Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
Morgunblaöiö/Ámi Sæberg
Knut Odegárd, forstjóri Norrœna hússins (t.v.) og Sighvatur Björg-
vinsson, framkvæmdastjóri Norrænu félaganna á íslandi.
Norrænu félögin og Norræna húsið:
Norræn vika á
Vesturlandi
„í raun byggðastefna“ segir Knut 0degárd
forstjóri Norræna Hússins í Reykjavík
Áskorendaeinvígið:
Jusupov enn með
örugga forystu
NORRÆN vika cr haldin á Vest-
urlandi 3.-11. október. Að henni
standa Norrænu félögin og Nor-
ræna húsið.
„Hugmyndin er að fara út á land
með norrænt menningarefni og
sýna þar“, sagði Knut Odegárd,
forstjóri Norræna hússins, „þetta
er í raun byggðastefna, það stendur
hvergi að Norræna húsið á íslandi
eigi aðeins að þjóna Reykjavík. Við
höfum haldið svona norrænar vikur
tvisvar á ári sfðan 1984, að frum-
lagi Norrænu félaganna. í hvert
sinn sýnum við í einum landshluta
og vonumst til að klára hringinn
bráðlega.
Við reynum að senda sýningar,
tónlistarmenn og fyrirlesara.
Kostnaðinn við að koma þeim á
staðinn greiðum við, en sfðan taka
sveitarfélögin á móti þeim. Þetta
er fjárhagslega mögulegt ef að við
nýtum heimsóknir og listaviðburði
Norræna hússins við þessar vikur.“
Sighvatur Björgvinsson fram-
kvæmdastjóri Norrænu félaganna
hefur skipulagt þessar vikur í sam-
vinnu við Knut.
„Við Knut förum yfír hugsanlega
dagskrá og bjóðum sveitarfélögun-
um. Þau velja sfðan úr. Við útbúum
dagskrá og dreifum og sveitarfélög-
in kynna þetta líka hvert um sig.“
Sagði Sighvaturr.
Meðal dagskráratriða nú er sýn-
ing á málverkum og grafíkverkum
sænska listamnnsins Ulf Trotzig á
Akranesi og f Stykkishólmi, Kvik-
myndimar „Bróðir minn, Ljóns-
hjarta" og „Midt om natten“,
homaflokkurinn Luijamtama, sem
leikur verk allt frá 15. öld til vorra
tíma og Theresa Juel, þekkt sænsk
vísnasöngkona.
f Borgamesi skiptist vikan f
kvöld eftir löndum og verður þar
m.a. veggspjaldasýning á Kalevala,
fyrirlestur um Karen Blixen og sýnd
mjmdin „Jörð í Afríku".
Aðgangur að Norrænu vikunni
er ókeypis og öllum heimill.
Skák
Margeir Pétursson
Artur Jusupov heldur enn ör-
yggri forystu í úrslitaeinvígi sínu
við Andrei Sokolov um áskorun-
arréttinn á þann sem tapar
yfirstandandi heimsmeistaraein-
vígi. Þegar siðast fréttist höfðu
þessir tveir ungu Sovétmenn
teflt niu skákir af fjórtán og var
staðan 5Vz—3'/2 Jusupov í vil.
Hann nýtur þess enn að hafa
unnið fyrstu og þriðju skákimar
á svart og komist þannig í
2Ví->/t. Næstu þijár skákir urðu
jafntefli en Sokilov tókst að
minnka muninn i sjöundu skák-
inni. Það dugði þó skammt, þvi
eftir jafntefli í áttundu skákinni
vann Jusupov níundu skákina og
þarf nú aðeins tvo vinninga úr
síðustu fimm skákunum til að
sigra.
Það er athyglisvert að allra sigra
sína vann Jusupov er hann stýrði
svörtu mönnunum, enda afburðaúr-
ræðagóður vamarskákmaður. Tvo
fyrstu sigra sína uppskar hann með
frönsku vöminni, en mér er ekki
kunnugt um hvaða vöm hann beitti
í níundu skákinni.
Það er ósanngjamt hve litla at-
hygli einvfgi þessara ungu og
upprennandi skákmanna hefur
fengið, þó þeir staridi næstir þeim
Karpov og Kasparov í heimsmeist-
arakeppninni. Einvígið hefur alveg
fallið í skuggann af sviptingunum
í Leningrad, en þó verið afskaplega
skemmtilega teflt á köflum, enda
háð af tveimur meisturum sem hafa
gjörólfkan skákstíl.
