Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
33
Hangir Karpov
ájafntefli?
Skák rneð vissum sóknarfærum á
--------------- kóngsvæng.
Margeir Pétursson b5 23. Rc3 - Db8 24. De3 - b4T!
GARY Kasparov, heimsmeist-
ari í skák, átti sinn bezta dag
í langan tíma er 22. einvígis-
skák hans við Karpov var
tefld i Leningrad. Kasparov
sótti fast í skákinni og átti
peði meira þegar skákin fór
í bið. Það er þó tæplega hægt
að spá Kasparov sigri, þvi
staða Karpovs er afar traust
og litið má út af bregða til
að hann nái öflugu mótspili.
Sigur Kasparovs í þessari
skák jafngilti í raun þvi að
hann héldi heimsmeistaratitl-
inum, þvi þá þyrfti hann
aðeins eitt jafntefli úr tveimur
síðustu skákunum. Staðan í
einvíginu er nú 10 Vs-lOVz, en
Kasparov dugar 12-12 til að
halda titlinum.
Það var gífurleg spenna í
gærkvöldi eftir að það varð ljóst
að tuttugasta og önnur skákin
yrði tefld til þrautar. Karpov
virtist fá viðunandi stöðu eftir
byijunina, en í miðtaflinu urðu
honum á mistök og öflugur 25.
leikur heimsmeistarans tryggði
honum yfírburðastöðu. í fram-
haldinu gat Karpov sig hvergi
hrært, því hann sat uppi með
máttlausan biskup gegn geysi-
sterkum riddara. I 36. leik vann
Kasparov peð, en það létti nokk-
uð vömina fyrir Karpov, honum
tókst að koma hrók sínum í virka
stöðu og á allgóða jafnteflis-
möguleika þrátt fyrir liðsmun-
inn.
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarbragð
I. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3
Kasparov gefur ekki kost á
Nimzoindversku vöminni, 3. Rc3
- Bb4, sem leiðir oft til mjög
tvíeggjaðrar stöðu.
d5 4. Rc3 - Be7 5. Bg5 - h6 6.
Bxf6 - Bxf6 7. e3 - 0-0 8. Hcl -
c6 9.Bd3 - Rd7 10. 0-0 - dxc4
II. Bxc4 - e5 12. h3 - exd4 13.
exd4 - Rb6
FVrr í einvíginu lék Karpov
13.. ..c5 í þessari stöðu og náði
að jafna taflið án teljandi erfíð-
leika, en nú vill hann reyna að
halda sem mestu liði á borðinu
vegna stöðunnar í einvíginu.
14. Bb3 - Bf5 15. Hel - a5!?
Þetta er endurbót Karpovs á
tveimur skákum Beljavskys á
sovézka meistaramótinu f vor. í
þeim báðum lék Beljavsky
15.. ..Dd7 16. Dd2 - a5 17. a3 -
a4 18. Ba2 og átti þokkalega
stöðu, þótt hann tapaði annarri
skákinni, en hinni lyki með jafn-
tefli.
16. a3 - He8 17. Hxe8+ - Dxe8
18. Dd2 - Rd7 19. Df4 - Bg6
20. h4!T
20. Hel - Db8! 21. Re5? - Bxe5
22. dxe5 - Rc5 var mjög hag-
stætt svörtum, svo Kasparov
þreifar fyrir sér á kóngsvæng.
Dd8 21. Ra4
Karpov ætlaði greinilega að
svara 21. Dg4 með Db6! Nú hótar
hvítur hins vegar að þrengja að
svörtum á kóngsvæng með 22.
Dg4 og sfðan 23. h5.
h5 22. Hel
Hér kom einnig vel til greina
að sefja á svarta biskupinn á g6
og leika 22. Dg3 og sfðan Rg5
• b c d • t g
Svartur virðist vera kominn
með frumkvæðið, en -nú kemur
öflugur leikur frá Kasparov:
25. Re4! - bxa3
Nú fær hvítur hagstæð upp-
skipti, e.t.v. hefur Karpov yfírsézt
áður en hann lék 24....b4, að
25....Bxe4 26. Dxe4 bxa3 má
svara með 27. Bxf7+! - Kxf7 28.
De6+ - Kf8 29. Rg5!? - Bxg5 30.
hxg5 með mjög öflugri sókn, eða
28. Dxd7 - cxb2 29. Df5.
26. Rxf6+ - Rxf6 27. bxa3 - Rd5
28. Bxd5 - cxd5 29. Re5
Svartur er nú lentur í hroða-
legri beyglu vegna þess hve hvíti
riddarinn er miklu sterkari en
svarti biskupinn. Þar að auki eru
þungu menn svarts einnig illa
staðsettir. Það voru þvf margir
famir að spá Kasparov sigri þegar
hér var komið sögu.
Dd8 30. Df3 - Ha6 31. Hcl -
Kh7!
Karpov reynir að skipuleggja
vamimar, eini ljósi punkturinn við
stöðu hans er að með biskupinn
til vamar á g6 er kóngsstaða
hans traust. Nú myndu uppskiptin
32. Rxf7? - Dxh4 létta svörtum
vömina.
32. Dh3 - Hb6 33. Hc8 - Dd6
34. Dg3 - a4 35. Ha8
Svartur getur nú ekki valdað
peðið á a4, því 35....Hb3? má
svara með 36. Hh8+ og svarta
drottningin fellur.
