Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 Fræðslumynd um fíkniefni: Borgarstjóri fer fram á stöðvun framleiðslunnar DAVÍÐ ODDSSON borgarstjóri hefur farið fram á það við Fjólmiðlun- ar og kynningarþjónustuna Tákn sf. að stöðva frekari tökur á fræðslu- mynd um ávana og fíkniefnaneyslu sem fyrirtækið er að framleiða fyrir hönd Reykjvíkurborgar. Kostnaður við gerð myndarinnar er tvö- fait hærri en áætlað hafði verið. Málið verður kynnt í borgaráði n.k. þriðjudag og tekin ákvörðun um framhaldið. Að sögn Önundar Bjömssonar framléiðanda myndarinnar hefur kynningarþjónustan þó ákveðið að halda tökunum áfram. „Við gerum út á guð og gæfuna þar til annað kemur í ljós," sagði Önundur. Upp- hafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á tvær milljónir og þrjátíu þúsund krónur, en í samráði við framleiðend- ur var talan skorin niður í 1750 þúsund krónur. Samkvæmt nýrri áætlun er kostnaðurinn orðinn tæpar fjórar milljónir. Ástæður fyrir aukn- um kostnaði kvikmyndarinnar sagði hann m.a. þær að myndin hefði lengst úr 30-35 mínútum í a.m.k. 45 mínút- ur og kostnaður við kvikmyndatökur verið meiri en búist hafði verið við. Isfilm hefur séð um kvikmyndatökur fyrir hönd Tákn sf, leikstjóri kvik- myndarinnar er Andrés Sigurvinsson og kvikmyndatökumaður er Þor- steinn Jónsson. Reykjavíkurborg fór af stað með gerð þessarar kvikmyndar í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar, og er ætlunin að með myndinni verði unnið forvarnarstarf á sviði fíkniefna- neyslu unglinga. Pétur B. Lúthersson húsgagnaarkitekt með sýnishorn af hönnun sinni Ný íslensk skrifstofu- húsgögn á markaðinn Sigurður K. Kolbeinsson ásamt fulltrúum húsfélaganna að Hrafnhólum 2-4, þeim Elíasi Skúlasyni og Sigrúnu Sigurðardóttur Einn myndlykill á hvert fjölbýlishús: 24 íbúðir í Hrafnhólum sameinast um einn lykil FYRSTI samningurinn, sem Stöð 2 gerir við húsfélög fjöl- býlishúsa um notkun á einum myndlykli fyrir allar ibúðirnar innan hússins, var undirritaður á föstudaginn. Það voru full- trúar húsfélaganna að Hrafn- hólum 2-4 sem gengu frá samningnum fyrir hönd 24 íbúðareigenda, 12 í hvorum stigagangi. Sigurður K. Kolbeinsson, áskriftarstjóri Stöðvar 2, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta fyrirkomulag hefði notið vinsælda og linnti varla pöntunum eftir að ákveðið hefði verið að bjóða upp á einn myndlykil fyrir hvert fjöl- býlishús - og væru vel á annað þúsund íbúðir fjölbýlishúsa búnar að panta. Sigurður sagði að alls væru komnar á sjötta þúsund ly- klapantanir og þar af væru u.þ.b. 4.000 fjölskyldur á biðlista. Bið- tíminn er nú rúmur mánuður, en nokkru styttri fyrir íbúðareigend- ur fjölbýlishúsa. NÚ ERU komin á markað hérlendis ný íslensk skrifstofuhúsgögn. Þau hafa hlotið heitið VIVA og er hönnuður þeirra Pétur B. Lúthersson húsgagnaarkitekt. Húsgögnin eru almenningi til sýnis í versluninni Epal hf. í Síðumúla 20, Reykjavik, og verða þau til sölu þar einnig. Framleiðandi er Smíðastofa Eyjólfs Eðvaldssonar i Reykjavík. í VTVA-húsgögn eru notaðar staf- og stillifætur. Þeir litir, sem valdir plötur úr gegnheilu tré sem lagt er þykkum spæni. Þá er lögun borðanna nýstárleg og má tengja þau saman á ýmsan máta, segir í fréttatilkynn- ingu. Þá eru gerðar ráðstafanir fyrir lögnum í borðum.í borðum eru stálskúffur og sérhannaðar höldur hafa verið á VIVA, einkennast af gráhvítum tónum. Velja má um ýmsa liti í lagnastokkum til þess að tengja borðin öðrum búnaði á skrifstofunni svo sem áklæði á stólum eða glugga- tjöldum þannig að úr verði samræmd heild. Framleiðsla á kindakjöti um 700 tonn yfir samninga ÚTLIT er fyrir að kindakjöts- framleiðslan í haust verði um 12.500 tonn, 700 tonn yfir það magn sem ríkið hefur tryggt bændum fullt verð fyrir sam- kvæmt gildandi búvörusamningi. Frumvarp um breyttan hámarkshraða: Brýnna að setja viðurlög við því ef ekki eru notuð bílbelti - segir Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs PÁLL Pétursson, þingmaður Framsóknarflokks, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á umferðarlögum. I frumvarpinu er lagt til að hámarkshraði á þjóðvegum verði 80 kílómetrar á klukkustund og 90 kílómetrar a klukkustund þar sem vegir eru bestir og öruggastir. Hraði í þéttbýli skuli sem fyrr vera mestur 50 kílómetrar. „Eins og