Morgunblaðið - 12.08.1986, Side 44

Morgunblaðið - 12.08.1986, Side 44
44 MORGUNBLABDD, ÞRIDJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 ?Minning: Rannveig Ingi- mundardóttir Fædd 29. desember 1911 Dáin 3. ágúst 1986 Frú Rannveig andaðist á Borg- arspítalanum í Reykjavík á sunnu- dagsmorgni eftir fremur stutta •egu. Hún var fædd að Karlsstöðum á Berufjarðarströnd í Suður-Múla- sýslu. Foreldrar hennar voru Anna María Lúðvíksdóttir, elsta dóttir hjónanna á Karlsstöðum, og Ingi- mundur Sveinsson, húsgagnasmíða- meistari. Hann var ættaður úr Vest- ur-Skaftafellssýslu, þremenningur við Jóhannes Sveinsson Kjarval list- málara. Ungur að aldri fór Ingi- mundur til Noregs til trésmíða- náms, því að hann var vel hagur. Þar dvaldi hann við nám og vinnu um 15 ára skeið. Eftir heimkomu til íslands gerð- ist hann heimilismaður á Karlsstöð- um. Þar kynntust þau Anna María, sem var 10 árum yngri en hann fædd 24. júlí 1881. Þau gengu í hjónaband 27. júní 1908. Þau Anna María og Ingimundur dvöldust fyrst hjá foreldrum hennar á Karlsstöð- ;Um og þar fæddust þijú böm þeirra. Síðar fluttust þau til Djúpavogs og þar fæddust þeim enn þijú börn. Þar hélt Ingimundur áfram að stunda smíðar og síðar sjó- mennsku. Hann dó 19. júní 1923, og hafði þá verið nær því biindur um skeið. Af systkinum Rannveigar eru tveir bræður dánir, Jón og Sveinn Ingi, sem báðir bjuggu á Stöðvar- firði. Þijú systkini eru á lífí: Dagný, sem býr í Vestmannaeyjum, Lovísa ^pg Sverrir, sem búa á Stöðvarflrði. Rannveig, sem var næstelsta bam foreldra sinna, fluttist eftir dauða föður síns til Reykjavíkur og átti heimili hjá móðursystur sinni Jóhönnu og manni hennar, Jóni Þórðarsyni, prentara. Þar bjó hún um 11 ára skeið eða þar til hún giftist. Þennan tíma stundaði hún ýmsa vinnu, bæði til sveitar og sjáv- ar og var meðal annars um tíma við fiskvinnu í Viðey. Haustið 1931 urðu mikil þátta- skil í lífi hennar, þá fór hún til náms í Reykjaskóla í Hrútafírði veturinn 1931—1932. Einn af skólabræðmm hennar þar var glæsilegur bóndasonur úr Miðflrði, ^igfús Bergmann Bjamason. Hann var fæddur í Núpsdalstungu í Mið- fírði 4. maí 1913, kominn af Bergmannsætt. Sigfús hafði byijað nám sitt í Reykjaskóla 1. febrúar 1931 og lauk því um vor 1932. Var hann seinni vetur sinn matarstjóri við Reykjaskóla ásamt tveimur öðr- um nemendum. Komu þá strax í Ijós miklir hæfíleikar hans í verslun og framkvæmdum. Um tvítugur að aldri stofnaði hann ásamt Magnúsi Víglundssyni heildverslunina Heklu Blömastofa FriÖjinns Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiðöllkvöld til kl. 22,- elnnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. í Reykjavík, en varð brátt einn um það fyrirtæki, sem enn í dag er eitt af blómlegustu og best reknu fyrirtækjum í Reykjavík. Hugir þeirra Rannveigar og Sig- fúsar féllu brátt í sömu átt og 27. október 1934 gengu þau í hjóna- band. Þau lifðu í athafnasömu og hamingjuríku hjónabandi, en Sigfús andaðist 19. september 1956, að- eins 54 ára gamall. Virtist mörgum