Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 1i ■ I Skemmtilegt að fá hvatningu til að syngja erlendis Garfiar og Ólöf Kolbrún í II Trovatore í íslensku óperunni 1986. sífellt verið að styrkja sig sem söngvara, smíða sinn eigin tón og stíl. Jón Ásgeirsson tónskáld og tón- listargagnrýnandi Morgunblaðsins sagði í samtali að hann hefði alltaf haldið því fram að Garðar og Ólöf Kolbrún og fleiri góðir íslenskir söngvarar sem meðal annars hafa staðið fyrir íslensku óperunni, stæðu undir sýningum sem gengju hvar sem væri í heiminum þar sem fyllstu kröfur væru gerðar. „Garðar er feiknalega öruggur söngvari," sagði Jón, „góður tónlistarmaður og kórstjóri með góða menntun frá Bretlandi. Hann hefur mjög sterka túlkun og getur gefið mikið. Rödd GARÐAR CORTESMUN VÆNTANLEGA SYNGJA FYRIR KARAJAN OG ÍÓPER UHÚSUM í EVRÓPU Á NÆSTUNNI hans er gott dæmi um mjög góða þálfun og afbragðs nýtingu og það má segja að Garðar hafi sjálfur skapað sig sem söngvara. Margir góðir söngvarar eru ef til vill meiri náttúrutalent en Garðar, en ná ekki sömu nýtingu. Það er engin spum- ing að fái Garðar tækifæri til að syngja fyrir rétta menn á réttum tíma, þá hefur hann allt sem til þarf.“ Sú kynningarherferð sem stend- ur yfir um þessar mundir á söngvar- anum Garðari Cortes hófst í sambandi við sýningar á II Trova- ore í Gamla bíói. Breskur umboðs- maður kom á síðustu sýningu II Trovatore sl. vor og varð svo hrifinn af túlkun Garðars á Manrico, að hann setti allt í gang í Bretlandi. Hann fékk hljóðupptöku með söng Garðars í 6. senunni, aðalsenu ten- órsins í óperunni, senunni sem allir bíða eftir, en þar eru sungnar tvær frægustu óperuaríur sem tenórar syngja, „Ah si ben mio“ og „Di quella pira", sem er háa caría og Pavarotti varð frægur fyrir að halda háa c í 12 sek. í þessari aríu. í sýningum II Trovatore að undan- fömu hefur Garðar hins vegar haldið háa c í allt að 17 sek. Breski umboðsmaðurinn fékk tónbönd og myndbönd með Garðari og gekk í að senda þau víða, til óperahúsa og annarra umboðsmanna, en þessi sami umboðsmaður er með annan íslenskan söngvara á sínum snær- um, Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Viðbrögð við þessari kynningar- herferð komu strax sl. sumar og meðal annars bað Skoska óperan Garðar að syngja í Tosca, en það var með of stuttum fyrirvara, því Garðar var í sýningum hér heima. Umboðsmaður Garðars vill freista þess að ná Garðari á stuttum tíma inn í sviðsljós óperahúsanna, telur það mögulegt miðað við langa reynslu sína í þessum efnum þótt samkeppnin sé býsna mikil. Hann sendi í sumar tónband með Garðari til Covent Garden og fulltrúi frá hinu kunna fyrirtæki hyggst koma til íslands til þess að hlusta á Garð- ar syngja á sýningu. Það hefur verið haft á orði af kunnáttumönn- um í tónlist að Garðar nái svo auðveldlega tónhæð að nálgist ósvífni. í haust þegar Garðar fór til London í viðtal við umboðsmann sinn hitti þannig á að meðan þeir ræddu saman hringdi annar um- boðsmaður söngvara frá Austurríki. Sá breski sagði starfsbróður sínum frá því að hjá honum væri staddur Umboðsmenn þekktra erlendra söngvara hafa að undanf örnu hvatt Garðar Cortes til að spreyta sig sem tenórsöngvara á heimsmarkaði í kunnum óperuhúsum og á síðustu mánuðum hefur aðalumboðsmaður Garðars í Bretlandi skipulagt kynningu á þessum íslenska tenórsöngvara, en umboðsmaðurinn er með ýmsa heimskunna söngvara á sínum snærum og má þar til dæmis nefna Pavarotti, Carreras, Jon Vickers og Edita Gruberova. I nóvembermánuði nk. mun Garðar meðal annars syngja fyrir hinn kunna þýska hljómsveitarstjóra Herbert van Karajan. Um árabil hefur Garðar verið í mörgfum hlut- verkum í íslensku menningarlífi, skóla- stjóri, kórstjóri, ópera- söngvari, hljómsveitarstjóri og óperastjóri, en þetta hefur þýtt að hann er að segja má hlutasöngv- ari. Þannig hefur margþætt starf ugglaust háð honum í að ná lengra sem nafn í söngheiminum erlendis, en kunnáttumenn sem best þekkja til era sammála um að þar sé sá þáttur sem sé mest spennandi og sérstæðastur fyrir þennan bjart- sýna athafnamann. Fyrir 5 árum, þegar Garðar og fleiri vora að byija með íslensku óperuna, bauðst hon- um tækifæri til að staldra við erlendis og spreyta sig fyrir heims- markaðinn, en þá mátti hann ekki vera að því, á íslandi biðu verkefni sem vora baráttumál. En á þessum tíma sem liðinn er hefur Garðar Sigrfður Ella Magnúsdóttir og Garðar Cortes í hlutverki Azucena og Manrico f II Trovatore. Garðar Cortes sem Manrico í II Trovatore eftir Verdi sem ís- lenska óperan sýnir um þessar mundir. Garðar Cortes sem Don José og Ólöf | Kolbrún 1 Harðardóttir sem 1 Micela f Carmen eftir Bizet, flutt af íslensku óperunni 1984.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.