Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 1
56 SIÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 223. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðaina Svíþjóð: Myndir af ókunnum kafbátum Stokkhólmi, AP. ÓKUNNIR kafbátar eru enn á ferð innan sænsku lögsög- unnar. Kom þetta fram í viðtali, sem birtist í gær við Bengt Gustafsson, nýskipað- an yfirmann sænska hersins. Lofaði hann að birta brátt ljósmyndir þessu til sönnun- ar. í viðtali við Svenska Dag- bladet sagði Gustafsson, að með skýrslu, sem birt yrði síðar í mánuðinum, myndu fylgja ljós- myndir, sem teknar voru í sumar af ókunnum kafbátum innan lög- sögunnar. Vildi hann ekki gefa nánari upplýsingar og sagði, að gæði myndanna væru ekki næg til að unnt væri að segja með vissu hvaðan kafbátarnir væru. Gustafsson var í viðtalinu fremur varkár í orðum en í fyrra full- yrti hann, að það væru Sovét- menn, sem stæðu að baki brotunum á fullveldi Svía. Bengt Gustafsson er 53 ára gamall og tók i fyrradag við af Lennart Ljung sem yfirmaður sænska hersins. Bifreið Gorbachevs Morgunblaðið/Einar Falur. Síðdegis í gær lentu tvær stórar sovéskar flutningavélar frá Aeroflot-flugfélaginu á Keflavíkurflug-. velli. Innanborðs höfðu þær tækjakost sovéska liðsins, sem fylgir Mikhail Gorbachev hingað til Lands. Sérstaka athygli vakti þegar svörtum glæsivagni var ekið úr annarri Dyushin II-76TD vél- inni, var þar komin bifreið af Zil-gerð, sem Gorbachev hefur til afnota á meðan á dvöl hans hér stendur. Myndin sýnir bifreiðina og öryggisverði, sem umkringdu hana um leið og hjólin snertu jörðina. V-þýska blaðið Bild: Mesta afvopn- unarráðstefna fyrr og síðar? Hamborg.AP. VESTUR-ÞÝSKA dagblaðið Bild sagði i gær að Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbachev, Sovét- leiðtogi myndu á fundi sínum í Reykjavík í næstu viku, und- irbúa mestu afvopnunarráð- stefnu í sögu mannkynsins. Blaðið sagði að stórveldin væru nálægt því að gera sam- komuiag um bann við efnavopn- um, brottför sovéska hersins frá Afganistan, mikla fækkun með- aldrægra kjamorkueldflauga í Evrópu og hvenær geimvama- áætlun Bandaríkjamanna yrði hrint í framkvæmd. Bild bar sovéska sendifulltrúa að hluta til fyrir fréttinni. Blaðið kvað Reagan einnig hafa sagt við aðstoðarmenn sína, að ákvarð- anir er teknar yrðu eftir fundinn í Reykjavík 11. og 12. október, yrðu þær mikilvægustu er hann hefði átt þátt í að teknar væm, á öllum sínum æviferli. Sovéskur kafbátur á skeri fyrir utan Karlskrona Leiðtogafundurinn í Reykjavík: Gorbachev er von- góður um árangur Moskva,AP. MIKHAIL GORBACHEV, Sovétleiðtogi sagði í Leningrad í gær, að leiðtogafundurinn í Reykjavík í næstu viku gæti orðið upphafið að bættum samskiptum stórveldanna tveggja og hvatti til þess, að komist yrði að samkomulagi um tak- mörkun vígbúnaðar og bann við kjarnorkutilraunum. Gorbachev gagnrýndi einnig harðlega geimvopnaáætlun Bandaríkjamanna í þessum fyrstu ummælum sínum um leiðtogafundinn í Reykjavík, en sagðist þó vongóður um að hann yrði árangursríkur. Boris Pyadyshev, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði síðdegis í gær að ekki væri ákveðið hvernig dagskrá fundarins yrði, né hveijir færu með Gorbachev til íslands. Bandaríkjamenn hafa lýst því yfír að þeir geti ekki samþykkt bann við kjamorkutilraunum að svo stöddu, þar sem tryggja þurfí öryggi núverandi vamar- kerfa og komast að samkomu- lagi um hvemig fylgjast eigi með að slíku banni sé framfylgt. Sjá ennfremur fréttir á bls. 22-25. Mikhail Gorbachev Gyðingar ætla sér að fjölmenna til Islands Nýjar reglur gætu sett strik í reikninginn REGLUR dómsmálaráðuneytis- ins um að erlendir ferðamenn verði að sýna fram á að þeir eigi visan gististað við komu sina til landsins hafa fallið í grýttan jarðveg hjá þeim sam- tökum, sem berjast fyrir rétti gyðinga í Sovétríkjunum og hugðust efna til aðgerða á Reybjavíkurfundinum. Jerry Goodman, formaður sam- takanna „The National Confer- ence on Soviet Jewry", sagði í viðtali við Morgunblaðið að regl- umar hefðu valdið sér vonbrigð- um: „Hér er augljóslega verið að takmarka rétt manna og frelsi. Fyrst íslendingar þurfa að grípa til slíkra aðgerða til að tryggja öryggi hlýtur sú spuming að vakna hvort réttur staður hafi orðið fyrir valinu þegar ákveðið var að halda Reykjavíkurfundinn." Goodman sagði að reglumar myndu verða til þess að færri gyðingar gætu tekið þátt í barátt- unni fyrir bræður sína í Sovétríkj- unum. Hann tók fram að leigja ætti Boeing farþegavél til að flytja þátttakendur í aðgerðunum til Islands og myndu þeir koma og fara samdægurs. Að sögn Good- mans verður ekki um mótmæli að ræða á íslandi og myndi allt fara friðsamlega fram. Áætlað væri að afhenda leiðtogunum viljayfírlýsingu á fundinum. Sjá fréttir á bls. 24. Bandaríkjamenn vilja fréttaleynd -á meðan viðræðurnar standa yf ir Washington, AP. BANDARÍKJAMENN hafa faríð þess á leit við Sovétmenn, að þeir samþykki fréttaleynd á viðræður þeirra Reagans for- seta og Gorbachevs Sovétleiðtoga, á meðan þær fara fram á íslandi í næstu viku. Skýrði Larry Speakes, talsmaður Hvita hússins, frá þessu í gær. „Við höfum lagt til við Sovét- stjómina, að við förum eins að og gert var í Genf og kom okkur að svo miklu gagni þar, það er að við skýrum ekki frá viðræðun- um, eftir að fundimir em byijaðir, en gemm það þegar fundunum er lokið," sagði Spe- akes. Speakes sagði slíka fréttleynd vera í samræmi við tillögur Gorbachevs um „stuttar og skjótar einkaviðræður." Speakes kvaðst hins vegar ekki vita, hvort slík fréttaleynd hefði verið lögð fynr sovézka embættis- menn á íslandi við undirbúning viðræðnanna þar. Speakes sagði ennfremur, að Reagan forseti „er þeirrar skoð- unar, að einkaviðræður augliti til auglitis við Gorbachev em bezta leiðin til að ná árangri á þessum mikilvægu tímamótum í samskiptum okkar".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.