Við skulum nú lfta á þriðju og
sjöundu skákir einvígisins:
3. einvígisskákin:
Hvitt: Andrei Sokolov
Svart: Artur Jusupov
Frönsk vörn
I. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3 -
Bb4, 4. e5 - Re7, 5. a3 - Bxc3,
6. bxc3 - c5, 7. Rf3 - b6,8. a4
í fyrstu skákinni lék Sokolov 8.
Bb5+ - Db7, 9. Bd3 - Ba4, 10.
h4 en hefði e.t.v. betur reynt leik
Jóns L. Ámasonar, 10. Rg5!?
— Ba6, 9. Bxa6 - Rxa6, 10. 0-0
- Rb8
Svartur hefur náð að skipta upp
á „vonda biskupnum" en það tekur
fullmikinn tíma að koma þessum
riddara aftur í spilið.
II. dxc5 — bxc5, 12. c4 — 0-0,
13. cxd5 — Rxd5, 14. Dd3 — h6,
15. c4 - Re7, 16. De4 - Rd7
Eftir 16. — Rcb6, 17. Ba3 getur
svartur ekki haldið fullu valdi á
c5-peðinu. Nú kemur fyrsta
vfsbendingin um að Sokolov eigi
slæman dag í vændum. Hann hefði
nú átt að leika 17. Hdl og hefði
þá staðið betur, en f stað þess hleyp-
ir hann svörtu drottningunni til a5.
17. Hbl? - Da5,18. Hdl - Had8,
19. Dc2
Flétta svarts ( þesaari stöðu
gullfallegt dæmi um hvemig hag-
nýta má það þegar andstæðingur-
inn er veikur fyrir á 1. reitaröðinni,
hefur láðst að „lofta út“ fyrir kóng-
inn með h3 eða g3:
19. - Rxe5!, 20. Rxe5 - Dc3, 21.
De2 - Dxe5, 22. Be3 - Rf5
Jusupov hefur unnið peð með
betri stöðu og eftirleikurinn er auð-
veldur. Að auki hefur hann samið
gott dæmi í kennslubækur framtíð-
arinnar.
23. Df3 - Hxdl+, 24. Hxdl -
Rd4, 25. Bxd4 - cxd4, 26. Dd3
- Hd8, 27. g3 - Dc5, 28. f4 -
Db4, 29. Hal - a5, 30. h4 - h5,
31. Hbl - Dxa4, 32. Hb5 - g6,
33. Kg2 - Da2+, 34. Kf3 - a4,
35. Hb6 - Kg7, 36. Hbl - Kg8,
37. Hb6 - Dal, 38. Ke2 - a3,
39. Ha6 - Db2+, 40. Dd2 - d3+
og Sokolov gafst ripp.
í fímmtu skákinni varðist Jus-
upov enn með franskri vöm og þá
sagði Sokolov skilið við 3. Rc3, en
beitti hinu trausta afbrigði 3. Rd2
og lauk þeirri skák með jafntefli. í
sjöundu skákinni gaf Jusupov síðan
frönsku vöminni frí, illu heilli, en
tefldi annað uppáhaldsafbrigði sitt,
opna afbrigðið í spænska leiknum.
7. einvígisskákin:
Hvítt: Andrei Sokolov
Svart: Artur Jusupov
Spænski leikurinn
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 -
Rxe4, 6. d4 - b5, 7. Bb3 - d5,
8. dxe5 - Be6, 9. c3 - Bc5, 10.
Dd3!?
Mun algengara er 10. Rdb2, leik-
ur Sokolovs er mun minna rannsak-
aður.
-0-0, 11. Rbd2 - f5, 12. exf6
(framþjáhlaup) — Rxf6, 13. a4 —
Bf7I?
Nýr leikur í stöðunni sem leggur
gildru fyrir hvftan: 14. axb5? —
Bg6, 15. De2 - He8, 16. Ddl -
axb5 og svartur stendur vel að vígi.
Áður hefur hér einfaldlega verið
leikið þeim látlausa leik 13. — Hb8.
