Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 35

Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 35 Guðrún Sigfús- dóttir — Minning Fædd 2. september 1907 Dáin 13. ágúst 1986 Þegar mér barst andlátsfregn Guðrúnar móðursystur minnar hrúguðust upp endurminningar frá bernskuárunum í Gröf þar sem hún stóð fyrir búi afa og ömmu með Bjarna bróður sínum og við bræð- urnir dvöldumst í sveitinni sumar eftir sumar. Ég minnist hennar líka á ættar- móti frá í sumar þar sem hún geislaði af fjöri, þó ég geri mér grein fyrir því nú að þá var hún orðin veik. Hún andaðist í sjúkrahúsi Akur- eyrar 13. ágúst eftir stutta legu og naut þar frábærrar umönnunar sem þakkað er hér fyrir. Guðrún fædd- ist að Syðri-Brekkum í Blönduhlíð árið 1907, en afi og amma bjuggu þar frá 1903 til 1918. Bærinn brann ofan af þeim haustið 1917 og þau björguðust með barnahópinn í fjárhúsin þar sem þau bjuggu um sig til vorsins. Í janúar 1917 andaðist Sigurður elsti sonur þeirra aðeins 19 ára gamall og var það þeim mikið áfall. Að Hofi á Höfðaströnd fluttu þau með barnahópinn sinn um vorið 1918, þá var Jósafat elstur, 17 ára, Ingibjörg móðir mín 15, Jóhann 14, Guðrún 11, Svanhildur 10, og Bjarni 2 ára, þau eignuðust síðan Sigurð á Hofi 7. ágúst 1918. Eftir þennan erfiða frostavetur greri jörð illa og var spretta svo li'til að ekki var hægt að binda töð- una í reipi, heldur varð að flytja hana í pokum af túninu. Var þetta að sjálfsögðu lélegt fóður og urðu mikil vanhöld á fénaði vorið 1919. Við þessar aðstæður ólst Guðrún upp, fram yfir fermingu. Samheldni afa og ömmu ásamt heitri trú og bjartsýni á betri tíma mótuðu lífsviðhorf systkinanna allra. Árið 1921 flytja þau að Gröf, fer þá að birta yfir, erfið ár að baki og tókst afa og ömmu að komast í góð efni þar og skila öllum barna- hópnum til hinna verðugustu full- trúa þjóðfélagsins. Afi missti ömmu árið 1941 og tóku þá Bjarni og Ólafur Jónsson, sem giftur var Svanhildi, við búinu, og var eftir það tvíbýli að Gröf um nokkur ár. Guðrún eignaðist dóttur, Erlu Erlendsdóttur, árið 1934, og ól hún hana upp í Gröf, þar sem hún stóð fyrir búi Bjarna þar til hann giftist Gunnlaugu Stefánsdóttur frá Gautastöðum í Fljótum. Frá þessum árum á ég mínar ljúfustu bernsku- minningar, þar sem við nutum leiðsagnar afa og ömmu og þeirra frændsystkina sem í Gröf voru. Eftir að við fluttum til Siglufjarð- ar, fannst mér veturnir ætluðu aldrei að líða svo var tilhlökkunin að komast í sveitina. Guðrún reynd- ist okkur sérstaklega góð, og var okkur eins og önnur móðir þegar við vorum í sveitinni. Hún gekk eins og hamhleypa að öllum störfum bæði úti og inni. Stundum fannst mér að það væri eins og hún hefði meira gaman af útiverkum, en seinna skildi ég að hún var að bjarga verðmætum og tryggja afkomu búsins. Afi deyr árið 1946, en það sama ár 5. maí verða þáttaskil í lífi Guð- rúnar, en þá gengur hún að eiga Garðar Jónsson skólastjóra á Hofs- ósi. Eignuðust þau yndislegt heimili sem erfitt var að fara framhjá þeg- ar leið lá um Hofsós, enda stóð það öllum opið og hafði Guðrún bæði unun af að taka á móti gestum, svo og eftir að Garðar varð hrepps- stjóri áttu fjölmargir við hann erindi, eins og gefur að skilja en hann hafði skrifstofuna alltaf á heimilinu. Voru þau samhent í að láta gestum líða vel og eigum við margar minningar um heimsóknir hjá þeim á árum er þau bjuggu þar. Árið 1948 eignuðust þau Sign'ði Jónínu sem gift er Sigurði Andréssyni rafvirkja, eiga þau tvo syni, Garðar Guðmund og Amar, eru þau búsett á Akureyri. Erla giftist Árna Guðmundssyni frá Böðmóðsstöðum í Ámessýslu og búa þau þar, eiga þau þijú