Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 53 Þessir hringdu .. Fréttatíminn set- ur allt úr skorðum Gestur Sturluson Velvakandi. Ríkissjónvarpið er tvítugt um þessar mundir. Á þessum merku tímamótum verður tekin upp sú merka nýbreytni að fréttimar verða færðar fram um hálfa klukkustund. Áttafrettir sjón- varpsin voru orðnar fastur punktur í tilvemnni, þær vom á hentugum tíma fólk var yfírleitt búið að borða kvöldmatinn og ganga frá í eldhúsinu áður en fréttimar byijuðu. En nú fer þetta allt úr skorðum. Annaðhvort verða menn að flýta matnum eða verða af frettunum. Forystumenn sjónvarpsins segja að þessa breyt- ingu hafi þurft að gera vegna samkeppninnar við hina tilvon- andi nýju stöð. Þetta em að mínu viti léttvæg rök. Fólk horfír á þann fréttatíma sem hentugastur er fyrir það, og það em einmitt áttafréttimar. Nei, svona tauga- veiklunarviðbrögð bæta ekki á nokum hátt samkeppnisaðstöðu ríkisjónvarpsins nema síður sé. Hvað varð um Stúdíó Gests? Svala Johannsdóttir hringdi: Veit einhver hvað varð um stúdíó Gests eða hvar hægt er að nálgast gamlar filmur þaðan? Ég er búinn að spyijast mikið fyrir en ekkert gengur og yrði því mjög þakklát ef einhver gæti hjálpað mér. Ef svo er bið ég hann um að hafa samband í síma 687397. Þakkir til Páls Kristjánssonar Solveig Hannesdóttir hringdi: Ég vil þakka fyrir þessa ágætu grein Páls Kristjánssonar um heimavinnandi húsmæður. Þetta vom orð í tíma töluð. Páll kemur mjög skemmtilega orðum að þessu og væri gaman að heyra oftar frá honum í blaðinu. Ánægð með Á heitu sumri Þakklátur sjónvarpsáhorf- andi hringdi: Mig langar til að lýsa ánægju minni á þættinum Á heitu sumri sem sjónvarpið sýndi þann 27. og 28. október. Þetta var regluleg tilbreyting og veit ég að flestir sem ég þekki em sama sinnis. Ég hvet ykkur hjá sjónvarpinu að sýna fleiri svona þætti, þeir vom frábærir. Barnataska týndist Á föstudaginn tapaðist í Vest- urbænum hvít röndótt taska með bamadóti o.fl. Eigandi töskunnar, sem notar hana til að hafa í flíkur fynr bamaheimilið yrði fjarska glaður að endurheimta hana. Skilvís finnandi hafi samband í síma 71201 Af hverju voru fréttirnar færðar? Ein önnum kafin hringdi: Fréttir hafa löngum verið eitt vinsælasta efni sjónvarpsins. Nú hefur verið ákveðið að færa þær yfir á tíma sem löngum hefur verið einn mesti annatíminn á íslensku heimilum. Ljóst er að einkum bamafjölskyldur verða að gera ýmsar bretyingar á sínum lífsvenjum. Ekki hafa þó allir svigrúm til breytinga á vinnutíma heima fyrir. Nú langar mig til að lýsa eftir raunhæfum uppástung- um um fyrirkomulag á þessum mesta álagstíma sólarhringsins. Eigum við til dæmis að borða kvöldmat áður en við komum heim úr vinnunni eða fresta honum þangað til við forum að hátta? Að síðustu, hvers vegna eiga ekki flöimiðlar að laga sig að þörfum neytenda eins og aðrir þjónustu- aðilar? Týnt seðla- veski Pétur hringdi: Ég týndi svörtu seðiaveski á föstudagskvöldið var er ég var á leið frá skemmtistaðnum Evrópu. í því voru bara skilríki og mér þætti vænt um að fá það til baka, hafí einhver fundið það. