Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 28

Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 * * Asgeir Olafsson forstjóri Minning r Fæddur 2. desember 1922 Dáinn 16. ágúst 1986 Ásgeir Ólafsson er látinn. Með honum er genginn mikilhæfur vá- tryggingamaður, en hann vann allan sinn starfsaldur að vátrygg- ingarmálum. Að loknu námi í Verzlunarskóla íslands 1944 réðst hann til Brunabótafélags íslands og starfaði þar óslitið til ársins 1981, fyrst sem bókari,- síðan skrif- stofustjóri og frá árinu 1957 sem forstjóri félagsins. 'é Ásgeir valdist til ýmissa trúnað- arstarfa fyrir samtök vátrygginga- félaga, m.a. sem stjómarmaður og formaður Sambands brunatryggj- enda á íslandi. Hann sat í stjóm Sambands íslenzkra tryggingafé- laga í 9 ár og var tvívegis formaður þess eða frá 1970 til 1971 og frá 1977 til 1978. Ásgeir vann ötullega og einarðlega að sameiginlegum hagsmunamálum vátryggingafé- laganna en gætti hins vegar vel hagsmuna síns félags, ef því var að skipta. Við Ásgeir áttum margvíslegt samstarf, m.a. í nefnd þeirri, sem samdi frumvarp til laga um Við- lagatryggingu Islands, en hann var formaður í þeirri nefnd. Þar kynnt- ist ég vel nákvæmum og vönduðum vinnubrögðum hans og hversu ríkar kröfur hann gerði til sjálfs síns. Þetta verkefni var honum mjög hugleikið og við stofnun Viðlaga- tryggingar Islands var hann skipað- ur formaður hennar og var það vel við hæfí. Eftir að hann kaus að láta af störfum hjá Brunabótafélag- inu, veitti hann forstöðu skrifstofu Viðlagatryggingarinnar enda hon- um lítt að skapi að setjast í helgan ^stein. Eftir að ég hóf störf hjá ís- lenzkri endurtryggingu áttum við mikil samskipti varðandi viðskipti félaganna. I þeim samskiptum sýndi Ásgeir fyllstu sanngirni en gætti þó jafnan vel réttar síns fé- lags. Ekki vorum við alitaf sammála í fyrstu, enda oft um verulega hags- muni að tefla, en allan ágreining tókst að jafna farsællega. Við slíkar kringumstæður var Asgeiri um- hugað um, að allir væru sáttir við endanlega lausn og lagði oft á sig miklar fortölur til að svo mætti verða. Vátryggingamenn minnast Ás- geirs Ólafssonar nú að leiðarlokum ' %ieð virðingu og votta eiginkonu hans og öðnim ástvinum samúð. Bjarni Þórðarson formaður Sambands íslenskra tryggingafélaga I dag, fostudaginn 22. ágúst kl. 13.30, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík útför Ásgeirs Ólafsson- ar forstjóra, fyrrverandi fjölum- dæmisstjóra íslensku Lionshreyf- ingarinnar. Ásgeir gekk til liðs við Lions- hreyfínguna þegar hann gekk í Lionsklúbb Hafnarfjarðar í febrúar- mánuði 1961. Ásgeir gegndi í gegnum tíðina • -irillum trúnaðarstörfum í klúbbi sínum þar á meðal stöðu formanns. Umdæmisstjóri Lionshreyfingar- innar á íslandi var Ásgeir árið 1971-1972 og var næst síðastur að gegna því starfí áður en umdæminu var skipt, en Ásgeir átti þátt í því á umdæmisstjóra ári sínu að sú breyting komst á að íslenska Lions- umdæminu var breytt í fjölumdæmi með tvískiptingu umdæmisins. Einnig var Ásgeir einn af frum- kvöðlum sölu rauðu fjaðrarinnar hér á landi en fyrsta landssöfnun Lions jneð sölu á rauðu fjöðrinni fór ein- mitt fram í umdæmisstjóratíð hans. Þessi söfnun varð til þess að komið var á fót augndeildinni á Landakotsspítala. Ásgeir sagði þó ekki skilið við yfírstjóm hreyfíngarinnar eftir lok starfs síns sem umdæmisstjóri, en hélt góðu sambandi og var kjörinn ^il starfs Qölumdæmisstjóra