Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 52

Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 tmim n j=g vdtc^ þér'er'tolt- Okkur er öLLum kal-t." B zrlf ... að vita hvaðþú vilt TM R«g. U.S. Pat. Ott.—all rtghts reserved 01986 Los Angeles Tlmes Syndicate Tii hamingju mnmmn Nú ertu orðin barnapíaí Áður en við förum að ræða launahækkunina vil ég spyija þig, hvað starfar þú hér við fyrirtækið? HÖGNI HREKKVISI rÖKKUM PAPA IMN ... pAP SR, AFAl>euSPA<5U«. LöeeE-ÖLOSTJORAMS.'' íþróttavöllurinn i Laugardal. Völlinn í Laugardal á að stækka Velvaknadi góður. Erlend landslið, sem hingað hafa komið að undanfömu, hafa kvartað yfir því að völlurinn f Laugardainum sé þröngur. Stærð knattspymuvallarins tak- markaðist í upphafí við hlaupa- brautina, sem umlykur hann, og er 400 metra löng. Nú er orðið fátítt að keppni í fíjálsum íþróttum fari fram á þessum leikvangi, því eftir að Valbjamarvöllur kom til hafa ftjálsíþróttamót verið haldin þar. Ekki er þvf lengur þörf fyrir hlaupa- brautina á vellinum og áhorfenda- stæði og stúka á Valbjamarvelli virðast ekki eiga í neinum vandræð- um með að rúma áhorfendur á fijálsíþróttamótum. Tillaga mín til forsvarsmanna íþróttamála hjá borginni er sú, að knattspymuvöllurinn í Laugardaln- um verði stækkaður. Með því mundi þrennt vinnast. Leikurinn sem slfkur færðist nær áhorfendum og ætla mætti að breiðari völlur skil- aði betri knattspymu, þar sem hæfíleikarfkir einstaklingar fengju betri möguleika til þess að njóta sín. í öðm lagi opnaðist sá mögu- leiki til þess að færa mörkin dálftið úr stað, en eins og kunnugt er vill grasið gefa sig, þar sem álagið er mest, framan við mörkin. Þar er því venjulega drullusvað í rigning- artíð og þarf reyndar ekki votviðri ta. Ég vona að þú komir þessari bendingu á framfæri og að íþrótta- forystan hjá borginni, sem verið hefíir með daufasta móti að undan- fömu, hrindi henni í framkvæmd. Kristján Benediktsson Víkveiji skrifar Fyrir nokkmm vikum átti Víkveiji leið um lítið fjallaþorp f austurrfsku Ölpunum. Eins og jafnan, þegar komið er á þær slóð- ir eða svipaðar, annars staðar f Mið-Evrópu, tekur ferðamaður fljótt eftir því, hvað þessum þjóðum tekst vel, að varðveita menningu sfna og tungu og hvemig þeim hef- ur tekizt að því er virðist að útiloka gersamlega áhrif þeirrar amerísku popmenningar, sem flæðir yfír hinn vestræna heim. Ensk tunga heyrist ekki og fáir skilja hana. Útverðir þessarar pop- menningar á borð við MacDonalds veitingastaði em ekki til, ensk og amerísk blöð og tímarit em ekki tiL Ef um er að ræða sjónvarpsefni frá enskumælandi löndum er það allt með þýzku tali. Matarræði er hefðbundið fyrir þetta svæði og hefur ekki orðið fyrir áhrifum af matarmenningu Bandarfkjamanna. Sjálfsagt á þetta við um sveita- þorp um alla Mið-evrópu, hvort sem þau em þýzk, austurrísk, frönsk, eða svissnesk. Auðvitað hefur þess- um þjóðum ekki með sama hætti tekizt að útiloka ensk-amerísk áhrif frá stórborgunum. Þau em þar samt víða í lágmarki. Óneitanlega verður íslendingur sem ber þessa stöðu mála saman við framvinduna hér hjá okkur hugsi. XXX Oskaplega er Víkveiji orðinn þreyttur á þeim kjaftagangi, sem hvín í eymm í útvarpsstöðvum á borð við Bylgjuna og rás 2 daginn út og daginn inn. Er þetta flölmiðla- byltingin?! Sunnudagsmorgun einn fyrir skömmu hlýddi Víkveiji á sam- tal útvarpsmanns á Bylgjunni og afgreiðslustúlku f Kaffívagninum. Spumingar útvarpsmannsins sner- ust um það, hvers konar samlokur væm á boðstólum í kaffivagninum, hvort það væm venjulegar samlok- ur eða langlokur, hvað væri í þeim o.sv. frv. Inn á milli spuminga og svara heyrðust ógurleg hlátrasköll í útvarpinu af einhveijum ástæðum. Við þetta bætist svo, að fjöl- breytnin f dægurlagatónlist er bersýnilega ekki meiri en svo, að það er alltaf verið að spila sömu lögin aftur og aftur. Vel má vera, að stór hluti þjóðarinnar njóti þess- arar tónlistar út í yztu æsar en jafíi vist er hitt að stór hluti hennar þolir illa þetta stöðuga garg og lok- ar þá að sjálfsögðu fyrir. Eftir því, sem útvarpsstöðvum af þessu tagi Qölgar verður sú krafa áreiðanlega háværari að aukinn verði flutningur á sígildri tónlist í útvarpi og vandað útvarpsefni verði meira áberandi f dagskrá a.m.k. Rfkisútvarpsins. XXX Leikrit Ragnars Amalds, alþm., Uppreisn á ísafirði, hefur hlo- tið góðar viðtökur gagnrýnenda flestra ef ekki allra dagblaðanna og er það býsna óvenjulegt. Þetta er líflegt og skemmtilegt leikhús- verk og uppsetning þess vönduð enda leikstjórinn Brynja Benedikts- dóttir, sem hefur verið einn frum- legasti leikstjóri okkar um árabil. Það er óhætt að hvetja fólk til þess að eyða kvöldstund í Þjóðleikhúsinu til þess að horfa á þetta leikrit. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til - eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, em ábendingar og orðaskipti, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfii, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.