Morgunblaðið - 22.08.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
Lovísa Guðmunds-
dóttir — Minning
Fædd 19. nóvember 1924
Dáin 14. ágúst 1986
Elsku amma, Lovísa Aðalheiður,
er dáin. Það er svo stutt síðan að
ég heimsótti hana á Heilsuhælið í
Hveragerði þar sem hún var til
endurhæfingar eftir áfall sem hún
varð fyrir fyrr í sumar. Hún var
svo hress og ánægð og talaði um
hvað hún hlakkaði til að koma heim
og vera með mér aftur. Það er svo
erfitt og skrýtið að hugsa til þess
að eiga ekki eftir að sjá ömmu aft-
ur, en minningin um góða ömmu
mun lifa með mér og ég er viss um
að hún fylgist með mér og vemdar
á þeim stað þar sem hún er nú.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast ömmu og bið góðan Guð
að vera með afa og styrkja hann í
sorg sinni.
Lovísa Aðalheiður
Elsku amma okkar hefur nú
kvatt þessa jarðvist. Það tekur tíma
að skilja og það heitir að þroskast.
Þroskinn kemur fram í svo mörgum
daglegum hlutum, svo sem umburð-
arlyndi og trú og það hafði amma.
Trú hennar var mikil, þess vegna
vitum við að hún býr nú á þeim
stað þar sem trú hennar hefur ver-
ið móttekin. Mikið fannst okkur
hlýtt að fínna hvemig amma leiddi
vandamálin í hendur skaparans með
bæn sinni og trú. Margir kvarta í
dag yfir hinu minnsta en amma
kvartaði aldrei í okkar návist,
hvorki yfir sjúkdómi sínum né öðr-
um vandamálum sem rekur á
mannanna fjörur, hún tók heldur
vandamálin með sér í bænina.
Okkur er minnisstætt þegar
amma fór frá Sjúkrahúsinu á Akra-
nesi fyrir fáum vikum til dvalar á
Heilsuhælinu í Hveragerði, þar sem
hún andaðist, þá var hún pínulítið
kvíðin. Við fómm saman inn í kap-
elluna á staðnum og þar dró hún
lukkumiða sem hafði að geyma til-
vitnun úr biblíunni sem var á þessa
leið: „Ef guð er með oss, hver er
þá á móti oss“. Fyrir ömmu var
þetta tákn um það að taka hin nýju
heimkynni í sátt þar sem hún vitn-
aði svo oft í þessi orð þegar á móti
blés, þess vegna vissi hún að það
var ekkert að óttast.
Kærleikurinn sem amma veitti
okkur síðustu dagana í Hveragerði
minnti okkur á jól, slík var hlýjan
frá henni og birtan. Þessi birta verð-
ur okkur minnisstæð og hlýtt
veganesti til að takast á við lífið
framundan án hennar með hennar
jákvæða hugarfari. Auðlindin sem
hún sótti kærleikann í er okkur öll-
um opin en við þurfum að hafa
fyrir því með bæninni. Það eru
bænin og trúin sem hver og einn
þarf að rækta með sjálfum sér.
Uppskeran er heilög jól, sem hún
sýndi okkur með návist sinni.
Minninguna um ömmu geymum
við í hugum okkar eins og blikandi
jólastjömu, þannig var hún.
Ommubömin
Skemmtiferð aldr-
aðra með Bæjarleiðum
Bæjarleiðir hf. buðu á mið-
vikudag öldruðu fólki úr Lang-
holtskirkjusókn i Reykjavik í
skemmtiferð austur að Skógum.
Skemmtiferðir sem þessi hafa,
að sögn bilstjóra hjá Bæjarleið-
um, verið árlegur viðburður
síðan 1956 og mun þetta því hafa
verið sú þrítugasta í röðinni.
Um 150 manns fóm með 38
leigubílum og mun það vera nokkuð
góð þátttaka. Lagt var af stað frá
Langholtskirkju kl. 13:00 og stans-
að á Hellu. Þaðan var haldið sem
leið lá að Skógum þar sem kven-
félag og bræðrafélag Langholts-
kirkju bauð til kaffidrykkju og
byggðasafnið var skoðað. Á heim-
leiðinni var komið við í Hveragerði,
en bílamir komu aftur til Reykjavík-
ur um kl. 21:00.
Lagt af stað frá Langholtskirkju.