fyrir árið 1982-1983. Það var einmitt á því ári og fyr- ir mikla samningalipurð Ásgeirs að Lionshreyfíngin eignaðist þau glæsilegu húsakynni sem hún nú á. Þó að ég hafí verið vel kunnugur Ásgeiri og störfum hans fyrir Lions- hreyfínguna áður þá má segja að vinátta hafí tekist með okkur á fjöl- umdæmisstjóraári hans en ég átti því láni að fagna að starfa þá með honum í fjölumdæmisstjórn að hugðarefnum okkar, framgangi Lionshreyfíngarinnar á íslandi. Ég minnist ferðanna á Evrópu- þing í Lugano í Sviss, á Norður- landaþing í Gautaborg í Svíþjóð ásamt fjölmargra annarra ánægju- legra samskipta, sérstaklega minnist ég þó ljúfmennisins, hins góða drengs, Ásgeirs Ólafssonar. Kæra Dagmar, íslenskir Lions- menn og Lionessur votta þér og fjölskyldu ykkar innilegustu samúð. Guð blessi ykkur öll. Egill Snorrason, fjölumdæm- isstjóri. Kveðja frá stjórn Viðlagatryggingar íslands Ásgeir Ólafsson, framkvæmda- stjóri Viðlagatryggingar fram á þetta ár og stjómarformaður frá stofnun til síðustu áramóta, er lát- inn. Undirbúningur að stofnun Við- lagatryggingar Islands fór að mestu fram síðla árs 1974 og á árinu 1975. Ásgeir átti drjúgan þátt í samningu laganna um stofnunina, í mjög nánu samstarfí við þáver- andi ráðherra tryggingamála, sem mat mikils þekkingu og mannkosti Ásgeirs. Tíu ár er ekki langur tími í sögu Tryggingafélags, en á þessum árum tókst Ásgeiri, í nánu samstarfí við stjómina, að byggja upp öflugt fé- lag, sem hefur tekist að gegna hlutverki sínu. Margvíslegt tjón hefúr orðið af náttúmhamförum síðan Viðlaga- trygging tók til starfa og ætíð var Ásgeir meðal fyrstu manna á vett- vang til að kanna skyldur stofnun- arinnar í því sambandi. Réttsýni hans og skilningur á aðstæðum tjónþola var einstakur og aldrei varð ágreiningur um tillögur hans um tjónabætur Núverandi stjómarformanni og framkvæmdastjóra er vandi á hönd- um, að fylla það skarð er hoggið hefur verið í forystu Viðlagatrygg- ingar íslands. Stjóm Viðlagatryggingar íslands þakkar hinum látna leiðsögn og samstarf á liðnum árum og flytur eftirlifandi eiginkonu, frú Dagmar Gunnarsdóttur, og bömum þeirra einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning drengskapar- mannsins Ásgeirs Ólafssonar. Einar Ingvarsson Ásgeir Ólafsson, fyrrverandi for- stjóri Bmnabótafélags íslands, lést fyrir aldur fram hinn 16. ágúst sl. Ég vil hér flytja fáein kveðju- og þakklætisorð. Síðustu æviár sín gegndi Ásgeir starfi forstjóra Viðlagatryggingar Islands og létti ekki róðurinn þar, fyrr en í aprílmánuði síðastliðnum. Á engan er hallað, þegar fullyrt er, að Ásgeir Ólafsson hafí með merk- um tillögum sínum og hugmyndum átt drýgstan þátt í að móta laga- gmndvöll Viðlagatryggingarinnar, en á þessu vátryggingasviði emm við í fremstu röð meðal þjóða heims. Meginstarfsvettvangur Ásgeirs Ólafssonar var innan vébanda Bmnabótafélags íslands. Þangað réðst hann beint frá skólaborði 22 ára gamall og vann þar í rúm 37 ár, þar af í aldarfjórðung sem for- stjóri, sá sjöundi í röðinni. Árið 1954, eða tveimur ámm eftir að Ásgeir varð skrifstofustjóri félagsins, var lagagmndvelli Bmnabótafélagsins gjörbreytt frá því, sem hann hafði verið í nærfellt 40 ár. Þremur ámm seinna eða 1957 var hann kallaður til að gegna starfi forstjóra. Á herðum Ásgeirs hvíldi því ábyrgðin, bæði hugmyndalega og framkvæmdalega, á því að stýra Bmnabótafélaginu gegnum ólgusjó lagabreytinganna 1954 og 1955 