börn, Garðar Rúnar giftan Gunnvöru Kolbeinsdóttui', Karólínu gifta Jó- hanni Gíslasyni og Auðunn. Þegar Garðar hafði lokið sínu lífsstarfí sem skólastjóri árið 1978 á Hofs- ósi, en hann hafði þá verið skóla- stjóri í 39 ár fluttu þau til Akureyrar þar sem þau festu kaup á fallegu raðhúsi að Einilundi 10. Voru þau þannig í nálægð við dóttur sína, Sigríði Jónínu, Sigurð og dóttursynina. Áttu þau á Akureyri góð ár þar sem þau nutu samvistanna við fjöl- skyldu sína. Guðrún hafði yndi af öllu lífi, og vildi alltaf gleðja aðra og gefa. Þegar ég sagði Auði konu minni frá andláti hennar og var leiður yfir að hafa ekki vitað hve veik hún var orðin, benti hún mér á fjögur blóm í stofuglugga sem öll skörtuðu sínum fegurstu blómum. Þessi blóm eru öll frá henni, í heimsókn hjá henni sl. sumar lagði hún blöð af þessum blómum í bómull og bjó um svo hún gæti haft með sér heim og haft til yndisauka á heimilinu. Þannig á ég minninguna um frænku mína, gefandi og gleðjandi aðra, og þannig vil ég minnast hennar. Að leiðarlokum sendum við hjón- in og fjölskylda mín Garðari, Erlu og Sigríði og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að styrkja þau í sorg þeirra. Sverrir Sveinsson Fagurt er á Hofsósbökkum, grónar búsældarlegar sveitir allt um kring, fjallahringur víður, Kerl- ing og Drangey á ferðinni enda- lausu, nokkur áratog úti á firðinum, — og Þórðarhöfði, svingsin skag- fírska, vakir þögull í norðri. Tæpast getur indælli vordaga en þar eða bjartari sumarnætur. Lungann úr ævi sinni átti Guðrún Sigfúsdóttir heima í þessu skag- firska töfralandi. Hún fæddist að vísu ekki á Höfðaströnd en flutti þangað með foreldrum sínum innan við fermingu framan úr Blönduhlíð. Þar var hún fædd, á Syðri-Brekk- um, 2. september 1907. Foreldrar hennar, Jónína Anna Jósafatsdóttir og Sigfús Hansson, bjuggu á Brekkum til 1918 en fluttu þá með hópinn sinn að Hofí á Höfðaströnd þar sem þau voru til 1921. Þá fluttu þau að Gröf, bjuggu þar til æviloka og voru jafnan við þann bæ kennd. Þeim varð átta barna auðið. Sigurð- ur, mikill efnismaður, lést um tvítugt. Hin áttu öll langt líf fyrir höndum. Ingibjörg andaðist 1978 og nú hefur Guðrún kvatt okkur að sinni. Höfðaströnd bættist gott fólk þegar Jónína og Sigfús settust þar að ásamt börnum sínum. Sjálf voru þau kunn að dugnaði og manngæð- um og börnunum kippti í kynið. Þau voru atorkusöm, glaðlynd og félags- lynd, músíkölsk og söngvin. Guðrún var þar engin undantekning - og á Höfðaströnd átti hún heima lengst þeirra allra. Hún dvaldist löngum í föðurgarði ung en giftist 1946 Garðari Jóns- syni frá Mannskaðahóli, skólastjóra á Hofsósi. Þar áttu þau heimili sitt þar til Garðar lét af skólastjórn 1978. Þá fluttust þau til Akureyrar og þar lést hún 13. dag þessa mán- aðar. Garðar Jónsson gegndi fjölmörg- um störfum fyrir sveit sína og hérað. Hann var m.a. hreppstjóri Hofsóshrepps í meira en aldarfjórð- ung. En að sjálfsögðu var skóla- stjómin aðalstarf hans og var þar ekki höndum til kastað og ekki ein- ungis lögboðnir vinnutímar heldur og tómstundir notaðar til að leitast við að koma nemendum til þroska og efla manndóm þeirra og siðgæð- isvitund. Garðar stjórnaði til að mynda bamastúku í áratugi. - Þeir sem þekkja til skólastjómar í stijálbýli vita hve mikill styrkur það er góðu og farsælu starfí að heim- ili skólastjóra sé traust og gott. Það var heimili Guðrúnar og Garðars. Þangað var ætíð gott að koma og þar var gaman að vera. Dóttir þeirra, Guðrúnar og Garð- ars, er Sigríður Jónína kennari. Hún er búsett á Akureyri, gift Sigurði Andréssyni rafvirkja. - Guðrún var ung heitbundin Erlendi Sigutjóns- syni