Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 55 Öruggt hjá UMFN NJARÐVÍKINGAR hófu leikinn þar sem fró var horfiö á síðasta ís- landsmóti í körfuknattleik er þeir unnu nýbakaða Reykjavíkur- meistara KR í Njarðvík í gærkvöldi með 89 stigum gegn 67 eftir að staðan fleikhlói hafði verið 42:33. Það var enginn annar en stiga- hæsti leikmaður síðasta íslands- móts, Valur Ingimundarson, sem skoraði fyrstu körfuna í leiknum úr vítaskotum og síðan sigu heima- menn hægt og bítandi framúr án þess KR-ingar kæmu nokkrum vörnum við. Vel útfærð hraðaupphalup UMFN kom KR-ingum greinilega í opna skjöldu og áttu þeir í hinum mestu vandræðum með að sjá við þeim. Vesturbæingar settu þó í sig dálítinn kraft í upphafi síðari hálf- leiks og minnkuðu þá muninn niður í 42:37 en síðan ekki söguna meir. „Við náðum mjög góðum leik og sérstaklega var vörnin sterk hjá okkur að þessu sinni og það held ég hafi gert útslagið í kvöld,“ sagði Valur Ingimundarson þjálfari og stigahæsti maður Njarðvíkinga eft- ir leikinn. „Það er alltaf erfitt að sækja þá heim hingað í Ijónagryfj- una. Hraðaupphlaupin hjá þeim og stærðarmunurinn á leikmönnum gerðu gæfumunin að þessu sinni,“ sagði Gunnar Gunnarsson þjálfari KR-inga að leik loknum. Það var mikil baátta í þessum leik og bæöi liðin iéku á fullu allan leikinn, ekkert var gefið eftir en Njarðvíkingar voru sterkari í vörn- inni og virtust veraldarvanari er á heildina er litið. KR-ingar hafa ungt lið sem virðist eiga nokkuð ólært. Leikinn dæmdu þeir Sigurður Valur Halldórsson og Kristinn Al- bertsson og gerðu þeir það vel. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 21, Helgi Rafnsson 17, Jóhannes Kristbjörnsson 14, Kristinn Einarsson 14, ísak Tómasson 10, Teitur örtygsson 8, Friörik Rúnarsson 3, Hreiöar HreiÖarsson 2. Stig KR: GuÖni Guðnason 18, Garöar Jóhans- son 13, Ólafur Guðmundsson 11, Matthías Einarsson 11, Ástþór Ingason 6, Þorsteinn Gunnarsson 5, Guömundur Jóhannsson 4. -BB Valsmenn töpuðu fyrir Urædd í fyrri leiknum Frá Bjama Jóhannssyni, fróttarhara Morgunblaöaina f Noregi. VALSMENN verða svo sannar- lega að taka á öllu sínu í dag ef þeir œtla sór að komast áfram í Evrópukeppninni í handknattleik þvf liðið tapaði í gærkvöldi fyrir norska liðinu Urædd hér í Noregi með 14 mörkum gegn 16. Seinni leikurinn verður í dag og er það heimaleikur Valsmanna og þar sem Iftið var skorað f leiknum f gær þá er Ifklegt að Valsarar verði að vinna f dag með minnst þriggja marka mun. Valur hóf leikinn í gær mjög vel og komust í 3:0 með mörkum frá Jakobi, Pálma og Júlíusi. Þegarfyrri hálfleikur var hálfnaður hafði Val tekist að skora 4 mörk en Urædd tvö en þá gerðist það að Jakob Sigurðsson var rekinn af leikvelli í annað sinn og átti það eftir að koma meira við sögu síðar. Pálmi bætti fimmta markinu við en síðan ná þeir norsku að minnka muninn í 5:4 áður en Júlíus skor- aði tvívegis. Norskt mark kom skömmu síðar en síðasta orðið í fyrri hálfleik átti Júlíus og staðan því 8:5 og Júlíus hafði gert helming markanna. Valsvörnin var sterk í fyrri hálf- leiknum og þeim gekk vel að stöðva hraðaupphlaup Urædd manna en fyrir þau eru þeir þekkt- ir hér í Noregi. Þeir voru þó helst til fljótir að enda sóknarlotur