Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 Hannibal og Gylfi Þ. á þingi Alþýðuflokksins: 4 ImWÍ Fagna sameiningu jafnaðarmanna Morgunblaðið/ól.K.M. Gylfi Þ. Gislason og Hannibal Valdimarsson takast í hendur á flokksþinginu í gærkveidi. Á milli þeirra stendur núverandi formaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson. Flokksþing Alþýðuflokksins: „Sögulegar sættir“ í Alþýðuflokknum FLOKKSÞING Alþýðuflokksins, hið 43. í röðinni, var sett á Hótel Ork í gær og mun það standa fram á sunnudagskvöld. Jóhanna Sigurðardóttir, vara- formaður Alþýðuflokksins, setti þingið og las upp kveðjur sem bor- ist höfðu, m.a. frá Benedikt Gröndal, Willy Brandt, Alþjóðasam- bandi jafnaðarmanna og víðar að. Síðan sagði Jóhanna m.a.: „Á stund sögulegra sátta og á 70 ára af- mæli Alþýðuflokksins er hollt að skyggnast um öxl um leið og litið er til framtíðarinnar. Vissulega hafa skipst á skin og skúrir í við- burðaríkri og litríkri sögu Alþýðu- flokksins. Pólitísk átök, klofningur og átök um leiðir að settu marki hafa vissulega skilið eftir sár og veikt áhrif jafnaðarstefnunnar í íslensku þjóðfélagi." Jóhanna sagði það ánægjulegan og sögulegan viðburð að Bandalag jafnaðarmanna hefði ákveðið að ganga til liðs við Alþýðuflokkinn. Sú ákvörðun hafí verið rétt. „Hún sýnir að geta, vilji og hugrekki er fýrir hendi til að fínna nýjar leiðir til að vinna hugsjónum sínum far- veg, vinna málstaðnum fylgi,“ sagði Jóhanna. Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður flokksins, hóf mál sitt á því að ávarpa Ásmund Stefánsson, en bað menn þó um að hrapa ekki að ályktunum fyrirfram. Hann sagði að áður fyir hafí formanni Al- þýðuflokksins og forseta Alþýðu- sambandsins verið ætlaður einn stóll. „Verkhyggnir menn vita, að því aðeins helst stóll uppi, að undir honum séu flórir fætur," sagði Jón Baldvin. „Það er óráð að saga stól- inn í sundur og klambra undir hann spelkur. Það verður seint kallað völundarsmfð. Sú kemur tíð á tímum vaxandi virðingar fyrir fom- um hagleik og handverki, að stóll- inn verður færður til síns upprunalega horfs. Á meðan það verður ekki þurfum við Ásmundur, eða aðrir sem stólinn sitja, að minnast þess að þröngt mega sáttir sitja." Síðan talaði Jón Baldvin um sögulegar sættir innan Alþýðu- flokksins, sem hafí komið í ljós þegar Hannibal Valdimarsson og Gylfí Þ. Gíslason tókust í hendur á þinginu. Þá kvaðst Jón fagna því að tekist hefði að ná sáttum og sameiningu við Bandalag jafnaðar- manna, því þar með hefði tekist að fullu að bæta fyrir þau alvarlegu mistök, sem leiddu til þess að Vil- mundur Gylfason sagði sig úr lögum við Alþýðuflokkinn. Guðmundur Einarsson ræddi nokkuð um Bandalag jafnaðarmana og sagði síðan: „Við viljum nú ganga til samstarfs við fólk sem vill og getur gert þær róttæku breytingar sem eru nauðsynlegar á íslensku þjóðfélagi. Með inngöngu Félags frjálslyndra jafnaðarmanna er verið að prófa nýtt samstarfs- form. Það er verið að breyta flokknum í átt til nýrra starfshátta, nýrra aðferða, umburðarljmdis og víðsýni. Enginn hefur einkarétt á jafnaðarstefnunni. Innan flokksins á að rílg'a samkeppni og jákvæð togstreita um það hvað sé jafnaðar- mennska. Með þessu fólki og fyrir þetta fólk á þessi flokkur stórkost- legustu möguleika sem nokkur flokkur á í dag.