og laga félagið í starfsháttum og verk- efnum að nýjum markaðsaðstæð- um. Hér vann Ásgeir Ólafsson sann- kallað þrekvirki. Bmnabótafélag íslands var í upphafí stofnað til að sinna bmna- tryggingum fasteigna utan Reykjavíkur, en skortur á þeirri vátryggingavemd stóð landsbyggð- inni alvarlega fyrir þrifum. Með lögunum um Bmnabótafélagið 1915 var mönnum utan Reykjavík- ur gert skylt að bmnatryggja fasteignir sínar hjá félaginu. Með lagabreytingunum 1954 var hins vegar einkaréttur Bmnabótafélags- ins felldur niður og sveitarfélögun- um fengið í hendur vald til að semja um bmnatryggingar húsa við hvaða vátryggingafélag sem var. Það sýnir starfshæfni Ásgeirs og lagni, að markaðshlutdeild félags- ins í bmnatryggingum utan Reykjavíkur var 90% tæpum 30 ámm síðar, þegar hann lét af störf- um hjá félaginu 1981. Um leið og einkarétturinn var felldur niður vom Brunabótafélag- inu veittar lögheimildir til alhliða vátryggingastarfsemi, en fram að þeim tíma sinnti það einungis brunatryggingum. Það kom því í hlut Ásgeirs Ólafssonar að sækja fram á öðmm sviðum vátrygginga í landinu jafnhliða vamarbaráttunni í brunatryggingunum. Það sýnir ekki síður starfshæfni Ásgeirs og útsjónarsemi, að Bmna- bótafélagið rak allar greinar vá- trygginga, sem stundaðar em á íslandi, nema líftryggingar, þegar hann lét af störfum 1981. Með fá- dæma dugnaði og varkámi hafði hann gert Bmnabótafélag íslands að einu traustasta vátryggingafé- lagi landsins, ef mælistika eigin- fjársjóða er notuð. Fyrir allt þetta á Bmnabótafélag- ið Ásgeiri Ólafssyni mikið að þakka og em þær þakkir hér fluttar af hálfu þeirra, sem nú stjóma félag- inu, starfsfólki þess og þeim, sem tryggja hjá því. Við hlið Ásgeirs í lífí og starfí stóð Dagmar, eiginkona hans, sem ómetanleg stoð og stytta. Sár harm- ur er nú kveðinn að henni og börnum þeirra. Ragna og ég send- um þeim öllum innilegar samúðar- kveéjur. Ingi R. Helgason Kveðja frá Lionsklúbbi Haf narfjarðar Hinn 16. ágúst sl. Iést Ásgeir Ólafsson, fyrrv. forstjóri Bmna- bótafélags Islands á 64. aldursári. Hann fæddist í Hvammi í Dölum 2. desember 1922 sonur Ólafs Guð- mundssonar bónda þar og konu hans Elísabetar Guðjónsdóttur. Ás- geir stundaði nám um tveggja vetra skeið í héraðsskólanum í Reykholti, en brautskráðist frá Verslunarskóla íslands árið 1944. Síðar dvaldist hann um tíma í Noregi, þar sem hann kynnti sér stjóm og rekstur tryggingafélaga, sem átti eftir að verða hans ævistarf. Sama ár og hann brautskráðist frá Verslunar- skólanum réðst hann sem bókari til Bmnabótafélags íslands, varð síðar skrifstofustjóri og var skipaður for- stjóri félagsins í árslok 1957. Eftir það sinnti hann margvíslegum störfum á sviði tryggingamála og við undirbúning löggjafar á því sviði. Ásgeir kvæntist eftirlifandi konu sinni, Dagmar Gunnarsdóttur, hinn 17. maí árið 1947 og eignuð- ust þau fjögur böm. Þegar ég frétti lát míns ágæta vinar, Ásgeirs Ólafssonar, sl. laug- ardag, rifjaðist upp fyrir mér atvik, sem átti sér stað uppi á hálendi vestanlands fyrir um það bil hálfum öðmm áratug. Atvik þetta er í stuttu máli þannig, að bifreið, sem ég ók, bilaði lítillega uppi á heiði nálægt Qárgirðingu og kofa, þar sem aldraður maður var á vakt. Er bifreiðin stöðvaðist, kom gamli maðurinn til mín og bauð mér um- svifalaust sinn eigin bíl að láni svo ég gæti ekið til Búðardals til þess að láta gera við hlut úr bifreiðinni og þáði ég það með