sínar og misnotuðu oft góð marktæki- færi sem þeir fengu. Valsmenn voru einum fleiri er síðari hálfleikur hófst og skoraði Geir strax á fyrstu mínútunni og staðan því 9:5 en þá kom slæmur kafli og hinir jafna metin, 9:9, og voru meira að segja tveimur leik- mönnum færri er þeir skoruðu jöfnunarmarkið. Þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum skoraði Pálmi 13. mark Vals og staðan því 13:11 en nú varð Jakob Sigurðsson að yfirgefa leikvöllinn því hann fékk sína þriðju brottvísun og mátti því ekki leika meira með. Þetta riðlaði leik liðsins algjörlega því Jakob hafði stjórnað honum og ekki bætti úr skák að Júlíus var tekin úr umferð um leið og Jakob fór útaf og þá vantaði tilfinnanlega skyttu. Norðmenn jöfnuðu 14:14 úr víti og skoruðu síðan tvö síðustu mörkin og komust það með yfir í fyrsta sinn í leiknum, en það var nóg til að vinna. „Strákarnir léku vel í 50 mínútur og gerðu það sem fyrir þá var lagt í leiknum en það eyðilagði fyrir okkur er Jakob fór útaf. Það á samt ekki að vera nein afsökun því það eiga að vera menn sem geta tekið við stjórninni í hans stað. Ég mun skamma þá núna á eftir og við erum ákveðnir í að vinna seinni leikinn á morgun," sagði Jón Pétur Jónsson þjálfari Vals eftir leikinn. Besti maður Vals í þessum leik var Elías Haraldsson markvörður sem varði 10 skot í fyrri hálfleik og 9 í þeim síðari. Júlíus Jónasson skoraði mest, 5 mörk, og þar af eitt úr eina vítakastinu sem Valur fékk. Pálmi Jónsson gerði 3 mörk, Geir Sveinsson og Valdimar Grímsson 2 hvor og þeir Stefán Halldórsson og Jakob Sigurðsson eitt hvor. Afturelding vann ÍBK AFTURELDING vann ÍBK f 2. deildinni í handbolta í gærkvöldi í hörkuleik að Varmá með 19 mörkum gegn 16 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 7:6. Erlendur Davíðsson skoraði átta mörk fyrir heimamenn og Axel þjálfari Axelsson gerði 6. Hjá Keflvikingum var Arinbjörn Þór- hallsson atkvæðamestur með 4 mörk og Guðjón Hilmarsson gerði 3. Markvörður Aftureldingar, Ás- geir Ragnarsson, stóð sig mjög vel í þessum leik, varði 25 skot og þar af 4 vítaköst en alls misnotuöu Keflvíkingar sex slík. Morgunblaðiö/Einar Falur • Tveir stigahæstu leikmenn leiksins f gær f Njarðvfk, Guðni Guðna- son úr KR og Vaiur Ingimundarson úr Njarðvfk sjást hár berjast um knöttinn í Njarðvík í gærkvöldi. Valur og félagar höfðu betur í leiknum og Valur skoraði fyrstu körfuna f úrvalsdeildinni að þessu sinni auk þess sem hann var stigahæstur hjá sfnum mönnum. Síðasti í Laugardalnum ídag ÞÓ SVO vertíð vetraríþrótta sé að hefjast nú um helgina þá er ekki alveg lokið knattspyrnuver- tfðinni hér á landi þvf f dag verður sfðasti leikurinn f knattspyrnu fyr- ir vetrarfrf. Það eru landslið íslands og Austur-Þýskalands sem skipuð eru leikmönnum 16 ára og yngri sem eigast við á Laugardalsvelli klukkan 14 f dag og er aðgangur ókeypis. Lið íslands er þannig skipað að í markinu verða þeir Kristján Finn- bogason úr KR og Þorsteinn Þorsteinsson úr Þrótti. Aðrir leik- menn eru: Guðbjartur Auðunsson Evrópukeppnin íknattspyrnu: Real Madrid og Juventus leika saman í 2. umferð Anderlecht mætir Evrópumeisturum Steaua Bukarest JUVENTUS og Real Madrid, tvö af bestu liðum Evrópu, drógust