Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 46
38ei íraímavÖM .s HUOAamwus .maAiavtuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
46
t*s--------------------------------
svarar um 2.500 hitaeiningar á dag
sér til viðurværis). Þegar veturinn
nálgast er bjöminn við fæðunám
allt að 20 klukkustundir á sólar-
hring og étur sem svarar allt að
20.000 hitaeiningum. Þetta verður
vegna breytinga í hormónafram-
leiðslu. Mikið magn tríacýlglýceróla
^Hnyndast úr því geysilega magni
kolhýdrata (sykra), sem bjöminn
innbyrðir síðla sumars og snemma
hausts (kolhýdrötin fást úr því
mikla magni grass, sem bimir
neyta).
Víkjum aftur að rannsóknum dr.
Folks.
Dr. Folk og vísindamenn hans
hafa einnig rannsakað dvala smærri
dýra með ígræddum útvarpssend-
um. Þeir hafa m.a. kannað hversu
langan tíma það tekur fyrir dýrin
; að leggjast í dvala, þ.e. ná því
' ástandi, sem við nefnum dvala.
Rannsóknir á
lífklukkum
Athuganir dr. Folks á dægur-
sveiflum ýmissa ferla, eða líffræði-
legum klukkum (lífklukkum), eru
afar áhugaverðar. Hann hefur sýnt
fram á slíkar sveiflur með útvarps-
fjamámi hvað snertir líkamshita og
hjartsláttartíðni í mönnum. Har-
vard-háskóli veitir fé um þessar
mundir til slíkra rannsókna, en von-
ast er til að unnt verði á grunni
þeirra að velja fólki sem hentugast-
an vinnutíma. Rannsóknir dr. Folks
'á spendýmm, sem em aðeins virk
á nætuma (noctumal mammals;
næturdýr), em einnig afar athyglis-
verðar og skal hér vikið nánar að
þeim.
Dr. Folk athugaði áhrif þess að
setja næturdýr f stöðuga birtu. Nið-
urstöður hans vom m.a. þær að
dýrin (hvítar mýs og hvítar rottur)
sýndu sama atferlismynstur (metið
sem fjöldi snúninga hjóls í búri
dýranna, en umrædd dýr em virk
um 9-12 klukkustundir að nætur-
lagi á sólarhring og miðast dagur-
inn við um 24 klukkustundir) og
fyrr nema hvað þau urðu virk síðar
en við eðlilegar aðstæður (þ.e.
myrkur). Stöðug og jöfn seinkun
upphafs virkni þeirra frá degi til
dags gerðist samhliða því að hraði
breytileikans fór eftir ljósmagni
(rétt er að kanna myndina, sem
fylgir grein þessari). Dýrin fylgdu
þannig svonefndri Aschoffsreglu,
sem segir dagdýr (sem virk em á
daginn) hamast meira með auknum
ljósstyrk en næturdýr hamast
minna. Rannsóknir á rottum sýndu
að seinkun sú er varð á upphafi
hamagangsins á hjóli búrs þeirra
við stöðuga birtu nam um 45 mínút-
um dag hvem. Atferlismynstrið
hófst því á sama tíma 16 dögum
síðar og ferðaðist á þennan hátt
um klukkuna.
En vom þessar niðurstöður nokk-
uð annað en skekkja - þ.e. gerist
hið sama hjá dýmm sem búa við
stöðuga birtu? Þar kom rannsókn-
arstöðin í Point Barrow til skjal-
anna, en áður hefur verið getið
einstakra birtuskilyrða þar og fyrir-
komulagi rannsókna.
Aðrar niðurstöður
í Alaska
Niðurstaða rannsókna dr. Folks
með útvarps-fjamámi nyrst í Al-
aska á villtum dýmm úti í náttúr-
unni sýndi annað. Dýr þar héldu
sinni reglulegu dægursveiflu at-
; ferlis þrátt fyrir breytingar í birtu,
sem miðaðist við um 24 klukku-
stunda sólarhring. Sennilegasta
skýring þessa er sú að dýrin meti
hvað tímanum líður út frá stöðu
sólar. Dýrin á rannsóknarstofunni
vantar einhvetja viðmiðun og breyt-
ingin þar er tilraun þeirra til að
P viðhalda næturvirkni sinni.
16*.
Mikilvægasta hlutverk útvarps-
fjamáms í dag er sennilega notkun
þess við samanburð hjartsláttartíðni
og orkunotkunar dýra í náttúmnni.
Vísindamaðurinn mun brátt geta
gert miklum mun nákvæmari at-
huganir á daglegum og árstíða-
bundnum orkubúskap margra
3pendýra. — ing.
RagnheiðurH. Olafs-
dóttír - Kveðjuorð
Háskólabíó kynnir
Þættir sem hafa farið sigurför um gjörvöll Bandaríkin. í þættinum „Knots
Landing", er fjallað um fimm hjón og nágranna þeirra í smábæ á strönd Suð-
ur-Kaliforníu, við kynnumst lífi þessa fólks, sjáum vonir og hagsmuni fléttast
og tvinnast, deilur gjósa upp, ósamlyndi, skilnuðum og jafnvel dauðsföllum.
Knots Landing er þáttaröð, sem tengist hinum geysivinsælu Dallas-þáttum. í
þáttunum eru hjónin Gary Og Valene Ewing foreldrar Lucy sem allir þekkja
úr Dallas. í Knots Landing koma fieiri fram en Ewing fjölskyldan, röð úrvals
leikara prýða hvert hlutverk. Þetta er þáttaröð sem lætur engan ósnortinn af
þeirri hamingju, kátínu og sorg sem þar ríkir.
