Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 39 Sveiplaukur Allium stipitatum Eftirfarandi grein hefur þætt- inum borist frá Húsavíkurdeild GÍ. „Fyrir nokkrum árum var á haustlaukalista GÍ óreyndur lauk- ur að nafni Allium stipitatum, er seinna fékk nafnið Sveiplaukur. Þá um haustið var umræddum lauk plantað í garð hér við Upp- salaveginn á Húsavík. Strax vorið eftir vakti hann athygli garðagrúskara vegna breiðra og sterklegra blaða með stórum blómhnappi á legg, sem hækkaði dag frá degi. Ekki lét hann þessi hefðbundnu vorhret eða kulda á sig frá, en hélt sínu striki upp á við þar til um metra hæð var náð. Einn daginn var svo sprunginn út stór kúlulaga sveip- ur af fjólubláum ilmandi blómum, sem vöktu óskipta athygli. í upp- hafi var sveiplauknum plantað í skjólgott beð við suðurvegg og fjölgaði hann sér mikið næstu BLÓM VIKUNNAR 23 Umsjón: Ágústa Björnsdóttir árin. Fyrir tveim árum var hann stunginn upp og færður og var þá kominn fjöldi af laukum, sem voru gefnir vítt og breitt um ná- grennið. Hafa þeir búið við nokkuð misjafnar aðstæður, sum- ir í beðum svo til á bersvæði. Verður hann þá lágvaxnari en stendur sig vel. Sýnist mér af þessari reynslu að við séum búin að fá hér úrvals garðplöntu, bæði harðgerða og fallega. Eftir að blómin eru fallin, en þau standa lengi, tekur fræmyndunin við svo að sveipurinn stendur með græn- um perlukúlum allt til hausts. Ekki hef ég enn athugað hvort hann nær að þroska hér fræ til fulls, enda mun það nokkuð sein- virk ijölgunaraðferð, mun taka um flögur ár að ala upp plöntur til blómgunar. Sveiplaukurinn er á sfðasta haustlaukalista GÍ svo að þeir sem forsjálir voru í vor og pöntuðu iauka, geta glaðst af tilhugsuninni um skrautleg blóm á næsta sumri. Svanlaug Björnsdóttir. Aths. frá umsjónarmanni: Því miður brást sending frá Hollandi á sveiplauknum þetta árið, en það verða áreiðanlega gerðar fleiri til- raunir til þess að fá þennan öndvegislauk þótt síðar verði. Þá skal þeim sem þolinmóðir eru á það bent að allar Ifkur eru til þess að sveiplaukur slæðist inn á næsta frælista GÍ, fylgist með því þegar þar að kemur, því hvað eru f raun- inni Qögur ár hjá þeim sem á annað borð hafa unnun af því að rækta upp af fræi, og við vitum að þeir eru ótrúlega margir. Hér með tilkynnist að við undirritaðir lögmenn höfum opnað málflutningsstofu að Skeif- unni 17, 108 Reykjavík, 2. hæð (Ford-húsinu). Sími 688733. Jónatan Sveinsson hrl. Hróbjartur Jónatansson hdl. Kynning á WOLTZ snyrtivörum í dag kl. 14.00 - 18.00 Snyrtivöruverslunin Cossa f Engihjalla 8, Kópavogi. Förðunarmeistari farðar viðskiptavinina. Laugardagur í Kaupstað: „Nammidagur' í Veisla á meðan birgðirendast! Opiðídagkl. 10:00-16:00 ViÖ höldum áfram aö gera ökkur glaðan dag í Kaupstað - og í dag fá sælkerar á öllum aldri ýmislegt viö sitt hæfi: íspinnar frá Mjólkursamsölunni ókeypis handa öllum krökkum. Pepsi-smakk frá Sanitas ókeypis handa öllum Kaupstaöargestum. Kaffi og bakkelsi frá BrauÖ hf. ókeypis í allan dag. Súkkulaðismakk ókeypis frá Nóa og Síríusi og rjómaátsúkkulaði og stökksúkkulaöi á sérstöku kynningarverði. Og síðast en ekki sist Kaupstaðarveisla úrvillikrydduðu lambakjöti af nýslátruðu. AÖeinskr. 298.-pr.kq. Þú velur læri, hrygg eöa bóg af nýslátruðu fjallalambi, villikryddaö og tilbúiö beint / íofninn. A KAUPSTAÐUR IMJODD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.