Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 V estur-Þýskaland: Sprengingar við eiturefnatank Duisburg, Vestur-Þýskalandi, AP. TVÆR litlar sprengingar urðu er verið var að logsjóða við tank undir triklóroetylene-vökva í iðn- aðarborginni Duisburg í Ruhr- héraði á miðvikudag. I upphafi var talið að baneitrað gas hefði myndast og lekið úr tanknum út í andrúmsloftið. Þvi voru 38 starfsmenn efnaverksmiðju Mannesmann Demag fluttir á Bethesda sjúkrahúsið í borginni. Læknar eru enn að rannsaka starfsmennina en segja að þeir Grænland: Aukín loðnu- vinnsla Frá Nils J. Bruun, fréttaritara Morgirn- bladsins á Grænlandi. TYGE KJÆR, skrifstofustjóri at- vinnumálaskrifstofu grænlensku heimastjómarinnar, álítur að magn loðnu við vesturströnd Grænlands sé svo mikið, að reisa eigi þar fiskimjöls- og lýsisverk- smiðju. Til þess að slík verksmiðja beri sig, er yfirleitt reiknað með að vinna þurfí úr um 250,000 tonnum af loðnu á ári. Tyge Kjær heldur því fram, að ef ekki veiðist nóg af loðnu við vesturströndina, eigi Grænlendingar að stunda veiðar við austurströndina, þrátt fyrir að stjórnvöld á Græn- landi, íslandi og Noregi hafi ekki náð samkomulagi um nýtingu loðnu- stofnsins þar. Verksmiðjan gæti einnig unnið loðnuhrogn fyrir Japansmarkað, en Grænlendingar hafa í ár flutt þangað um 500 tonn af hrognum. hafi ekki orðið fyrir eitrun og yfirvöld segja að ekki hafi fund- ist merki að gasið hafi lekið út. Ferdinand Lemper, talsmaður yfírvalda í Duisburg, segir að engin merki hafí fundist um myndun hins lit- og lyktarlausa gass við mæling- ar umhverfís tankinn sem spreng- ingamar urðu við. Giinter Kommel, saksóknari í Duisburg, sagði að hafín væri rann- sókn á því hvort sprengingamar hefðu orðið vegna „glæpsamlegs hirðuleysis". Einkenni fosgen-gaseitrunar eru brunatilfínning í hálsi og bijósti. Menn verða andstuttir, vökvi safn- ast saman í lungum og getur valdið bráðum bana. Triklóretylene ertir bæði skinn og augu og getur leitt til þess að hjartað hættir að starfa. Vökvinn er ekki eldfímur og er notaður til að leysa upp og í efnalaugum til að ná blettum úr fatnaði og óhrein- indum af málmi. — ft .♦ Byltinerarkennd þyrla Stratford, Connecticut, AP. ** 0 A ** SIKORSKY flugvélaverksmiðjurnar sýndu fyrsta sinni nýja þyrlutegund, sem fiogið getur mun hraðar en hingað til hefur verið hægt. Senn hefst reynsluflug og kemur þá í ljós hvort hún reynist eins og til er ætlast. Þyrlan á að geta hafíð sig til flugs lárétt, eins og venjulega, og „hangið" í lofti yfír sama stað. Hægt er síðan að stöðva þyrilinn og nota spaðann sem vængi. Verður þyrlan þá knúin áfram af tveim- ur þotuhreyflum, sem eru utan á skrokknum. Með þessu móti verður hægt að fljúga þyrlunni á allt að 1.000 km hraða á klukkustund, en hámarks- hraði flestra þyrla er nú um 300 km/klst. Uganda: Tugþúsundir bænda flosna upp vegna nautgripaþjófa Kampala, AP. VEL VOPNAÐIR nautgripaþjóf- ar hafa neytt rúmlega hundrað þúsund bændur I Uganda til að yfirgefa jarðir sínar og rænt hálfri milljón nautgripa undan- farna tiu