Pening'amarkáðiirínn
GENGIS-
SKRANING
Nr. 156 - 21.ágúst 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,490 40,610 41,220
St.pund 60,593 60,773 60,676
Kan.dollari 29,120 29,206 29,719
Dönsk kr. 5,2270 5,2425 5,1347
Norsk kr. 5,5288 5,5452 5,4978
Sænsk kr. 5,8664 5,8838 5,8356
Fi.mark 8,2448 8,2692 8,1254
Fr.franki 6,0222 6,0400 5,9709
Belg. franki 0,9518 0,9546 0,9351
Sv.franki 24,4771 24,54% 23,9373
Holl. gyllini 17,4790 17,5308 17,1265
V-þ. mark 19,7080 19,7664 19,3023
ít. lira 0,02859 0,02867 0,02812
Austurr. sch. 2,8001 2,8084 2,7434
Port. escudo 0,2783 0,2791 0,2776
Sp.peseti 0,3033 0,3042 0,3008
Jap.yen 0,26386 0,26465 0,26280
Irskt pund 54,520 54,681 57,337
SDR(Sérst. 49,0482 49,1939 49,9973
ECU, Evrópum.41,4719 41,5948 40,9005
INNLÁNSVEXTIR:
, Sparisjóðsbækur
Landsbankinn....... ........ 9,00%
Útvegsbankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn............... 8,50%
Iðnaðarbankinn................8,00%
Verzlunarbankinn..... ....... 8,50%
Samvinnubankinn...... ....... 8,00%
Alþýðubankinn................ 8,50%
Sparisjóðir.................. 8,00%
Sparisjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýöubankinn............... 10,00%
Búnaðarbankinn............... 9,00%
Iðnaðarbankinn............... 8,50%
Landsbankinn............... 10,00%
Samvinnubankinn...... ....... 8,50%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 12,50%
t Búnaðarbankinn.............. 9,50%
Iðnaðarbankinn.............. 11,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir................. 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Verzlunarbankinn............ 12,50%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýöubankinn............... 14,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Útvegsbankinn............... 13,60%
með 18 mánaða uppsögn
Búnaðarbanki.............. 15,50%
Iðnaðarbankinn.............. 14,50%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lánskjaravísitölu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 1,00%
/ Búnaðarbankinn............. 1,00%
Iðnaðarbankinn...... ........ 1,00%
Landsbankinn....... ....... 1,00%
Samvinnubankinn.............. 1,00%
Sparisjóðir.................. 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn............. 1,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 3,00%
Búnaðarbankinn............... 2,50%
Iðnaðarbankinn...... ........ 2,50%
Landsbankinn .............. 3,50%
Samvinnubankinn.............. 2,50%
Sparisjóðir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn..... ..... 3,00%
með 18 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn...... ....... 7,50%
með 24 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn.............. 8,00%
Að loknum binditíma 18 mánaða og
24 mánaða verðtryggöra reikninga
Samvinnubankans er innstæða laus
tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn-
ingum.
Ávtsana- og hlaupareikningar:
Alþýðubankinn
- ávísanareikningar........... 7,00%
- hlaupareikningar............ 3,00%
Búnaðarbankinn....... ........ 3,00%
Iðnaðarbankinn...... ......... 3,00%
Landsbankinn........ ...... 4,00%
Samvinnubankinn .............. 4,00%
Sparisjóðir................... 3,00%
Útvegsbankinn................. 3,00%
Verzlunarbankinn')............ 3,00%
Eigendur ávísanareikninga í Verzlun-
arbankanum geta samið um ákveðna
lágmarksinnstæðu á reikningi sínum og
af henni eru reiknaðir almennir spari-
sjóðsvextir auk uppbótar.
Stjörnureikningar:
Alþýðubankinn')............ 8-9,00%
Alþýðubankinn býður þrjár tegundir
Stjörnureikninga og eru allir verð-
tryggðir. í fyrsta lagi eru reikningar fyrir
ungmenni yngri en 16 ára, með 8%
vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar
til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í
öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða —
lifeyrisþega - með 8% vöxtum. Upp-
sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri
eiganda, 3 til 9 mánuöir. Vextir og verð-
bætur eru lausar til útborgunar í eitt
ár. Þá eru þriggja Stjörnureikningar
með 9% vöxtum. Hver innborgun er
bundin í tvö ár. Vextir og verðbætur
eru lausar til útborgunar i eitt ár.
Afmælisreikningur
Landsbankinn................ 7,25%
Afmælisreikningur Landsbankans er
bundinn i 15 mánuði og ber 7,25%
vexti og er verðtryggður. Innstæða er
laus í tvo mánuði eftir að binditima lýk-
ur. Heimilt er að leggja inn á reikninginn
til 31. desember 1986.
