Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 12

Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 Póstur og sími er stofn- un allra landsmanna - segir Jón A. Skúlason, póst- og símamálastjóri, sem er sjötugur í dag og lætur senn af störfum fyrir aldurs sakir Jón A. Skúlason Jón A. Skúlason, póst- og símamálastjóri á sjötugsafmæli í dag. Hann lætur af störfum fyrir aldurs sakir 1. september nk. Hann hefur gegnt starfi póst- og símamálastjóra frá 1. maí 1971. Blaðamaður hitti Jón A. Skúlason að máli á skrifstofu hans i Landsímahúsinu við Austurvöll. Frá því ég kom frá útlöndum hefur lífsstarf mitt verið í þágu Pósts og síma, síðustu fimmtán árin hef ég sinnt þessu," segir Jón og á við embætti póst- og símamála- stjóra. „Eg sinnti áður ýmsum verk- fræðistörfum ásamt starfi mínu hjá stofnuninni," heldur Jón áfram, „en eftir að ég var skipaður póst- og símamálastjóri hef ég eins og lög gera ráð fyrir ekki gegnt öðrum störfum nema Setu í Almanna- vamaráði ríkisins. Mér fannst ég alltaf vita að ég myndi læra verkfræði," segir Jón, „og sú varð raunin. Ég sigldi til Kaupmannahafnar og hóf nám í Tækniháskóianum þar að afloknu stúdentsprófi 1937. Ég lauk prófi í rafmagnsverkfræði frá Tæknihá- skólanum í janúar 1943. Ég valdi rafmagnsverkfræðina vegna þess að atvinnumöguleikar voru í síma- og útvarpsverkfræði. Að læra raf- magnsverkfræði tók fimm og hálft ár þegar talin er með árs vinna á verkstæði sem tilheyrði náminu. Nám íslendinga í verkfræði í Kaup- mannahöfn var þá bundið við fjóra námsmenn á ári. Skólafélagar mínir og bekkjarbræður og Sigurður Jó- hannsson, Árni Hafstað og Vil- hjálmur Guðmundsson. 1943—45 var ég við verkfræðistörf í Kaup- mannahöfn, en 1945 var ég aðstoð- armaður við rannsóknir á hljómburði við Tækniháskólann í Stokkhólmi. Um stríðsárin í Kaup- mannahöfn er það að segja að ég varð eins og aðrir að þola þau. Ekki kom annað til greina en vera áfram í borginni og ljúka nárni." Hvað tók við þegar þú komst heim? „Þegar ég kom heim frá Stokk- hólmi í júlí 1945 hóf ég störf hjá símanum, fyrst í radiodeild, síðar í línudcild. I línudeild sá ég um línu- kerfið í sveitum. Árið 1956 þegar símakerfið hafði þróast þannig að sjálfvirk tækni tók við urðu tækni- deildimar tvær. Ég var yfirverk- fræðingur símatæknideildar, en Sigurður Þorkelsson radiotækni- deildar. Síðar urðum við fram- kvæmdastjórar þessara deilda. Árið 1977 varð skipulagsbreyting sam- kvæmt lögum um stjóm og starf- rækslu póst- og símamála. Framkvæmdastjórar stofnunarinn- ar urðu þá fjórir eins og nú er og deildimar skiptust í fjármáladeild, tæknideild, umsýsludeild og við- skiptadeild. Rekstrarhluti skiptist í Qögur póst- og símaumdæmi." Áðspurður um símamál á síðari helmingi fimmta áratugar sagði Jón: „Þá vom línusambönd um loftlín- ur, en nýbúið var að leggja jarðsíma frá Hvalfirði um Borgarfjörð til Hrútafjarðar. Á heiðum voru jarð- símar. Mikil áfoll voru á loftlínum og viðgerðir vandasamar og kostn- aðarsamar. Það sem mér þótti erfiðast var að gera áætlanir um sjálfvirka kerfíð þegar línur milli símstöðva voru af skomum skammti. Nú er símaumferð svo mikil að línukerfið annar henni ekki, einkum á vissum tímum þegar síminn er mest notaður. Það er verkefni dagsins í dag að koma til móts við kröfur tímans og fjölga línum. Lagt hefur verið kapp á að flýta uppsetningu stafrænna