Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
27
AKUREYRI
F egnrstu garðarnir
fá viðurkenningii
GARÐYRKJUFÉLAG Akureyrar hefur veitt cigendum g-arða við
þrjú íbúðarhús viðurkenningar fyrir vel gerða garða og einu
fyrirtæki. Þá hefur tveimur verið veittar bjartsýnisviðurkenning-
ar fyrir störf að garðrækt. Knattspyrnufélag Akureyrar og
kirkjugarðarnir fengu einnig viðurkenningu, þá var þremur ein-
staklingum veitt viðurkenning. Á laugardag verður svo garða-
skoðun á vegum félagsins i samráði við garðeigendur.
Systkininn í Baldurshaga fengu viðurkenningu fyrir einstakt
þolgæði og framúrskarandi framtak f gróðursetningu.
[búarnir við Borgarhlíð 6, fengu viðurkenningu fyrir samstöðu
um að fegra umhverfið.
Félagsheimili KA fékk sérstaka viðurkenningu.
Að þessu sinni fá garðamir við
Eyrarveg 2 og Hamragerði 10
sérstaka viðurkenningu en eig-
endur þeirra eru Aðalheiður
Þorleifsdóttir og ísak Guðman og
Auður Þórhallsdóttir. í umsögn
um garðana segir að þeir séu ólík-
ir, en eigi þó margt sameiginlegt.
Báðir hafi þeir sál og séu fallegir
hvor á sinn hátt. Plöntuval sé fjöl-
breytt og plöntunum haganlega
fyrir komið og greinilega hlúð að
hverri plöntu. Báðir garðamir séu
komnir nokkuð til ára sinna en
hafi alltaf staðið upp úr í viðhaldi
og snyrtimennsku og verið eig-
endum til sóma í áratugi.
Eigendumir við Borgarhlíð 6
fengu einnig viðurkenningu, um
þann garð er sagt að þetta sé
nýleg lóð við raðhús og samstaða
íbúa um að fegra umhverfi greini-
leg. Aðkoman að húsinu sé
sérstaklega skemmtileg, hellu-
lagnir og bílastæði haganleg,
götulýsing smekkleg og blómabeð
lífgi upp á aðkomuna. Lóðin sé
afgirt og skjólgróðri sé plantað.
Samstaða um að planta í stall á
lóðamörkunum og fegra hann með
tijágróðri sem falli vel að um-
hverfinu. Vandanum sé ekki velt
yfír á bæjarfélagið eins og víða
vilji brenna við.
Fyrirtækið Höldur fær einnig
viðurkenningu. Um það segir að
það sé með lóðir og fyrirtæki víða
um bæinn. Aðdáunarverð snyrti-
mennska hafí alltaf fylgt fyrir-
tækinu í öllum framkvæmdum
sem hafí verið miklar á síðustu
árum. Allt sé dubbað upp í nýjan
búning og gert aðlaðandi fyrir
viðskiptavini, jafnt hús sem lóðir.
Einkalóðir eigendanna séu einnig
til fyrirmyndar, vel hirtar og
snyrtilegar. Gefa mætti Vilhelm
Ágústssyni og Eddu Vilhjálms-
dóttur sérstaka viðurkenningu
fyrir að hafa komið garðstofu
fyrir á snyrtilegan hátt í tengslum
við hús sitt.
Bjartsýnisviðurkenning félags-
ins er ný af nálinni og veitt fólki
sem færist meira í fang en al-
mennt sé talið skynsamlegt í
almennri ræktun og umhirðu
heimilisgarða. Magnús Jónsson
Aðalstræti 6, fær bjartsýnisviður-
kenningu fyrir að hafa með
óbilandi trú og bjartsýni gróður-
sett tijáplöntur ýmiskonar í
melhm fyrir ofan Aðalstræti 68.
Óslitið hálfrar aldar starf hans
hefur borið ríkulegan ávöxt og
reiturinn og lóðin mikil bæjar-
prýði. Systkinin í Baldurshaga,
Baldur F. Benediktsson, Hulda og
Guðrún Benediktsdætur fá viður-
kenningu fyrir frammúrskarandi
framtak í gróðursetningu í einka-
lóð og einstakt þolgfæði við viðhald
lóðarinnar þrátt fyrir erfiða fötl-
un, þessi reitur hefur verið
eigendunum til sóma og prýði
bæjarfélagsins í áratugi.