“ Ásmundur Stefánsson ræddi um sameiginlegt upphaf Alþýðusam- bands íslands og Alþýðuflokks. Hann sagði að margir forystumenn ASÍ hafí stutt Alþýðuflokkinn, þótt það ætti ekki við um hann. Hann lagði á það áherslu að frá hægri blésu kaldir vindar nýfrjálshyggj- unnar og gegn henni yrði að beijast. Hann sagði: „Sundrung vinstri hreyfíngarinnar setur mark á alla pólitíska umræðu í landinu. Á með- an foiystumenn Alþýðuflokks og Alþýðubandalags eyða meira púðri í að gera hvom annan tortryggileg- an en að beija á íhaldinu, er lítils árangurs að vænta." Ásmundur sagði að nafn sitt hefði hlotið sæmilega umfjöllun fyr- ir þingið. Ýmsir hafí talið að hann myndi lýsa inngöngu sinni í Al- þýðuflokkinn á þessu flokksþingi. Hann kvaðst telja sér til álitssauka að umfjöllun um flokkslegar vistar- vemr sínar hafi náð að keppa við umræður um fund Reagans og Gorbachovs, en hann vilji ítreka það að hann sé f Alþýðubandalaginu í Reykjavík og ætlaði sér ekki að hafa vistaskipti. HANNIBAL Valdimarsson og Gylfi Þ. Gislason eru heiðurs- gestir á flokksþingi Alþýðu- flokksins, sem nú stendur yfir. Þegar Hannibal steig í pontu við upphaf þingsins, var honum vel fagnað. Hann hóf ræðu sína með þvi að minnast þess, að bráðlega væru 60 ár liðin síðan leiðir hans og Aiþýðuflokksins lágu samamn á ísafirði og 40 ár síðan hann og Gylfi voru kosnir á þing. Hannibal sagði, að íslenzkt þjóð- félag hefði brejitzt gífurlega á þessum árum og stóran hlut í þeirri brejrtingu hefðu Alþýðuflokkurinn og Alþýðusambandið átt. Væri varla ofmælt að hlutur þeirra væri stærstur. Frá stefnu Alþýðuflokks- ins, jafnaðarstefnunni, teldi hann sig aldrei hafa vikið. Hann sagðist fagna því, að allir jafnaðarmenn jrrðu nú undir einu merki í næstu kosningum og sæi hann ekki betur, en nú væri gamall draumur hans að rætast. Gylfi Þ. Gíslason steig í pontu á eftir Hannibal og rakti stjómmála- feril sinn og hans í nokkrum orðum. Hann sagði, að sér þætti ákaflega ánægjulegt að hitta Hannibal Vald- imarsson á þessu þingi sem samheija og bauð Bandalag jafnað- armanna velkomið í hópinn. Gylfí sagði að miklar brejrtingar hefðu orðið og væru enn að verða á íslenzkum stjómmálum. Nú gæti enginn flokkur vænzt, að ná hrein- um meirihluta í kosningum. Ríkis- stjóm hljrti því að byggjast á samstarfi tveggja flokka eða fleiri og slíkt samstarf gengi ekki vel nema heiðarleiki og gagnkvæmur trúnaður ríkti. Hann sagði, að lang- an líftíma viðreisnarstjómar mætti sjálfsagt að mestu þakka gagn- kvæmu trausti þeirra, sem að henni stóðu. Njrtsamlegasta starf, sem hann hefði unnið fyrir þjóð sína og flokk hefði verið að taka þátt í mjmdun viðreisnarstjómarinnar og vinna að því að hún sæti svo lengi sem raun bar vitni. Kristín S. Kvaraní Sjálfstæð- isflokkinn Fer ekki í framboð við komandi Alþingiskosningar KRISTÍN S. Kvaran, þing- maður Bandalags jafnaðar- manna, lýsti yfir því á fundi með Lions-konum á Hótel Sögu í gær, að hún hygðist ganga til liðs við Sjálf stæðis- flokkinn. Hún sagði i samtali við Morgunblaðið, að hún myndi ekki gefa kost á sér á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins vegna komandi Alþingiskosninga. Kristín sagðist hafa lagt inn umsókn í Sjálfstæðisfélag Garðabæjar og byggðist það á ákvörðun hennar