Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Ég er kona, fædd 21.11.
1943 á Norðurlandi, líklega
um kl. 7 að morgni. Mig lang-
ar að biðja um þær upplýsing-
ar sem þú gefiir venjulega f
þáttum þínum. Kærar þakk-
ir.“
Svar:
Þú hefur Sól og Rísandi merki
í Sporðdreka, Tungl og Mið-
himin í Meyju, Merkúr í
Bogmanni, Venus í Vog og
Mars í Tvíbura.
Tilfinningarík
Sól og Rísandi saman táknar
að í innsta eðli þínu ert þú
tilfinningamaður. Þú ert næm
á fólk og umhverfi þitt og
hefur gaman af því að virða
mannlífið fyrir þér og reyna
að spá í leyndardóma þess.
Framkoma þín er yfirleitt hæg
og yfírveguð og mótast af til-
finningalegum næmleika
þínum. Þú ert varkár og hleyp-
ir fólki ekki auðveldlega að
þínum innsta manni. Það að
hafa Sól og Rísandi í sama
merki táknar að þú ert ekki
100% hinn duli Sporðdreki,
heldur kemur til dyranna eins
og þú ert klædd, ert hreinskil-
in og oft á tíðum beinskeitt.
Forvitin
Júpíter í spennuafstöðu við
Sól táknar að þú ert forvitin
og þarft stöðugt að færa út
sjóndeildarhring þinn. Því get-
ur verið gott fyrir þig að
ferðast eða lesa mikið. Kyrr-
staða getur leitt til óþolinmæði
og leiðinda. Júpíter fylgir
einnig hætta á að ganga of
langt eða vera óhófssöm á ein-
hverju sviði.
Hjálpsöm
Tungl í Meyju táknar að þú
átt til að vera gagnrýnin og
smámunasöm. Mikilvægt er
fyrir þig að hafa daglegt líf
þitt í föstum skorðum og að
röð og regla sé á málum
þínum. Þú ert eirðarlaus í
daglegu lífi og þarft sífellt að
vera að, vinna, taka til eða
hjálpa vinum og vandamönn-
um. Staða Tunglsins á Mið-
himni gefur til kynna að þér
falli vel að vinna við tungl-
störf, s.s. að fæða, klæða,
hýsa eða annast um fólk, t.d.
fást við uppeldismál eða hjúkr-
un.
SjálfstœÖ hugsun
Merkúr í Bogmanni táknar að
hugsun þín er leitandi og
ftjálslynd. Þú hefur sjálfstæð-
ar og óvenjulegar skoðanir og
sterkt sjötta skilningarvit
(Merkúr—Úranus). Þú hefur
t.d. oft vitneskju um ákveðin
mál án þess að vita hvaðan
hún er komin.
Réttlát
Venus í Vog táknar að þú lað-
ast að fólki sem þú getur talað
við. Þú reynir að vera réttlát
og tillitssöm í mannlegum
samskiptum og er illa við að
sjá aðra beitta órétti. Þú vilt
að friður og jafnvægi ríki á
milli þín og annarra.
Fjölhœf
Mars í Tvíbura táknar að þér
fellur vel að vera með mörg
jám í eldinum og starfa að
fjölbreytilegum málum. Þetta
er ákveðin mótsögn við Sporð-
drekann sem vill ná langt á
einu sviði og einbeitir sér því
að einu í einu. Líkast til ert
þú stundum að vinna að tiu
verkum í einu en vilt stundum
algjört næði til að sökkva þér
í eitt mál. Mars í Tvíbura tákn-
ar einnig að þú vilt nota
hugvit þitt í vinnu og hugsa
um verk þín áður en þú fram-
kvæmir.
X-9
&>c/pr
A£T P’/tf
• £/fX/.-. /7/
*-/)
fe&AR£6 f/£F\
Pf&P/P V//// >
P/WA.pepppí/f.
5ö/Ít/l£/£> / / "
/f/ADy
Sft> fl4(/ M4FA J
© ms Klng Features Syndlcale, Inc. World righfs reserved.