þökkum. í fyrstu fannst mér það öldungis furðanlegt að þurfa ekki einu sinni að biðja um bíl gamla mannsins að láni, því leiðin til Búðardals var alllöng, en ég hugsaði sem svo, að bfleigandi væri af gamla skólanum og hefði alist upp við hjálpsemi sinnar kynslóðar. Er ég kom frá Búðardal og vildi greiða gamla manninum fyrir lánið, var ekki við það komandi. Hjálpsemi gamla mannsins og framkoma var svo ein- læg, að við tókum tal saman eins og við værum gamlir kunningjar og kvaðst hann heita Ólafur Guð- mundsson og vera fyrrverandi bóndi í Hvammi í Dölum. Áður en sam- tali okkar lauk gerðum við það, sem flestir íslendingar gera, ekki síst ef þeir hafa aldrei sést áður, en það er að reyna að rekja ættir og kynni til einhvers, sem báðir vita einhver deili á. Sú tilraun bar árangur í þetta sinn, eins og svo oft áður, því Ólafur bóndi kvaðst eiga soní Hafn- arfirði, sem héti Ásgeir, en honum hafði ég kynnst nokkrum árum áður, er hann gerðist félagi í Lions- klúbbi Hafnarfjarðar. En því er þessi stutta frásögn, að „sjaldan fellur eplið langt frá eikinni". Það sem vakti sérstaklega at- hygli mína, er Ásgeir Ólafsson gerðist félagi í Lionskiúbbi Hafnar- Qarðar, var hin einlæga og vin- gjamlega framkoma hans, kímnigáfa og frásagnarlist, sem var einstök. Hann var því gjaman veit- andi á fundum klúbbsins með fróðleik og skemmtan og vegna öfgalausrar víðsýni og greindar sá hann ætíð báðar hliðar hvers máls, sem oft leiddi til sameiginlegrar niðurstöðu, þegar menn höfðu haft skiptar skoðanir. Ég tel Ásgeir ann- an af tveimur bestu frásagnarlista- mönnum, sem ég hef kynnst um ævina, en báðir sögðu þessir menn frá af slíku listfengi, að aðrir hlu- stuðu á af athygli þótt frásagn- arstíll þeirra væri frábmgðinn, en það var þeim báðum sameiginlegt, að beina aldrei athyglinni að óþörfu að sjálfum sér. Annað sem hlaut að vekja at- hygli var stundvísi og skyldurækni Ásgeirs, sem var þess eðlis, að fljót- lega eftir að hann gerðist félagi í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar var hann kosinn formaður hans og síðar, þegar segja má, að heiður klúbbsins værí í veði, tók hann góðfúslega að sér starf umdæmisstjóra Lions- hreyfíngarinnar á íslandi, sem hann rækti af mikilli alúð og kostgæfni. Sem dæmi um það má nefna, að í umdæmisstjóratíð Ásgeirs, 1971— 1972, var „Rauða fjöðrin“ seld í fyrsta sinn á íslandi, en ágóðanum af þeirri glæsilegu söfnun var varið til sjónverndarmála svo sem kunn- ugt er og umdæmisstjóraþing Norðurlanda var haldið í annað sinn á Islandi. Undirbúningur að sölu „Rauðu fjaðrarinnar" var svo góður og málefnið, sem ágóðinn af sölu hennar átti að styrkja, fékk svo góðan hljómgmnn í hjörtum allra Islendinga, að hjá sölumanni, sem telur sig með þeim lakari sem völ er á, myndaðist biðröð viðskiptavina og margir vom með fleiri en eina Q'öður í barmi, þegar upp var stað- ið. Einnig beitti Ásgeir sér fyrir skiptingu landsins í tvö umdæmi enda var vöxtur og velgengni hreyf- ingarinnar svo mikil, að umdæmis- stjórastarfíð var orðið einum manni ofviða. Fyrir störf sín í þágu Lions- hreyfíngarinnar vom Ásgeiri veitt- ar fjölmargar heiðursviðurkenning- ar og meðal annars var hann kjörinn heiðursfélagi í Lionsklúbbi Hafnar- fjarðar. Eftir að hafa búið í Hafnarfírði frá árinu 1959 fluttist Ásgeir með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur fyrir allmörgum ámm. Venjan er, þegar þannig stendur