frá því í sum- ar. Hún hefði hins vegar ekki ætlað sér að skýra frá þessum fyrirætlunum sínum fyrr en næsta vor, en ákveðið að gera það nú í ljósi breyttra að- stæðna. Metsala hjá SH í Bretlandi í september: Þrefalt meiri sala en í september í fyrra Reiknað með að selt verði fyrir 2,6 milljarða á árinu FISKSALA Icelandic Freezing Plants í Grimsby, dótturfyrir- tækis Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna, í september síðastliðn- um í Bretlandi var nær þrefalt meiri en í sama mánuði siðasta árs. Alls var selt fjrrir um 355 milljónir króna. Reiknað er með að heildarsala fyrirtækisins i ár nemi 2,6 milljörðum króna. Eftir- spurn eftir fiski hefur verið mikil og meðal annars vegna þess var verð á þorskflökum hækkað um 9,5 til 10% í vikunni og verð á rækju hefur aldrei verið hærra. Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi H. Garðarssyni hjá SH var sala dótturfyrirtækis SH í Grimsby, Icelandic Freezing Plants Ltd, í september 192% meiri en í sama mánuði í fyrra í Bretlandi og er þá miðað við sölu í sterlingspund- um. Selt var fyrir 6,1 milljón punda eða um 355 milljónir króna. Flök voru seld fyrir 5.175.000 pund, rúmar 300 milljónir króna og fískur unninn í verksmiðjunni fyrir Sturla Jóhannesson hreppsijóri látinn Sturla Jóhannesson. STURLA Jóhannesson, hrepp- stjóri á Sturlu-Reykjum í Reyk- holtsdal í Borgarfirði, lést fimmtudaginn 2. október, 64 ára að aldri. Sturla var fæddur 3. apríl 1922, son- ur Jóhannesar Erlendssonar bónda og hreppsstjóra á Sturlu-Reykjum og konu hans Jórunnar Kristleifsdóttur. Hann stundaði nám við héraðsskól- ann f Reykholti og Samvinnuskólann. Að loknu námi varð hann gjaldkeri við Andakílsvirkjun þegar hún var byggð. Eftir lát föður síns tók Sturla við búi á Sturlu-Reykjum 1953 og bjó þar til ársins 1971. Þá tók hann við starfí 'umboðsmanns Samvinnu- trygginga í Borgamesi, sem hann stundaði til dánardags. Hann varð hreppstjóri Reykholtsdalshrepps árið 1950 og gegndi því starfí þar til hann lést. Eftirlifandi kona hans er Ásgerður Þóra Gústafsdóttir og böm þeirra em Hrafti, Hanna Jómnn og Inga Jóna. 945.000 pund, 54,8 milljónir króna. Aukning á flakasölunni milli sept- embermánaða þessi ár er 245% og 55% á sölu unnins físks. Sé sala fyrirtækisins til annarra sölusvæða í Evrópu en Bretlands tekin með, nam salan í september síðastliðnum 8,5 milljónum punda eða 420 millj- ónum króna. Aætlað er að heildar- sala ársins verði um 45 milljónir punda eða 2,6 milljarðar króna. Fyrstu 9 mánuði ársins var selt fyrir 26,3 milljónir punda, rúmlega l'/2 milljarð króna. Það er 65% meira en á sama tíma í fyrra. Guð- mundur sagði að rekstur fyrirtækis- ins hefði gengi vel. 4 til 5 framleiðslulínur væm að jafnaði í gangi í verksmiðjunni og líkaði framleiðslan vel á brezka markaðn- um. Meðal helztu kaupenda væri veitingahúsakeðjan McDonald’s og stórverzlanir eins og Bejam og Ice- land Food Stores. Þá seldi fyrirtæk- ið vömr sínar í Frakklandi og vfðar á meginlandi Evrópu. Rekstur Icelandic Freezing Plants var veigamikill þáttur í ís- landskynningu við Humber-svæðið í september síðastliðnum en fulltrúi SH á kynningunni var Guðmundur H. Garðarsson og stjómendur fyrir- tækisins f Grimsby.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.