Morgunblaðið - 04.10.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
31
er líka alveg hreint sama. Ég kalla
þig góðan að geta ráðið af textanum
að hann sé „að sunnan".
011 þessi möigu orð um lygi í „til-
skrifunum". Ein frænkan, „lygi“, að
ég væri búinn að gleyma því að við
hefðum ákveðið í samtali í sumar að
hafa það sem sannara reyndist, að
ég ætti ekki að trúa svona „vel öllu
sem menn vilja ljúga". Hvar er öll
þessi lygi? Sigurður bendir ekki á svo
mikið sem eitt atriði logið. Nema
e.t.v. þettæ Að spænimir væru fram-
leiddir fyrir sunnan en ekki fyrir
norðan. Að þeir væru ekki risavaxn-
ir, skeiðlaga og mjólkurlitir. Gott og
vel, þetta eru GG-spónamir. Hvað
með það? Þeir eru líkir Tóbí en ekki
skeiðlaga. Hvað með það? Jú og þeir
eru galvaniseraðir en ekki mjólkurlit-
ir ritar Sigurður og afhjúpar undirrit-
aðan laglega. Ha? Þetta er auðvitað
ekkert annað en hártogun hjá
Blöndumanninum, hann níðist á því
að það er málvenja að tala um mjólk-
urhvítt jökulvatn þó svo að hvert
mannsbam, þar á meðal Sigurður
sjálfur, viti ósköp vel að ekki ein ein-
asta jökulsá er í raun mjólkurhvít
þótt menn taki svona til orða. Ég
er glaður fyrir hönd Sigurðar að
hann þurfí ekki að drekka galvaniser-
aða mjólk en auðvitað hentar sá litur
miklu betur á spænina í jökulgrugg-
inu heldur en mjólkurhvítur litur. Ef
að þetta er einhver stóralygi sem
skiptir einhveiju máJi í þessu pexi
hans, þá er ég sekur maður. Dæmi
hver fyrir sig.
Allt rennur þetta bréf mitt að ein-
um ósi. Það er, að ekkert sem í bréfi
Sigurðar kemur fram, breytir nokkr-
um sköpuðum hluL Undirritaður
leyfði sér að segja nokkrar ljótar
sögur frá Blöndu og þær verstu fóm
ekki með, það má Sigurður vita.
Undirritaður leyfði sér að rita að
húkk væri lögbrot og með því væri
veiðidýrinu sýnd fyrirlitning, réttur
þess til að velja og hafna agni, sem
er tiyggður í landslögum, væri fótum
troðinn. Við þessu getur Sigurður
ekkert sagt og hann ætti ekki að
reyna það einu sinni ef hann getur
ekki gert betur en að slengja fram
dylgjum og persónulegu níði.
Tökum dæmi um málflutning Sig-
urðar, stingum þar niður sem hann
er að „fílósófera" um Blöndu og veið-
ar í henni. „Hún verður Ld. ekki
veidd suma tíma með hinum „viður-
kenndu" sportveiðiaðferðum vegna
þess einfaldlega að áin er kolmórauð
og jafnvel þykk stundum, e.Lv. mest-
an part veiðitímans." „Suma tíma“
verður „e.Lv. mestan part veiðití-
mans“ í sömu setningunni. Hvort á
að standa, Sigurður? Og er ekki þessi
lýsing mannsins út af fyrir sig ærin
ástæða til að endurskoða hvort að
það eigi að veiða á stöng í þessu
gruggi?
Jú, undir lok „tilskrifanna" reynir
Sigurður að gera mig að málsvara
netaveiða vegna þess að ég læt þá
skoðun í ljósi að nær væri að veiða
í net, löglega, en að húkka og bijóta
þar með landslög flesta daga veiði-
tímans. Síðan spyr hann kostulegæ
„Heldur þú í alvöru að laxinn í
Blöndu, ef hann mætti ráða, myndi
fagna því að vera drenginn á land
vonlaus með stóran maðköngul niður
í koki í stað vonar um að sleppa með
þrisvar sinnum minni krækju í ba-
kugganum?" Væntanlega vildi
Blöndulaxinn vera laus við hvort
tveggja ef hann mætti ráða, en ég
ætla engan lax svo heimskan að
hann vildi ekki eiga valkostinn hvort
hann biti á agn, eða þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því að fá allt í einu
stál í bakið eða kviðinn.
Niðurlag „tilskrifanna" er sér
kapítuli en það er líklega best að
Sigurður hætti að lesa bækur mínar
heldur en að bjóða hættunni heim
að vera hafður að aula með hugsan-
legum lygasögum. Maður veit aldrei
hvað verið er að matreiða ofan í
mann, Sigurður, satt er það. Annars
læt ég mér það í léttu rúmi liggja
þótt Sigurður treysti sér ekki í bæk-
umar meir. Þær voru nefnilega
skrifaðar fyrir stangveiðimenn og að
mínu viti fylla ekki þann flokk menn,
sem mæla húkki bót, veija það með
kjafti og klóm og stunda það leynt
og ljóst.
