær“ - sagði Esther Boilestad, einn þátttakenda í ferðinni Garðyrkjufélagi Noregs, sem samanstendur bæði af fagfólki í garðyrkju og og áhugamönn- um, hefur ferðast víðs vegar um ísland og kynnt sér íslenska náttúru og stöðu garðræktar á íslandi. Fyrstu viku ferðarinnar dvaldi hópurinn á Selfossi. í fyrstu fengu þau fyrirlestra í tvo daga í Garð- yrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Hveragerði. Var þar rætt um gróð- urfar á Islandi, kosti þess og galla, vandamál í sambandi við gerð skjólbelta, starfsemi skólans og tilraunastarfsemi þar og annars staðar á landinu. FVá Selfossi voru famar dagsferðir um Suðurland; var m.a. farið í Þjórsárdal, Land- mannalaugar og að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum. Frá Selfossi lá leið hópsins til Fljótshlíðar; var þar m.a. sótt heim landgræðslustöðin í Gunnarsholti, tijáræktarstöðin á Tumastöðum og Múlakot. Eftir stutta viðkomu í Þórsmörk var farið norður Sprengisand að Laugum og gist þar í þrjár nætur. Þaðan var m.a. farið til Húsavíkur, þar sem Garð- yrkjufélag Húsavíkur tók mjög vel á móti þeim, og einnig var farið til Mývatns og að Kröflu. Hópurinn dvaldi í einn dag á Akureyri í boði Garðyrkjufélags Akureyrar og skoðaði þar m.a. Lystigarðinn á Akureyri. Einnig var heimsóttur bærinn Fomhagi í Hörgárdal, en þar er mikil og merkileg heima- rækt, svo og litið við í Glaumbæ í Skagafirði. Síðasta daginn áður en hópurinn kom aftur til Reykja- víkur fór hann víðs vegar um Borgaríjörð. Komið var við í Reyk- holti, merkileg gróðrarstöð að Laufskálum skoðuð og skógræktin í Skorradal heimsótt. Síðdegis á laugardag var svo aftur komið til Reykjavíkur. Heim til Noregs fór hópurinn svo á mánudag. „FYRIRLESTRARNIR í Hvera- gerði voru mjög nytsamlegir og veittu okkur þá innsýn, sem nauðsynleg er til þess að öðlast skilning á því sem skoðað var síðar í ferðinni," sagði Esther Beilestad, einn þátttakendanna í ferðinni. „Með fyrirlestmnum fengum við innsýn í þau vandamál, sem íslensk garðyrkja á við að stríða. Sem dæmi um það sem við fræddumst um er þáttur skjólbelta í garðrækt- inni, en þeim mun ávallt vera nauðsynlegt að koma upp áður en ræktuð eru skrautblóm.“ Olafur Njálsson stjómaði fyrirlestrahald- inu og gerði það á mjög auðskiljan- legan og áhugaverðan hátt að sögn Esther. Esther Bailestad kvað það hafa komið sér mest á óvart hversu margir góðir garðar væm á íslandi og hve mikill áhugi væri á garð- rækt. „Það hafði og mikil áhrif á mig að koma á varmasvæðin í ná- grenni Mývatns og einnig var baðið í Landmannalaugum stórkostleg upplifun." Þorleifur Einarsson jarð- fræðingur fór með hópnum til Landmannalauga og hélt þar fyrir- lestur um jarðfræði Islands, „varð það mjög til þess að auka skilning okkar á því, sem fyrir augu bar“. Bailestad kvað það hafa haft mikil áhrif á sig og aðra í hópnum að aka um hraun og eyðileg svæði, en sjá jafnframt gróðurinn vera að ryðja sér til rúms við svo erfíðar aðstæður. „Plönturnar em líf, en hér á Islandi er allt landið lifandi.“ „En það sem hafði langmest áhrif á okkur var hin ótrúlega gestrisni, sem alls staðar mætti okkur. Nefndi hún sem dæmi um það, að á Húsavík hefðu þau fengið soðinn lax og annan íslenskan mat og drykki í boði garðyrkjufélagsins þar og að Aðalsteinn Símonarson að Laufskálum í Borgarfirði hefði leyst hvern þátttakanda í ferðinni út með gjöf; einum mola úr steinasafni sínu. Það er af nógu af taka, gest- risnin var alls staðar frábær." Avaxta- og grænmetisframleiðsla á Norðurlöndum: Helmingur fer fram í einkagörðum - sagði Dagfinn Tveito f ramkvæmdastj ór i norska garð- yrkjufélagsins og ritari norræna garðyrkjusambandsins „ÞAÐ SEM býr að baki þessari ferð er að undanfarin tvö til þijú ár hefur verið unnið að stofnun norrænnar garðyrkju- miðstöðvar,“ sagði Dagfinn Tveito, framkvæmdastjóri „Det norske Hageselskab" eða hins norska garðyrkjufélags, „og fyrir tveimur vikum ákvað norska ríkisstjórnin að láta norræna garðyrkjusambandinu í té 20-30 hektara lands við Landbúnaðarháskólann í Ás, þar sem margir íslendingar hafa hlotið menntun." „Eg reikna með að norræna ráðherranefndin taki þátt í þessu samstarfi og á fundi norrænu landbúnaðarráðherranna, sem haldinn var hér á Islandi nýverið, voru þessi mál rædd.“ Oddvar Nordli, fyrrum forsætisráðherra Noregs, er formaður norska garð- Morgunblaðið/Bjami Dagfinn TVeito yrkjufélagsins svo og hins nor- ræna garðyrkjusambands. Dagfinn er hins vegar ritari fyrir báða aðila.“ „Stórum upphæðum er varið árlega til rannsókna á sviði garð- yrkju í atvinnuskyni; matjurta- ræktunar, tijáræktar og skrúðgarða. M.a. er það tilgang- urinn með miðstöðinni, að safna saman niðurstöðum atvinnuveg- anna og miðla til hins almenna garðeigenda og verður þetta mjög mikill þáttur í starfsemi miðstöðv- arinnar. Helmingur framleiðslu ávaxta og grænmetis á Norðurlöndum fer fram í einkagörðum og er verð- mætið um þrír milljarðar norskra króna, selt út úr búð. Það sem er hins vegar mun verðmætara er ekki unnt að meta til fjár, en það er ánægjan og hin andlega hvíld, sem fylgja garðrækt."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.