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hringja í síma 91-651357. Bylgjan er fín Hjördís hringdi: Ég vil mótmæla því sem Ásta Gunnlaugsdóttir sagði um það að hringingar til útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar veldu því að símakerf- ið stöðvaðist. Það gerir það ekki frekar út af því en öðru og það var tími til þess kominn að eitt- hvað nýtt gerðist í fjölmiðlun hér á landi. Ég vil einnig þakka Svölu Thorlacius fyrir það frumkvæði hennar að hafa vakið athygli á þeim alvarlega hlut sem kynferð- isafbrot gegn bömum eru. Mótmælir breytingum á fréttatíma Pálína Magnúsdóttir hringdi: Ég vil lýsa megnri óánægju minni með breytingar á fréttatíma sjónvarpsins og því að hafa frétt- ir á táknmáli löngu áður en fréttimar eru. Það kemur ekki til greina að slíta þetta í suindur með þessum hætti. Fólk er ennþá í vinnu á þessum tíma og þetta er voðaiega bagalegt fyrir þann hóp sem þarf á þessari þjónustu að halda. Týndur Dísa páfagaukur Auður hringdi: Ég týndi Dísa páfagauk fyrir mánuði síðan og hef mikið leitað að honum árangurslaust. í vik- unni frétti ég það í gæludýrabúð að ungur strákur hefði fundið svona páfagauk og sett upp aug- lýsingu í búðinni þar að lútandi. Búið var að taka auglýsinguna niður, þannig að ég hef engin ráð til þess að komast í samband við hann. Ef einhver gæti gefið upp- lýsingar er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband í síma 91-685337. Filma tapaðist á Þingvöllum Pálína Magnúsdóttir hringdi: Seinnipart júlímánaðar tapaðist átekin filma á Þingvöllum , senni- lega nálægt útsýnisskífunni. Það var afar leitt að tapa fílmunni vegna þess að á henni eru myndir af fólki frá Bandaríkjunum sem statt var hér á landi. Éf einhver hefur fund- ið hana væri hann virðingarverður ef hann hringdi í síma 71503 eða 41152 (Stefanía). Talsmaður Alþýðbandalags- ins en ekki Alþýðuflokksins inn svo rækilega til bæna að ég gleymi því aldrei. Biðst ég mikillar afsökunar á misrituninni. Slys á höfuð- borgarsvæðinu Húsmóðir skrifar í grein minni dagsettri þann 27. september síðastliðinn urðu herfileg mistök. í greininni stóð talsmaður Alþýðuflokksins, en átti auðvitað að vera talsmaður Alþýðubandalagsins. Ég vitnaði til umræðu í útvarp- inu um Baader-Meinhof-hópsinn, sem þá nýlega hafði látið myrða forseta vinnuveitendasambands V-Þýskalands, Schleyer. í útvarp- inu voru þingmenn flokkanna beðnir um að segja álit sitt á glæpnum. Talsmaður Alþýðu- bandalagsins réttlætti verknaðinn og sagði að kommúnistar f V- Þýskalandi ættu í vök að verjast og þess vegna væri þeim allt leyfí- legt. Þingmaður Alþýðuflokksins var nýkominn frá V-Þýskalandi og því öllum hnútum kunnugur. Hann tók Alþýðubandalagsmann- Einar Pálsson, Reykjavík, skrifar. í síðustu viku birtust í dagblöðum upplýsingar um slysatíðni meðal höfuðborgarbúa árið 1985. Kom þar fram að slysum hefur síður en svo fækkað. Tekið var fram að vinnu- slysum hefði þó ekki fjölgað en um þúsund fleiri hefðu slasast í heima- húsum en í vinnunni. Einnig virðast slys á skemmtistöðum algeng. Á fréttatilkynningunni mátti skilja, að eingöngu væri átt við gesti á skemmtistöðum, en ekki starfsfólk. Slys á starfsfólki á vinnustöðum flokkast að sjálfsögðu undir vinnuslys. En mér leikur nokkur forvitni á að vita hvort slys við vinnu í heimahúsum eru talin með vinnuslysum eða ekki. Hvort slys sem verða við þjónustustörf eða skyldustörf á heimilum teljast til vinnuslysa. Getur einhver upplýst það? Heimili eru ennþá vinnustaðir fjölda fólks og það er dálítið ein- kerinilegt ef þau teljast ekki til vinnustaða í opinberum skýrslum. SJÁLFSTÆÐISMENN REYKJAVÍK! RÚIVIAR Á ÞIIMG Kosningaskrifstofa, Klapparstíg 26 e.h. s. 28843. y2 SVÍN NRS!aEÐA Napoleon Minni fita Betra eldi Lægra verð KJÖTMIÐSTÖOINSími 686511 gædi 235 kr. kg. Tilbúið í kistuna. VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966 VÖNDUÐ VINNA VANDAÐ VERK I Gódan daginn! -----------—-----T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.