De6 36. Hxa4 - Df5 37. Ha7 -
Hbl+ 38. Kh2 - Hcl 39. Hb7 -
Hc2 40. f3 - Hd2.
í þessari stöðu fór skákin í bið.
Þó Kasparov sé peði yfir er vinn-
ingurinn allt annað en auðsóttur.
Til þess að halda umframpeðinu
verður hvítur að leika 41. Hb4,
en á þeim reit er hrókur hans
ekki sérlega virkur. Uppskipti á
g6 koma heldur tæplega miklu til
leiðar. T.d. ætti svartur að halda
hróksendataflinu eftir 41. Rxg6 -
Dxg6 42. Dxg6+ - Kxg6 43. Hb4
- Ha2 44. a4 - Kf5 án mikilla
erfíðleika. Spáin er þvf sú að
Karpov nái að halda jöfnu f þess-
ari skák og haldi þar með
möguleika sínum á að sigra í ein-
víginu.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Guðjón heimsækir Iðnaðardeildina
GUÐJÓN B. Ólafsson, sem nýlega tók við stöðu
forsfjóra Sambands íslenskra Samvinnufé-
laga, heimsótti f vikunni Iðnaðardeild Sam-
bandsins á Akureyri. Hann skoðaði allar
deildir, heilsaði upp á starfsfólk og kynnti sér
starfsemina. Hér er hann ásamt föruneyti á
skinnasaumastofunni; frá vinstri eru: Kristján
Torfason, forstöðumaður skinnasaumastofu,
Jón Sigurðarson, framkvæmdastjóri Iðnaðar-
deildar, Guðjón B. Ólafsson, Axel Gíslason,
aðstoðarforstjóri SÍS og Öm Gústafsson, for-
stöðumaður skinnaiðnaðar.
MENOR:
Aðalfundur og ráð-
stefna á Sauðárkróki
UM HELGINA verður haldinn
aðalfundur og ráðstefna ME-
NOR, Menningarsamtaka Norð-
urlands á Sauðárkróki.
Rætt verður um starfsgrundvöll
samtakanna og sagðist Finnur
Magnús Gunnlaugsson starfsmaður
MENOR búast við að á fundinum
og ráðstefnunni yrði mörkuð skýr-
ari stefna varðandi framtiðarverk-
efni samtakanna.
Aðalfundurinn hefst á morgun.
Hlé verður gert á fundinum og ráð-
stefnan sett, en á dagskrá morgun-
dagsins er framsöguerindi Sveins
Einarssonar fyrrverandi Þjóðleik-
hússtjóra um rikisvaldið og hlutverk
þess i menningarlifí utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins.
Aðalfundinum verður haldið
áfram á sunnudag, en þá er jafn-
framt annar dagur ráðsteftiunnar.
Fjallað verður um Menningar og
listahátíð á Norðurlandi ’88, fram-
söguerindi flyija Jóhanna Stein-
grímsdóttir Árnesi S-Þing., Guðjón
Pálsson skólastjóri grunnskólans á
Hvammstanga og Maria Axfjörð
formaður Leikfélagasambands
Norðurlands. Að loknum framsögu-
erindum verða ftjálsar umræður.
Lús finnst í Barnaskólanum
LÚS hefur fundist í tveim börn-
um i Barnaskóla Akureyrar.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til að hún breiðist ekki út.
„Við töldum skyldu okkar að
senda foreldrum upplýsingar um
þetta til að hefta útbreiðslu lúsar-
innar," sagði Benedikt Sigurðar-
son skólastjóri Bamaskóla
Akureyrar.
Að sögn Hjálmars Freysteins-
sonar yfirlæknis Heilsugæslu-
stöðvarinnar kemur lús upp i
einhveijum skólanna flesta vetur.
Svo virðist þó sem ekki sé um
hina íslensku óþrifalús að ræða
heldur innflutt afbrigði.
Krossanesverksmiðjan:
Sex þúsund tonn
af meltu til Noregs
Krossanesverksmiðjan hefur frá Þórshöfn og verið er að setja lega notuð í dýrafóður og hefur
samið um útflutnmg á sex þús- upp tækjabúnað til meltufram- heildarútflutningur verið um 3-4
und tonnum af meltu til Noregs. leiðslu í Keflavík. Melta er aðal- þúsund tonn fram að þessu.
Að sogn Harðar Hermannsson-
ar verksmiðjustjóra hefst
framleiðslan af fullum krafti í
næstu viku.
Framleiðslan er hafin í ein-
hveijum mæli, Hörður sagði að
dráttur hefði orðið á komu véla-
búnaðar til landsins en hann væri
væntanlegur eftir helgina og gæti
framleiðslan þá hafíst að fullu.
Kostnaður við þessa viðbótar-
framleiðslu verksmiðjunnar væri
óverulegur, bæta þyrfti við hakka-
vél og dælubúnaði, sem einn til
tveir starfsmenn vinna við. Flutn-
ingskostnaður er hinsvegar tals-
vert mikill.
Melta hefur áður verið flutt út
Húsmæður
á Akureyri
Hafið þið áhuga á að fá ykkur morgungöngu
sem borgar sig? Hafið þá samband við af-
greiðslu Morgunblaðsins á Akureyri. Sími
23905.
Morgunblaðið á Akureyri
Hafnarstræti 85,
sími23905.