Páll bendir á í greinar- gerð með frumvarpinu þá er endurskoðun umferðarlaga í und- irbúningi og stjómarfrumvarp þess efnis verður væntanlega lagt fyrir þingið í þriðja sinn í ár. Páll segir síðan að nauðsynlegt sé að Alþingi taki strax af skarið varð- andi ökuhraðann. Þessi orð hans harma ég því hann er í þeirri aðstöðu sem þingflokksformaður annars stjómarflokksins að geta haft áhrif á það hvenær ný um- ferðarlög verða samþykkt, en virðist hafa ákveðið að svo verði ekki á þessu þingi", sagði Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs. Óli sagði að í umferðarlaga- frumvarpi stjómarinnar væru mörg atriði brýnni en breyting á hámarkshraða, t.d. ákvæði um sektir ef bílbelti eru ekki notuð. „Frumvarpið gerir einnig ráð fyr- ir því, eins og frumvarp Páls, að hámarkshraði á vegum með bundnu slitlagi verði 80 kflómetr- ar og ég get tekið undir rök Páls fyrir hærri mörkum", sagði Óli. „Það er vissulega rétt að bílar og vegir eru mun betri en var þegar fyrri ákvæði voru sett og það eru ákveðnir vegkaflar þar sem hægt væri að hugsa sér 90 kflómetra hraða. Mér fínnst hins vegar að þá sé það algjört skilyrði að tvær akreinar séu í hvora átt, en því miður eru slíkir vegir einungis í þéttbýli." Nú gildir sú regla að ekki má aka greiðar en á 70 kflómetra hraða á þjóðvegum. í greinargerð með frumvarpi Páls segir að nú- gildandi ákvæði um 70 kflómetra hámarkshraða á þjóðvegum landsins séu löngu úrelt og sé ókleift að framfylgja þeim og veg- farendur virði þau ekki. „Vega- kerfí landsins hefur tekið algjörum stakkaskiptum síðan ákvæðin um 70 kflómetra hám- arkshraða voru lögfest og örygg- isbúnaður bifreiða er nú allur annar og betri en þá var og þeir bílar sem nú eru í notkun eru gerðir fyrir mun meiri ökuhraða en nú er lögleyfður," segir í grein- argerðinni. Og áfram er haldið: „Eðlilegt er að reglur um há- markshraða séu breytilegar eftir ástandi vega og aðstæðum. Flest- ar hinna nýrri stofnbrautir lands- ins, þar sem landslag leyfir, eru hannaðar fyrir ökuhraða sem er mun meiri en hér er lagður til.“ Óli H. Þórðarson kvaðst vera algjörlega sammála því sem segir í greinargerð Páls að það sé höf- uðatriði varðandi umferð að akstri sé ætíð hagað í samræmi við að- stæður og að fyllsta öryggis sé gætt. „Það er einnig rétt hjá Páli að mjög misjafn ökuhraði vegfar- enda á sama vegarkafla sé mjög háskalegur og löngu tímabært að endurskoða ákvæði um 45 kíló- metra hámarkshraða bifreiða sem draga festi- og tengivagna. Það er þó algert grundvallarskilyrði ef hámarkshraði er aukinn, að okkur takist að halda nýju regl- umar. Ef áfram er liðið að ekið sé yfír löglegum hraða þá eykst hætta af slíku athæfí auðvitað eftir því sem hraðinn er aukinn.“ Framleiðsla þessi er um 300 tonnum meiri en var í fyrra og felst það einkum í aukinni slátr- un fullorðins fjár. Aukinn meðalfallþungi dilka vegur upp á móti fækkun dilka. Sauðfjárslátrun er lokið víðast hvar, en uppgjöri þó óvíða lokið. Samkvæmt áætlun um slátrunina í haust, sem lögð var fram á Fram- leiðsluráðsfundi fyrir skömmu, verður slátrað tæplega 730 þúsund dilkum í allt og er áætlað kjötmagn rúmlega 10.500 tonn. Er þetta 12—13 þúsund dilkum færra en síðasta haust en kjötmagnið það sama vegna þess að meðalfallþungi dilkanna í haust er um kílói betri en í fyrra. Áætlað er að meðalfall- þunginn verði um 15,30 kg. Aukning kjötframleiðslunnar liggur í stóraukinni slátrun fiillorðis fjár, og munar þar 12-13 þúsund frá fyrra ári og kemur út úr því 300 tonnum meira af kjöti en í síðustu sláturtíð. Gert er ráð fyrir að slátr- að verði rúmlega 87 þúsund full- orðnu á móti 74 þúsundum í fyrra. Ut úr þessu koma um 1.970 tonn af kjöti á móti 1.640 tonnum í fyrra. Þegar litið er á áætlun um slátr- unina í haust í heild samkvæmt ofanrituðu og borið saman við haus- tið 1985 kemur í ljós að sláturfjár- fjöldinn er svipaður í heildina, en kjötmagnið um 300 tonnum meira. í búvörusamningi ríkis og bænda fyrir verðlagsárið 1987-88 er bænd- um tryggt fullt verð fyrir 11.800 tonn af kindakjöti en jafnframt gerðar ráðstafanir sem miða að minnkun framleiðslunnar um 800 tonn á því ári, eða niður í 11.000 tonn. Til að það markmið náist þarf framleiðslan að dragast saman um 1.500 torin á milli ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.