Morgunblaðið - 04.10.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
13
Einn fyrir greifadeildina
Já, það væri ekki ónýtt að fá far
með stúlkunni þeirri ama! Eitt sinn
sáu ungir sveinar fyrir sér þokkadís
koma akandi á hvítum T-bird og
bjóð far á vit ævintýra út í nóttina.
Það var í þá daga þegar búnir voru
til undursamlegir draumabflar sem
í dag eru safngripir og fáir ef nokkr-
ir hafa komið í staðinn.
En, nú sér djarfa fyrir vonar-
bjarma í þeim efnum: Ford kynnir
í fyrsta sinn splunkunýjan
draumabfl á bflasýningunni í París,
sem stendur yfir einmitt núna.
Vignale Gilda er nafnið á gripn-
um og er hannaður sameiginlega
af amerísku teiknideildinni og þeirri
margfrægu ítölsku, sem heitir Ghia
og er í Torino. Tveggja sæta eðal-
vagn, ímynd orku, hraða og glæsi-
leika.
Með þessum bfl vill Ford sýna
hæfni sína til að smíða spennandi
og aflmikinn tveggja manna lúx-
usbfl. Að vísu fylgir sögunni að
ekki sé enn áætlað að framleiða
gripinn, en telja má víst að verið
sé að kanna viðbrögð á sýningum,
og séu þau góð, þá verði eitthvað
þessu líkt sett í framleiðslu.
Vignale Gilda verður, ef til kem-
ur, fáanleg með þrennskonar vélum
og val um lokaðan topp eða blæjur.
Við, sem um árabfl höfum látið
okkur dreyma um ævintýrabfla af
þessu tagi, við verðum bara að bíða
og vona, kannski sjáum við einn
góðan veðurdag þennan draum
koma akandi á móti okkur með
hofmóðuga hispursmey við stýrið!
Opel Omega Sedan.
í verksmiðjunni, flutninga og vinnu-
brögð þurfti að semja að nýjum
kröfum. Fjarstýrð og sjálfvirk tæki
sjá um alla samsetningu og flutn-
inga þar sem því verður við komið.
Lítil loftmótstaða
Omegan býr yfir allmörgu sem
hægt er að kalla til vitnis um háþró-
aða tækni og hagnýtingu nýjustu
vísinda. Þar ber fyrst að nefna til
lægsta loftmótstöðustuðul sem
fjöldaframleiddur fólksbfll getur
státað af: 0.28 og leggur sitt lóð á
vogarskálar spameytninnar ásamt
nýjum vélum. Þær eru nokkrar sem
völ er á, tvær fjögra strokka og er
önnur 1.8 lítra og hin 2.0. Hestöfl
þeirra eru frá 82 upp í 122. Tvær
gerðir dieselvéla eru einnig boðnar.
Þá er rúsínan: 3.0 lítra sex strokka
í Omega 3000, sem er hlaupa-
gammurinn í hópnum, 177 hestöfl!
Fjöðrunin er háþróuð með tilliti
til öryggis og þæginda. Að framan
er byggt á MacPherson kerfinu og
jafnvægisbúnaður kemur í veg fyrir
óæskilegar hreyfingar þegar hemla
þarf hastarlega. Að aftan er alsjálf-
stæð fjöðrun sem beygir hjólunum
lítillega þegar þörf er, til að bæta
rásfestu í beygjum.
Völ er á nýrri fimmgíra skipt-
ingu, handskiptri, á móti jafnnýrri
fjögragíra sjálfskiptingu með læst-
um toppgír til að nýta betur vélaraf-
lið og spara bensínið. Báðar
skiptingamar hafa yfirgímn á
toppgír, sem gefur hljóðlátari akst-
ur auk þess sem það sparar að
sjálfsögðu bensínið.
Tímanna tákn
Opel Omega er tímanna tákn í
bflaiðnaði. Gífurlegum ^ármunum
er varið til hönnunar og rannsókna,
þeir skila sér í nýjum og fullkomn-
ari bflum. Bættar framleiðsluað-
ferðir valda því, að á meðan bflamir
batna, situr verðið eftir og smám
saman verður okkur kleift að kaupa
betri og betri bfla fyrir kaupið okk-
ar.
0 'f-mapr to
itóS
iz
ALNO
INNRÉTTINGAR í
GRAFARV0GNUM
Þið ættuð að líta við og sjá með
eigin augum, vandaða ALNO eld-
húsinnréttingu. ALNO baðinnrétt-
ingu. Einnig SOGAL fataskápa, í
glæsilegri íbúð að
LOGAFOLD 20.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
OPIÐ ÞESSA HELGI
FRÁKL. 14-18
ELDHÚS
GRENSÁSVEG8
SÍMAR 84448-84414
ALNO ENGU ÖÐRU LÍKT