Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 43

Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 43 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 11-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS I/-JVHI UJrW’V Nordan vard; - hann gerdi gard; Ólafur Magnússon skrifar. Af ýmsum ástæðum, m.a. vegna fjarvistar, hefi ég ekki komist til að skrifa fyrr, en hef, að mestu leyti, fylgst með umræðum í Vel- vakanda um gömlu góðu vísuna um nordan gardinn. Vísan er forn. Ekki er kunnugt um höfund en hann hefir, að minni hyggju, verið góður íslenskumaðui' og hagyrðingur með ágætum. Sérstaklega var spurt um seinni hluta vísunnar sökum þess að þar notar höfundur orð, sem nú eru afar sjaldgæf og raunar má segja að þau séu glötuð úr málinu. Ljóst er að margir hafa reynt að pijóna neðan við efri hlutann en ekki hitt á réttu lykkjurnar og flíkin því orðið „skökk og snúin“. Þó hygg ég að fyrri hluti vísunn- ar sé ekki nákvæmlega réttur hjá fyrirspyrjanda, því að þriðja at- kvæðið í öllum hendingunum á að ríma saman og það þykir ekki góð- ur kveðskapur að nota sama orðið tvisvar eða oftar, ef það er sömu merkingar. Vísan er dýit kveðin, sem kallað er, þannig að orðin í fyrstu og þriðju hendingu eiga að ríma saman og á sama hátt orðin í annarri og fjórðu hendingu. Að minni hyggju er vísan þannig: Nordan vard; - hann gerdi gard; geysi hardur vard’ann. Borda jardar erdis ard eisu í skardid bard”ann Hvað þýða svo þessi sjaldgæfu eða glötuðu orð? 1. Bordi jardar þýðir landið. 2. Erdi (samanber íslensk-dönsk orðabók S. Blöndal) þýðir eitthvað ægilega stórt, fyrirferðarmikið, óviðráðanlegt. Það er fleira til en fótbolti Guðný H. skrifar. „Mig langar að koma á framfæri þeirri ósk til fjölmiðla að sýna nú einhveijum öðrum íþróttum en fót- bolta áhuga, til dæmis sundi. Helgina 8. til 11. ágúst fór fram aldursflokkamót Islands sem er talsvert stórt mót hér á landi, hvern- ig væri að fá fréttir af gangi mála þar?“ Stúlka saknar hjóls- ins síns Skúli Magnússon hringdi. „Aðfaranótt sl. sunnudags varð dóttir mín fyrir því að reiðhjólinu hennar var stolið frá Kjalarlandi 14. Þetta er appelsínurautt, þriggja gíra Raleigh-telpuhjól. Hafí einhver rekist á hjólið er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 83352.“ Chopper- reiðhjól skilið eftir Sigurbjörg Jóusdóttir hringdi og sagði að einhver hefði skilið eft- ir svart, rautt og krómað Chopper- reiðhjól í bakgarðinum við heimili hennar á Hverfisgötu 92a fyrir um það bil hálfum mánuði. Henni þætti afar vænt um ef eigandi hjólsins sækti það. 3. Ard þýðir plógur eða plógrista (samanber orðabók S. Blöndal). 4. Eisa þýðir eimyija, glóandi aska. Ætli við segðum ekki nú til dags að það hefði verið svartabylur, fár- viðri, sást ekki handa skil, ekki hundi út sigandi og hann (veður- guðinn, hefur líklega verið reiður) barði fönninni og freyðandi brim- löðrinu upp í skarðið. Leið manna liggur oft um skarð- ið en þegar slík ósköp ganga á verður skarðið að sjálfsögðu ófært og menn neyðast til að húka heima. Þessir hringdu . . Ilmvötn menga andrúmsloftið Margrét Árnadóttir hringdi. „Nú á dögum er mikið rætt um mengun frá bílum en það er önn- ur mengun sem fer ekki minna í taugarnar á mér og ég hef ekki heyrt neinn vekja athygli á. Þar á ég við mengunina af alls konar ilmvötnum sem svo mjög virðist færast í vöxt að konur úði yfir sig. Hafa ekki aðrir orðið varir við þetta? Sjálfri liggur mér stundum við köfnun þegar ég kem inn í sumar búðir á háannatím- anum. Mig langar að beina þeirri áskorun til meðsystra minna að þær dragi eitthvað úr þessum ósið, það er nóg af öðru sem mengar andrúmsloftið." Ljósblár páfa- gaukur týndur Bryndís Jónsdóttir hringdi. Hún týndi ljósbláum páfagauk í Bústaðahverfí síðastliðinn mánu- dag. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 33516. Beina útsendingin frá Arnarhóli stórskemmtileg Helga Jónasdóttir hringdi. „Ég bý á Tálknafirði og mig langar gjaman að koma á fram- færi þakklæti til sjónvarpsins fyrir beinu útsendinguna frá Amarhóli sl. mánudag. Hún var alveg frá- bær. Það var nú ekki nema með hálfum hug sem ég settist fyrir framan sjónvarpið enda bjóst ég ekki við miklu en skemmti mér síðan alveg konunglega. Það var ekki bara það að skemmtiatriðin væru stórgóð, frammistaða þeirra hjá sjónvarj)inu var þeim líka til mikils sóma.“ Arnar Jónsson Unun að hlusta á Arnar Margrét Ágústsdóttir hringdi. „Ég var að horfa á sjónvarpið þriðjudaginn 19. ágúst og get bara ekki orða bundist yfir því hve mér fannst hann Arnar Jóns- son tala skýrt og greinilega. Það var hrein unun að hlusta á hann. Mér finnst hann bera af öðrum leikurum að þessu leyti. Væri ekki ráð að fá hann til að leið- beina öðrum með framburð?" Erlendur var Erlendsson, ekki Einarsson I Velvakanda siðastliðinn laugardag misritaðist nafn Er- lends Erlendssonar sem reisti steinhús að Breiðabólsstöðum á Álftanesi. Var hann sagður Ein- arsson en hið rétta er að Erlendur Erlendsson og Þuríður Jónsdóttir kona hans reistu húsið. Áslaug Sigurgeirsdóttir hafði samband við Velvakanda vegna bréfsins og vill hún gjarnan ná sambandi við dótturdóttur Er- lends vegna ættfræðirannsókna sem hún er að vinna að. Biður Áslaug hana að hringja í síma 12790. Vonandi sést þetta ekki aftur Margrét Jónsdóttir hringdi. „Ég hef nú aldrei orðið vitni að annarri eins þágufallssýki og birtist á baksíðu Morgunblaðsins 20. ágúst sl. Þar stendur: „Morg- unblaðinu forvitnaðist um það í sveitum landsins hvemig beija- spretta væri í sumar." Aðra eins rós hef ég aldrei séð og vonast til að sjá ekki aftur enda hefur mér alltaf þótt vænt um blaðið." Úr með rauðri ól og hvítri skífu týndist Halldór Jónsson hringdi og sagði að dóttir sín hefði týnt barnaúri með hvítri skífu og rauðri ól þegar hún var að leika sér einhvers staðar í nánd við Fannafell miðvikudaginn 13. ágúst. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 78932. BÍLEIGENDUR — sjálfsþjónusta Við bjóðum ykkur góða aðstöðu til að þvo bíl og vél með tækjum sérstaklega gerðum fyrir bílaþvott. ★ Engin þvottaaðferð fer betur með lakkið. ★ Sérstök þvottaefni, heitt og kalt vatn og bón. ★ Mjög auðvelt, einfalt og fljótlegt. ★ Opið alla daga. ★ Kraftmikil ryksuga. Þvi ekki að reyna. _____ ... T „ Það kostar frá kr. 140.- BfaÞvottastöðin EaUglH á mótum Kleppsvegar og Holtavegs. ? Perstorp gólfið Slitsterk og varanleg lausn Perstorp gólfið er mjög slitsterkt. Það er harðara erybæði eikar- og furuparkett. Þess vegna sjást engar rispur eftir húsgögp-xeða skóhaela. Perstorp gólfið4|fe1ir glóð og sterk efni. Perstorp gólfinu er auðvelt að halda hreinu og ' ‘ það er alveg yiðhaldslaust. $KPerstofp gólftð má leggja ófan á gamla gólfið, -| sgrnj^ur orðið gott undirlag. Perstorp goftborðin eru aðeins 7 mm þykk, sem leysir mörg vandamál áður e'n þau verða til. PeráSori® gólfið er auðvelt og fljótlegt að Ieggja. JQKP GÓLFIÐ - ENGANSVÍMUR Mi W??': 1 *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.