Morgunblaðið - 04.10.1986, Page 25

Morgunblaðið - 04.10.1986, Page 25
og írarí^a'ds' íu\\oröna. ,r\r t>Vr\end^r Ana börn 09 gíiútlmada0* tStepP*^. ísland aldrei fengið slíka landkynningu -segir Hörður Bjarnason í Washington MIKLAR ANNIR hafa verið hjá starfsmönnum sendiráða ís- lands víða um heim, eftir að tilkynnt var að fundur Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta og- Mikhail Gobachev, Sovétleiðtoga yrði haldinn i Reykjavík 11. og 12. október. Sveinn Bjömsson, sendifulltrúi í íslenska sendiráðinu í London, sagði að mjög mikið hefði verið að gera þar, síðan tilkynnt var um fundinn. Hringt hefði verið frá ýmsum fréttastofum, bresku blöðunum og sjónvarps- og útvarpsstöðvum. Spurt hefði verið um ferðir til lands- ins, hvaða þjónusta væri fyrir fréttamenn í Reykjavík o.fl. þ.h. Einnig hefði verið beðið um ýmsar upplýsingar um land og þjóð og einn fréttamaðurinn sem hringdi hefði verið með þátt í útvarpi klukk- utíma eftir tilkynninguna um fundinn og hefði notað þar þær upplýsingar sem hann hefði fengið hjá sendiráðinu. Þá hefðu nokkrir aðilar, sem þess þyrftu við, fengið vegabréfsáritanir. Hörður H. Bjamason, sendiráðu- nautur í íslenska sendiráðinu í Washington, sagði að byijað hefði verið að hringja í sendiráðið nokkr- um mínútum eftir að tilkynnt var um leiðtogafundinn i Reykjavik og símamir hefðu vart þagnað siðan. Spurt hefði verið um hvemig kom- ast ætti til landins, hvar væri hægt að panta gistirými og hvar ætti að fá fréttamannaskilríki í sambandi við fundinn. Einnig hefðu ýmsir fjöl- miðlar beðið um viðtöl við sendi- ráðsstarfsmenn og þó nokkrir aðilar fengið vegabréfsáritanir. Mikið væri ijallað um ísland í fjölmiðlum og hefði sendiráðið gefið ýmiskonar upplýsingar í því sambandi. Margir bandarískir fréttamenn væru nú komnir til Reykjavíkur og einn þeirra sendi á hveijum morgni frétt- ir til CBS sjónvarpsstöðvarinnar þaðan. Ljóst væri að ísland hefði aldrei fengið aðra eins landkynn- ingu og í sambandi við þennan fiind. Bretland: Island og Vigdís forseti í fréttum London, frá Valdimar Valdimarasyni, fréttaritara Morgunbladsina. BRESKIR fjölmiðlar gefa nú æ me’rl gaum að íslandi eftir því ssm dregur nær fyrii- hugu tum fundi þeirra Reagins og Gorbachevs í Reykjavík. Sem dæmi um þá athygli, sem þessa dagana er vakin á Islandi, má taka umfjöllun dagblaðsins Guardian í gær, en þar birtir blaðið tvær greinar um ísland í tileftii af leiðtogafundinum. Fjallaði annar pistillinn almennt um staðarvalið og bar fyrirsögn- ina: „ísland í sviðsljósið." Var þar sagt frá viðbrögðum á ís- landi við fréttum um leiðtoga- fundinn og meðal annars vitnað til orða Morgunblaðsins, „Stærsta dagblaðs eyjarinnar", að augu heimsins muni nú bein- ast að íslandi. Með greininni birtist stór mynd af reykvískum bömum að leik á Ijöminni. Hin greinin í Guardian í gær fjallaði aðallega um forseta ís- land, Vigdísi Finnbogadóttur. Segir þar að vegna leiðtogafund- arins hljóti nafn Vigdísar brátt að verða á allra vömm. Birt er mynd af Vigdísi og sagt að henni svipi óneitanlega til Doris Day, þeirrar frægu leikkonu. Blaðið segir að sem forseti íslands sé Vigdís sett yfir 240.000 íbúa eyjarinnar, tvær milljónir sauð- fjár og 3.000 bandaríska hermenn, sem gegni störfum fyrir vamarliðið. RiQað er upp að Vigdís hafi áður fyrr lýst sig andvíga dvöl þessa vamarliðs á íslandi og hafí það dregið úr sig- urlíkum hennar við forsetakosn- ingamar árið 1980. Guardian segir það enga til- viljun að hinum fyrirhugaða leiðtogafundi hafí verið valinn staður í ríki Vigdísar Finnbogad- óttur. Heldur blaðið því meðal annars fram að Sovétmönnum sé síst á móti skapi að bæta orðstír sinn meðal íslendinga og auka áhrif sín þar norður frá, en um leið draga úr hlutverki og þátttöku íslands í NATO. Segir blaðið að Sovétmenn eigi nú þegar margvísleg efnahags- leg ítök á íslandi og sjái íslend- ingum til dæmis fyrir 90 af hundraði þeirrar olíu og bifreiða sem þeir flytji inn. Þetta stenst að vísu ekki hámákvæma toll- fræðilega útreikninga en það er ekki ný bóla að upplýsingar um ísland brenglist eitthvað í með- fömm erlendra ijölmiðla. En hvað um það, umflöllun sinni um Vigdísi forseta og ísland