stöðva, ekki síst nú þegar allt landið er að verða sjálfvirkt." Hvaða ávinningur er að staf- rænum stöðvum? „Áður en stafrænar stöðvar eru settar upp þarf að fjölga línum. Símaumferð er orðin svo þung eins og fyrr segir. Helsti kostur staf- rænna stöðva er að afkastageta þeirra er miklu meiri, kerfið býður upp á meiri möguleika og síðast en ekki síst er það ódýrara. Erfitt _er að fá varahluti í gamla kerfið. ís- lendingar voru snemma með í stafrænum kerfum. Tala má um algjöra byltingu í símamálum. Símakerfið er jafn fullkomið hér og best gerist erlendis. Segja má því að Islendingar séu meðal forystu- þjóða í fjarskiptum. Stafrænu stöðvarnar valda því að gjaldsvæði verður víðáttumeira, gjaldsvæðin stækka. En það er að mínu viti ekki tímabært nú að gera landið að einu gjaldsvæði, hvað sem síðar verður. Innanbæjartaxti um allt land kæmi til með að kosta 1000 miiljónir króna. Ég legg áherslu á að aðalmarkmiðið er að fjölga línum og gera sambönd fullkomnari með Ijósleiðarasamböndum." Ljósleiðari, hvað er það? Ljós- berinn kemur upp í hugann. „Ljósleiðari er nokkurs konar Ijósberi. í stað kopars í eldri gerðum strengja koma glerþræðir og upp- lýsingar eru sendar eftir strengjun- um sem ljósmerki. Glerþræðimir eru á þykkt við mannshár, en flutn- ingsgeta þeirra er margfalt meiri en annarra strengja. Sem dæmi má nefna að við getum nú flutt 2000 talrásir á tveim af þeim sex þráðum sem eru í strengjunum, einnig má nota sama kerfi til að flytja íjórar sjónvarpsrásir. Nú er kominn á markað búnaður til flutn- ings á 8000 símarásum eftir tveim glerþráðum. Ljósleiðarakerfi hefur nú verið lagt milli stöðva í Reykjavík og verið er að leggja það austur fyrir íjall og síðan verður það lagt milli landshluta. Það er stafræna kerfið sem gerir þetta allt mögulegt." Eru fleiri nýjungar á ferðinni í símamálum? „Sjálfvirkur farsími tók til starfa 3. júlí sl., en handvirka afgreiðslan verður áfram fyrst um sinn. Nú er hægt að hringja beint úr bílnum, bátnum eða sumarbústaðnum hvert sem er í heiminum. Móðurstöðvar munu rísa um allt land í ár og á næsta ári. Sjálfvirka farsímakerfið hefur mikið gildi fyrir notendur þess, ekki síst hvað varðar öryggi og að því viljum við keppa. Til dæmis geta sjómenn við strendur landsins hringt beint til ættingja sinna án þess að hlustað sé á sam- tölin. Næsta skref tækninnar verður eflaust „friðþjófur", lítið símtæki sem svarar uppkalli og menn bera á sér. Gagnaflutningskerfið er líka tekið til starfa innanlands fýrir nokkru, sambönd voru opnuð við Danmörku og Bretland í júní og nýlega voru opnuð sambönd við fleiri Evrópulönd og Bandaríkin. Gagnaflutningsnetið tengir saman tölvur og tölvubúnað og auðveldar og flýtir fyrir hvers konar starf- semi, eins og til dæmis banka- og bókhaldsmálum, flugsamböndum, veðurfregnum og hvers kyns upp- lýsingamiðlun innanlands og utan. Tölvuvæðing ryður sér til rúms á öllum sviðum og fylgir stofnunin henni eftir. Hvað varðar sambönd til útlanda má geta þess að þau eru nú rúmlega 200, hafa aukist stór- Iega.