Knattspymufélag Akureyrar er
sagt áhugamannafélag sem lyft
hafí Grettistaki. KA hafi verið í
mótun síðastliðin ár og tekið
stórstígum framförum ár frá ári.
Grasvellir spretti upp, skjólbelti,
girðingar og nú síðast félags-
heimilið, allt sé til fyrirmyndar
og hlutimir séu unnir fljótt og vel
og á snyrtilegan hátt.
Kirkjugarðar Akureyrar fá við-
urkenningu frá Garðyrkjufélaginu
fyrir snyrtimennsku í hvívetna.
Leiði séu ávallt snyrtileg jafnt
sumar sem vetur þannig að ekki
verði til jafnað hérlendis. Þrátt
fyrir miídar framkvæmdir sé
snyrtimennskan í fyrirrúmi, ekk-
ert óþarfa rask sem oft vilji verða,
hvort sem um sé að ræða stíga-
gerð eða húsbyggingu. Allir hlutir
stórir sem smáir séu ávallt á
sínum ákveðna stað þannig að
hægt sé að ganga að þeim svo
til blindandi.
Hólmfríður Sigurðardóttir fær
heiðursviðurkenningu, umsögn
um hana er á þessa leið: „Hólm-
fríður hefur alla tíð verið stoð og
stytta Garðyrkjufélagsins og unn-
ið þar geysimikið og óeigingjamt
starf. Má þar nefna stjómunar-
og fræðslustörf ýmiskonar. Hólm-
fríður var um tíma forstöðumaður
Lystigarðsins sem óx og dafnaði
undir stjórn hennar. Þar ræktaði
hún í tilraunaskyni ýmsar tegund-
ir tijáa, runna og fjölærra
plantna. Ymsar þessara tegunda
hafa síðan komist í gróðrarstöðvar
og garða og þannig hefur Hólm-
fríður stuðlað að bættri garð-
menningu og Qölbreyttari flóm í
görðum hér á Akureyri og víðar
um land. Hólmfríður er nú í þann
mund að flytja frá okkur suður
yfír heiðar og er mikil eftirsjá í
henni fyrir gróðurunnendur hér
Norðanlands. Vonandi eigum við
enn eftir að njóta góðs af kunn-
áttu hennar, en um leið og við
veitum henni þessa viðurkenningu
óskum við henni alls góðs í nýju
starfí sem kennari við Garðyrkju-
skóla ríkisins."
Herdís Pálsdóttir fær einnig
heiðursviðurkenningu. Um hana
segir Garðyrkjufélagið: „Ekki
þarf að kynna þessa miklu blóma-
konu fyrir plöntugrúskurum sem
notið hafa góðs af víðtækri
plöntuþekkingu hennar og holl ráð
um ræktun í rúmlega hálfa öld.
Herdís hefur verið og er enn mjög
svo liðtæk á hinum ýmsu sviðum
ræktunar og sérstaklega má þar
nefna skógrækt og garðplöntu-
framleiðslu. Óteljandi eru þær
plöntur sem frá henni eru komn-
ar, bæði seldar og ekki færri
gefnar úr einkalystigarði hennar
að Fomhaga í Hörgárdal. Ekki
hefur hún safnað auði með plöntu-
framleiðslu sinni og sölu heldur
hefur hún unnið ótrauð að þeirri
hugsjón sinni að koma sem flest-
um og bestum plöntum í ræktun
hérlendis. Segja má að við Akur-
eyringar höfum verið sérdeilislega
heppnir að hafa hana í nágrenninu
að þessu leyti þar sem Herdísi
hefur tekist vel til í ætlunarverki
sínu og ekki eru það ýkjur að
henni hafi tekist að slá út með
dugnaði sínum, natni og framsýni
stærri tilraunarstöðvar með mik-
inn mannafla."
Loks var Kristjáni Rögnvalds-
syni veitt heiðursviðurkenning,
um hann segir: „Þessi hógværi
garðyrkjumaður á sér langan og
farsælan starfsferil hér í bæ við
bæði opinber og óopinber störf.
Hann hefur alla tíð verið mikill
velunnari Lystigarðsins og Nátt-
úrugripasafnsins og unnið þar
mikið starf á sinn hógværa hátt
þar sem hann hefur alla tíð verið
lítið fyrir það að trana sér fram.