lýkur Guardian með því að benda á að í næstu viku muni ganga fram á sviðið hinn fyrrverandi leik- hússtjóri, Vigdís, leikarinn fyrrverandi, Ronald Reagan og Gorbachev, fyrrverandi lögfræð- ingur. Sirius, sldp Greenpeace-samtakanna, leggur í dag af stað til íslands vegna leiðtogafundarins í Reykjavík eftir viku. Það leggst að bryggju í Reykjavík og verður fljótandi blaðamannamiðstöð, að sögn Greenpe- ace. Greenpeace sendir skip sitt til íslands Lewes, Englandi. AP. GREENPEACE-samtökin senda skip sitt, Sirius, til Reykjavíkur vegna leiðtogafundarins. Það mun liggja í Reykjavíkurhöfn Orlov fær afhent áritað vegabréf Moskvu. AP. IRINA Orlov, eiginkona andófs- mannsins Yuri Orlov, fékk í gær afhent vegabréf í innanríkis- ráðuneytinu í Moskvu og var það sfðan áritað f bandaríska sendi- ráðinu. Hins vegar veit hún enn ekkert um mann sinn og kveðst ekki hafa fengið staðfestingu á þvf hvenær þau hjónin fengju að fara úr landi. Frú Orlov hefur ekkert heyrt frá manni sínum, sem hefur mátt dúsa f þrælkunarbúðum eða útlegð síðustu átta árin vegna mannrétt- indabaráttu sinnar á áttunda áratugnum. Sovézkir embættis- menn skýrðu henni hins vegar frá því að þau fengju að fara saman úr landi og George Shultz, utanrík- isráðherra Sovétríkjanna, sagði þegar hann tilkynnti um að Orlov fengi að fara til Bandaríkjanna að þau hjónin yrðu á brott frá Sov- étríkjunum 7. október. Irina sagðist hafa borgað fyrir farmiða sinn til Bandarflq'anna f fyrradag og hún ætti að sækja hann f dag og þá fengi hún lfklega að vita hvenær hún fengi að fara. Sovézka ríkisflugfélagið Aeroflot flýgur til New York á morgun og Washington á þriðjudag. Búist er við að Orlov-hjónin fari með ann- arri hvorri flugvélinni. í gær var ekki vitað hvar Orlov væri niðurkominn og kvaðst Irina ekki hafa heyrt frá honum lengi. Sovézk yfirvöld hafa þagað sem þögnin um mál Orlov-hjónanna og sovézkir fjölmiðlar einnig. sem fljótanbdi blaðamannamið- stöð, að sögn talsmanna samtak- anna. Sirius er 440 tonna skip. Það leggur upp frá Amsterdam f dag og hefur viðkomu í Aberdeen í Skotlandi á leið sinni til íslands. Þangað kemur það á sunnudag og er væntanlegt til Reylq'avíkur upp úr helgi. í tilkynningu, sem Greenpeace- samtökin gáfu út í gær, segir að þau sendi Sirius til Reykjavíkur „til þess að vera tákn vona milljóna manna um heim ailan sem vilja að leiðtogafundurinn Ieiði til raun- hæfrar fækkunar kjamorkuvopna." Samtökin skoruðu á leiðtoga stórveldanna, Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev, að gera af- vopnunarmál að aðal umræðuefni sfnu á Reykjavfkurfundinum. ðldungadeildin: Reagan borinn atkvæðum Washingtorij Jóhannesarborg, AP. BANDARISKA öldungadeildin samþykkti í fyrradag með 78 atkvæðum gegn 21 að hafa að engu neitunarvald Reagans, forseta, við því að beita Suður- Afríkustjóm efnahagsþvingun- um. Suður-Afríkustjóm segir, að áhrifa refsiaðgerðanna muni gæta langt út fyrir landa- mæri landsins. Ósigur Reagans í öldungadeild- inni er talið eitt mesta áfall, sem hann hefur orðið fyrir á forseta- ferli sínum. Til að neitunarvald hans stæðist hefðu 34 þingmenn orðið að greiða atkvæði gegn efnahagsþvingununum en upp á það vantaði 13. í yfírlýsingu frá Hvíta húsinu segir Reagan, að þótt hann sé andvígur samþykkt- inni muni stjómin fylgja lögunum eftir. í suður-afríska ríkisútvarpinu sagði í gær, að áhrifa refsiaðgerð- anna myndi gæta langt út fyrir landamærin. Kæmi það í ljós eftir viku, þegar Reagan og Gorbachev sætu á rökstólum í Reykjavík. Var tekið svo til orða, að Gorbachev kynni að velta því sér vegna úr- slita þessa máls á bandaríska þinginu hvort Reagan væri fær um að semja um eitt eða neitt í utanríkismálum. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 mlm NÆSTU 3 MÁNUÐI NANETTE NILMS JAZZDANSARI FRÁ NEW YORK JUBILATIONS DANCECOMPANY DAIMSARAR! Getum skipu- lagt sérstaka tíma fyrir ykkur undir hand- leiðslu Nanette Nilms. ILAUSIR TIMAR I: •Sjúkraleikfimi •Afríkudönsum ► Þrekleikfimi ► Leikfimi fyrir byrjendur Innritun í símum: 15103 og 17860. HÚ5t& Dans- og leiksmiðja v/Bergstaðastræti. / KRAMHÚSINU ER ALLTAF EITTHVAÐ UM AÐ VERA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.