Morgunblaðið - 22.08.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
23
Sameinuðu þjóðirnar:
Shliiter vill
ræða flótta-
mannastraum
Kaupmannahöfn, AP.
Forsætisráðherra Danmerkur,
Paul Schluter, sagði í gær að
stjórn hans hygðist fara fram á
við flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna að efnt yrði til við-
ræðna um dreifingu þeirra
flóttamanna, sem komið hafa til
Vestur-Evrópu.
„Þær reglur sem gilda um flótta-
menn í Danmörku og Vestur-
Þýskalandi eru mun vægari en í
öðrum löndum Vestur-Evrópu, og
þetta hefur valdið miklum erfiðíeik-
Uganda:
Hröktu skæru-
liða á brott
Kampala, AP.
STUÐNINGSMENN fyrrum for-
seta Uganda, Tito Okello, gerðu
í gær árás á þorpið Gulu í norður-
hluta landsins. Forseti Uganda,
Yowerei Museveni, sagði að
skæruliðarnir hefðu ekki „aðeins
verið hraktir á brott heldur lim-
lestir".
Museveni, sem er nýkominn úr ferð
til Lýbíu, sagði að um 400 skærulið-
ar hefðu ráðist inn í landið frá
Sudan.
Museveni ásakaði „ákveðin öfl"
innan héraðsstjómar Suður-Súdan
um að hafa aðstoðað skæruliðana
við að komast til Uganda og hvatti
hann ríkisstjóm Súdans ti! að efla
gæslu við landamærin.
Forsetinn sagði að þeir skærulið-
ar, sem teknir hefðu verið höndum,
yrðu líflátnir.
Museveni náði völdum í janúar á
þessu ári, en síðustu sex árin hafði
hann barist gegn fyrrum forsetum
landsins, Milton Obote og Tito
Okello. Okello steypti Obote af stóli
í júlí í fyrra. Museveni hefur viður-
kennt að stjórnarherinn eigi enn í
erfiðleikum með halda liðsmönnum
Okellos í skefjum.
Veður
víða um heim
Lægst Hœst
Akureyri 10 skýjað
Amsterdam 9 19 heiðskírt
Aþena 20 37 heiðskirt
Barcelona 29 léttskýjað
Berlin 10 16 skýjað
Briíssel 11 24 skýjað
Chicago 17 skýjað
Dublin vantar
Feneyjar 25 tóttskýjað
Frankfurt 5 20 skýjað
Genf 10 21 heiðskírt
Helsinki 14 16 skýjað
Hong Kong 26 32 heiðskirt
Jerúsalem 17 29 heiðsktrt
Kaupmannah. 16 hálfskýjað
Las Palmas vantar
Lissabon 16 28 heiðskírt
London 13 18 skýjað
Los Angeles 25 36 heiðskfrt
Lúxemborg 17 skýjað
Malaga 24 heiðskírt
Mallorca 28 léttskýjað
Miami 26 31 skýjað
Montreal 13 26 heiðskírt
Moskva 12 22 skýjað
NewYork 20 28 skýjað
Osló 7 19 heiðskírt
Parfs 21 skýjað
Peking 19 31 skýjað
Reykjavík 11 skýjað
Rióde Janeiro 13 22 rigning
Rómaborg 22 30 heiðskfrt
Stokkhólmur 12 16 skýjað
Sydney 8 18 heiðskírt
Tókýó 26 32 heiðskfrt
Vinarborg 18 20 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
um,“ sagði Schluter á fréttamanna-
fundi.
Danskir og vestur-þýskir emb-
ættismenn hafa haldið því fram að
stjómvöld í ríkjunum tveimur veiti
hlutfallslega mun fleiri flóttamönn-
um landvistarleyfi, en stjórnir
annarra Evrópuríkja.
Fjöldi þeirra flóttamanna sem
Poul Schliiter, forsætisráðherra
Danmerkur.
sótt hafa um landvistarleyfi í Dan-
mörku hefur aukist um 20% á þessu
ári miðað við í fýrra. Á fyrstu 17
dögum þessa mánaðar sóttu 927
manns um pólitískt hæli þar.
Sovétríkin:
Fjölskylda Shchar-
anskys fær fararleyfi
Moskvu, AP.
SOVÉSK yfirvöld gáfu á
þriðjudag fjölskyldu gyðingsins
og andófsmannsins Anatolys
Shcharansky vegabréfsáritun
og brottfararleyfi frá Sov-
étríkjunum, að því er haft er
eftir bróður hans, Leonid.
Hann sagði í gær að fjölskyldan
færi til Vínar með sovéska flug-
félaginu Aeroflot á mánudag.
Leonid Shcharansky sagði að
sér, móður sinni, Idu Milgrom,
Rayu, konu sinni og tveimur böm-
um þeirra, Alexander fjórtán ára
og Boris eins árs, hefði verið leyft
að fara.
Anatoly Shcharansky fékk að
fara frá Sovétríkjunum í febrúar
í fangaskiptum austurs og vest-
urs. Þá var því lofað að fjölskyldu
hans yrði einnig veitt brottfarar-
leyfi.
FLUGSYNING í REYKJA VIK
Stærsta flugsýning í íslandssögunni fer fram laugardaginn
23. ágúst í tilefni 50 ára afmælis Flugmálafélagsins
og flugmálastjórnar. Sýningaratriði hvaðanæva að úr
heiminum.
Dagskrá:
Kl> 13.00 Sýning í skýli 1 við Hótel Loftleiðir opnuð.
Kl. 13.30 Brjóstmynd af Agnari Kofoed Hansen fyrrv. flugmálastjóra af-
hjúpuð í skýli 1.
Kl. 14.00 Flugsýning.
Herir 5 landa sýna; Bandaríkjanna, Bretlands, Hollands,
Þýskalands og Danmerkur, ásamt flugrekstraraðilum, flug-
vélaframleiðendum og einkaaðilum.
MEÐAL SÝNINGARA TRIÐA:
Hópflug, svifdrekasýning, flug í loftbelg, fallhlífar-
stökk, listflug, módelflug og fleira og fleira . . .
Aðgangseyrir: kr. 200,-
Allir fljúgandi færir og vettlingi valdandi velkomnir.
Flugatriðin gæti þurft að flytja yfir á sunnudag 24. ágúst ef veður verður óhagstætt.
Dagskrá flugdagsins verður útvarpað í svæðisútvarpi Reykjavíkur á FM 90,1 MHz
frá kl. 13.30 — 18.30.
Flugmálafélag íslands
FLUGMÁLASTJÓRN