Safnlán - heimilislán - IB-lán - plúslán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
Alþýðubankinn................ 10-13%
Iðnaðarbankinn....... ........ 8,50%
Landsbankinn................. 10,00%
Sparisjóðir................... 9,00%
Samvinnubankinn....... ....... 8,00%
Útvegsbankinn................. 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Alþýðubankinn................ 13,00%
Iðnaðarbankinn....... ........ 9,00%
Landsbankinn................. 11,00%
Sparisjóðir.................. 10,00%
Útvegsbankinn................ 10,00%
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
Bandaríkjadollar
Alþýðubankinn................. 7,50%
Búnaðarbankinn................ 6,00%
Iðnaðarbankinn................ 6,00%
Landsbankinn.................. 6,00%
Samvinnubankinn............... 6,50%
Sparisjóðir................... 6,00%
Útvegsbankinn................. 6,00%
Verzlunarbankinn...... ..... 6,50%
Sterlingspund
Alþýðubankinn............... 11,50%
Búnaðarbankinn................ 9,00%
Iðnaðarbankinn................ 9,00%
Landsbankinn....... ......... 9,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Útvegsbankinn.................9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn................ 4,00%
Búnaðarbankinn............. 3, 50%
Iðnaðarbankinn............. 3, 50%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn.............. 3,50%
Sparisjóðir.................. 3,50%
Útvegsbankinn................ 3,50%
Verzlunarbankinn............. 3,50%
Danskar krónur
Alþýðubankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn....... ....... 6,50%
Iðnaðarbankinn............... 7,00%
Landsbankinn....... ......... 7,50%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir.................. 7,00%
Útvegsbankinn..........,... 7,00%
Verzlunarbankinn...............7,00%
ÚTLÁN S VEXTIR:
Almennirvíxlar(forvextir).. 15,25%
Skuldabréf,almenn................. 15,50%
Afurða- og rekstrarfán
í islenskum krónum.......... 15,00%
í bandarikjadollurum......... 7,75%
ísterlingspundum ........... 11,25%
i vestur-þýskum mörkum..... 6,00%
ÍSDR......................... 7,75%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravíshölu
í allt að 2'/2 ár............... 4%
Ienguren2'/2ár.................. 5%
Vanskilavextir.................. 27%
Óverðtryggð skuldabréf
útgef in fyrir 11.08. '84. 15,50%
Skýringar við sérboð
innlánsstof nana
Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru
14,0% — ávöxtun hækkar eftir þvi sem inn-
stæða er lengur óhreyfö. Á þriggja mánaða
fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við
ávöxtun á sex mánaða verðtryggöum reikning-
um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri.
Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól.
Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út-
borgaðri fjárhæð dregst 0,7% gjald en þó
ekki af vöxtum liðins árs.
Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning-
ur. Borin er saman ávöxtun á óverötryggðum
reikningum og þriggja mánaða verðtryggðum
reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn-
stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir
sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð-
ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur
bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán-
aða reikninga er valin.
Búnaðarbankinn: Gullbók ber 14,0% vexti
á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir því sem
innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og ef hún er betri er hún
valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuð-
stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað
0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn-
um vöxtum.
Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning-
ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að
segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir
eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn-
vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta
tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxt-
un 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
Metbókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari
en ávöxtun 6 mánaða reikninga.
Verzlunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er að innistæða sem er óhreyfð í
heilan ársfjórðung nýtur kjara 6 mánaða bund-
ins óverðtryggðs reiknings eða 6 mánaða
verðtryggð reiknings, eftir því hvor gefur
hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir
og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers
ársfjórðungs, hafi reikningur notið þessara
„kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör þótt
teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar
hafa verið á undangengnu og liðandi ári. Út-
tektir umfram það breyta kjörum sem hér
segir: Við eina úttekt í fjórðungi reiknast al-
mennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð,
en kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttekt-
ir fær öll innistæða reikningssins sparisjóðs-
bókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða
annan virkan dag ársfjórðungs fær innistæðan
hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í inn-
leggsmánuði, en ber síðan kaskókjör út
fjórðunginn. Reikningur sem stofnaður er
síðar fær til bráöabirgða almenna sparisjóðs-
vexti en getur áunnið sér kaskókjör frá
stofndegi að uppfylltum skilyrðum.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir
þvi sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast
hærri vextir. Fyrstu tvo mánuði 8% vextir,
eftir tvö mánuði 8,25%, eftir þrjá mánuði 8,5%
o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfö i 6
mánuði þá reiknast 12% vextir. Frá og með
12 mánuðum eru vextir 12,5% og frá og með
18 mánuðum 13%. Aunnar vaxtahækkanir
reiknast alltaf frá því að lagt var inn. Vaxta-
færsla á höfuðstól er einu sinni á ári.
Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16%
vexti en vextir hækka eftir þvi sem innstæða
er lengur. Hver innstæða er meðhöndluð sér-
staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum
sinnum á ári. Þá er einnig gerður saman-
burður á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða
verðtryggðra reikninga og sú hagstæðari val-
in.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og ber auk þess grunvexti 6 mánaða
verðtryggs reiknings. Vextir eru færðir á höf-
uðstól tvisvar á ári. Hreyfingar innan mánaðar
bera sérstaka Trompvexti 12,5% ef innistæða
hefur verið án útborgunar i þrjá mánuði eða
lengur, en annars almenna sparisjóðsbókar-
vexti. Ársfjórðungslega er ávöxtun lægstu
innistæðu á liðnum þremur mánuöum borin
saman við sérstaka Tropmvexti og ef þeir
gefa hærri ávöxtun er mismun bætt við vaxta-
stöðu Tropmreiknings.
Sparisjóður Vélstjóra ert með Sparibók,
sem er bundin i 12 mánuði og eru vextir 15,
5%, eru þeir færðir á höfuðstól einu sinni á
ári. Þegar útborgun hefur staðið í stað í 12
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný næstu 11 mán-
uði. Eiganda sparibókar er tryggt að bókin
gefi aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verðtryggður reikningur.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóðurinn i Keflavík, Sparisjóður
Mýrarsýslu og Sparisjóður Akureyrar eru með
Topp-bók, sem er bundin í 18 mánuði og eru
vextir 14,5%, eru þeir færðir á höfuðstól tvi-
svar á ári. Þegar innborgun hefur staðið í 18
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný og er laus til
útborgunar í 30 daga á sex mánaða fresti.
Eiganda Topp-bókar er tryggt að bókin gefi
aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verötryggður reikningur.
Iðnaðarbankinn Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 11% vexti. Óverð
tryggð Bónuskjör eru 2,5%. Á sex mánaða
fresti eru borin saman verðtryggð og óverð-
tryggð bónuskjör og ávöxtun miöuð við þau
kjör sem eru hærri á hverjum tíma. Vextir eru
færðir á höfuðstól tvisvar á ári.
Samanburðartí-
mabil eru þau sömu og vaxtatimabil. Heimilt
er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tíma-
bili.
Sparisjóðsreikningur með 18 mánaða upp-
sögn. Hægt er að velja um bókariausan
reikning eða reikning tengdan sparisjóðsbók.
Reikningurinn er bundinn til 18 mánaða og
er laus einn mánuð i senn eftir 18 mánuði eða
síðar, eftir vali reikningseigenda. Innstæða
er laus til útborgunar eftir það einn mánuð i
senn á 12 mánaða fresti. Vextir eru reiknaðir
eftir á og eru lagðir við innstæðu 31. desemb-
er ár hvert og eru lausir til útborgunar næstu
12 mánuði eftir það.
Líf eyrissj óðslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er
lánið vísitölubundið með lánskjaravisitölu, en
ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár,
en getur verið skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er iitilfjörleg,
þá getur sjóðurinn stytt lánstimann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr
lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins i tvö ár og tvo mánuði, miðað við
fullt starf. Biðtimi eftir láni er fjórir mánuðir
frá því umsókn berst sjóðnum.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir a.m.k. 3ja ára aðild
að lifeyrissjóðnum og fimm árum eftir síðustu
lántöku, 150.000 krónur.
Höfuðstóll lánsins er tryggöur með láns-
kjaravisitölu, en lánsupphæðin ber nú 5%
ársvexti. Lánstíminn er 3 til 5 ár að vali lántak-
anda.
Lánskjaravísitala fyrir ágúst 1986 er 1472
stig en var 1463 stig fyrir júlí 1986. Hækkun
milli mánaöanna er 0,62%. Miðað er við vísi-
töluna 100 i júní 1979.
Byggingavísitala fyrir júlí til september
1986 er 270 stig og er þá miöað við 100 i
janúar 1983.
Handhafaskuldabréf i fasteignaviðskipt-
um. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%.
Sérboð Naf nvextir m.v. óverðtr. verðtr. Verðtrygg. Höfuðstóls færsl.
Óbundid fé kjör kjör tímabil vaxta á ári
Landsbanki, Kjörbók:1) ?—14,0 3.5 3mán. 2
Útvegsbanki, Ábót: 8-14,1 1.0 1 mán. 1
Búnaðarb., Gullbók 1) ?—14,0 1,0 3mán. 2
Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-12,5 3,0 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1
Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1,0 4
Iðnaðarbanki, Bónus: 11,0 2,5 6mán. 2
Sparisjóðir, Trompreikn: Bufidið fé: 12,5 3,0 1 mán. 2
Búnaðarb., Metbók: 15,50 3,5 6mán. 2
Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1
Iðnaðarb. 18mán: 14,5 1
1) Vaxtaleiðrétting (úttektargjald) er 0,75% í Bunaðaörbanka og 0,7% í Landsbanka.