mánuði. Þetta kemur NOTADU TÆKIFÆRID fram í forsíðufrétt blaðsins New Visioa, sem er í eigu ríkisins. I fréttinni er vitnað í bónda, sem flosnað hefur upp af landi sínu vegna ribbaldanna og býr nú í flóttamannabúðum í Obalanga. Hann grátbænir stjómina að binda enda á þessa ógnaröld og stöðva nautgripaþjófana, sem taldir eru vera tíu þúsund. Sagt er að rumm- ungamir séu úr hinum herskáa Karamojong ættbálki og eru þeir hirðingjar. Hermenn fyrri ríkis- stjóma Uganda hafa síðan gengið í lið með þeim. Obalanga er um 320 km norð- austur af Kampala, höfuðborg Uganda, og þar vom stærstu hjálp- arbúðir af átta í héraðinu. Þijátíu tii fjörutíu þúsund manns lifðu þar á aðstoð frá endurhæfíngarráðu- neyti Uganda og bandarískum trúboðum. Foringi ættbálks í héraðinu, Ge- orge Okwalinga, segir í New Vision að fólkið þarfnist öryggis og varna: „Það er óþarfí að senda okkur mat og aðra hluti þegar þeir enda í höndum árásarmanna. Ef ríkis- stjómin getur veitt okkur vemd getum við ræktað meira og tekið framförum." Menn af Karamojong ættbálki neyddu ítalska presta um helgina til að hætta rómversk-katólsku námskeiði norðaustur af Obalanga og myrtu tvo þátttakendur í nám- skeiðinu. Karamojong ættbálkurinn hefur ávallt stundað nautgripaþjófnað en honum óx fískur um hrygg eftir að hermenn gengu til liðs við hann með gnótt sjálfvirkra riffla og ann- arra vopna eftir að Idi Amin einræðisherra fór frá völdum 1979. Stórútsala á tískufötum frá fjölda fyrirtækja Opið frá kl. 10-19 og laugardaga frá kl. 10-17. H-HÚSID KoewóGi~ Auðbrekku 9. Sími 4 44 40 Sovéskur aðstoðarráðherra: Handtekinn fyrir smygl Moskva. SOVÉSKT dagblað staðfesti á fimmtudag að Sushkov, fyrrver- andi aðstoðarráðherra utanríkisverslunar Sovétmanna, hafi verið handtekinn vegna brota á tollareglum. Ekki var sagt neitt meira um málið, eða hvar Sushkov væri nið- urkominn. Ráðherrann fyrrver- andi ferðaðist, starfs síns vegna, mikið til annarra landa og höfðu þær sögusagnir gengið um skeið, að hann hefði verið handtekinn er hann reyndi að smygla japönskum rafeindatækjum í gegn um tollinn á Sheremetyevoflugvelli í Moskvu. Yfirvöld hafa hingað til ekkert viljað um málið segja og í janúar var aðeins sagt í ráðuneytinu að Sushkov ynni þar ekki lengur. Sushkov er gegnt hafði þessu ráðherraembætti síðan 1974, kom síðast fram opinberlega svo vitað sé í desember sl. Þá var haldinn í Moskvu fundur sovésk-banda- rískrar viðskiptanefndar er hann veitti formennsku ásamt Banda- ríkjamanni. Dagblað sovésku ríkisstjómar- innar, Izvestia, sagði að brot á tollareglum hafí verið algeng þar til í fyrra, er yfirstjóm þeirra mála hafí verið flutt úr höndum stjómenda utanríkisverslunar og til ríkisstjómar landsins. Síðan hafi komist upp um umfangsmikið smygl. Blaðið sagði einnig að ný- lega hefði tollvörður á Moskvu- flugvelli verið heiðraður þar sem hann kom upp um tilraunir til smygls, er kostað hefði ríkið um 1,8 milljónir dollara ef það hefði heppnast. Ekki var sagt nánar frá málsatvikum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.