Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 56
Reagan kemur til ís- lands á fimmtudag Rætt um þrjá fundi leiðtoganna Þorsteinn Pálsson: Óréttmæt afskipti af -innanrík- ismálum - ef Bandaríkjamenn reyna að knýja Is- lendinga til að hætta vísindahvalveiðum ÞORSTEINN Pálsson, fjánnála- ráðherra, sagði f ræðu á fundi íslensk-ameriska verslunaráðsins i Washington f gær, að lalendingar teldu það óréttmseta afsldptasemi af inn»nrflri«málum aínnm, ef Bandaríkiastióru ætlaði með visan *ii laga um vemdun dýrategunda, að knýja tslendinga til að hætta hvalveiðum I visindaskyni, sem fram færu á grundvelli alþjóða- samþykkta. Hann kvað íslendinga tefja Alþjóða hvalveiðiráðið rétta vettvanginn til að skera úr um ágreining þjóðanna. Þá sagði fjármálaráðherra, að það bryti f bága við anda vamarsamnings fslands og Bandaríkjanna ef önnur aðildarþjóðin krefðist sérréttinda eins og gerst hefði í Rainbow Naviga- ^gjon-málinu. Hann benti á, að teldu Bandaríkjamenn sig ekki geta haldið úti kaupskipaflota, nema hann nyti vemdar til flutninga til bandarískra herstöðva í fjarlægum löndum, ætti það rætur að rekja til þess, að um misbrest væri að ræða í útgerð skip- anna. „Hvers vegna má lögmál samkeppninnar ekki gilda almennt í sjóflutningum?" spurði hann. í ræðunni lagði Þorsteinn Pálsson áherslu á, að íslendingar vildu áfram eiga náin og góð samskipti við Bandaríkjamenn. Hann kvað það eiga að vera kappsmál ráðamanna f löndunum báðum að sjá til þess að misskilningur eða skortur á vitneskju um aðstæður hjá hvorum um sig leiddi ekki til vandræða, sem stofn- 00|ðu hinu mikilvæga samstarfi þjóðanna í öryggismálum í hættu eða spillti þeim viðskiptatengslum, sem hefðu myndast milli þeirra. Sjá ræðu Þorsteins Pálssonar á miðopnu. RONALD Reagan, forseti Banda- ríkjanna, kemur til íslands næstkomandi fimmtudag. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins er ráðgert, að hann hitti frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, á föstudag, en þann dag verður Alþingi sett. Fundir Bandaríkjaforseta og Mikhails Gorbachev hefjast síðan á laug- ardag. Formlega hefur hvorki verið gengið frá því, hvemig fundum Reagans og Gorbachevs verður háttað né hvar þeir hittast. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er það vilji Bandaríkjamanna, að fundimir verði að Höfða við Borg- artún, í móttökuhúsi Reykjavíkur- borgar. Sovétmenn hafa ekki tekið af skarið um fundarstaðinn. Sömu heimildir herma, að leiðtogamir hittist á þremur fundum. Verði hinn fyrsti í tvo tíma fyrir hádegi á laug- ardag 11. október og verði hann skipulagður af viðræðuaðilum sam- eiginlega. Annar fundurinn verði í tvo tíma síðdegis á laugardag og skipuleggi Sovétmenn hann. Þriðji fundurinn verði síðan um hádegis- bil á sunnudag 12. október og skipuleggi Bandaríkjamenn hann. Á skipulagsfundum fulltrúa risa- veldanna og íslands, hefur ekki annað verið til umræðu en að fund- arstaður leiðtoganna verði ávallt hinn sami. Húsið Höfði var reist 1909 fyrir konsúl Frakka af sömu aðilum og reistu franska spítalann. Síðan eignaðist Einar Benedikts- son, skáld, húsið og því næst Matthías Einarsson, yfirlæknir. Um tíma var húsið bústaður sendiherra Breta en var selt og em þrálátar sögur um að það hafi verið gert vegna reimleika, sem orð fór af. Síðan eignaðist Reykjavíkurborg Höfða og hefur notað húsið til gest- amóttöku síðan 1970. Sjá blaðsíður 22—25. flr- Tarkowsky-myndin Fómin frumsýnd hér í næst viku: Islenzk völva bjargar heiminum Engu líkara en Tarkowsky hafi séð fyrir leiðtogafundinn, segir Thor Vilhjálmsson KVIKMYND Tarkowskys Fórnin verður frumsýnd í Reykjavík næstkomandi fimmtudag, í beinum tengslum við fund leiðtoga risaveldanna. Það voru þau Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Guð- rún Gísladóttir leikkona, sem fer með stórt hlutverk i kvikmynd- inni og Friðbert Pálsson, framkvæmdastjóri Háskólabíós sem tóku sig saman um leið og fundurinn hafði verið ákveðinn og höfðu samband við dreifingaraðila Tarkowskis í Sviþjóð. Fengu þau vilyrði fyrir því að fá að sýna myndina hér í örfáa daga vegna leiðtogafundarins. „Við brugðumst skjótt við þeg- ar fréttist af fundinum, með þeim árangri að við fáum myndina og hún verður frumsýnd hér á landi í Tónabíói næsta fimmtudag," sagði Thor Vilhjálmsson rithöf- undur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Myndin verður sýnd hér dag- ana sem leiðtogamir eru að semja um frið í heiminum, eða það von- ar maður,"-sagði Thor og bætti við: „í þessari mynd þar segir frá manni sem stendur frammi fyrir heimsendi. Hann talar við völu, sem leikin er af Guðrúnu Gísla- dóttur. Völvan býr yfir óskaplega miklum ófreskum mætti og þegar hún er komin í málið, þessi íslenska völva, þá bjargast heim- urinn. í myndinni er nefnt aðeins eitt land, og það er ísland. Það er engu líkara en Tarkowsky hafi verið forvitri og séð fyrir þennan leiðtogafund." Thor sagði að hann vonaði bara að aliar góðar vættir og heillaöfl- in sem byggju í mannssálinni gætu orkað því að það tækist að semja um það að þjarga okkur Andrei Tarkovsky. öllum, á fundi leiðtoganna hér í Reykjavík. „Ég veit ekki annað skáld meira, sem yrkir á kvikmynda- vísu, núna í heiminum," sagði Thor og riíjaði upp Tarkowsky- hátíðina hér á landi, og sagði að Reykjavík hefði verið eina heims- borgin sem hefði haft Tark- owskyhátíð á þessum tíma með öllum kvikmyndum hans og hann sjálfan sem gest. Hann sagði að eftir að Tarkowsky hefði fengið bamið sitt til sín frá Sovétríkjun- um, sem hann hafði lengi barist fyrir að fá. Þá hefði komið á dag- inn að Tarkovsky væri helsjúkur af krabbameini. „Nú hef ég þær fréttir nýjastar af honum sjálf- um,“ sagði Thor, „að læknar fínna ekki lengur vott af meininu." Thor sagðist sannfærður um að bæði heimamenn og gestir myndu notfæra sér þetta sögulega tækifæri að sjá þetta mikla lista- verk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.