saman f 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu, dreg- ið var f Evrópukeppninni í Sviss f gær. Anderlecht, lið Arnórs Guðjohnsen, mætir Evrópumeist- urunum frá f fyrra, Steaua Búkarest, og Dynamo Kiev, sem varð Evrópumeistari bikarhafa f fyrra, mætir skoska liðinu Celtic. Það verða því margir stórleikir á dagskrá í 2. umferð. Hæst ber leikur Real Madrid, sem varð Evr- ópumeistari félagsliða á síðasta ári, og Juventus, sem hefur þrisvar unnið Evrópumeistaratitilinn. „Þetta er leikur sem hefði átt að vara úrslitaleikur keppninnar," sagði Manuel Fernandez, forseti Real Madrid, um dráttinn. „Real Madrid hefur alltaf leikið vel gegn ítölskum liðum. Við slógum Inter Milans út úr keppninni í fyrra og þeir eru nú ekki mikið lakari en Juventus. Það að leika fyrri leikinn í Madrid þýðir að við veröum að ná hagstæðum úrsiitum þá og reyna síðan að halda því í seinni leiknum á Ítalíu," sagði Fernandez. Fracesco Morini, tæknilegur ráðunautur Juventus, var ekki án- ægður með mótherja Juventus í 2. umferð. „Að leika fyrri leikinn á Spáni er lán í óláni. Ég hef þó trú á því að við getum unnið Real Madrid," sagði Morini. Mótherjar Skagamanna, Sport- ing Lissabon, mæta fyrrum Evrópumeisturum, Barcelona, í Evrópukeppni félagsliða. Toulouse frá Frakklandi sem sigraði Mara- dona og félaga í Napoli, mætir Spartak Moskva. Ásgeir Sigurvins- son og félagar hjá Stuttgart mæta sovéska liðinu Torpedo Moskva. Eftirtalin liö drógust saman í 2. umferð: Evrópukeppnl melstarallóa: Real Madríd - Juventus Vitkovice Ostrava - FC Porto Rosenborg - Red Star Bayern MUnchen - Austria Vín Anderíecht - Steaua Búkarest Celtic - Dynamo Kiev Bröndby - Dynamo Beríin Besiktas, Tyrklandi - Hapoel Nicosia Evrópukeppnl bikarhefa: GKS Katowice - FC Sion Lokomotiv Leipzig - Rapid Vfn Real Zaragosa - Wrexham Vitoscha Sofia - Velez Mostear Torpedo Moskva - Stuttgart Benfica - Bordeaux Nentori Tirana - Malmö FF Ajax - Olympiakos Evrópukeppnl fólegall&a: Atletico Madríd - Guimares Bayer Uerdingen - Vidzev Lodz Xamax - Groningen Beveren - Atletico Bilbao Boavista - Rangers Barcelona - Sporting Lissabon Dukla Prag - Leverkusen Feyenoord - Mönchengladbach Gautaborg - Brandenburg Ghent - Sportual Studentec Legia Varsjá - Inter Milano Raba Eto - Torino Spartak Moskva - Toulouse Trakia Provdiv - Hadjuk Split Týról - Standard Uege Fram, Haukur Pálmason Fram, Gunnar Andrésson Fram, Ingólfur Ingólfsson Stjörnunni, Siguröur Bjarnason Stjörnunni, Árni Kvaran Stjörnunni, Jörundur Sveinsson Stjörnunni, Árni Halldórsson ÍA, Haraldur Ingólfsson ÍA, Jóhannes Jónsson Víkingi, Arnar Grétarsson, UBK, Gunnar Másson Val, Halldór Kristinsson KA og Axel Vatnsdal Þór. Þjálfari liðsins er Lárus Lofts- son. Guðmundur dæmir í Osló GUÐMUNDUR Haraldsson, milliríkjadómari í knattspyrnu, dæmir vináttulandsleik Noregs og Svíþjóðar í Osló á þriðjudag- inn. Norðmennirnir báðu sérstak- lega um Guðmund fyrr í vikunni og þrátt fyrir stuttan fyrirvara tókst að verða við beiðninni. Línuverði^ með Guðmundi dómara verða norskir. í dag verður unglingalandsieikur íslands og Austur-Þýskalands f Laugardalnum og verður Guð- mundur línuvörður í leiknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.