kunningjum hans og vinum, að hann hefði átt mörg góð verkefni framundan. Þau Rannveig og Sigfús eignuð- ust fjögur börn og vinna þau öll við það fyrirtæki, sem foreldrar þeirra stofnuðu fyrir rúmlega hálfri öld. Þau skipta þar með sér stjórn- arstörfum á þann hátt að til fyrir- myndar er og var móður þeirra til yndisauka. Var það henni til mikill- ar ánægju að hafa á hendi for- mennsku í þessu stóra og vel rekna hlutafélagi, sem eiginmaður hennar var aðalstofnandi að. Bömin em þessi: Ingimundur, fæddur 13. janúar 1938. Kona hans er Valgerður, dóttir Vals Gíslasonar leikara í Reykjavík og konu hans, Laufeyjar Amadóttur. Sverrir, fæddur 1. september 1939. Kona hans er Stefanía Þór- unn Davíðsdóttur vélsmíðameistara í Mosfellssveit og konu hans, Ingi- bjargar Friðfínnsdóttur fískmats- manns í Reykjavík. Sigfús Ragnar, fæddur 7. októ- ber 1944. Kona hans er Guðrún Norberg Aðalsteinsdóttir ritsíma- stjóra í Reykjavík og konu hans, Ásu Norberg, en hún er dóttir Karls Bemdsens kaupmanns á Skaga- strönd. Margrét Ingibjörg, fædd 12. september 1947. Margrét á tvær dætur, Rannveigu Önnu, fædd 4. janúar 1972, og Helene, fædd 16. nóvember 1978. Þessar tvær stelp- ur vom mjög hændar að ömmu sinni og að vemlegu leyti aldar upp af henni, einkum sú eldri. Því er þeirra minnst hér. Bamaböm frú Rannveigar em, þegar þetta er skrifað, 13 að tölu. Frú Rannveig var fríð kona og sómdi sér vel hvort sem var heima eða að heiman. Hún var greind kona og myndarleg húsmóðir svo að af bar. Heimili hennar á Víðimel 66 var fallegt og bar vott um list- hneigð og smekkvísi. Hún var ekki gefín fyrir að trana sér fram eða láta mikið á sér bera. En kæmi hún auga á einhvem, sem var í vand- ræðum eða átti við bágindi eða fátækt að stríða, var hún jafnan í fremstu röð til hjálpar, hvort sem í hlut áttu einstaklingar eða líknar- félög. Hún var ræktarsöm við fátæka vini sína, heimsótti þá oft færandi hendi. Henni var ekki áhugamál að láta slíkar athafnir fréttast til umheimsins. Marga vini eignaðist hún á þennan hátt. í minningargrein, sem Páll Kolka héraðslæknir ritaði um Sigfús Bjarnason, frænda sinn, í Morgun- blaðið 26. september 1967, segir svo um frú Rannveigu: „Er hún hið mesta valkvendi, hógvær, og hlý í umgengni og hugljúf hveijum sem kynnist henni." Rannveig studdi mann sinn frá- bærlega vel í miklu starfi hans, ekki einungis í uppeldi bama þeirra og daglegum húsmóðurstörfum, heldur átti hún verulegan þátt í stjómun fyrirtækis þeirra, miklu stærri þátt en flestir aðrir höfðu vitneskju um. Áhrif hennar á þessu sviði voru aðallega fólgin í tvennu: Hún kom fram með hugmyndir um fyrirkomulag og störf í Heklu eða lagði fram álit sitt á skoðunum annarra í þeim efnum. í annan stað var ávallt opið hús hjá henni fyrir gesti fyrirtækisins, jafnt útlenda sem innlenda, og hún kynntist þeim í eigin persónu. Slík kynning getur oft haft mikil áhrif í viðskiptum. Báðir þessir þættir í fari Rann- veigar voru mikils metnir hjá Sigfúsi og bömum þeirra hjóna. Ég sendi börnum Rannveigar og flölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur og þakka þeim vináttu margra ára. Minningin um foreldra þeirra gleymist ekki þeim, er urðu svo lánsamir að eiga með þeim sam- leið á lífsbrautinni. Guðmundur Jónsson frá Hvanneyri Kveðja frá samstarfs- mönnum í Heklu hf. Við andlát Rannveigar Ingi- mundardóttur er starfsmönnum Heklu hf. efst í huga virðing og þakklæti til hennar fyrir elskulegt viðmót í hvert skipti sem fundum bar saman, og einlægan og vökulan áhuga á öilu sem snerti velferð þeirra og fjölskyldna þeirra. Það brást aldrei, að þegar Rann- veig átti leið um hinar ýmsu deildir fyrirtækisins, tók hún starfsmenn tali og var þá jafnan umhugað að inna þá eftir þeirra eigin hag um leið og rætt var um hvemig sjálf störfín gengju. Þegar starfsmannafélag var stofnað innan fyrirtækisins sýndi hún málefnum þess strax mikinn áhuga og velvilja og studdi félagið í orði og verki frá upphafí. Stjómun mannmargra fyrirtækja er margslungin og oft erfíð, og ekki ætíð fyrirfram gefíð, hvemig til tekst. Það er hinsvegar fullvíst, að enda þótt Rannveig heitin léti ekki mikið á sér bera í daglegri stjómun síns fyrirtækis, átti hún ómældan hlut í að Hekla hf. er nú stórfyrirtæki, sem stendur traust- um fótum og nýtur álits í iandinu. Hennar verk var að styðja stað- fastlega við bak eiginmanns síns, Sigfúsar heitins Bjamasonar, þegar hann var af sínum alkunna dugnaði að stýra fyrirtæki þeirra í gegnum erfið fmmbýlisár, og vegna þess hve Sigfús Bjamason var alla tíð störfum hlaðinn maður, hefur Rannveig vafalaust átt sinn stóra þátt í að veita bömum þeirra hjóna það vandaða uppeldi, sem þau búa að alla ævi, ásamt arfteknum eigin- leikum góðra foreldra. Við sem hófum ungir störf hjá Heklu hf. og höfum unnið lengst með Rannveigu og fyrir hana, sökn- um hennar. Við söknum hennar Ijúfa viðmóts sem aldrei brást, jafn- vel ekki á erfiðum stundum. Við söknum hennar uppörvandi hvatn- ingarorða, sem henni var svo einkar lagið að gefa, ef menn fóru að mikla fyrir sér smáerfíðleika sem verða á vegi allra, í starfí og leik. Við söknum vinar sem gaf holl ráð og bar virðingu fyrir skoðunum okkar jafnvel meðan við vorum ungir og óreyndir. Við söknum konu, sem bjó yfir þeirri sönnu menningu, sem ekki verður lærð á æðstu menntasetrum, en einungis þeir geta tileinkað sér, sem eiga fölskvalaust hjarta. Við söknum vammlausrar konu. Við biðjum Guð að blessa för Rannveigar Ingimundardóttur inn á ókunna landið og vottum ijöl- skyldu hennar samúð okkar. Finnbogi Eyjólfsson „Væna konu, hver hlýtur hana? hún er miklu meira virði cn perlur." (Orðskviðir, 31.1) Þessi orð hafa mér alltaf fundist vera einkennandi fyrir vinkonu mína, Rannveigu Ingimundardótt- ur, og nú, þegar hún er horfín yfír móðuna miklu, koma þau mér enn í hug. Ég man glöggt þegar ég sá hana í fyrsta sinni, þó síðan séu liðin meira en fimmtíu ár. Það var á Reykjaskóla í Hrútafírði, en þar vorum við skólasystur og herbergis- félagar. Hún bar af öllum, ekki aðeins vegna fegurðar sinnar, held- ur og