Morgunblaðið - 22.08.1986, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 22.08.1986, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 • Graeme Souness, fram- kvæmdastjóri Glasgow Rangers, var dæmdur í þriggja leikja bann. Souness íbann GRAEME Souness, fram- kvæmdastjóri Glasgow Rangers, var dæmdur f þriggja leikja bann og lið hans sektað um 30 þúsund pund fyrir ólæti í opnunarleik liðsins gegn Hib- ernian í skosku knattspyrn- unni. Framkvæmdastjórinn var rekinn af leikvelli og brutust við það út ólæti á vellinum þar sem 21 leikmaður kom við sögu. Um síðustu helgi var metaðsókn á heimavelli Rangers og komu þá 44 þúsund manns. Liðinu hefur hins vegar ekki gengið eins vel og búist var viö, tapaö tveimur af þremur fyrstu leikj- unum í deildinni. Golf: Opna Finlux Opna Finlux golfmótið fer fram nú um helgina á Nes- velli. Keppni hefst kl. 8.00 á laugardag og sunnudag. Leiknar verða 36 holur m/og án forgjafar. Öll verðlaun í þetta mót eru gefin af Sjónvarpsbúðinni. Skráning er þegar hafin í skála klúbbsins í sfma 611930. Opna Mazda á Eskifirði Golfklúbbur Eskifjarðar gengst fyrir sínu fyrsta opna móti á Byggðarholtsvelli dag- ana 23. og 24. ágúst næst- komandi. Mótið kallast Opna Mazda- mótið og er haldið í tengslum við hátíðarhöld í tilefni 200 ára afmælis Eskifjarðarkaupstaðar, einnig í tilefni 10 ára afmælis klúbbsins. Mazda-umboðið Bílaborg hf. er bakhjarl mótsins og gefur öll verðlaun sem eru mjög glæsileg, en auk venjulegra verðlauna eru mörg aukaverð- laun, og ber þar hæst Mazda 323 GLX skutbíll sem veittur verður þeim sem fer holu í höggi á 5. braut. Byggðarholts- völlur er nú í „toppformi", en mikil vinna hefur veriö lögð í að gera hann sem bestan fyrir mótið. Skráning fer fram í símum: 97-6294, 97-6297 og 97-6397 og skal skráningu lokið fyrir kl. 20.00 föstudaginn 22. ágúst. Fannars- bikarinn OPIÐ öldungamót, Fannars- bikarinn, verður haldið hjá GR nú um heigina. Mótið hefst f fyrramálið klukkan 10 og verð- ur siðan framhaldið á sunnu- daginn á sama tfma. Eitt met í dag kemur skapinu í lag — segir Ragnheiður sem stefnir að meti í 200 m fjórsundi í dag „ÉG KOM hingað til að setja met og þess vegna er ég ekki ánægð með árangurinn hingað til. Eg byrjaði vel f 100 metra bringu- sundinu, millitfminn var 35,3 sekúndur, en ég missti niður hraðann og það er svekkjandi," sagði Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins. Ragnheiður synti 100 m bringu- sund á 1:15,52 mínútu á HM í sundi í Madrid í gær, en íslands- met hennar er 1:15,13 mínúta. Ragnheiður hafnaði í 5. sæti í sínum riðli og komst ekki áfram í úrslit. Bestum tíma náði Tania Bogomilova, Sovétríkjunum, en hún synti á 1:08,77 mínútu. Heims- metið, sem Sylvia Gerasch, Austur-Þýskalandi, á er 1:08,29 mínúta. „Ég held að ég hafi hvílt of mik- ið fyrir mótið, en það er engin afsökun og ekki þýðir að gefast Varð fyrir kringlu Á miðvikudagskvöldið gerðist það óhapp á frjálsíþróttamóti i Austur-Berlín, að starfsmaður vestur-þýsku sjónvarpsstöðvar- innar ZDF varð fyrir kringlu og slasaðist lífshættulega. Wolfgang Rost, hljóðmaður, höfuðkúpubrotnaði og var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús. Rost var á hlaupabrautinni þegar atvikið átti sér stað, en ónafngreind íþróttakona kastaði kringlunni. upp. Ég gleymi því sem búið er og vona að metið komi í 200 metra fjórsundinu, því eitt met á dag kemur skapinu í lag,“ sagði Ragn- heiður, sem keppir í fjórsundinu í dag. Eðvarð Þór Eðvarðsson keppir í 100 metra baksundi í dag og í 200 metra fjórsundi á morgun. Is- landsmet Eðvarðs í baksundinu er 57,92 sekúndur, sem er 14. besti tími keppenda í dag. Að sögn Frið- riks Ólafssonar, þjálfara Eðvarðs, á Eðvarð alla möguleika á að bæta sig og hann setur stefnuna á úr- slitasundið. Af Magnúsi Ólafssyni er það að frétta, að hann er orðinn hitalaus og honum líður vel. • Sundkonan Ragnheiður Runólfsdóttir keppir á heimsmeistaramót- inu í dag og stefnir