P.s. Svo var það vægast sagt
ómaklegt, Sigurður, að draga Stang-
veiðifélag Reykjavíkur inn í forarp-
yttinn þinn. Það hefði verið nær að
þú kvartaðir við þá beint, eða í það
minnsta leiddir einhver rök að ásök-
unum þínum í þeirra garð um illa
umgengni. Eða felst kannski verri
umgengni eftir að Reykvíkingar fóru
að koma í Blöndu til veiða í því að
þeir kunna ekki eins vel til verka í
ánni? Eða er það af því að þið „vörpu-
legu heimamenn" viljið sitja einir að
blóðvellinum ykkar? En þetta undir-
beltisskot þitt á SVFR var svo sem
eins og allt annað í „tilskrifunum".
Ég læt vera að enda þetta með
„bestu kveðjum" og vona að ég heyri
aldrei aftur frá þér.
Höfundur er blaðamaður á Morg-
unblaðinu.
Þrjú fiskiskip
seldu erlendis
ÞRJÚ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn í Bretlandi og Þýzkalandi á
finuntudag. Meðalverð var frá
44,17 krónum fyrir karfa upp í
61,48 fyrir þorsk. Samtals seldu
skipin fyrir um 22 milljónir
króna.
Karlsefni RE seldi 238,7 lestir,
mest karfa í Cuxhaven. Heildarverð
var 10.542.000 krónur, meðalverð
44,17. Gullver NS seldi 163,2 lestir
í Hull, mest þorsk. Heildarverð var
10.035.100 krónur, meðalverð
61,48. Loks seldi Lyngey SF 29
lestir, mest þorsk í Hull. Heildar-
verð var 1.558.700 krónur, meðal-
verð 53,67. Ekki var landað í
Grimsby í gær vegna ósamkomu-
lags við löndunarkarla þar.
Kaffidagxtr Eyfir ðingaf élagsins
ÁRLEGUR kaffídagur Eyfírð-
ingafélagsins í Reykjavík verður
Fólk í fréttum:
Leiðrétting
í GREIN þáttarins Fólk í frátt-
um, um heimsókn Ruth Wathne
Hetland til Seyðisfjarðar sl.
þriðjudag, brenglaðist myndar-
texti. Sagt var að bautasteinn
hefði verið reistur i minningu
bróður hennar, en þar átti að
standa afabróður. Þá var vitnað
í grein norsks dagblaðs þar sem
sagði að Ruth væri þremenningur
við Wathne-systumar, en hið rétta
er að faðir þeirra, Stefán, og Ruth
voru þremenningar.
á Hótel Sögu sunnudaginn 5.
október næstkomandi. Allir Ey-
fírðingar og gestir þeirra eru
velkomnir og þeir, sem eru 67 ára
og eldri fá kaffi og með því endur-
gjaldslaust.
(Fréttatilkynning)
Leiðréttíng
í texta með baksíðurmmd í gær er
sagt, að myndin sé af Isleifi Sumar-
liðasyni skógræktarstjóra. í þessari
setningu eru tvær villur. í fyrsta
lagi er ísleifur ekki skógræktar-
stjóri, heldur skógarvörður að
Vöglum og í öðru lagi er myndin
ekki af lsleifí, heldur Jóhannesi
Gíslasyni. Beðizt er velvirðingar á
þessum mistökum.
Orator
tekur við
Kreml
BREYTINGAR verða á
rekstri veitingahússins Kreml
í dag þegar Orator, félag
laganema, sest þar við stjórn-
völinn.
Orator rak dansleikjahald á
Hótel Borg um tíma, en hefur nú
flutt sig um set við Austurvöll. í
fréttatilkynningu frá félaginu segir
að tilgangurinn með dansleikja-
haldi þessu sé að standa straum
af kostnaði við starfsemi félagsins,
s.s. bóka- og tímaritaútgáfu, lög-
fræðiaðstoð fyrir almenning,
sjónvarpsþætti o.fl.
Orator ætlar fyrst og fremst að
höfða til stúdenta og annarra
framhaldsskólanema með skemmt-
anahaldi þessu, en tekið er fram í
tilkynningu_ félagsins að allir séu
velkomnir. í niðurlagi fréttarinnar
segir að lögð verði áhersla á góða
tónlist og þægilegt umhverfi, enda
vonist laganemar til þess að með
starfrækslu Kremlar glæðist
skemmtanalíf borgarinnar.
BMW 316 '83, sportlegur og vel Willys CJ7 ’84, einn með öllu,
með farinn, ekinn 50.000. Spar- t.d. leðurinnrétting, sjálfvirkur
neytinn og snöggur. hraðastillir, laest drrf aftan og
framan hljómtæki, veltigrind,
renndar álfelgur, spil, 5 gíra. Til-
valin gjrf handa konunni.
ATH: Getum útvegað góða og vel með fama
bíla frá Þýskalandi og Bandaríkjum
N-Ameríku.
Frúin hlær í betri bíl frá bílasölu Guðfinns
Lítill japanskur jeppi. 4WD, hátt
og lágt drif. Handlæst drif aftan
og framan.
Tilvalinn í dótakassann.
Benz 280 SE, 1980 með öllu, t.d.
sjálfvirkur hraðastilli. Einn eins
og Gorbi vill hafa hann.
FYRSTA
SINN
Á ÞESSU HAUSTI
höldum við húsgagnasýningu á sunnudegi milli
í dag.sunnudag.milli kl. 13 — 17 húsgagnasýning
Og opið hús.
Notið þetta tækifæri til að skoða stærsta hús-
gagnaúrval landsins.
(h húsgagnaSiöllín
HÚSCÖCN
BILDSHOFÐA 20-112 REYKJAVIK 91 -681199 og 681410