frá Tindum í Húnaþingi. Dóttir þeirra er Erla, húsmóðir á Böð- móðsstöðum í Laugardal. Maður hennar er Árni Guðmundsson bóndi. Garðar reyndist Erlu sem besti fað- ir og lýsir það eins og störf hans öll mannkostum hans og dreng- lyndi. Ungur var ég að ámm þegar ég kynntist Guðrúnu Sigfúsdóttur. Glaðlyndi hennar er mér minnis- stætt. En þó kemur mér jafnan fyrst í hug þegar ég rifja upp kynni okkar fom hve notaleg hún var börnum. Og með þeim einföldu orð- um er mikið sagt. Við hjónin sendum Garðari Jóns- syni og ástvinum hans öllum hugheilar samúðarkveðjur og biðj- um þeim blessunar Guðs. Á þessum hlýju, fögm ágústdögum hvarflar hugurinn norður á Hofsósbakka. Fegurðin þar umlykur minningu um góða konu, Guðrúnu Sigfúsdóttur. Ólafur Haukur Arnason t Útföreiginmanns míns, fööurokkar, tengdaföfiur, afa og langafa, JÓNS MARGEIRS SIGURÐSSONAR, Þórufelli 10, Reykjavfk, fer fram frá Hvalsneskirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjálfsbjörg. Elenóra Þórðardóttir, Helga Hjaltadóttir, Helga Ósk Margeirsdóttir, Ingibjörg Margeirsdóttir, Margrét Margeirsdóttir, Friðjón Margeirsson, Kjartan H. Margeirsson, Hreiðar Margeirsson, Birna K. Margeirsdóttir, Anna S. Margeirsdóttir, Guðmundur Þorkelsson, Sveinn Pálsson, Fjóla Jónsdóttir, Hulda Ólafsdóttir, Sigurbjörg Baldursdóttir, Árni Jónasson, Þórir Lúðvíksson, barnabörn og barnabarnabörn. t INGVELDUR EDVARDSDÓTTIR frá Hellissandi, Álfaskeiði 96, Hafnarfirði, andaðist í Borgarspítalanum 21. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda. Kristin Edvardsdóttir, Sigríður Oliversdóttir. t JÓNA GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR frá Ingólfi, Selfossi, er lést 11. ágúst sl. verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 23. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda. Magnús Magnússon, Guðlaugur Ægir Magnússon. t Útför föður okkar, tengdaföður og afa, HALLGRÍMS SVEINS SVEINSSONAR, frá Hálsi í Eyrarsveit, fer fram laugardaginn 23. ágúst nk. kl. 14.00 frá Grundarfjarðar- kirkju. Þeir sem vildu minnast hans vinsamlegast láti Sjálfsbjörg njóta þess. Sigurður Hallgrimsson, Selma Hallgrímsdóttir, Sveinn Hallgrímsson, Ingibjörg Hallgrímsdóttir, Halldóra Hallgrímsdóttir, Guðni E. Hallgrimsson, Hallgrimur Hallgrímsson, og Erla Eiriksdóttir, Erastus Ruga, Gerður K. Guðnadóttir, Kristinn Ólafsson, Peter Laszlo, Bryndís Theódórsdóttir, Guðríður J. Guðmundsdóttir, barnabörn. Útför t SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR, Grænuvöllum 6, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 15.00. Systur og börn hinnar látnu. t Okkar innilega þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, DAGMAR G. JACOBSEN, Ránargötu 26, og heiðruöu minningu hennar. Sérstaklega viljum við þakka félagskonum i Húsmæörafélagi Reykjavíkur alla umhyggju og tryggð er þær sýndu henni. Guð blessi ykkur öll. Sigríður og Sverrir Bergmann, Katrín og Egill Á. Jacobsen og fjölskyldur. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför UNNAR HARÐARDÓTTUR frá Holti, Lágengi 29, Selfossi. Lifið heil. Sigurður Jónsson, Anna Guðrún og Sigrfður Sigurðardætur, Anna Guðrún Bjarnardóttir og Hörður Sigurgrimsson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR JÓNSSONAR, Norðurbrún 1. Sólrún Eiriksdóttir, Jón Magnússon, Vibeka M. Einarsdóttir, Ásta S. Magnúsdóttir, Jón Hannesson, börn og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu hluttekningu við andlát og jaröariör SIGRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR frá Karlsskála við Reyðarfjörð. Systkini og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.