“ En hvað um póstmálin? „Miklar framfarir hafa orðið á póstsamgöngum og hafa flugsam- göngur verið snar þáttur síðustu árin. Sérstakt póstflug er frá Reykjavík til allmargra staða, nefna má Sigluíjörð, Vestfirði og Strand- ir. Einnig er póstflug innan Vest- fjarða og um Norðurland og Austurland." Hvernig fer dreifing pósts fram utan þéttbýlis? „Landpóstar sjá um dreifingu í sveitir og annast nú alla venjulega póstþjónustu. Segja má að þeir séu akandi pósthús." Póstþjónustan hlýtur að krefj- ast aukins húsrýmis? „Útibúum hefur Qölgað í Reykjavík, eru til dæmis tvö í Breið- holti. Með tilkomu nýju póstmið- stöðvarinnar í Ármúla hefur öll aðstaða batnað og margt verið gert til að flýta afgreiðslu pósts. Eins og allir vita og af augljósum ástæð- um fer megnið af pósti landsmanna, bæði innlendum og milli landa, um Reykjavík. Það er því afar áríðandi að öll aðstaða þar, tækjakostur og vinnuskipulag, sé sem allra best. Utan Reykjavíkur hefur einnig ver- ið unnið að endurbótum þótt vissu- lega megi gera betur." Er vinnuaðstaða góð í póst- miðstöðinni? „Vinnuskilyrði póstmanna eru nú betri í nýjum og endurbættum húsa- kynnum með nútíma tækjakosti. Tölvuvæðing kemur þar við sögu eins og annars staðar. í póstmið- stöðinni eru ný tæki, haganlega gerðir skápar fyrir sundurlestur pósts og vagnar og bakkar til flutn- inga innanhúss og milli pósthúsa. Allt stuðlar þetta að því að um- hverfið verður meira aðlaðandi og hreinlæti eykst. Þess er skylt að geta að leitað var til frönsku póst- málastjómarinnar um skipulag og hagræðingu í póstmiðstöðinni og nutum við góðs af reynslu Frakka í þessum efnum.“ Hvernig hefur póstnúmera- kerfið mælst fyrir, er það ekki óþarft í svo fámennu landi? „Póstnúmerakerfið er mjög til bóta og það er forsenda fýrir vél- flokkun síðar meir. Áríðandi er að fólk skrifi fullt póstfang á sending- ar sínar svo að þær verði ekki fyrir töfurn." Hvað um nýjungar í póst- málum? „Póst- og símamálastofnunin leitast við á hverjum tíma að upp- fylla þarfir viðskiptavina sinna og vill síst af öllu vera eftirbátur ann- arra í því að notfæra sér tækninýj- ungar. Nefna má nýjungar eins og póstfax og forgangspóst. Með póst- faxi berast myndsendir pappírar og teikningar á innan við mínútu til viðtakenda um allan heim. For- gangspóstur tryggir örugg og fljót skil mikilvægra skjala og varnings." Hvað um þátt þinn í því að póstgíróþjónusta var tekin upp? „Póstgíróið var nýhafið þegar ég tók við embætti póst- og símamála- stjóra. Greiðslukerfið sem það býður upp á á vel við póstkerfið, enda er hvers konar peningamiðlun og fjármunaflutningur ríkur þáttur í póstþjónustu og hefur alltaf verið. Póstgiróþjónusta er í raun og veru eðlilegt framhald og einföldun hinn- ar gamalgrónu póstávísanaþjónustu og gerir fjármunamiðlunarkerfí póstþjónustunnar enn virkara og hagkvæmara. Jafnframt því sem póstgíróþjón- usta hófst var af hálfu ríkisvaldsins ákveðið að koma á samstarfi milli Póst- og símamálastofnunar, banka og sparisjóða um rekstur sameigin- legrar gíróþjónustu. Þetta sam- starfsfyrirkomulag hefur vissa augljósa kosti, en vafasamt hvort það hefur verið póstgíróþjónustunni til framdráttar. Það mun heldur ekki hafa stuðlað að því að á kæm- ist það millifærslukerfi sem að var stefnt, þ.e. að þorri fólks hafi gíró- reikning og láti millifæra af gíró- reikningum sínum inn á aðra gíróreikninga." Hvernig er þcssu háttað er- lendis? I þeim löndum þar sem gírókerfi er útbreitt hefur hver einstaklingur og hvert fyrirtæki gíróreikning. Menn fylla síðan út færslubeiðnir sínar í ró og næði heima hjá sér og í staðinn fyrir að fara í banka eða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.