að meti í 200 metra fjórsundi. Eðvarð Þór Eðvarösson keppir einnig í dag í 100 metra baksundi og er líklegur til afreka. Knattspyrna: Bobby Robson áfram með enska landsliðið Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgunblaðsins í Englandi. ENSKA Knattspyrnusambandið hefur boðið Bobby Robson, landsliðsþjálfara, samning til næstu 5 ára og hefur Robson ákveðið að taka tilboðinu. Enska landsliðið hefur leikið 49 landsleiki undir stjórn Robsons og aðeins tapað 11. Það er því Ijóst, að Robson verður með liðið í HM á Ítalíu 1990, en hann er 53 ára og fær 100 þúsund pund í árslaun. Liverpool hefur sent Knatt- spyrnusambandi Wales bréf, þar Morgunblaðiö/Börkur • Fulltrúar Sparisjóðs Kópavogs afhenda nokkrum leikmönnum ÍK í 5. flokki verðlaun, sem ÍK og Klakksvfk í Færeyjum keppa um þessa dagana. Leikmennirnir á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Ingvason, Elmar Daði ísidórsson, Jón Gunnar Ægisson og Kári Ólafsson. ÍK í Færeyjum LIÐ 5. flokks ÍK í knattspyrnu eru núna i Klakksvík i Færeyjum og taka þar þátt í vinabæjarmóti. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt vinarbæjamót er haldið í Klakksvík og er keppt bæði í A- og B-liðum. Samfara mótinu er sérstök keppni milli ÍK og Klakksvíkur, sem veröur árlegur viðburður og keppt til skiptis í Klakksvík og Kópavogi. Sparisjóður Kópavogs gaf vegleg verðlaun til keppninnar og er um að ræða bikara fyrir A- og B-lið og verðlaunapeninga. Getraunir í getraunaspá Morgunblaðsins sem birtist í blaðinu i gær vant- aði einn leik. Það var leikur Stoke og Birmingham og birtum við þvi spána aftur. sem farið er fram á að lan Rush verði tryggður fyrir 3 milljónir punda í hverjum landsleik sem hann leikur. Ekki mun verða unnt að fara að kröfu Liverpool og því mun Rush ekki leika vináttulands- leiki með Wales, en hann verður tryggður í öðrum leikjum. Manchester United er á höttun- um eftir nýjum leikmönnum, en fyrst verður að selja til að fá pen- inga. Verði einhverjir leikmenn seldir, er líklegast að það verði Danirnir Olsen og Sivebæk. Mark Falco, framherji hjá Tott- enham, fékk 1.500 punda sekt í gær vegna framkomu sinnar gagn- vart áhorfendum í leik með Spurs í lok síðasta keppnistímabils. Þá var hann einnig dæmdur í tveggja leikja bann. Paul Canoville,hægri kant- maður hjá Chelsea, var seldur í gær til Reading í 3. deild fyrir 50 þúsund pund. Shaun Elliott, sem hefur leikið meira en 300 leiki með Sunder- land, var í gær seldur til Norwich fyrir 150 þúsund pund. Verður Sammy Lee seldur frá Liverpool til QPR? Það eru tals- verðar likur á því. Liverpool vill selja og QPR kaupa en félögin hafa ekki enn komist að samkomu- lagi um verðið. QPR er reiðubúið til að greiða 115.000 pund en Dalglish vill fá 225.000 pund fyrir hinn smávaxna vinnuhest. Lee hefur leikið með Liverpool í 10 ár og hefur leikið 14 landsleiki en hann er nú 27 ára gamall. Tap hjá Frökkum FRANSKA landsliðið í knatt- spyrnu, sem mætir íslendingum á Laugardalsvelli 10. september, mátti þola 2-0 tap gegn Sviss- lendingum í landsleik í Lausanne á þriðjudagskvöld. Frakkar eru nú sem óðast að búa sig undir Evrópukeppnina og hafa verið að reyna marga nýja leikmenn. Aöeins fjórir leikmenn frá því í HM-liði þeirra í Mexíkó léku með gegn Sviss. Það voru þeir Bats, Amoros, Battiston og Stopyra. Getrauna- spá MBL. Sunday Telegraph Sunday Mirror Sunday People Sunday Express •0 *o -o c 3 O) 0 S SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Man. Utd. 2 1 X X 2 1 2 2 Aston Villa — Tottenham X X 2 1 2 1 2 2 Charhon — Sheff. Wed. 2 X 1 X 2 1 2 2 Chelsea — Norwich 1 1 1 1 1 5 0 0 Everton — Nott'm Forest 1 1 1 1 1 5 0 0 Leicester — Luton X 2 X 2 X 0 3 2 Man. City — Wimbledon 1 X 2 1 X 2 2 1 Newcastle — Liverpool 2 2 2 2 2 0 0 5 Southampton — QPR 1 1 2 1 X 3 1 1 Watford — Oxford 1 1 1 1 1 5 0 0 West Ham — Coventry 1 1 1 1 X 4 1 0 Stoke — Birmingham X 0 1 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.