vegna fágaðrar framkomu, hreinlyndis og hjartahlýju, og þess- ir eiginleikar fylgdu henni alla æfí, svo enginn sem henni kynntist gat nokkru sinni gleymt henni, né hætt að láta sér þykja vænt um hana. Rannveig Ingimundardóttir var glæsileg kona, mikil húsmóðir, góð eiginkona, elskuleg móðir og vinum sínum sönn í hverri raun. Öllum leið vel í návist hennar og jafnvel þótt hún segði ekkert yljaði bros hennar umhverfínu. Hún vildi öllum gott gera, mátti ekkert aumt sjá og reyndi að hjálpa öllum sem hún áleit vera hjálparþurfí. Hún hafði þá sérstöku reisn, sem einkennir heilsteyptan persónuleika. Sú vinátta sem með okkur tókst í æsku entist ævilangt. Oft leið þó langt milli funda, því báðar höfðum við mörgu að sinna, og þegar aldur- inn færðist yfír okkur varð erfíðara um vik að hittast, en við töluðum þá saman í síma. í síðasta skipti sem hún hringdi til mín sagðist hún vera þreytt og mér fannst það eng- in furða. Á sunnudagsmorguninn þann 3. ágúst frétti ég að hún væri komin í sjúkrahús og væri mikið veik. Þegar ég síðan hringdi til sonar hennar, til þess að spyija eftir líðan hennar, sagði hann mér að hún væri látin. Fallega stúlkan með dökka hárið og hlýja brosið, sem ég kynntist fyrir fímmtíu árum, hefír nú endað sitt æviskeið og er komin þangað sem engir harmar hijá. Við, sem eftir erum, getum aðeins þakkað liðin ár og fylgt henni í bænum okkar. Sannarlega var það, að hafa fengið að verða henni samferða um stund, miklu meira virði en perlur. Guðrún Jónsdóttir f rá Prcstbakka Rannveig Ingimundardóttir var einstök kona, ákaflega gjafmild, prúð í fasi og höfðingi heim að sækja. Það var nánast fyrir tilviljun að kynni okkar hófust, en við vorum báðar starfandi fyrir félagasamtök- in Vernd, sem stofnuð voru 1. febrúar 1960. Rannveig og Sigfús Bjamason í Heklu, eiginmaður hennar, studdu Vemd mjög rausn- arlega, en þau voru samtaka í hjálpsemi og aðstoð við þá sem minna máttu sín. Sigfús lézt 1967, langt um aldur fram. Þegar Jólanefnd Vemdar tók til starfa var Rannveig kosin í hana og átti sæti í nefndinni til dauða- dags. Þá var hún einnig í stjóm Verndar. Það var ákaflega auðvelt og skemmtilegt að starfa með Rann- veigu. Hún var ávallt jákvæð og létt í lund, þótt stundum væri dálít- ið þungur róðurinn að afla þess sem þurfti fyrir jólafagnaðinn okkar í Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður Vemd og aðra starfsemi nefndar- innar. Samstarf okkar Rannveigar í jólanefndinni hefír staðið í 17 ár eða síðan ég tók við formennsku af Sigríði J. Magnússon. Á það sam- starf bar aldrei skugga. Við áttum saman ótal skemmtilegar stundir, þar sem ég var oftast þiggjandinn, og vegna aldursmunar gat hún miðlað margvíslegum fróðleik frá liðnum dögum, sem gaman var að hlusta á. Rannveig og Sigfús áttu bama- láni að fagna. Böm þeirra eru öll vel menntað dugnaðar- og myndar- fólk sem nú rekur fyrirtæki foreldra sinna í þeirra anda. Rannveig unni mjög bömum sínum og fjölskyldum þeirra og hugsun hennar snerist ekki sízt um litlu stúlkumar