á, að félagar fara í klúbb í sinni heimabyggð. En í þessu tilviki tók það tryggðinni aðeins í skóvarp og Ásgeir hélt áfram i sínum gamla klúbbi, mætti alltaf stundvíslega og svo vel, að eftir að okkur félögum hans barst til eyma sú sorgarsaga, að hann gengi ekki heili til skógar vissum við fyrir víst, að heilsa hans var lakari, ef hann var ekki mættur á fund á réttum tíma. Síðasta sam- vemstundin var á sl. vori, er hann þá sárlega sjúkur en æðmlaus eins og alltaf, fagnaði með félögum sínum á 30 ára afmælishátíð klúbbsins. Þá hafði hann verið einn af bestu og ötulustu félögum hans í meira en aldarfjórðung. Það er því stórt skarð fyrir skildi og félag- ar í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar kveðja Ásgeir Ólafsson með miklum söknuði, en í þeirri fullvissu, að hann eigi góða heimkomu, þar sem hinir mörgu og góðu eiginleikar hans em metnir að verðleikum. Vilhjálmur G. Skúlason Ásgeir Ólafsson, fyrrverandi for- stjóri Bmnabótafélags íslands, andaðist 16. þ.m. Undanfarin ár hafði Ásgeir barist við sjúkdóm, sem vinir og kunningjar vissu að læknavísindi gátu ekki sigrast á. Hægt og bítandi mátti sjá að að þessi mikli atorkumaður varð að láta í minni pokann. Þó var það ekki fyrr en í apríl sl. sem hann játaði sig sigraðan og sagði af sér sem framkvæmdastjóri Viðlaga- tryggingar íslands. Það embætti tók hann að sér eftir að hann lét af störfum sem forstjóri Bmnabóta- félags íslands 30. júní 1981. Ásgeir Ólafsson fæddist að Hvammi í Dölum 2. desember 1922. Foreldrar hans vom þau hjónin Ól- afur Guðmundsson og Elísabet Guðjónsdóttir. Hann var þriðji í röð sex systkina. Það vom tveir bræður eldri en hann: Jón, bóndi á Dunkár- bakka í Dalasýslu og Guðjón, bóndi, sem látinn er fyrir mörgum ámm. Yngri en Ásgeir vom þijár systur: Þorgerður, húsfreyja búsett í Bandaríkjunum, og Hulda og Krist- björg, sem báðar em búsettar í Reykjavík. Foreldrar Ásgeirs bjuggu að Hvammi í Dölum nokkur ár eftir fæðingu hans. Ungur missti hann móður sína, en Ólafur faðir hans var búsettur á nokkmm stöðum skamman tíma í senn. Ólafur var mjög þekktur fyrir lagni sína við að lækna dýr. Engin próf hafði Ólafur tekið í dýralækningum, en hann var oft sóttur langar leiðir, ef einhver bóndinn átti í fjósi eða úti í haga veika skepnu. Sem barn var Ásgeir langtímum hjá frænd- fólki sínu eftir að hann missti móður sína. Ekki var til að dreifa veraldar auði. En fátækur unglingur í sveit hafði löngun til að afla sér mennt- unar. Ásgeir hafði á engan að treysta nema sjálfan sig. Hann nam við Héraðsskólann í Reykholti 1937—’39 og settist síðan í Verzl- unarskóla ísiands og lauk þaðan prófí árið 1944. Meðan á skóla- göngu stóð gekk hann að allri þeirri vinnu sem bauðst til að honum yrði kleift að ljúka námi sínu. Hann starfaði við framkvæmdir Hitaveitu Reykjavíkur og Bretavinnunni kynntist hann. Þegar hann útskrif- aðist frá Verzlunarskóla íslands fékk hann starf hjá Bmnabótafélagi íslands. Hann hóf störf sem bók- haldari 1. maí 1944. Hann var ráðinn skrifstofustjóri 1952 og for- stjóri félagsins var hann skipaður frá 1. september 1957. 17. maí 1947 gekk Ásgeir að eiga eftirlifandi eiginkonu sína Dagmar Gunnarsdóttur. Hún er dóttir Gunnars Götze, bakara í Reykjavík, og konu hans, Sigríðar Sveinsdóttur. Þau Ásgeir og Dag- mar byggðu sér hús að Birkigmnd 67 í Kópavogi. Þar áttu þau fagurt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.