Þættirnir koma á allar betri myndbandaleigur miðvikudag-
inn 5. nóv.
Ragnheiður Helga Ólafsdóttir
fæddist þann 6. desember 1899 í
Reykjavík.
Foreldrar hennar voru hjónin
Ólafur Ólafsson bæjarfulltrúi og
dannebr.m. f. 1831, Sigurðssonar
bónda á Ægissíðu. Seinni kona
hans var Guðrún Sólveig Guð-
mundsdóttir frá Hamri í Borgar-
hreppi, Mýrasýslu.
Olafur hafði þá fengið Skálholts-
kot í Þingholtunum. Það gerði hann
upp og í kjallara hafði hann gott
verkstæði, þar sem hann smíðaði
ýmist húsbúnað og húsgögn eða
utanum alla sem „bærinn“ þurfti
að annast. Ólafur lést 1911. Þau
hjónin eignuðust 2 böm: Carl Ólafs-
son, f. 1887, ljósmyndara, og
Ragnheiði Helgu, 1899. Móðir
þeirra lést þegar Ragnheiður var
um fermingu. Eftir lát foreldranna
átti Ragnheiður athvarf hjá hálf-
systur sinni, Valgerði Ólafsdóttur,
og Þorsteini Tómassyni jámsmið í
Lækjargötu 10.
Árið 1916 lauk Ragnheiður námi
í Kvennaskólanum og skömmu
seinna fékk hún vinnu á Landssím-
anum. Mikið af tómstundunum fór
í allskonar handavinnu og sauma-
skap, því hún hafði listahandbragð
á hveiju sem hún tók.
Árið 1925 giftist Ragnheiður
Jóni Guðmundssyni frá Kvíslhöfða
á Mýmm, kaupmanni í Borgamesi.
Jón hafði unnið, eins og þá gerðist,
við bú foreldra sinna og þess á
milli alla vinnu sem bauðst. Ungur
fór hann í Hvanneyri og síðar í
Samvinnuskólann og sjálfsnám og
bóklestur stundaði hann alla tíð,
enda margfróður og skemmtilegur.
Jón var líka djarfur og framtaks-
samur, tók sér ný viðfangsefni ef
eitthvað brást. Eitthvað fór hann
út í að stofna, með öðram, í Borgar-
nesi bifreiðastöð til fólksflutninga
og rak hana í mörg ár.
Fyrsta heimili þeirra var ekki
stórt, en snyrtimennska, gestrisni
og góðvild hjónanna settu svip sinn
á allt. Þegar við unglingamir,
frændur og vinir, komum við í Borg-
amesi vora „flatsængur" lagðar á
stofugólfið, eins margar og komust
þar fyrir. Á þessum áram urðum
við að fara um landið fótgangandi,
hjólandi eða komast á mjólkur-
bílana, spotta og spotta. Annað
þekktist ekki.
Það var dýrðlegt að hátta ofan
í drifhvít og útsaumuð bólin eftir
margra klukkustunda volk og sjó-
veiki á „Suðurlandinu".
Eitt sumar lentu hjónin í átakan-
legu bflslysi, Ragnheiður fótbrotn-
aði illa. Eftir langa og kvalafulla
legu í sjúkrahúsi missti hún fótinn.
Rósemi og þrek Ragnheiðar og
hugnæm umhyggja eiginmannsins
vora svo sterk, að líf þeirra rann
fljótlega í eðlilegan farveg og þau
nutu lífsins. Rúmlega 10 áram eftir
slysið kynntust hjónin 7 ára telpu,
sem bjó hjá móður sinni í Borgar-
nesi. Telpan fór að venja komur
sínar til þeirra hjónanna, sérstak-
lega ef móðirin tafðist. Áður en
hjónin gerðu sér grein fyrir því
vora þau bæði aitekin af umhyggju
og ást til telpunnar, þeim fannst
hún auðga líf sitt.
Mér er ekki kunnugt um það
hvað varð þess valdandi að hún kom
til þeirra sem fósturdóttir. Hún
færði þeim ómælda gleði fram á
elliár. Nokkra eftir að fósturdóttirin
gifti sig og hafði eignast mörg böm
fluttist fjölskyldan frá Borgamesi.
Hjónin bjuggu þá í húsi sínu þar
til maðurinn gat ekki hugsað einn
um þau, þá fluttu þau á Dvalar-
heimili aldraðra í Borgamesi. Þar
lést Jón fyrir 5 áram, og þann 22.!
„Knots Landing
/ '■
J rJJu
þessa mánaðar lauk þjáningum
Ragnheiðar. Vinir og ættingjar
biðja:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Petrína Kristín
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR
frá Melum,
Djúpavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á öldrunardeild Landspítalans,
Hátúni 10b.
Halldór Jónsson,
Vilborg Jónsdóttir,
Guðlaug Jónsdóttir,
Nanna Jónsdóttir,
Rósa Jónsdóttir,
Matthildur Jónsdóttir,
Sigurður Sóphusson,
Sigurjón Jónsson,
Ólafur Hannesson,
Jón H. Júlfusson,
Sýrus Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir faerum við þeim er sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmii,
LAUFEYJAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Safamýri 34.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild 2A,
Landakotsspitala, fyrir einstaka umönnun í löngum og erfiðum
veikindum hennar.
Magnús Kristjánsson,
Borgþór Magnússon,
Kristján Magnússon, Erla Jónsdóttir,
Svanfrrður Magnúsdóttir, Njáll Sigurðsson
og barnabörn.
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!