Sé horft lengra aftur í tímann
kemur upp í hugann Garðplöntu-
stöðin Flóra en Kristján starfrækti
hana ásamt Jóni bróður sínum.
Þetta var mjög vel rekin stöð með
fjölbreyttu úrvali garðplantna sem
við Akureyringar njótum góðs af
enn þann dag í dag í formi fal-
legra plantna sem þaðan eru
komnar. Þá er að geta að verðleik-
um áráttu Kristjáns til plöntusöfn-
unar og sérstaks áhuga hans á
íslenskum plöntum en fyrsti vísir
að íslensku plöntusafni varð til
að Fífilgerði þar sem hann bjó á
yngri árum. Þetta safn var síðan
gefið Lystigarðinum og stuðlaði
að því fremur en öðru að hann
var gerður að grasagarði og er
eins fjölbreyttur og fallegur og
hann er í dag.“
%
Morgunbladið/Jóhanna
Jógvan og félagar á Súlutindi.
Keppnin um
Jógvansbikarinn:
Ekki hægt*
að ljúka
keppni
vegna
myrkurs
ÁRLEG víðavangskeppni í golfi
um Jógvansbikarinn hófst sl.
miðvikudag en henni lauk ekki
þar sem orðið var of dimmt til
keppnishalds um kvöldið. Það er
sex manna hópur, þrír í hvoru
liði, sem keppir og hófst keppnin
að þessu sinni uppi á Súlutindi
sem er í 15 km fjarlægð frá
Akureyri.
Félagamir sex hafa keppt um
Jógvansbikarinn sl. fimm ár og fara
ekki troðnar slóðir í þeirri keppni.
Fyrsta árið hófu þeir keppni við
Eyjafjarðará, annað árið uppi á
Vaðlaheiði, þriðja árið á Vindheima-
jökli og í fyrra, á 50 ára afmæir
Golfkiúbbs Akureyrar byijuðu þeir
inni í skemmu Slippstöðvarinnar á
Akureyri en hún stendur á þeim
stað sem fyrsti golfvöllur klúbbsins
var á. Þá var spilað á öllum þeim
völlum sem klúbburinn hefur átt
og kúlumar slegnar á milli vall-
anna. Keppni lýkur síðan ávallt á
núverandi golfvelli klúbbsins að
Jaðri og þar haldin veisla og verð-
laun afhent.
Sexmenningamir vom komnir
upp á Súlutind um kl. 19 á miðviku-
dagskvöld og hófst þá keppnin.
Þeir hættu síðan um kl. 22.30 er
komið var að Fálkafelli og bjuggust
þeir við að ljúka keppni eftir helg-
ina. Að sögn þeirra félaga höfðir
þeir týnt 50 golfkúlum það sem af
er keppninni en venjan er að hafa
meðferðis að minnsta kosti 100
kúlur. Annað liðið skipa þeir Birgir
Bjömsson, Kjartan Bragason og
Ámi K. Eiríksson og hitt liðið sem
gengur undir Jógvansnafninu skipa
Pétur Sigurðsson, Gylfi Kristjáns-
son og Smári „Jógvan" Garðarsson,
sem reyndar er upphafsmaður þess-
arar keppni en hann keypti á sínum
tíma bikar sem hann vissi ekki hvað
hann átti að gera við fyrr en keppni
þessari var komið á. Jógvanamir
hafa alltaf tapað þar til í fyrra en
nú em þeir komnir á sigurbraut og
því var búist við tvísýnni keppni. ^
Garðaskoðun
á laugardag
Á MORGUN, laugardag, gengst
Garðyrkjufélag Akureyrar fyrir
garðaskoðun í samráði við eig-
endur viðkomandi lóða. Garða-
skoðunin verður á tímabilinu kl.
14-18.
Eftirtaldir garðar verða skoðaðir:
Mánahlíð 6, Stóragerði 16, Kletta-
gerði 2, Baldurshagi, Aðalstræti 68*
Eyrarvegur 2, Hamragerði 10,
Norðurbyggð 21—25, Borgarhlíð
6, Slippstöðin, Höldur, Félagsheim-
ili KA, kirkjugarðamir, og Ríkisút-
varpið.
Jafnframt er fólk hvatt til að aka
um Hamragerði en sú gata fékk
viðurkenningu á síðasta ári.