Morgunblaðið - 04.10.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBÉR 1986
257
Meintur tilræðismaður R^jivs Gandhi, kemur fram úr felustað
sínum ogteygir hendur til himins til marks um uppgjöf. Maðurinn
er síkhi frá Punjab. Hann skaut að Gandhi þar sem hann var við
minningarathöfn um Mahatma Gandhi. Kannað er hvort maður-
inn tilheyri einhveijum hryðjuverkasamtökum síkha.
Tilræðismaður
Gandhi er síkhi
Dehlí, AP.
HINN meinti tilræðismaður Rajivs Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, var úrskurðaður í þriggja vikna gæzluvarðhald i gær. Indversk
blöð létu í ljós undrun á þvi hversu nálægt Gandhi maðurinn fékk
að athafna sig.
Tekizt hefur að staðfesta hver
byssumaðurinn er. Hann heitir Kar-
amjit Singh og er frá héraðinu
Sangrur í Punjab, þar sem miklar
róstur hafa verið. Herskáir síkhar
krefjast sjálfsforræðis og vilja
stoftia sjálfstætt ríki, Khalistan, í
Punjab. Lögregla fór fram á gæzlu-
varðhaldið til að geta gengið úr
skugga um hvort hann sé viðriðinn
einhver hryðjuverkasamtök síkha.
Tilræðismaðurinn sagðist í fyrstu
heita Mohan Desai og neitaði því
að vera síkhi, en nú er komið í ljós
að svo er og að hann reyndi að villa
á sér heimildir.
Öfgasamtök síka, víkingasveit
Kalistans, lýsti ábyrgð á hendur sér
á tilræði við Julius F. Ribeiro, yfír-
mann lögreglunnar í Punjab, í
gærmorgun. Ribeiro slapp ómeidd-
ur úr skotárás, en einn öryggis-
varða hans særðist til ólífís.
Sýrlendingi
rænt í Teheran
Var látinn laus nokkrum stundum síðar
Damaskus, Nikósíu, AP.
HÁTTSETTUM, sýrlenskum
sendráðsmanni var rænt í gær í
Teheran, höfuðborg írans, en
Iátinn laus nokkrum stundum
síðar. Útvarpið í Teheran skýrði
frá þessum atburði og einnig
sýrlenskir embættismenn.
Sýrlenska sendimanninum Iyah
Mahmoud, sem er ræðismaður Sýr-
landsstjómar í Teheran og annar
æðsti maður í sendiráðinu, var rænt
klukkan 10 að staðartíma þegar
hann var á leið heim til sín frá sendi-
ráðinu. Voru þar að verki nokkrir
vopnaðir menn á fólksbifreið og sjú-
krabifreið og óku þeir í veg fyrir
bifreið Mahmouds. Skutu þeir fímm
skotum upp í loftið áður en þeir
tróðu Mahmoud inn í sjúkrabifreið-
ina og þustu á brott.
Mahmoud var látinn laus nokkr-
um klukkustundum siðar heill á
húfí og er ekki vitað hvort íranskir
öryggisverðir björguðu honum eða
hvort samið var um lausn hans.
Sýrlendingar segja, að mannræn-
ingjamir hafi verið i þjónustu
„heimsvaldasinna og síonista" og í
íranska útvarpinu var bandarisku
leyniþjónustunni, CIA, kennt um.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ÓSKABARN EÐA
ÖSKUBUSKA ?
í tilefni af 75 ára afmæli Háskóla
íslands efnir Bandalag háskóla-
manna til opins fundar um málefni
Háskólans sunnudaginn 5. október
kl. 14.00 í stofu 1 01 í Odda.
DAGSKRÁ:
SETNINGARÁ VARP,
Gunnar G. Schram formaður BHM
FRAMSÖGUERINDI,
Frlðrik Pálsson, forstjóri SH
Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Álafoss
Þorsteinn Gylfason dósent
Að loknum framsöguerindum
verða pallborðsumræður
framsögumanns og fyrir-
spurnir.
Umræðustjóri verður Guð-
laugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari.
IÍÍ
m
Áhugamenn um háskólamál
eru eindregið hvattirtil að
komaáfundinn.
BANDALAG HÁSKÓLAMANNA
GÆÐIN OFAR ÖLLU.
Birgdir af þessum frábæru verkfærum jafnan
fyrirliggjandi.
G.J. Fossberg vélaverzlun hf.
Skúlagötu 63
Símar 18560-13027