GRETTIR
/ pAB> EfZO FAP/MLÖÖ, /
03 þ54E? EKU FAPA1L-Ö6 )
BN pAP ERU ENQIN RúEWILQG j
EINS OG BAHGSAFAPMLÖQ/
©1985 United Feature Syndlcate.lnc.
DYRAGLENS
LJOSKA
HEFDR JOL i US) pA e> ER
ALLTAF VERlÐÁ VARLA
-SVONA - - SPAR-\rÉTTA ORB
samuk. Jid-'O.jO
''lllf Va SAGÐI HANN„FÖ«J>Vt
) 06 SKOÐOAH HElMINN
u, ( l" BROEíKAJPSFEPDIMNr
£22.
FERDINAND
7 ,/fNÍ
/ (í( Fv^á
apehhagen
SMAFOLK
HI5T0RY? 50RRY,
MA'AAA...
1 THOUGMT U)E WERE
5TILL ON MATM..
Já, kennari... svarið er Saga? Afsakaðu. kenn-
"Se*" ari ...
I PIDNT KNOU)
YOU MAP 5U)ITCMEP
CMANNEL5
Ég hélt að við værum enn Ég vissi ekki að þú hefð-
með reikning. ir skipt um rás.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hvemig getur maður sem
spilar svona vel úr, meldað svona
illa? Er það nema von að spurt
sé.
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 543
♦ -
♦ ÁK862
♦ ÁK976
Vestur
♦ D98
♦ D754
♦ G1043
♦ 42
Austur
♦ ÁKG107
V10986
♦ 95
♦ G3
Suður
♦ 62
¥ ÁKG32
♦ D7
♦ D1085
Spilið kom upp í rúbertubrids
í Cavendish Club í Manhattan
fyrir þremur árum. I N/S voru
þekkt númer í bridsheiminum;
norður var bridsrithöfundurinn
Martin Hoffman, sem kom til
íslands á Bridshátíð fyrir tveim-
ur árum, en í suður var Norman
Lawrence, þekktur spilari
vestra. Sagnir fóru eðlilega af
stað, en tóku svo óvænta stefnu:
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tígull 1 spaði 4 hjörtu!?
Pass Pass Pass
Fjögur hjörtu á fimmlit er
vægast sagt undarleg sögn í
þessari stöðu.
Slíkt segja menn aðeins með
þéttan, eða nær þéttan sex- eða
sjölit. Sú trú vamarinnar reynd-
ist styrkur Lawrence í úrspilinu.
Vestur spilaði út spaða og
austur tók á ás og kóng og spil-
aði þriðja spaðanum. Lawrence
trompaði lágt og húrraði út
hjartagosanum! Vestur sá ekki
ástæðu til að drepa strax á
drottninguna, því hans vegna
gat austur verið með kónginn
annan. Hann gaf því. Lawrence
tók næst tvo efstu í trompi.
Ekki hvarflaði að vestri að fóma
drottingunni undir hjartahá-
mennina og hann fékk því næsta
slag á hana og horfði með undr-
un á makker fylgja lit með
tíunni. Og þar með var spilið í
ömggri höfn, því vestur átti
engan spaða til að spila.
Og þá aðeins eftir að svara
spumingunni, sem varpað var
fram í upphafi. Lawrence hafði
tekið af sér gleraugun á meðan
hann sorteraði spilin og raðað
D7 í tígli með hjartanu.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega mótinu í Biel í
Sviss í júlímánuði, kom þessi staða
upp í opna flokknum í skák þeirra
Hickl, V-Þýzkalandi, sem hafði
hvítt og átti leik, og Straat, Hol-
landi.
20. Rxf7! - Kxf7, 21. Bxf6 -
Kxf6 (Eða 21. - Bxf6,22. Hxh7+
- Bg7, 23. Dc3 - Hg8, 24.
Hxg7+ — Hxg7, 25. Df3+ og
vinnur) 22. Dc3+ e5, 23. Hxh7
— Dc6, 24. Dc4 (Það er auðvelt
að sækja að svarta kóngnum, ber-
skjölduðum á miðborðinu De6,25.
Dh4+ — gö, 26. Dh6+ og svartur
gafst upp.