14. Rg5 - Re5, 15. Dg3 - Dd6,
16. Bc2 - h6?
Það var alger óþarfí að láta af
hendi biskupaparið. í „Sovetski
sport“ bendir lettneski meistarinn
Vitolins réttilega á hinn sjálfsagða
Dagur frímerk-
isins 9. október
Frlmerkl
Jón Aðalsteinn Jónsson
Næstkomandi fimmtudag verður
Dagur frímerkisins haldinn hér á
landi. Eins og áhugamenn um frí-
merkjasöfnun vita, hefur þessi
dagur verið haldinn hátíðlegur á
íslandi síðan 1960, en með sér-
stimpli íslenzku póststjómarinnar
til nota á póst þennan dag frá 1961.
Nú eru enn tímamót á þessum degi,
því að Póst- og símamálastofnunin
gefur í fyrsta skipti út sérstaka
smáörk eða blokk með einu
frímerki.
Myndefni smáarkarinnar er sótt
í ferðabók Paul Gaimard, sem ferð-
aðist hér um land árin 1835 og
1836. Um þær mundir var ljós-
myndatæknin ekki fundin upp. Þess
vegna var ekki öðru til að dreifa,
ef menn vildu festa á pappír það,
sem fyrir augu bar, en ráða með í
leiðangursferðir drátthaga menn.
Einn slíkur var með í för Gaim-
ards, og hét hann Auguste Mayer.
Mun hann og ýmsir aðrir leiðang-
ursmenn hafa gert „skissur" eða
flýtisuppdrætti á ferðinni af því,
sem þeim þótti markvert. Síðan
fullvann Mayer myndir upp úr þess-
um frumdrögum eftir minni, enda
eru sumar myndimar harla ólfkar
því landslagi, sem þær eiga að lýsa.
Engu að síður em þessar myndir
gersemar, sem við viljum ekki vera
án, ekki sízt fyrir það, að þar er
lýst margs konar mannlífí og húsa-
skipan fyrir 150 ámm, sem ella
væri horfíð í gleymskunnar dá um
alla eilífð.
Mynd sú, sem valin var á þessa
smáörk, sýnir ferðafólk við feiju-
stað við Hvítá hjá Iðu árið 1836.
Vænti ég þess, að myndefnið veki
athygli bseði safnara og annarra.
Ef allt fer eftir áætlun, munu mynd-
ir eftir Mayer einnig sjást á
smáörkum þeim, sem fyrirhugaðar
em á Degi frímerkisins 1987 og
1988.
Söluverð smáarkarínnar er 30
kr., en verðgildi frímerkisins til
burðargjalds er 20 krónur. Mismun-
urinn, 10 krónur, rennur í sérstakan
sjóð til að efla og styrkja störf og
rannsóknir á sviði frímerkjafræða
og póstsögu og hvers konar kynn-
ingar- og fræðslustarfsemi til
örvunar frímerkjasöfnun. Er þess
að vænta, að sjóðurinn taki til starfa
alveg á næstu mánuðum.
Þröstur Magnússon hefur teikn-
að smáörkina eftir teikningu
Auguste Mayers, en sjálfur hinn
heimskunni myndgrafari Czeslaw
Slania grafíð hana. Þá er örkin
djúpprentuð hjá Joh. Enschedé en
Zonen I Hollandi. Öll þessi nöfíi em
næg trygging þess, að hér hafí sem
bezt verið að unnið. Hygg ég, að
allir íslenzkir frímerkj asafnarar
fagni því, hversu vel hefur hér ver-
ið staðið að.
Félag frímerkjasafnara hefur
haft veg og vanda af Degi frímerk-
isins síðan 1961 eða frá þeim tíma,
er sérstakur stimpill var tekinn í
notkun á þessum degi. Eins og
nafnið bendir til, er ætlunin með
Degi ftímerkisins að minna á það,
hversu frímerkjasöfnun getur bæði
verið gagnleg og skemmtileg tóm-
stundaiðja. Ekki er sízt hugsað til
unglinga f þessu sambandi.
Að þessu sinni heldur Félag
frímerkjasafnara litla frímerkjasýn-
ingu, REYKJAVÍK 86, dagana
9.—12. okt. nk. í Síðumúla 17.
Reynt verður að sýna fjölbreytni í
söfnun og þá einkum í söfnun efn-
is, sem þarf ekki að kosta of mikla
fjármuni, en veitir engu að síður
mikla ánægju. Munu þar verða teg-
undasöfn eða mótífsöfn, eins og þau
AUCUSTE MAYER FÉRJUSTAÐUR A HVlTÁ H]Á IOU I*M
DAGUR FRfMERKISINS 9. OKTÓBER 1986• VERÐ KR J0.00