tvær, dótturdætumar, sem búa með Margréti móður sinni í húsinu á Víðimel. Þar er nú skarð fyrir skildi. Á kveðjustundu þakka ég Rann- veigu mikil og óeigingjöm störf í Jólanefnd Vemdar og dýrmæta vin- áttu, sem ég mun ekki gleyma. Ástvinum hennar öllum votta ég og fjölskylda mín dýpstu samúð. Hanna Johannessen Frú Rannveig Ingimundardóttir fæddist á Karlsstöðum á Bemfjarð- arströnd, dóttir hjónanna Önnu Lúðvíksdóttur, sem var elzta dóttir hjónanna á Karlsstöðum, og Ingi- mundar Sveinssonar, húsgagna- smiðs, sem ættaður var úr Vestur-Skaftafellssýslu. Um tveggja ára aldur fluttist Rannveig með foreldrum sínum til Djúpavogs, þar sem faðir hennar stundaði baeði húsgagnasmíði og sjósókn. Árið 1923 dó heimilisfaðir- inn úr lungnabólgu, og leystist heimilið þá upp. Flutti Rannveig, sem þá var næstelzt 6 systkina, til Jóhönnu móðursystur sinnar og manns hennar, Jóns Þórðarsonar, prentara í Reykjavík. Hjá þeim átti hún lögheimili um 11 ara skeið eða allt þar til hún giftist. Haustið 1931 fór Rannveig til náms í Reykjaskóla í Hrútafírði og kynntist þar tilvonandi eiginmanni sínum, Sigfúsi Bergmann Bjama- syni, sem einnig nam við skólann. Hann var ættaður úr Miðfírði í Húnavatnssýslu. Gengu þau í hjónaband þann 27. október 1934. Nokkru áður hafði Sigfús maður hennar stofnað Heildverzlunina Heklu með Magnúsi Víglundssyni, sem nú er látinn. Verzluðu þeir fé- lagar í fyrstunni með vefnaðarvörur og ávexti innflutta frá Spáni. Síðar skildi leiðir. Sigfús setti á stofn fataverksmiðju undir sama nafni en Magnús fór út í skógerð, sem hann rak um árabil. Síðar þróaðist heildverzlunin Hekla út í viðskipti með vélar og tæki, og er í dag, sem raun ber vitni, eitt af stórfyrirtækj- um landsins. Frú Rannveig átti þátt í hinum umsvifamikla rekstri eiginmanns síns og var sú stoð og stytta heimil- islífsins, sem hvergi brást né lét undir höfuð leggjast að styðja hann og styrkja til átaka og fram- kvæmda. Mátti segja, að bæði voru þau hjón harðdugleg og stórhuga og létu hvergi bugast, þótt við ýmsa byijunarerfiðleika væri að etja. Þau voru bæði framúrskarandi hjáipsöm og gestrisin og höfðingjar heim að sækja. Með umsvifamiklum rekstri og stóru heimili hafði frú Rannveig tíma til að verða einn af stofnfélög- um kvenfélags Neskirkju, sem þá var nýstofnað. Frú Rannveig var ein af fyrstu konunum í sókninni, seni skrifuðu nafn sitt á listann, sem síra Jón Thorarensen, fyrsti prest- urinn í Nesprestakalli og eigin- maður undirritaðrar, sendi út í sóknina, vegna vinsamlegra tilmæia þáverandi biskups, hr. Sigurgeirs Sigurðssonar, um að fá sem flestar konur í safnaðarstarfið. Ekki þarf að orðlengja það, að frú Rannveig varð ein af máttarstoðum hins ný- stofnaða kvenfélags, ásamt mörg- um góðum konum öðrum, þótt ekki sæti hún í stjórn. Alltaf var hægt að leita til hennar um aðstoð, sem fúslega var veitt við hvert tæki- færi, hvort heldur var vinna við bazar, kaffíveitingar eða útvegun muna til sölu á vegum hins nýstofn-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.